Morgunblaðið - 26.10.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986
C 25
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 17-18
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
/ \jr i/wwi flwn u/nr lj lt
8 -
Þessir hringdu
Hver kannast ekki við þetta hús sem hýsir Rás tvö? Einhveijar deil-
ur hafa sprottið upp vegna hússins sj&lfs en nú skipast menn í flokka
eftir því hvort þeir vilja selja Rás 2 eða ekki. Bréfritari vUl ekki
selja og finnst honum nóg um ljótan munnsöfnuð sem einn andstæð-
ingur hans hefur haft í frammi.
Seljið ekki Rás 2
Núna undanfama daga hefur
verið rifist um að fá að selja Rás
2 og margir látið ljót orð falla. Mig
langar að segja nokkur orð.
Þegar Rás 2 kom fékk hún marga
hlustendur en nú er Bylgjan komin
og hefur því hlustendum Rásarinnar
fækkað á Reykjavíkursvæðinu. Til
hvers þessi rifrildi um Rás 2. Það
er engin skylda að hlusta á hana
og þeir geta bara slökkt á útvarpinu
sem ekki vilja hlusta. Og þú Ragn-
ar Halldórsson, fáðu þér bara ný
eyru og láttu þennan flna orðaforða
sjást einhversstaðar annarsstaðar
og leyfðu okkur hinum að hlusta
með ánægju.
UBG
Sæti í Hallgrímskirkju
Kvenfélag Hallgrímskirlg'u hef-
ur nýverið afhent byggingar-
nefndinni gildan sjóð til greiðslu
á 300 sætum í kirkjusalinn stóra,
sem samkvæmt upphaflegri áætl-
un á að rúma 1200 manns. Árið
1974 gaf Kvenfélag Hallgríms-
kirkju öll sætin í kirkjusalinn í
tumálmunni, sem þá var vígður.
Eftir frásögnina í Morgunblað-
inu 7. þ.m. um Hallgrímskirkju,
hafa borist margar góðar gjafir,
aðrar en frá kvenfélagskonunum,
til að kosta kaupin á sætum
Hallgrímskirkju, en kostnaðurinn
við hvert þeirra er kr. 2.500. Um
leið og þakkað er fyrir þessr kær-
komnu gjafir, er minnt á að
póstfang Hallgrímskirkju er Póst-
hólf 1016, 121 Reykjavík.
Byggingamefnd Hallgríms-
kirkju
Pourquoi
Pas?
Kæri Velvakandi
í Morgunblaðinu miðviku-
daginn 17. september er
grein um franska rannsókn-
arskipið Pourquoi Pas? og er
nafn skipsins stafsett á fjóra
vegu, en engin þessara staf-
setninga er rétt.
Rétt stafsetning er: Pour-
quoi Pas?
Með þökk fyrir birtinguna
Óskar Björnsson
Mynd þessa mun gamansamur
góðvinur Guðjóns Samúelssonar,
húsameistara ríkisins, hafa gert
af höfundi Hallgrímskirkju á
fyrri árum.
Hver er
höfundurinn?
Veit einhver lesenda Morgun-
blaðsins hver er höfundur lagsins
við testann: Manstu þegar nóttin
kom í ágúst, ástin mín .... Sá sem
býr yfír þessari þekkingu er vin-
samlegast beðinn að láta Velvak-
anda vita.
Rásin betri
Guðmunda hringdi:
Hvað hefur Bylgjan fram yflr Rás
2, það þætti mér gaman að vita því
linnulaust er skrifað um það í blöðin
hvað Rás 2 er allt f einu orðin drep-
leiðinleg og menningarsnauð. Hvað
gerir Bylgjuna svona menningar-
lega?
Ég hef hlustað mikið á báðar
stöðvamar og ef eitthvað þá er Rás-
in miklu betri, tónlistin fjölbreyttari
og dagskráin vandaðri. Einhver létt-
ruglaður skrifaði um það um daginn
að varla flnndist nokkur sála lengur
sem hlustaði á prumpið á Rás 2.
En er það ekki bara litla sæta einka-
framtakið sem er svona frábært án
tillits til innihalds? Ég bara spyr.
Saltið óhóf-
lega notað
Húsmóðir í Vesturbænum
hringdi:
Ég hef tekið eftir því að salt-
kjötið og rúllupylsumar, sem maður
hefur verið að kaupa í búðum, er
alltof oft brimsalt. Jafnvel svo að
leggja verður það í vatn yfir nóttina
áður en hægt er að borða það. Þetta
þykir mér slæmt, má nú ekki ögn
spara saltið í kjötið kjötiðnaðarmenn
góðir?
Siguijón Oddsson
og tóbaksdósimar
Karlmaður af Austurlandi
hringdi:
Silfurtóbaksdósir fyndust á Jök-
uldal á Austurlandi. Á þær er letrað:
Siguijón Oddsson, 1887 - 11/10
1954. Sá sem veit eitthvað nánar
um þessar tóbaksdósir eða á tilkall
til þeirra er beðinn að hringja í s. 97
- 1063.
Hver hefur týnt
Valdortt kven-
mannsreiðhjóli?
Kona hringdi og sagðist hafa
fundið í garði sínum lillablátt,
þriggja gíra kvenmannsreiðhjól. Það
var fyrir tveimur mánuðum að hjólið
kom í garðinn og er eigandinn beð-
inn að hringja í síma 38714.
Við höfum opið hús í dag milli
1(13.00) og 5(17.00) fyrirþá
fjölmörgu sem komast ekki frá á
virkum dögum.
Tilefnið er ærið, því bæði eigum við
22ja ára afmæli í dag og svo hefur
aldrei fyrr né síðar sést stórkostlegra
úrval húsgagna í einni verslun.
HLSGÖGIM
húsgagnaAöllin
8ÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410