Morgunblaðið - 08.06.1986, Page 22

Morgunblaðið - 08.06.1986, Page 22
22 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 1986 EAUFARHOPN Ein af Raufarhafnartrillunum iforgrunni, en utar liggur Rauðinúpur. Tækin voru alveg nógu góð Rœtt við ÖnundKristjánsson á Þorsteini Það var norðangarri þegar við heimsóttum Raufarhöfn fyrir skömmu til þess að ræða við sjómenn þar um sjómannadaginn. Við höfðum komið akandi frá Húsavík til Raufarhafnar og á leiðinni töldum við á annað hundrað rjúpur alhvitar við veginn. Við brenndum beint að höfninni og komum að Þorsteini GK-15, sem er í eigu Önundar Kristjánssonar skipstjóra. Þetta er 51 tonns bátur og Önundur er búinn að eiga hann síðan 1970. „Ég er búinn að vera á sjó síðan ég var strákur," sagði Önundur, „bytjaði að beita í Borgarskála hér á Raufarhöfn, en þá var ég búinn að vera á sjettu áður og trillu með Einari Indriðasyni. Við rérum á sjettunni og fískuðum þannig inn fyrir trillunni og síðan rérum við á trillunni og unnum okkur inn fyrir sjöunda parti í 18 tonna bát stuttu síðar. Sá bátur hét Þorsteinn líka. Fyrir þessum bát sem ég á nú sló ég lán fyrir útborguninni og síðan var veitt upp í afganginn til Þór- kötlustaðaútgerðarinnar í Grinda- vík, sem ég keypti bátinn af. Nei, það hefur ekki verið rasað um ráó fram í útgerðinni hjá mér. En nú er ný vél í bátnum síðan í haust. Ég keypti Caterpillar í bát- inn. Jú, ég hef haldið honum vel við. Hann er upphaflega Svíþjóðar- bátur frá 1941, en endurbyggður 80-90% á árinu 1964. Ég ræ hér aðallega á línu og netum, netum eftir áramót og línu á haustin. Við höfum verið 4 á og 4 í beitningu á línunni og 6 á netunum. Þetta gengur ágætlega. Skugginn hér er sá að það er ákaflega erfítt að halda mönnum við þetta hér og breytir engu hvort menn hafa góð eða léieg laun. Ég heid að það sé ekki mikið af mönnum hér sem vilja binda sig við að vera á sjó. Þetta er ekkert vandamál, þegar ég var með bátinn í Vestmannaeyjum í 13 ár fyrir gos, en það er allt annað viðhorf hér. Ég veit nú ekki hvað brennur helzt á varðandi sjósóknina. Mér fínnst það skrýtið að þurfa að leggja mínum bát nú vegna kvótastöðu á Önundur Kristjánsson sama tíma og aðrir hér geta róið botnlaust á trillunum. Manni hefur reyndar aldrei dottið í hug að það ætti eftir að koma upp hér á Islandi að maður yrði bundinn svona við að veiða fisk. En þetta er hlutur sem varð að koma með þessum mikla skipastól, það varð að gera eitthvað, ég er sammála því. En ég get ekki bent á neitt sem mér fínnst sérstaklega að í þessu. Ég vildi að sjálfsögðu helzt fá að veiða meira sjálfur en það vildu víst allir. Ef menn rasa hins vegar ekki um ráð fram, þá er hægt að spila úr þessu. Ég er klár á því að fram til þess tíma, sem ég keypti vélina, þá hefði verið hægt að setja upp ‘ýmis tæki í bátinn, fullkomnari tæki. Eirstað- reyndin er nú sú að þessi tæki, sem hafa verið, hafa verið alveg nógu góð. Og ég hef aldrei tekið lán fyrr í minni útgerð fyrr en ég keypti vélina í haust. Ég hef að vísu unnið óhemju mikið í bátnum sjálfur. Konan mín og fjölskylda einnig og það hefur komið sér vel í sambandi við