Morgunblaðið - 30.10.1986, Síða 30

Morgunblaðið - 30.10.1986, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 Indland: Maóistar myrða óbreytta borofara I.ima, AP. '—7 SKÆRULIÐAR myrtu í gær lög- reglumann sem var á verði fyrir framan lögregstöð i hinni fornu borg Cuzco um 500 kUómetra suðaustur af Lima. Þá myrtu skæruliðar tvo óbreytta borgara við útimarkað í borginni Chicla- y°-. Ódæðismennimir komust undan og telja lögregluyfirvöld að skæru- liðar hreyfingar Maóista hafi verið að verki. Talsmenn lögreglunnar sögðu skæruliða hafa skotið varð- manninn þegar hann reyndi að stöðva dreifingu áróðursrita frá samtökum Maóista sem nefnast „Gullni stígurinn". Fimm menn gerðu skotárás á útimarkað í Chiclayo um 750 kfló- metra norður af Lima og beið einn maður bana. Mennimir tóku til fó- tanna en vaktmaður markaðarins stöðvaði mann á mótorhjóli og eltu þeir tilræðismennina. Skæmliðamir skutu ökumann mótorhjólsins en skot vaktmannsins hæfðu einn skæruliðanna og var hann hand- tekinn. Til átaka kom milli skæruliða og stjómarhersins í Ayacucho-héraði í Andesfjöllum í gær og féllu þrír skæruliðar í þeim bardaga. Ekki var getið um mannfall í röðum stjómarhermanna. Grænland: Bannað að selja ópillaða rækju? öldu hryðjuverka Búist við Amritsar, Indlandi, AP. YFIRVÖLD f Amritsar settu á útgöngubann í gær eftir að öfga- fullir sikkar höfðu boðað til mótmælafundar gegn stjórn- völdum í „Gullna hofinu“, sem er helgasta vé sikka á Indlandi. Hiyðjuverkamenn sikka hafa myrt 18 manns í þessari viku og talsmenn stjómarinnar segjast bú- ast við enn einni öldu hryðjuverka á morgun en þá verða liðin tvö ár frá því að Indira Gandhi, forsætis- ráðherra, var myrt. Sikkar hafa lýst því yfir að þeir muni helga daginn minningu lífvarðanna sem myrtu frú Gandhi. Ríkisstjómin hefur fyrirskipað hertar öryggis- reglur í norðurhluta landsins sökum þessa. Rajiv Gandh, forsætisráð- herra; sagði í gær nauðsynlegt að auka viðbúnað í Punjab-fylki þar sem búast mætti við því að hryðju- verkamenn sikka létu til skarar skríða. Lögregluyfirvöld í Amritsar sögðu að útgöngubann hefði verið fyrirskipað í borginni til að koma í veg fyrir ofbeldisverk. Fyrr í þess- asri viku lenti sikkum og hindúum saman þar þegar efnt var til alls- herjarverkfalls í mótmælaskyni við hryðjuverkastarfsemi sikka. Hryðjuverkamenn hafa myrt rúmlega 500 manns það sem af er þessu ári. Kaupmannahöfn, frá Nils J. Bruun, Grænlandsfréttaritara Morgunbiaðsins. Grænlenskir útgerðarmenn fá um þessar mundir mjög gott verð fyrir rækju, sem er seld frosin og ópilluð til Noregs og Dan- merkur. Af því hafa þó lands- feðumir nokkrar áhyggjur, að með þessum viðskiptum er einnig verið að flytja mikla atvinnu úr landinu. Rækjan, sem veidd er á tilrauna- veiðisvæði úti af Norðvestur-Græn- landi, er sett í poka og fryst og síðan send til rækjuverksmiðja í Noregi og Danmörku. Mestur er rækjuskorturínn í Noregi og greiða Norðmenn fyrir kflóið af henni ópill- aðri 24 dkr., 128 kr. fsl. Er það