Morgunblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 36
36 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 1986
„Af toetju hvorf myndii* af 5k ermlnum f"
Þetta rif er fyrir þá sem ekki
reykja! Einn martini — án bersins!
HÖGNI HREKKVÍSI
HÖGNI / .... AAATUR !"
um í Viðey
Litast
Heiðraði Velvakandi.
Ég var að lesa grein í Morgun-
blaðinu um Viðey, þar er minnst
á seinagang endurbyggingu á
Viðeyjarstofu og kirkju þar. Það
er með þetta eins og margt fleira,
að enginn vandi er að framkvæma
verkin ef peningar liggja fyrir, en
þá er að afla þeirra og það ættu
menn að fera famir að þekkja
hvemig gert er hjá því opinbera.
Allir held ég séu fullsaddir af
sköttunum. Eg hef farið um Viðey
alla og þar er margt að sjá af
minjum frá fyrri tíð.
Mér fínnst reyndar undravert
að ekki skuli verr farið fyrir Við-
eyjarstofu og kirkjunni eftir rúm
200 ár sem liðin em frá byggingu
þessar? ’-úsa.
í Viðey eru víða tóftir og grunn-
ur að húsum og fleira sérkenni-
legt, einnig hefur verið unnið að
framræslu á vestureynni á þeim
eina stað sem votlent hefur verið.
Eitt er það sem mikið er talað
um að vanti í Viðey, en það eru
nútímaþægindi svo sem rafmagn
og jafnvel hitaveita.
Mér skilst að ekki ættu að vera
mikil vandkvæði með það, þvf
fyrir skömmu var einmitt sýnd í
sjónvarpinu mikil rafveitusam-
stæða í Danmörku af vindmyllum
gerð sem reynast vel og eru fram-
leiddar þar í stórum stíl.
Því ekki að fá eina slíka í
Viðey, vindmylla mundi sóma sér
vel á þessu foma býli. Vindmyllur
eru aldagömul uppfmning þó þær
hafi mikið breyst að gerð og
verkefnum.
Annað er það sem mig langar
að minnast á, hvergi nokkurs
staðar á grónu landi hef ég lent
í jafnslæmu gangfæri og á Viðey,
hún er öll einkennilega mótuð, þó
öll sé hún grasi vaxin og það
miklu grasi, eru smáhnúskar með
miklum skomingum á milli sem
gróður hylur svo mjög torfært er
að ganga. Mér datt strax í hug
að hér þyrfti að fara eina umferð
með jarðtætara til að búa til slóð
að ganga eftir, það myndi fljót-
lega gróa aftur. Gróska er mikil
í Viðey og væri hægt að koma
þar upp heyforðabúi eða hey-
kögglaverksmiðju. Þá vantar hit-
ann og rafmagnið.
Viðey er einstök, en varpfuglin-
um þarf að útrýma.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
ítökin innan Alþýðubandalagsins magnast:
Flokksf orystan hafnaði mála-
miðlun um Ragnar Arnalds
i halrfinn vmr I fym-
Á aðnlfundi útgifuféU** »
kvBld. kom til kmrdrm itmkm milli þrirrm tve
rm sióustu mAaudi hmfa trkizt á i
hðrku. Kjmrtmii ÓUfmon, fyrrum rilatjórí Þjóðviijmnm, lem
ir mrti i útjfáfuvtjórn blmAiins. ómkmói rftir md Utm mf þeim
og rikti djúpmUrdur ágreintngur um rf tirmmnn hmam.
m rt undir bUðvins voru (tuðningifnmn Svav-
fóru fram vtrð l/»t, mð umkomu-
Img mundi ekki Ukast. I mtkvaða-
gmðrnlu um ttjórr útgáfaMtgtira
hlmut Svtvar Grataaon 87 atkv«ði
og Kriatln Ólafsdóltir rinnig 87
atkvmði. Þriðji I röðinni varð Olafur
Ragnar Grfmaaon mrð 85 atkvatði.
Adda Bárm SigfúadðUir fékk 78
urðu Skúli Thoroddarn mrð 50 I
atkvaði, Stringrimur Sigfilaaon I
mrð 49 atkveði og Áamundur 1
Hilmarason með 37 atkvseði.
Biðir armar flokkains hvöttu frtlk I
akipulrga til þess að meU á fund- I
inn. Hrlztu stuðningsmenn Svavan 1
isum átökum v
Vísa vikunnar
Neró greindi kjör sín kröpp
en kæfði andófshrópin.
Hann reistikamb oglyfti löpp
oglét það vaða á hópinn.
Hákur
Víkverji skrifar
Aður hefur verið minnst á það
hér í dálkunum að fyrirkomu-
lag afgreiðslu í bönkum hér á landi
er óviðunandi. Slíkt fyrirkomulag
hefur verið aflagt fyrir löngu hjá
þeim þjóðum sem næstar okkur eru.