viðhald og annað. Það sem mér fínnst miðað við þennan stað hér, Raufarhöfti, er það að ég hygg að það sé óeðlileg tortryggni milli þeirra sem veita vinnu og þeirra sem eru í vinnu, of mikið vantraust sem kemur niður á ákveðinni framkvæmdagleði. Það er vont þegar leiðindi eru of mikil, þegar menn festast í því neikvæða, því að það er hluti af kjarabótum að hafa gaman af lífinu. Það hefur einnig spilað inn í út- gerðina að það er of mikil hreyfing á sjómönnum milli sjós og lands. Hér fær maður aldrei mann til þess að vera á sjó nema 3-4 mánuði í einu. Kannski er það vegna þess að mörgum býðst þokkalegri vinna í landi en á sjó, en þama þarf að finna ákveðið jafnvægi og allt byggir þetta jú á sjónum og við verðum að dríma á móti því. Þær voru glaðbeittar steipurnar í frystihúsi Jökuls á Raufarhöfn þegar okkur bar að garði. Það er unnið, borðað og sofið — segirLúðvíkP. Jónasson vélstjóri á Rauðanúpi Við togarabryggjuna á Raufarhöfn lá skuttogarinn Rauðinúpur. Það var verið að landa úr skipinu en við brugðum okkur um borð og hittum að máli Lúðvík P. Jónasson vélstjóra, sem var á vakt í skipinu. „Ég er búinn að vera á þessu skipi síðan um mánaðamótin marz- apríl sagði Lúðík. Ég var á honum Karlsefni frá 1981 þar til í hitteð- fyrravetur að ég fór í land til þess að klára sveinsprófið í vélvirkjun. En ég er búinn að vera á þessum togurum sfðan 1977. Þar áður var ég á frögturunum á árunum 1964, 1965, 1966 og 1973-77. En það má segja að ég sé búinn að vera nær alla tíð á sjónum utan það að ég var rúmt ár á Keflavíkurflug- velli. Nei, mér hefur ekki fallið við sjó- inn. Ég ætlaði á árinu 1966 að læra iðn, en það var ekki auðhlaupið að því að komast í slíkt. Við keypt- um okkur íbúð í Breiðholtinu þá og það þýddi að maður varð að hafa peninga upp því að fjölskyldan stækkaði alltaf. Krakkamir eru 6 nú og alltaf fleiri munnar að fæða. Við búum á Selfossi og víst er þetta erfitt í sambandi við ijölskyldulífíð að vera svona á sjónum. Konan hefur þurft að vinna mikið úti líka og þó sérstaklega meðan ég var í smiðjunni að ljúka náminu. Lærl- ingakaupið er svo lágt. Mánaðarlaunin hér í aprílmánuði hjá mér í starfi vélstjóra vom um 80 þús. kr. brúttó með tímavinnu, allmikilli í inniverunum. Við vinnum allt sjálfír hér um borð. Það er engin smiðja hér og á hinn bóginn bætir það svolítið launin hjá okkur og gerir þau þokkaleg, en það liggur mikil vinna á bak við það, mikil vinna bæði á sjó og landi og við emm að öllu jöfhu í miklum útiver- um. Yfirleitt er ekki stoppað nema sólarhringinn í landi. En ég verð að segja eins og er, ég er að leita mér að einhverju starfi í landi. Það er búið að vera draumurinn í mörg ár hjá fjölskyldunni að ég komist í land og einnig heilsunnar vegna. Það hentar mér ekki vel að vera á sjónum. Hér um borð er góð stemmning, mjög góður andi og það bætir þetta mikið upp. Þetta hafa verið mikið sömu menn síðan ég kom, en á þessu skipi hefur verið mikið um vélstjóraskipti og á sl. tveimur ámm Þær eru hiýiegar stelpumar i hraðinu á Raufarhöfn. Kalsaveður við Raufarhafnarhöfn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.