Morgunblaðið - 08.06.1986, Side 17

Morgunblaðið - 08.06.1986, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÖNÍ1986 rr r B 17 EyjabAtur öalar sæ, Latli & Sœfaxa kippir. MoiBunbiaðia/Siguixeir komast að stigunum og þeir því hrein dauðagildra ef menn duttu milli skips og bryggju. Einnig mætti gæzla vera miklu meiri við hafnir landsins. Landg-ang-ar og ljóstýra á bryggjustiga Þá hef ég mikið velt því fyrir mér hvort það væri ekki ráð að setja ljóstýru við hvem stiga. Það ætti ekki að kosta mikið, en væri mikið öryggisatriði. Og einnig tel ég I að hafnimar sjálfar ættu að eiga , landganga til þess að lána skipum. , Ég skora á menn að athuga það. Þetta em atriði sem menn verða að horfast í augu við af fullri alvöru og ekki bara láta sitja við orðin tóm. Við hér í Eyjum emm t.d. búnir , að missa tvo menn í höfnina frá I síðasta sjómannadegi. Og það er I búið að bjarga tveimur sem var hreinlega bjargað af tilviljun frá i dmkknun. Ótrúlegar úrtölur í öryggismálum Eitt gott og mikilvægt innlegg í öryggismálunum er Markúsametið. Það tók þó tímana tvo að koma því í gegn. Við hér í Eyjum tókum Markúsi strax vel þegar hann kynnti netið fyrir okkur. Við emm vanir að horfa opnum augum og jákvætt á hlutina fordómalaust og sáum strax að þama var tæki sem s var til bóta. Markús sendi strax mjög mörg net hingað. Hann barð- ist fyrir þvi að fá umsagnir og mér , fínnst, þegar litið er yfír reynslu hans í þeim efnum, að enginn hafí ■ viljað taka af skarið, þ.e. enginn sem skipti máli og réði úrslitum í ta þessu bráðnauðsynlega atriði. Sigl- ingamálastofnun lögleiddi að vísu netið en ekkert fremur en hún lögleiddi þá ýmsa hluti án þess að krefjast þes að þeir væm notaðir eða mæla neitt sérstaklega með því. Menn hafa alltof oft verið haldnir fordómum og afturhalds- semi í sambandi við nýjungar í björgunartækjum og öryggismálum sjómanna og kerfið hefur verið allt- of seinvirkt. Til sönnunar mínu máli þá vil ég vitna í bréf frá siglinga- málastjóra til samgönguráðuneytis- ins 11. júlí 1983, en þar segir um Markúsarnetið: „Siglingamálastjóri hefur þegar viðurkennt þessi björg- unamet fyrir alllöngu síðan en þannig að þau verði viðbót við hefðbundin björgunartæki í skipum. Þessara neta er ekki krafízt í ís- lenzk skip samkvæmt gildandi reglum en þau hafa þegar verið sett um borð í allnokkur íslenzk skip sem viðbótarbúnaður. Ekki er vitað til þess að netin hafi enn sem komið er verið notuð til björgunar í íslenzkum skipum. Þegar eftirlits- menn Siglingamálastofnunar ríkis- ins við ársskoðun búnaðar hafa spurt um þessi net í þeim skipum sem vitað var að þau hafí verið sett um borð í af hálfu eigenda, þá hefur oft komið í ljós að þau voru geymd á stöðum neðan þilja, sem ekki hefði verið fljótlegt að fínna þau eða taka í notkun ef þurft hefði í skyndi. Þessi staðreynd virðist benda til þess að áhafnir skipa leggi ekki mikla áherzlu á að þessi björgunar- net séu tiltæk. Þó ber einnig að hafa í huga, að staðir ofan þilfars þar sem hentugt væri að hafa bjarg- búnað eru fáir og em flestir þegar uppteknir meðal annars fyrir annan öryggisbúnað sem krafizt er að sé tiltækur skv. gildandi reglum. Að fenginni framangreindri reynslu virðist því vera vafasamt að réttlæt- anlegt sé að bæta þessum björgun- ametum við þann búnað sem þegar er krafízt samkvæmt gildandi ís- lenzkum reglum. Því er þó ekki að neita að í vissum tilvikum geta slík björgunamet komið að gagni við björgunarstörf á sjó en enn sem komið er hafa þau ekki verið notuð svo vitað sé þótt komin séu í allmörg íslensk skip.