A þetta er minnst aftur vegna
þess að í vikunni þurfti Víkverji að
fara í banka einu sinni sem oftar.
Erindið var að borga reikninga,
taka út af gjaldeyrisreikningi o.fl.
Afgreiðsla tók 2—3 mínútur og
allan þann tíma lá fólk nánast á
bakinu á Víkveija til þess að missa
nú ekki af neinu sem fram fór hjá
gjaldkeranum. Þessir forvitnu við-
skiptavinir gátu auðveldlega séð
hve mikið var tekið út af gjaldeyris-
reikningnum, hve símreikningurinn
var hár o.s.frv.
Viðskipti hvers og eins við sinn
banka eru einkamál. Erlendis, þar
sem biðraðamenning er á hæsta
stigi, bíða viðskiptavinir í röð í
ákveðinni íjarlægð frá stúku gjald-
kerans. Þegar gjaldkerinn hefur
lokið við að afgreiða viðskiptavin
er kallað á þann fremsta í röðinni
og þannig koll af kolli. Víkveiji
skorar á banka og sparisjóði í
landinu að breyta fyrirkomulagi
afgreiðslu í þessa veru.
XXX
Víkveiji efar ekki að vilji er fyrir
þessu hjá bönkum svo mjög
sem hugsunarháttur bankamanna
hefur breyst síðasta áratug. Þessar
breytingar hafa svo sannarlega
verið af hinu góða. Aukin sam-
keppni hefur leitt til stórum betri
þjónustu á öllum sviðum.
Nú er liðinn rúmur áratugur síð-
an Víkveiji stóð í íbúðaskiptum.
Aðstæður voru slíkar að Víkveiji
var að kaupa eign af manni sem
var að flytja til útlanda og þurfti
því að flýta útborgun á talsvert
hárri upphæð. Þessa upphæð þurfti
hann að fá að láni í 5 vikur, eða
þar til hann fékk jafnháa greiðslu
fyrir sína íbúð.
Víkveiji leitaði á náðir banka,
viðskiptabanka síns, banka allra
landsmanna. Hann þurfti að ganga
í gegnum þá auðmýkingu að standa
á tröppum aðalbankans frá því
snemma morguns til að vera örugg-
ur um viðtal, þeir einir voru öruggir
sem gátu skrifað sig nógu framar-
lega í bækumar hjá bankastjórun-
um. Þessi sýning á blönku fólki var
haldin í Austurstræti á hvetjum
morgni alla virka daga, svo ótrúlegt
sem það hljómar í dag. Eftir langa
bið var Víkveija vísað inn til aðstoð-
arbankastjóra. Hann hlýddi á erind-
ið og sagði að þeir í bankanum
kynnu ekki að meta svona beiðnir.
Hann myndi þó leggja hana fyrir
bankastjómina og sagðist geta veitt
svar tveimur dögum seinna.
Eins og við var að búast var
svarið neikvætt. Bankinn var til-
búinn að lána tíunda hluta umbeð-
innar upphæðar í 5 vikur! Það skal
játað að veröldin var dökk í augum
Víkveija þegar hann labbaði niður
bankatröppumar þennan morgun.
En með hjálp góðra manna bjargað-
ist allt en þessi auðmýking mun
aldrei líða Víkveija úr minni né sá
bankastarfsmaður sem fyrir svör-
um varð. Hann hefur ætíð síðan
verið í litlum metum hjá Víkveija
þótt hann að öðru leyti hafí verið
í háum metum í samfélagi kristinna
manna.
Þessi saga er rifjuð upp hér til
að undirstrika þá miklu breytingu
sem orðið hefur í bankakerfínu á
allra síðustu árum. Unga fólkið í
dag þekkir þetta ekki nema af
afspum sem betur fer.
XXX
Mikill er máttur gróandans.
Eftir langvárandi kulda og
þurrka sunnanlands og vestan sner-
ist til sunnanáttar og fór að rigna.
Gróður tók strax við sér og á aðeins
10 dögum varð allt grænt fyrir að
líta.
Víkveiji var fyrir skömmu á
Akureyri. Ótrúlegur munur var á
gróðurfari á Norðurlandi og Suður-
landi. Varla að sjá grænan blett og
snjó víða niður í byggð.
XXX
Heimsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu hefur farið vel af stað.
Sjónvarpið hefur þegar þetta er
skrifað sýnt nokkra leiki og allir
hafa þeir verið skemmtilegir.
Keppnin er helsta umræðuefnið
hvert sem komið er. Þetta undir-
strikar að fátt er vinsælla en knatt-
spyma.