Morgunblaðið - 19.06.1986, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 19.06.1986, Qupperneq 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, VlDSKIPimVlNNUIÍF FIMMTUDAGUR 19.JÚNÍ 1986 Japan Og sólin geng- ur til viðar Stöðug hækkun á gengi japanska yensins er farin að valda þvi að japanskir bílaframleiðendur neyðast til að leita eftir aðstöðu erlendis fyrir bilasmiðjur sinar. Með aukinni sókn i að koma upp smiðjum i helztu markaðslöndum sinum, í öðrum ríkjum Austur-Asíu og i Norður- Ameriku, hætta japanskir bflaframleiðendur á að smiðjur þeirra i Japan verði verkefnalitlar. Á stuttu timabili hefur það gerzt að japönsku fyrirtækin Fuji Heavy Industry og Isuzu, sem smiða bæði bfla af milli- stærðum, hafa skýrt frá áformum um að reisa i sameiningu bflasmiðju í Bandaríkjunum, sennilega i Mið-vesturríkjunum; japanski bílafram- leiðandinn Suzuki og bandariska risafyrirtækið General Motors ætla að taka upp samvinnu um smiði bfla i smiðjum, sem fyrirtækin ætla að koma sér upp í Kanada. Þá hefur verið skýrt frá þvi að viðræður séu hafnar milli fulltrúa General Motors og San Fu um að GM kaupi hlut í San Fu, sem er bílasmiðja á Taiwan, en nokkur samvinna hefur verið með þessum fyrirtækjiun að undanfömu. Innbyrðis tengsl fyrir- tækja í bílaiðnaðinum era margvísleg. Úr því GM á nú 34% hlutabréfa í Isuzu og Fuji Heavy Industries er i tæknisamvinnu við San Fu er þá ekki líklegt að GM og Fuji Heavy taki einnig upp einhvers konar samstarf? Þegar 230 yen fengust fyrir hvem dollara var það japönskum bílafram- leiðendum hagstætt að smíða bíla sína heima. Fyrir ári kostaði hver starfsmaður japönsku bílasmiðjanna vinnuveitanda sinn sem svarar 13,50 doilara (um 555 kr.) á tímann þegar allur tilkostnaður er reiknaður með. Var það talsvert lægri kostnaður en bandarískir bflaframleiðendur þurftu að greiða, þar sem hver starfsmaður kostaði að meðaltali 23—25 dollara á tímann (um kr. 950 til kr. 1.030). Nú er þetta hlutfall breytt. Fyrir dollarann fást um 165 yen og hver starfsmaður í Japan kostar nú sem svarar 18—20 dollurum á timann (um 740 til 825 kr.). Þessi minnkandi launamismunur leiðir til þess að vaxandi áhugi er hjá japönskum bfla- framleiðendum á að koma sér upp bflasmiðjum í öðrum ríkjum Austur Evrópu — þar sem gjaldmiðlar fylgja frekar gengi dollara - til viðbótar smiðjum sínum í Norður-Ameríku. Nomura-rannsóknarstofnunin í Japan hefur reiknað út að ef gengi yensins ætti eftir að komast í jafn- vægi og haldast til dæmis í 160 yenum fyrir dollara, kostaði svo til ___ hluta- fjáreign — tækni- samvinna s^ssssssi Pony-bflar frá Suður-Kóreu á leið á Bandaríkjamarkað. það sama að smíða bfl af minni gerð í Japan, Suður-Kóreu og á Taiwan. Ef hinsvegar yenið héldi áfram að hækka, yrði smíðin ódýrari í Suður- Kóreu og á Taiwan. Sá möguleiki veldur Lee Iacocca, sljómarformanni Chrysler, áhyggjum. Chrysler á 20% hlut í Mitsubishi-bflasmiðjunum í Japan og hagnaður Chrysler af sölu Mitsubishi-bfla hefur þegar dregizt saman vegna hækkunar yensins. Með því að flytja smíðina til ann- arra ríkja í Austur-Asíu gætu jap- anskir bílaframleiðendur aðallega sparað í launakostnaði. Starfsmaður í bflasmiðjum í Suður-Kóreu hefur að jafnaði sem svarar 2,50 dollurum á tímann (um 103 kr.). Á Taiwan eru launin aðeins hærri. Til að nýta sér þennan launaspamað em uppi Flug Methagnaður hjá Brítish Caledonian Næst stærsta flugfélag Bret- lands, British Caledonian, náði á síðasta fjárhagsári mesta hagn- aði í sögu sinni. Veltan jókst um 17%. Rekstrarhagnaður flugfélagsins á sl. Qárhagsári nam 31,5 milljón- um dollara sem jafngildir tæplega 1,3 milljarði íslenskra króna og sem fyrr segir hefur reksturinn aldrei skilað jafn