Morgunblaðið - 08.06.1986, Síða 39

Morgunblaðið - 08.06.1986, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 1986 B 39 Alex Cox hefur gert mynd um pönkarann Sld Vicious og Nancy Spungen, fórnarlömb eiturlyfjanna. Líf og dauði pönkara Alex Cox valdi sór erfitt viö- fangsefni fyir nœstu mynd sína, sem er raunar önnur myndin hans, Repo Man gerði hann á síðasta ári. Hann hyggst filma lífshlaup tveggja vandrœðagemi- inga í breska poppheiminum, pönkarans Sid Vicious og vinkonu hans Nancy Spungen, en þau lót- ust með stuttu millibili fyrir sjö árum. Sid Vicious var drifkrafturinn í pönkhljómsveitinni Sex Pistols, grúppunni sem hleypti heldur bet- ur nýju blóði í breska poppheiminn fyrir tíu árum eða svo. Myndin, sem mun heita Sid og Nancy, fjallar ekki um hljómsveitina sjálfa, segir Alex Cox, heldur um storma- samt líf elskendanna sem hötuð- ust. Alex þekkti vel til hljómsveitar- innar á sínum tíma, var hrifinn af tónlistinni sem hún spilaði, en fékk ekki áhuga á Sid fyrr en á síðasta ári þegar hugdettunni að kvikmynd skaut upp. Móðir Nancyar skrifaði bók um hryllileg örlög dóttur sinnar, þar sem hún reynir að skilja hvers vegna Nancy dróst að Sid og kastaði sér út í fen eiturlyfj- anna. Nancy fannst myrt í október 1978, enginn veit með vissu hver myrti hana, Sid var ákærður en aldrei dæmdur. Sid lést síðan af völdum eiturlyfjanotkunar í febrúar 1979, og þar með var rannsókn hætt. Vinur Sids, John Lydon (sem kallaði sig Johnny Rotten meðan hann spilaði með Sex Pistols), hefur fordæmt gerð myndarinnar. Hann hótaði lögsókn yrði hún gerð. En Alex Cox segir hins vegar að John hafi lesið kvikmyndahand- ritið og komið með tillögur sem hann muni nota. Myndin er vel á veg komin og verður tilbúin til sýn- inga á næstu vikum. konan, heldur einnig vegna þess að henni þykir ákaflega vænt um gömlu konuna sem hún leikur, og ekki má gleyma að sá sem skrifaði kvikmyndahandritið að Ferðinni til Nægtalandsins, Hor- ton Foote, er vinur Geraldine Page frá fornu fari og fyrir fáum ber hún meiri virðingu. Horton Foote jafnast á við Tékov, segir Geraldine Page en hún er ekki síður frægur sviðs- leikari, hefur leikið í flestum sviðsverkum sem vert er að nefna og er Kirsuberjagarðurinn í sérstöku uppáhaldi hjá henni. Geraldine hefur ekki í hyggju að draga sig frá leikhúsinu þrátt fyrir aukna velgengni í kvikmyndum. Hún lék síðast í „Lie of the Mind“ eftir Sam Shephard sem frum- sýnt var haustið 1985. Skipstjórar og skip II Bókin er afmælisrit Skipstjórafélags íslands 1986, 368 bls. að stærð í stóru broti. Rakin er saga félagsins í hálfa öld, sagt frá íslandssiglingum frá í fornöld til vorra daga, æviágrip 250 skipstjóra og tæknilegar upplýsingar eru um 280 verslun- ar- og varðskip ásamt sögu þeirra. Myndir eru af öllum skip- stjórunum og flestum skipanna auk myndasyrpu með tugum mynda af skipum og höfnum. Alls eru á sjöunda hundrað myndir í bókinni. Bókin fæst aðeins á skrifstofu Skipstjórafé- lags (slands, Borgartúni 18 og kostar 3.000 kr. Opið virka daga kl. 13.00-16.00, simi 29933. iölluö ski ifslotuin ýöi Nú hefur oldeilis hloupið ó snœrið hjá skrifstofufólki. Þreyfon er horfin og bokverkurinn líko - þökk sé nýjo Douphin skrifborðsstólnum. Þeir sem setjost í stól frá Douphin kynnost ótrúlegri hönnun. Stólbokið heldur hryggsúlunni í réftri stöðu líkominn verður ofsloppoður og vinnon verður ouðveldori í stól frá Douphin. í Hljómbœ eru Douphin skrifborðsstólornir \ fjölbreyttu úrvoli, litofjöldinn er mikill og verðið er frá kr. 6,990.- Dauphin - stílhreinir stólar, sannkölluð skrifstofuprýði. DdUpHIN HUOMBÆR HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.