Morgunblaðið - 08.06.1986, Side 21

Morgunblaðið - 08.06.1986, Side 21
20 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 1986 4- MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 1986 B 21 BOLUNGARVIK Sjómaður frá 11 ára aldri ViÖtal við Vagn Hrólfsson í Bol- ungarvík Vagn Hrólfsson skipstjórí og útg-erðarmaður á mb. Hauki ÍS 122 frá Bolungarvík, var aðeins 11—12 ára þegar hann hóf sjómennsku hjá Elíasi Guðbjartssyni á trillunni Fríðu. En eftir því sem hann segir sjálf- ur hóf hann ekki alvöru sjómennsku fyrr en hann var orðinn 14 ára. Upp úr áramótunum 1954—1955 byijuðu rækjuveiðar frá Bolungar- vík á mb. Öldunni, sem Sveinn Sveinsson á Isafirði átti. Með Sveini var Guðmundur Rósmundsson og var Vagn ráðinn sem háifdrætting- ur. Vagn var orðinn sjóveikur eftir að þeir lögðu af stað og hafði Sveinn á orði við Guðmund að rétt væri að snúa aftur með drenginn, því það gæti aldrei orðið neitt gagn honum til sjós. En það fór öðruvísi því Vagn, sem nú er 48 ára, hefur verið á sjó alla tíð síðan og reyndar tók Sveinn miklu ástfóstri við drenginn og heimsótti hann oft til Bolungarvíkur næstu árin. Þegar Vagn var 15 ára fékk hann hæsta vinninginn í Happ- drætti Háskólans. Þegar hann fór til Einars Guðfínnssonar að sækja vinningsupphæðina sagði Einar: „Strákur, þú kaupir þér bát.“ Einu eða tveimur árum seinna kaupir hann sé svo trillu suður í Ólafsvík, hún var tæp þrjú tonn og hét Ýmir. Síðan hefúr hann verið á eigin bát- um að mestu og síðan 1978 á núver- andi Hauki sem er um 30 tonn. En sjómennskan er í blóðinu, hann átti annan Hauk, 5 tonna, í tvö ár eftir að hann fékk þann sem hann er nú á og þá réru með honum tvö bama hans, Hrólfur 18 ára og Margrét 16 ára. En Vagni er ýmislegt annað til lista lagt en að veiða þorsk og ýsu. Hann er áhugasamur tónlistarmað- un. Ég var bara smápatti þegar ég fór að sitja hjá harmonikkuleikur- unum á böllunum í Víkinni og gaf þeim jafnvel gotterí til að fá að Morgunblaðið/Olfar Ágústsson Vagn Hrólfsson til hægri á leið norður á Hesteyri vorið 1983ásamt Guðmundi Þórðarsyni byggingarmeistara á Isafirði til að undirbúa mót sjóstanga veiðimanna um sumarið. í baksýn er Bolungarvík og fjallið Ernir. standa nær. Fyrsta hljóðfærið mitt var munnharpa, en strax og ég var farinn að hafa tekjur keypti ég mér harmoniku, þá 14 ára. Ég gat aldrei fengið neina til- sögn, en var samt farinn að spila á böllum innan við tvítugt. Á árun- um 1957—1958 spilaði ég í hljóm- sveit með þeim Birgi Bjamasyni, Jónatani Sveinbjömssyni og Kristni Ámasyni og með Siggu Maggý fyrir söngvara. Síðar kom svo Sigga Nóa sem píanisti og þar sem við lékum oftast í Félagsheimilinu voru við bara kölluð hljómsveit hússins. Einhvem tímann á þessum árum fékk ég mér saxófón og spilaði á hann ásamt harmonikkunni.