Morgunblaðið - 26.10.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐE), SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986
C 15
v
Með mikilli eljusemi hefur Albðnum tekiet sð suka landbúnað um 70*K».
Upphafíð er að ferða-
klúbburinn Garða-
bakki með Þorstein
Magnússon skólastjóra
Bankaskólans í farar-
broddi, en hann er gamalreyndur
leiðsögumaður, ráðgerði ferð um
Ítalíu, Grikkland og Júgoslavíu. Við
skipulagningu ferðarinnar kom upp
sú hugmynd að reyna hið ómögu-
lega, þ.e. að fá að fara inn í Albaníu
og st)rtta þannig leiðina til Júgo-
slavíu.
„Var bent á að íslenska sendiráð-
ið i Svíþjóð gæti hjálpað okkur við
að fá vegabréfsáritun," segir Magn-
ús, „en það hafðist ekkert upp úr
því. Eftir nokkra eftirgrennslan var
okkur sagt að til að fá vegabréfs-
áritun yrðum við að hafa örugga
gistingu, en það er erfítt, því það
eru tiltölulega fá hótel í Albaníu,
þó íbúamir séu 2,7 milljónir. Til
dæmis eru aðeins tvö hótel í sjálfri
höfuðborginni, Tirané. Préttum við
loks af ferðaskrifstofu í Bristol i
Englandi, sem var í sambandi við
albönsku ríkisferðaskrifstofuna og
í gegnum ensku ferðaskrifstofuna
var ferð okkar skipulögð. Við þurft-
um að láta ijósrita passana og senda
til Grikklands. Eftir að ferðin var
hafin og við komin til Aþenu fórum
við svo með passana okkar strax í
sendiráð Albana og fengum þá degi
fyrir brottför.
Það var snemma morguns, sem
við lögðum upp frá grísku borginni
Kalambaka í átt til landamæra-
stöðvar í suðurhluta Albaníu, sem
heitir Kabavije. Á milli Grikklands
og Albaníu er einskismanns land
markað af skógarijóðri þar sem
búið er að koma upp hliði og stóðu
þar vopnaðir verðir. Við þurftum
að bíða í klukkutíma Grikklands-
megin en loks kom merki að handan
um að hleypa okkur yfir.
Albaniumegin stóð lítið steinhús.
Okkur var skipað þar í biðröð fyrir
framan, því aðeins nokkrum var
hleypt inn í einu. Þetta hefði ekk-
ert gert til ef það hefði ekki rignt
og engin okkar var með regnkápu
hvað þá regnhlíf. Þegar inn var
komið var gramsað f töskunum
okkar og við látin fylla út skýrslu
þar sem við vorum meðal annars
beðin um að gera grein fyrir því,
hvort við hefðum í farteskinu ýmis
tæki eins og ljósmyndavél, segul-
bandstæki, sjónvarp, ísskáp,
þvottavél eða önnur heimilistæki,
eiturlyf, bækur eða sprengiefni. Ég
hafði haft með mér lítið sjónvarps-
tæki, sem er á stærð við litla
ÁróAursspjöld með áletrunum elns og „Uppfyllum skyidur okkar og
ryðjum öllum hindrunum úr vegi“, mátti sjá f öllum borgum og basjum.
vasabók auk straumbreytis af svip-
aðri stærð. Verðimir virtust mjög
spenntir fyrir tækinu og ég kveikti
á því fyrir þá, og við náðum júgo-
slavneska sjónvarpinu, en þeir eru
óvanir að sjá annað en hið albanska
vegna þess að sjónvarpsútsendingar
nágrannaríkjanna eru skermaðar
af.- Gerðu þeir athugasemd í skýrsl-
una en létu mig halda tækinu.
Þegar tollaeftirlitinu lauk sém
tók 2-3 tíma komum við farangrin-
Árið 1944 lýsti Enver Hoxha
yfir stofnun hins albanska
alþýðurfkis.
um fyrir upp á nýtt í rútinni, sem
við þessir 32 ferðalangar höfðum
til fararinnar.
Þegar hér var komið sögu var
albanski leiðsögumaðurinn okkar
mættur. Hann var 35 ára gamall
menntaskólakennari og í fylgd með
honum var 18 ára aðstoðarmaður
hans.
Nú var haldið til strandbæjar,
sem heitir Saranda, þar er mjög
fallegt. En miðað við strandbæi í
vestur Evrópu var þar ekki mikið
um að vera né margbrotin bað-
strandaraðstaða. Ekið var með
okkur að eina hótelinu í bænum.
Leist okkur ágætlega á okkur. Her-
bergin voru heit og hrein með góðri
snyrtiaðstöðu og útvarpstæki var í
herberginu. Allt var þó mjög fáorot-
ið. Ég var því hissa, þegar ég kíkti
inn í sturtuklefann, þar sem ég sá
inniskó til að hafa í baðinu.
Eftir að hafa komið okkur fyrir
á hótelinu ókum við til Buthrotum
þar sem er að finna rústir af al-
bönskum smábæ frá 12-13 öld.
Þegar hér var komið sögu vorum
við orðin þreytt, því við höfðum
tekið daginn snemma. Við vorum
því fegin að komast á hótelið aftur
þar sem var tekið mjög vel á móti
okkur. Búið að dekka upp langborð
úti undir berum himni, og okkur
boðið upp á ágætis kvöldverð.
Daginn eftir fórum við til fæð-
ingabæjar Enver Hoxha, þess
manns sem mest áhrif hefur haft á
öriög Albaníu og stjómaði landinu
einráður þar til fyrir um þrem árum
er hann lést. Mannsins, sem leiddi
Albaníu á vit kenninga Marx,
Leníns og Stalíns fyrir 42 árum
síðan og mótaði þetta síðasta vígi
stalínismans.
Fæðingabær Hoxha heitir Gji-
rokastar og er á leiðinni til höfuð-
borgarinnar Tirané. Þegar við
komum inn í bæinn stoppuðum við
á aðal torginu en þar hafði safnast
Sjá næstu sfðu.
London — Glasgow
Helgar- og vikuferðir
London alla fóstudaga
Verð frá
Glasgow alla fimmtudaga
Verð frá
kr. 12.950 kr. 12.670
FERÐÁSKRIFSTOFAN
Tjamargötu 10, gengið inn frá Vonarstræti
Símar 28633 og 12367