“ Tilvitnun lýkur. Þetta bréf er undirritað af þáverandi siglingamálastjóra, Hjálmari R. Bárðarsyni og sýnir náttúmlega ekkert annað en það hvílík úrtölu- mennska hefur ráðið ferðinni í þessum efnum. Sjómenn virða starf þingmannanefndarinnar Ég vil taka það fram að ég er mjög ánægður með það sem áunnizt hefur á undanfömum ámm í öiygg- ismálum sjómanna og það sem verið er að vinna að, sjálfvirka sleppibún- aðinn, þ.e. Sigmundsgálgann og eftirlíkingar hans og það er verið að vinna að mörgum góðum málum. Ég nefni gallan sem brýnt dæmi. Ég er þakklátur þingmannanefndinni, öryggismálanefnd sjómanna, fyrir fmmkvæðið sem hún hefur staðið fyrir og hefur valdið byltingu í þessum málum og ég veit að sjó- menn virða það. En það má ekki láta deigan síga, það verður að halda áfram. Oryggisfræðslan er fagnaðarefni og ég fagna nám- skeiðunum sem em haldin og verða haldin um allt land. Og ég er ánægður með Þór og það framtak Slysavamafélags íslands og fleiri aðila. Það er langt frá því að það sé búið að ná endanlegu takmarki í þessum málum og að íslenzkir sjó- menn búi við það öryggi sem þeir þurfa og eiga skilið. Það hefur mikið verið gert og mikið áunnizt, en það er mikið verk framundan. Ég hef lesið fleiri hundmð sjóslysaskýrslur, ónákvæmar og illa gerðar, og þess vegna fagna ég nýorðinni breytingu á skipan rannsókna sjóslysa og vonast til að hún haldi áfram að gefa út skýrslur a.m.k. þær, sem skipta miklu máli og menn geta lært af. Þá vil ég eindregið hvetja til þess að stöðugleikamælingar skipa verði gerðar. Þær em bráð- nauðsynlegt verk og það er brýnt að það sé farið yfír allan bátaflotann þótt ugglaust stærsti hluti hans sé f lagi hvað þetta varðar. En það verður að taka verkið í heild og ég tel það eitt af stóm málunum að skipafloti Iandsmanna verði stöðug- leikamældur og að síðan verði fylgzt með öllu í þeim efnum, áfram öllum breytingum og öllu sem breytt getur hlutfalli stöðugleika skipanna. • • Oskraði arfavitlaus niður á dekk En af því að við höfum nú rætt hér um mörg alvörumál varðandi sjómenn og þeirra starf, þá held ég að það væri rétt að enda þetta spjall á einni góðri sögu á léttu nótunum eins og siður er sjómanna á góðum stundum. Það var hér á ámm áður að Bjamhéðinn Elíasson skipstjóri og útgerðarmaður var pokamaður á togaranum Bjamarey frá Vestmannaeyjum. Þá vildi svo illa til að eitt sinn þegar trollið kom upp þá var pokinn fráleystur. Skip- stjórinn, Jón Bjöm, sem var frægur aflaskipstjóri, varð alveg arfavit- laus og öskraði niður á dekk til Bjamhéðins að á allri sinni sjó- mannstíð hefði hann aldrei séð þetta áður. Með þessum öskmm fylgdi viðeigandi bölv og ragn. Bjam- héðinn sem er þekktur fyrir hnyttin og snögg tilsvör var að binda fyrir pokann, reif sig upp undir ræðunni og kallaði upp í gluggann til Jóns Björns: „Það er þá kominn tími til aðþúsjáirþað.““ -á.j. Redring vikurgrill ánægja — án amsturs Nú er auðvelt að grilla á skömmum tíma, vik- urgrillið sér um það. Rafmagn hitar upp vikur og fitan drýpur á heitan vikurinn — útkoman ósvikið glóðargrill. KJÖLUR SF. Hverfisgötu 37 símar 21490 - 21846 Sumrná -pc Námskeiðið kynnir vel öll grundvallaratriði við notkun IBM-PC og algengan hugbúnað. o Dagskrá: • NotkunarmöguleikarlBM-PC • PC-Dos stýrikerfið • Ritvinnslaá IBM-PC • Töflureiknirinn Multiplan • Gagnasafnskerfið D-base III • Bókhaldá IBM-PC I Tími: 14. og 15. júníkl. 10-12 og 13-17. Tölvunámskeið fyrir fullorðna Gagnlegt og skemmtilegt byrjendanámskeið fyrir fólk á öllum aldri. Námskeiðið kynnir vel notkun tölva og tækja sem tölvan stjórnar. Nemendur fá innsýn í notkun ritvinnslu, töflureikna og gagnasafnskerfa. Tími: 16., 18., 23. og 25. júníkl. 19.30-22.30. Kennt er á Apple lle og IBM-PC. Ennfremur fá nem- endurað kynnast undratölvunni Macintosh. Innritun í símum 687590 og 6867S0 Velkomin á sumarnámskeið! LMTölvufræðslan Ármúla 36, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.