miklum arði. Árið 1984 varð 23,3 milljón dollara hagnaður . af rekstrinum (932 milljónir íkr.) Á síðasta ári flutti British Cale- donian tæplega 2,3 milljón farþega í áætlunarflugi og er það 8,5% aukning á milli ára. Þá flutti félagið 66 þúsund tonn af frakt og pósti sem er 10% aukning. Flugfélagið er aðeins hluti stærra móðurfyrirtækis, British Caledon- ian Group. Aðrir hlutar þess em Caledonian Airmotive sem annast viðhalds- og verkfræðiverkefni og tvöfaldaðist hagnaðurinn á síðasta ári. Caledonian hótelkeðjan sem einnig skilaði arði sl. ár. British Caledonian þyrlufyrirtækið sem jók veltuna vemlega á síðasta ári en skilaði tapi. Loks er að nefna Caledonian Leisure sem einbeitir sér að ódýmm pakkaferðum og varð tap á þeim rekstri. Hinn litríki stjómarformaður fyrirtækisins, Sir Adam Thomson, sagði í viðtali við tímaritið Airline Executive að vissulega hefði hagn- aðurinn aukist vemlega og miðað við rekstraraðstæður væri hann viðunandi. Taldi hann erfitt að spá sérstaklega fyrir um hver árangur- inn yrði á þessu ári. í ár var fyrirhugað að bjóða ijölda nýrra hlutabréfa til sölu á breskum kauphallarmarkaði en því var nýlega frestað. Sir Adam sagði ástæðuna vera „óáreiðanlega" stefnu bresku stjómarinnar varð- andi samkeppni í flugmálum. Telur hann núverandi stefnu, sem var mörkuð fyrir tveimur ámm, vera langt frá hinni upphaflegu sem breska flugmálastofnunin mælti með nokkmm ámm fyrr og gerði ráð fyrír aukinni samkeppni bresku flugfélaganna á alþjóðaflugleiðum. Sir Adam segir núverandi stefnu hafa verið markaða til að vemda hagsmuni ríkisflugfélagsins British Airways og auðvelda þannig sölu þess á frjálsum markaði þegar fram líða stundir. Þrátt fyrir þessi vandamál varð árangur British Caledonian eftir- takanlegur á síðasta ári eins og tölumar hér að framan bera með sér. Félagið hóf áætlunarflug til New York með góðum árangri og einnig til Saudi Arabíu en það hefur ekki tekist eins vel. British Caledonian hyggst á næstunni selja tveggja ára gamlar þotur sínar af gerðinni Airbus 310 því þær henta félaginu ekki eftir að það fékk aðrar flugleiðir út- hlutaðar af flugmálayfirvöldum. Eftir tvö ár tekur félagið í notkun glænýja gerð af þotum, Airbus 320, sem forráðamenn félagsins binda miklar vonir við. áform um það hjá Nissan, næst- stærsta bflaframleiðanda í Japan, að flytja inn takmarkaðan fjölda smærri bfla sem smíðaðir verða hjá Yue Loong-bflasmiðjunum á Taiwan, sem Nissan á 24% hlut í. Það yrði þá í fyrsta sinn sem ein af stærri bfla- smiðjunum í Japan seldi innflutta bfla á heimamarkaði. Aðrar bflasmiðjur hafa svipuð áform á prjónunum. í febrúar keypti Toyota, stærsti bfla- framleiðandinn í Japan, 22% hlut í Kuo Zui-bflasmiðjunum á Taiwan, en fyrir átti Hino, vörubfladeild Toyota, 42% I Kuo Zui. Japanskar bflasmiðjur hafa um nokkurt skeið átt aðild að bflasmíði í Suður-Kóreu. Mitsubishi á 15% hlut í Hyundai, stærstu bflasmiðjum Kóreu. Hyundai nýtur tækniaðstoðar frá Mitsubishi og vonast til að geta selt 100.000 Pony-bfla í Bandaríkj- unum í ár gegnum sölukerfí Mitsub- ishi þar. Annað japanskt bflafyrir- tæki, Mazda, á 8% í Kia-bflasmiðjun- um kóresku, en Ford-fyrirtækið bandaríska á hinsvegar 24% hlut í Mazda. í ráði er að Ford hefji sölu á 85.000 Kia-bflum í Bandaríkjunum í september á næsta ári (Ford á einnig meirihluta í Lio Ho-bflasmiðj- unum á Taiwan). Það er bagalegt fyrir erlenda aðila - hvort heldur þeir eru japanskir eða bandarískir — sem smíða bfla til út- fíutnings á Taiwan eða í Suður- Kóreu, að f hvorugu landinu hefur vaxið upp iðnaður til að smíða bfla- og vélahluta. Þá er bflasmíðin í báð- um löndum enn mjög smá í sniðum. í ár er ætlað að alls verði smíðaðir um 350.000 