Morgunblaðið - 26.10.1986, Blaðsíða 5
ur er ég einungis starfsmaður
stjómarinnar og sinni þeim verk-
efnum sem hún felur mér.“
-En þín persónulega skoðun
á málinu. Fyndist þér eðlilegt
að sjóðurinn styrkti þær mynd-
ir sem yrði fyrir vali úthlutun-
arnefndar með t.d. upphæð sem
samsvaraði helmingi kostnað-
arverðs hennar?
„Mér fyndist það ekki óhugs-
andi möguleiki"
-Hvað um aðrar hliðar á
málinu en leiknar kvikmyndir.
Koma möguleikar á heimilda-
myndagerð, sjónvarpsmynda-
gerð og öðru myndefni til með
að aukast með styrkari stöðu
sjóðsins?
„Þetta aukna framlag kemur
til með að opna og auka mögu-
leika á öllum sviðum íslenskrar
kvikmyndagerðar, enda stendur í
lögum um sjóðinn að hann eigi
að styrkja kvikmyndagerð af öllu
tagi. Því held ég að við eigum
eftir að sjá mikla grósku í gerð
kvikmynda af öllu tagi. I þessu
sambandi er einnig rétt að nefna
að auk kvikmyndasjóðs er hér
menningarsjóður sjónvarpsstöðva
sem m.a. ætlað styrkja gerð sjón-
varpsmynda.
Við höfum líka af svo nógu að
taka af íslensku efni og markað-
urinn fyrir það er ekki nærri
mettaður. Ég nefni söguöldina til
dæmis, gullöld okkar íslendinga
sem við gætum gert skil á marga
vegu, með heimildamyndagerð,
fræðsluþáttum og leiknum kvik-
myndum. Slíkt yrði ekki aðeins
áhugavert fyrir íslendinga eina,
útlendingar hafa áhuga á þessum
tíma og ég veit að í Bandaríkjun-
um eru menn sem vilja gera
kvikmynd úr Njálssögu. En það
er að mínu mati nokkuð sem ís-
lendingar eiga að gera sjálfir. Við
þurfum ekki útlendinga til að
ganga í skrokk á bókmenntunum
okkar."
-Talandi um útlendinga og
erlenda markaði. Þurfum við
kannski að gera íslenskar
myndir fyrir íslendinga annars
vegar og íslenskar myndir fyrir
útlendinga hins vegar?
„Hver einasta íslenska mynd
sem er sýnd erlendis selur landið
og selur físk. Ég held að það sé
engin tilviljun að sænskum ferða-
mönnum hefur fjölgað mjög til
landsins á sl. tveimur árum. Það
hafa milljónir Svía séð kvikmynd-
ina Hraftiinn flýgur og hrifíst af.
Því hlýtur markmið okkar að vera
að búa til fyrst og fremst kvik-
myndir fyrir íslendinga, en um
leið myndir sem hrífa erlendis. í
því sambandi ættum við kannski
ekki síst að hugsa um frændur
okkar á Norðurlöndum, því að
markaðurinn er nálægur og
menningin skyld, en þó frábrugð-
in.
En við þurfum ekki að gera
íslenskar kvikmyndir fyrir íslend-
inga og ísienskar kvikmyndir fyrir
útlendinga, kvikmyndagerðin,
eins og önnur listssköpun er þann-
ig að hafí hún sammannlega
höfðun, þá á hún erindi hvort
heldur er í Katmandu eða
Keflavík.
í þessu sambandi má geta þess
að um mánaðarmótin fer Jón
Hermannsson til London á kvik-
myndakaupstefnu, þar sem hann
verður með tólf íslenskar kvik-
myndir til sölu. Við vonumst til
að árangur verði af ferðinni, ekki
síst vegna þeirrar umfjöllunnar
sem landið hefur fengið í erlend-
um fjölmiðlum nýverið. Ég held
að við höfum ekki ástæðu til ann-
ars en að líta framtíðina björtum
augum í þessum efnum sem og
öðrum sem tengjast íslenskri kvik-
myndagerð," segir Guðbrandur
Gíslason.
Viðtal/Vilborg Einarsdóttir
)8ei H38ÓTJI0 .ðS aUDACIUHHUa .OIOAjaHUDHOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986
C 5
Vísnaþáttur
Hjálmar Jónsson
Ekkí er að vænta
verri gesta....
Guðfræðideilur verða stundum
háværar. Nú á dögum eru þær hins
vegar bragðdaufar miðað við það
sem löngum hefur verið. Ekki má
skilja orð mín svo að ég sjái eftir
slíkum deilum. Þær voru einatt
mjög persónulegar og mótsögn við
Guðs ótta og góða siði.
Þegar Pétur Pétursson, biskup,
gaf út hugvekjur sínar urðu marg-
ir til að gagnrýna þær. Sr. Friðrik
Bergmann skiifaði ritdóm um þær
og líkti þeim við steingervinga.
Biskup svaraði gagnrýninni m.a.
með þessari vísu:
Þegar hrynja háreistir
hrokaveggir þínir
standa munu stöðugir
„steingervingar" mínir.
í tilefni af afmæli Reykjavíkur-
borgar hefur verið haldin myndar-
leg afmælishátíð. Þess hefur líka
verið minnst að ekki voru allir viss-
ir um ágæti verslunarstaðanna í
fyrstunni. Sjóplássin voru líka litin
homauga. „Þar ríkir iðjuleysi, fá-
fræði, sundurþykki, illkvittni,
drykkjuskapur, vondur munnsöfn-
uður og mörg óhlutvendni..." ritar
Ólafur Stefánsson, stiftamtmaður,
um þéttbýlið fyrir tveimur öldum.