Ég ætlaði að nota tækifærið tilað komast í tónlistarskóla hjá Óla Kitt með saxófóninn, en þar sem ég var alltaf á sjónum varð lítið úr náminu. Tvö sumur spilaði ég svo með Hagalín Guðmundssyni frá Ingj- aldssandi og Gunnari Hóim frá ísafírði. Við sþiluðum á bændahá- tíðum í Djúpinu á Flæðareyri og HesteyriÝ Jökulfjörðum og í Aðal- vík. Það var mjög skemmtilegur tími. En eftir því sem krakkamir mínir fóru að stálpast, hafa þau lært að spila. Hrólfur spilar á harmoniku, Soffía á hljómborð, Haukur á trommur og Pálína syngur. Við höfum nú aldrei fengið okkur neitt nafn, en gámngamir kalla okkur Vagn Hrólfsson og co. Vagn var á 5. ári þegar hann missti föður sinn, en hann fórst af mb. Svandísi frá ísafírði f mars 1943. Þá var hann sendur í fóstur til fóstursystur föður hans, Soffíu Vagnsdóttur, og manns hennar, Guðmundar Jóns Guðmundssonar að Hesteyri. Þar var hann til 7 ára aldurs þegar skólaganga hófst, þá flutti hann til móður sinnar, Soffíu Bæringsdóttur og stjúpa síns Þórð- ar Eyjólfssonar í Bolungarvík. En hann var samt á Hesteyri á hverju sumri þar til gömlu hjónin fluttu, en síðasta árið var hann hjá Sölva Betúelssyni, þá 12—13 áragamall. Ég tók ástfóstri við þennan stað. Minningin um sérstætt mannlíf og ólíka lifnaðarhætti geymast mér í huga. Að fara sjóðleiðis í næsta fjörð til að heyja. Velta böggunum til sjávar og flytja heim á brynging- arbátum, svo dæmi sé tekið. Það var alvanalegt, að tófur lægju í flekkunum og fylgdust með hey- vinnslu fólksins. Um 1960 frétti ég að læknisbústaðurinn og skólahúsið á Hesteyri væru til sölu. Ég skrífaði þá sýslunefnd og falaðist eftir kaupum og sagðist vilja eiga húsið áfram fyrir norðan, en þá voru mörg hús rifín og flutt burt. Ég keypti síðan skólahúsið ásamt mági Megnm róa 3 mánuði á ári ViÖtal viÖBenedikt GuÖmundsson skipstjóra íBolungarvík Það er mánudagsmorgun og rólegt við bryggjuna í Bolungarvík. Trillurnar eru allar á sjó og stærrí bátamir sem eiga einhvem kvóta eftir hafa líka róið. Benedikt Guðmundsson skipstjórí er að ditt aað báti sínum Páli Helga ÍS 142 ásamt bróður sínum, Páli. Hann er ekkert sérlega hress með fiskveiðistjóraunina, segir það helvíti hart, að hver trilla megi veiða því sem næst allt áríð, en hann hafi þorskveiðikvóta til u.þ.b. 3 mánaða. Nú var að koma hótunarbréf frá ráðuneytinu eina ferðina enn. 1984 sögðu þeir að við hefðum farið 100 tonn yfír kvótann, þá var ekkert tillit tekið til kvóta sem við höfðum keypt, af því að seljandinn hafí gleymt að senda einhveria skýrslu. Pabbi gamli (Guðmundur Rós- mundsson) varð svo heitur, að hann sagðist heldur fara f steininn en að borga sekt að ósekju. Nú eru þeir komnir með það niður í 3—4 tonn og enn hanga sektarkvaðimar yfír okkur. Á sfðasta ári fóm trillumar Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Benedikt Guðmundsson skip- stjóri í Bolungarvík við bát sinn PálHelga ÍS142. Hann sérfram á atvinnuleysi að mestu það sem eftir er ársins. mínum, Einari Guðmundssyni, síð- an hef ég verið þar á hveiju sumri og oftast í mörg skipti. Það em alveg dásamlegar stundir. Konan mín, Bima Pálsdóttir, er jafnheilluð af staðnum og hefur oft verið ein þama langtímum saman að sumr- inu með bömin. Það er oft mannmargt og mikið §ör. En mér er það samt minnistæð- ast fyrir 3—4 árum þegar við vomm þar 8 harmonikkuleikarar og spiluð- um saman lengi kvölds. Hrólfur sonur minn hefur numið harmon- ikkuleik f Þýskalandi undanfarin ár en hann var í heimsókn ásamt kennara sinum, Elisabet Mose. Auk þess var Emil Adolfsson harmon- ikkukennari úr Reykjavík með strákana sína sem allir spila á harmonikku. Það er sífellt að auk- ast að fólk búi þama nyrðra að sumrinu. Þá er þetta lifandi þorp