bflar í Suður-Kóreu, á Taiwan aðeins um 180.000. Það er minna en fyrirhugað er að smíða í Diamond Star-smiðjum Mitsubishi og Chrysler í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna, sem eiga að afkasta 240.000 bflum á ári. Jafnvel þótt afköst bflasmiðjanna á Taiwan verði nýtt til hins ítrasta geta afköstin vart orðið meiri en 300.000 bflar á ári. En ef unnið verður með fullum afköstum geta þá bflasmiðjumar í Austur-Asíu og japönsku smiðjumar, sem þeim em tengdar, fundið næga markaði fyrir bfla sína? í ár er ekki reiknað með að eftirspumin eftir nýjum bflum í Bandaríkjunum, á stærsta markaði heims, verði mikið meiri en heildarsalan þar á árinu 1985, sem var um 11 milljónir bfla, og geti jafnvel orðið eitthvað minni. Eftir um flögur ár er reiknað með að bflaframleiðendur í Japan og Suður-Kóreu verði famir að smíða 1,8 milljónir bfla í eigin bflasmiðjum í Bandaríkjunum á árí, en þessi rekstur var svo til óþekktur fyrir fjór- um ámm. Nissan, Honda og Toyota em nú þegar að stækka bflasmiðjur sínar í Bandarfkjunum. Þetta hlýtur að leiða til offramleiðslu og valda því meðal annars að hætta verður rekstri eldri og óhagkvæmari bfla- smiðja. í vaxandi mæli em Japanir nú famir að gera sér það ljóst að svo getur farið að það verði þeirra eigin bílasmiðjur sem neyðast til að hætta rekstri - ekki aðeins bflasmiðj- umar í Ameríku og Evrópu, þar sem allur tilkostnaður hefur fram til þessa verið mjög mikill í samanburði við Japan. (Heimild: The Economist) Flug-vélaiðnaður Hagnaður Fokkerjókst um 40% á síðasta ári Hollensku Fokker-flugvéla- verksmiðjurnar eru íslendingum að góðu kunnar því þær smíða m.a. F27 flugvélarnar sem notað- ar hafa verið í innanlandsflugi hérlendis í tvo áratugi. Nettóhagnaður Fokker fyrir- tækisins á sl. ári nam 12,7 mil(j- ónum dollara en það samsvarar liðlega hálfum milljarði íslenskra króna. Það er athyglisvert að þessi góða rekstrarafkoma Fokker varð þrátt fyrir mikinn samdrátt í sölu F27 og F28 flugvélagerðanna, sem nú er verið að hætta að smíða, og einnig þrátt fyrir að hönnunar- kostnaður F50 og F100 gerðanna, sem eiga að leysa þær gömlu af hólmi, hafi farið langt fram úr áætlun. Tekjur af flugvéla- og varahluta- sölu og þjónustu minnkuðu úr 590 milljónum dollara árið 1984 í 505 milljónir á sl. ári. Samdrátturinn nemur því 85 milljónum dollara. Það vó jió að hluta á móti sölusam- drættinum að tekjur af þróunar- verkefnum jukust um 42 milljónir dollara milli áranna 1984 og 1985. Eiginfjárstaða Fokker batnaði verulega á síðasta ári vegna þess að nokkur flugfélög greiddu fyrir- fram inn á pantanir sínar á nýju Fokker-flugvélaverksmiðjumar náðu þeim merka áfanga á síðasta ári að selja flugvél nr. 1000 af gerðunum F27 og F28. Nú er hætt að smíða þessar vélar. Arftakarnir em F50 og F100 og hefur sú fyrraefnda þegar hafið reynsluflug en sú síðarnefnda Ieggur væntanlega í loftið um næstu áramót. F50 og F100 vélunum. Einnig voru gefín út ný hlutabréf um mitt síð- asta ár sem að sjálfsögðu bættu einnig eiginfjárstöðuna. Fyrirfram- greiðslur inn á nýjar flugvélar námu 275 milljónum dollara á síðasta ári en aðeins 60 milljónum árið áður. Reiðufé fyrirtækisins jókst úr tæp- Ipga 40 milljónum dollara í árslok 1984 í 135 milljðnir í lok síðasta árs. Ákveðið hefur verið að endur- skipuleggja rekstur Fokker og einn liður í þeim aðgerðum er að síðar á þessu ári verða settar á stofn sex sjálfstæðar rekstrareiningar sem munu skiptast þannig; Flugvéla- smíði, geimbúnaðarsmíði, viðhalds- og viðgerðardeild, Fokker í Banda- ríkjunum, hollenskt viðskiptafyrir- tæki að nafni Avio-Diepen og loks deild sém mún annast ýmis sérverk- efni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.