Þótt slíkt álit sé jaftivel broslegt í
dag var ekki svo þá. Ný gerð þjóð-
félags var að myndast á Islandi og
hinir framsýnustu menn vildu
spoma við henni. Völd og áhrif
færðust til nýrrar stéttar, borgar-
anna, og ýmiss konar umrót varð
í sálum manna og samfélagi. Á
Alþingi árið 1863 var þjarkað um
hvort leyfa ætti löggildingu versl-
unarstaðar á Akranesi. Sitt sýndist
hverjum og urðu umræður harðar.
Til varð vísa, sem til er í nokkrum
útgáfum og mun eignuð biskupnum
Pétri Péturssjmi:
Ef verslun kemur á Skipaskaga
skötnum verður það helst til baga,
eftir sér það dilk mun draga,
dryklgurúta og letimaga.
Margir féllu fyrir freistíngunum
í kaupstaðarferðum og urðu mála-
lok stundum önnur og verri en
áætlun var gerð um áður en haldið
var að heiman. Það gat náttúrulega
hent alla. Einhverju sinni varð
prestur einn fyrir því að vera settur
í „kjallarann" vegna ölvunar og
drykkjuláta. Er biskup fregnaði
framferði kennimannsins tók hann
það óstinnt upp sem vonlegt var.
Nokkru síðar, þegar prestur er.
kominn heim og farinn að gæta
embættis síns, sér hann að gest
ber að garði. Við nánari athugun
sér hann að prófasturinn ríður í
hlað, embættislegur í öllu fasi.
Prestur kvað þá þessa vísu:
Ekki er að vænta verri gesta
veit ég á þvi skil.
Nú hefur Satan sent þann versta,
sem hann átti til.
Er ekki annað að sjá en iðran
prests hafí verið í lágmarki.
Að lokum er vísa eftir Jón G.
Sigurðsson, Hofgörðum. Mun hún
vera ort sem almenn sannindi en
svo getur hver að sinni vild hermt
hana upp á einstaklinga, bæi eða
borg:
Margur er ungur ærslagjam,
um það vitnar saga,
en illt er að vera óþekkt bam
alla sína daga.
Þeim öllum sem á margan hátt minntust min
á níutiu ára afmœli mínu á þessu hausti þakka
ég af heilum hug. Kœrar kveðjur.
Þórður í Haga.
FRAM
TÖLVUSKÓLI
Sölustjórinn
Leiðbeinandi:
Bjöm Viggósson,
markaös- og söluráð-
gjafi.
Staður:
Tölvuskólinn Framsýn,
Síðumúla 26, simar
91-39566 og
91-687434.
Tími:
fimmtudag 30. októ-
ber kl. 9.00—16.00.
Námskeið í markaðs- og sölumál-
um með aðstoð nýjustu upplýs-
inga- og tölvutækni. Námskeiðið
er ætlað öllum framsæknum fyrir-
tækjum sem þurfa að fylgjast með
og tileinka sér nýjustu aðferðir á
sviði markaðs- og sölumála.
Efni:
• Val á markhópum og hvernig á að afla upplýs-
inga.
• Gerð markaðs- og söluáætlana með sölu-
stjóranum.
• Markaðsathuganir og kynningar.
• Söluaöferöir: síminn — bréf — heimsóknir —
auglýsingar.
• Röðun verkefna eftir mikilvægi.
• Gagnasafnskerfiö í Sölustjóranum.
• Dagbók, söluyfirlit og vinnuskýrslur sölu-
manna.
• Utprentun s.s. límmiða og naf nalista eftir vali.
Þátttakendur:
Allir sem þurfa að skipuleggja markaðs-
og sölustarfsemi stórra sem smárra fyrir-
tækja og fylgja verkefnum eftir. Hentar
einnig sölumönnum sem vilja tileinka sér
kosti einkatölvunnar.
Féiögum í VR skal bent á að VR greiðir
helming þátttökugjalds.
Sölustjórinn er nýr íslenskur hugbúnaöur fyrir
einkatölvur og það þarf litla tölvukunnáttu til að
nota hann.
SÖLUSTJÓRINN er hannaður af Birni Viggóssyni
og Kerfisþróun og settur upp i islenska gagna-
safnkerfinu K-GRUNNI sem Kristján Gunnarsson
hjá Kerfisþróun hannaöi.
Hjqlparkallfækið:
rriitii IÍFVÖRÐURINN"
Ómissandi öryqaistæki fyrir aldraða, fatlaða, hjartasjúklinga og aðra
ikyndile
sem geta skyndilega þurft ó hjálp að halda.
Þegar jafnvel stutt leið að síma getur reynst ofviða, er mikið öryggi
í þráðlausa tækinu sem borið er um hálsinn.
Aðeins þarf að þrýsta á tækið til að gera aðvart í öryggismiðstöð
VARA, þar sem strax eru gerðar ráðstafanir til hjálpar.
Eins og sönnum lífverði sæmir getur hann einnig gert aðvart um eld og reyk.
í flestum tilfellum greiða almannatryggingar
meirihluta kaupverðs en tækið
fæst einnig leigt til
lengri eða
skemmri
tíma.
Halla Halldórs-
dóttir, hjúkrunar-
fræðingur VARA
veitir allar nánari
upplýsingar og
aðstoð. Hún er
einnig tilbúin að
heimsækja þá sem
vilja kynnast„LITLA
LÍFVERÐINUM".
Halla er í síma
91-29399.
SÉRHÆFD
ÖRYGGISÞJÓNUSTA
STOFNSETT 1969
Þóroddsstöðum v/Skógarhlíð
Pósthólf 1101 121 Reykjavfk
o 91-29399
Sfmaþjónusta allan sólarhringinn.
Islensk örygglsþjónusta meö alþjóðleg sambönd