og koma a.m.k. 2—3 bátar daglega inn á leguna. Það er oft mikið um að vera hjá okkur á Hesteyri. Eitt sumarið vomm við að halda upp á afmæli Binnu. Á föstudagskvöldi kom um 60 manna hÓDur sjóstangveiði- manna í heimsókn, það var matar- veisla um kvöldið og mikið fjör. Á laugardaginn komu milli 40 og 50 ættingjar og vinir í afmælisveisluna og á sunnudag komum 30 manna hópur samvinnustarfsmanna f heimsókn. í þeim hópi var mikið af góðu söngfólki svo mikið var sungið og spilað. Það var orðið áliðið kvölds þegar þessu viðtali er lokið. Vagn kom af sjónum um níuleytið og reiknaði með að róa um sexleytið næsta morgun, og þó að fréttamaður yrði þreyttur af umhugsuninni einni, sá ekki á Vagni. Hress og brosandi vildi hann endilega sýna mér físk- vinnslustöðina sína sem hann hefur verið að byggja í hjáverkum undan- farinár. Úlfar Að veiðum meðsjó- stanga veiðifólki á Hauki. Ámeðan veiðifólkið dró þanngula stóð Vagn íbrúnni oglék á saxófón. Morgunblaðið/Frtöa Proppé nærri 100% fram úr leyfílegum afla. Enginn sagði neitt við því og við vissum að mest allur togaraflotinn var að veiðum hér úti fram eftir degi á gamlársdag, það er nú meiri nákvæmnin hjá þeim að fiska akk- úrat upp í kvótan á þeim degi. Ég lét reikna það út fyrir mig hvað ég fengi marga daga samkvæmt sókn- arkvóta, það hefðu orðið 105 dagar. Hinn tíminn átti að nýtast okkur til rækjuveiða, en nú er bara engin rækja í Djúpinu og verðið á henni svo lágt að varia tekur því að fara ásjó. Við erum með 157 tonna kvóta fyrir þetta ár og erum nú búnir að veiða 140—150 tonn og 20 tonn af rækju. Það er helvíti hart, að eiga þennan góða bát, en þurfa að leggja honum og líklega kaupa sér plastara til að róa hálft árið svo hægt sé að lifa af þessu starfí. Ég held að menn séu nú famir að sjá það almennt að kvótakerfíð er tóm vitleysa. Skrapdagakerfíð með sín- um tímatakmörkunum er örugglega miklu betra en þetta, sagði Bene- dikt Guðmundsson að lokum. Úlfar. Lada Samara er meðalstór, 3ja dyra rúmgóður og bjartur bíll. Hann er framdrifinn, með tannstangarstýri, mjúkri og langri fjöðrun og það er sérstaklega hátt undir hann. Sem sagt sniðinn fyrir íslenskar aðstæður. Lada Samara hefur 1300 cm3, 4ra strokka, spræka og spar- neytna vél, sem hönnuð er af einum virtasta bílafram- leiðanda Evropu. Bensín- eyðsla er innan við 61 á hundr- aðið í langkeyrslu, en við- bragðstími frá 0-100 km hraða er þó aðeins 14,5 sek. Lada Samara er 5 manna og mjög rúmgóður miðað við heildarstærð. Aftursætið má leggja fram og mynda þannig gott flutningsrými. Hurðirnar eru vel stórar svo allur um- gangur er mjög þægilegur. Það er leitun að sterkbyggð- aribíl. Sérstök burðargrind er í öllu farþegarýminu, sílsar eru sérstyrktir og sama er að segja um aðra burðarhluti. Lada Samara hentar jafn vel á mal- bikuðum brautum Vestur Evrópu, sem á hjara norðurslóða. Og þá er komið að því sem kemur mest á óvart. Fyrir Lada Samara þarftu aðeins að borga frá 239 þúsund krönum, því hann er á sér- stöku kynningarverði. Komdu á bílasýninguna um helgina og fáðu að reynslu- aka honum. Opið frá kl. 10-17. Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf Suðurlandsbraut 14 Slmi 38600 - 31236

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.