þrefalt það verð, sem þeir greiddu áður. Moses Olsen, sem fer með sjávarútvegsmál í landsstjóminni, hefur hins vegar ýmislegt við þessi viðskipti að athuga. Segir hann, að með þeim séu Grænlendingar sjálfír sviptir atvinnu af því að verka rækj- una auk þess sem verið sé að auðvelda Norðmönnum og Dönum samkeppnina við hefðbundnar, grænlenskar afurðir. Hefur Olsen nú í hyggju að banna þessa rækju- sölu. ÆVINTÝRAHEIMUR THAILANDS: sem þér hefur dottið í hug fyrir verð sem þér hefur aldrei dottið í hug. N^gna sérstakra samninga SAS og Flugleiða er þér nú gert kleift að kynnast ótrúlegum ævintýraheimi Thailands í heila 17 daga fyrir enn ótrúlegra verð; 51.669.- krónur á mann í tveggja manna herbergi. Aukavika fyrir kr. 3.899.- Gist er í 4 nætur í Bangkok og 10 nætur á óviðjafnanlegri Pattaya ströndinni. Þar er dvalið á fyrsta flokks hóteli og aukavika kostar aðeins 3.899.- krónur. Pað er frábært verð fyrir allar þær vellystingar sem í boði eru. Einnig er hægt að gista á s lúxushóteli og verðið hækkar þá aðeins um litlar 4.171.- krónu. íburð- o urinn á þessum hótelum er engu líkur. Aukavika í Singapore fyrir kr. 8.986.- Til að kóróna ferðina getur þú farið í vikuferð til Singapore og gist þar á enn einu lúxushótelinu. Við ferðalok eða í upphafi ferðar er hægt að koma við í Kaupmannahöfn og staldra við í gömlu höfuðborginni. Allar nánari upplýsingar um þetta einstaka ævintýri eru veittar á næstu ferðaskrifstofu, söluskrifstofum Flugleiða og SAS. Fleiri ótrúleg ferðatilboð Við getum einnig boðið upp á ferðir til eftirtaldra staða á ótrúlegu verði; Bangkok kr. 40.120* Singapore kr. 43630* Tokyo kr. 47630* og Rio de janeiro kr. 6(1500". (verð fram og til baka). * Verft miðast við gengi 22.10. FLUGLEIDIR S> S4S Sovétríkin: Lyfturnar eru lélegar Moskvu, AP. EINN helsti sérfræðingnr Sovétríkjanna í augnlækning- um ritaði á miðvikudaginn grein i Pravda, og kvartaði yfir því hvað sovéskar lyftur væru lélegar. í greininni kom fram að Fidel Castro, leið- togi, Kúbu, festist í lyftunni þegar hann heimsótti helstu augnskurðstofu Moskvuborg- ar í febrúarmánuði. Grein sérfræðingsins, sem heitir Svyatoslav Fyodorov, birt- ist á forsíðu málgagnsins. Sagði hann tæknibúnað þann sem not- aður er til að knýja áfram sovéskar lyftur öldungis úreltan og krafðist þess að kommúnista- flokkurinn gripi þegar í stað til viðeigandi ráðstafana. „Það er skammarlegt að nú • undir lok aldarinnar skuli vera framleidd- ar lyftur, sem eru á allan hátt ófúllkomnarí en þær sem fram- leiddar voru fyrir 50 árum,“ sagði í grein Fyodorovs. Sagði þar ennfremur að ekki hefði tek- ist að fá lyftumar til að starfa eðlilega þegar sjálfur Fidel Castro heimsótti stofnunina og hefði leiðtoginn mátt dúsa dá- góða stund fastur á sjöundu hæð. í greininni kom fram að stofn- un þeirri sem Fyodorov veitir forstöðu hefði verið veittur styrkur til að endumýja lyftum- ar í byggingunni. Svyatoslav Ifyodorov kvaðst hafa hafnað þessari fjárupphæð á þeim for- sendum að peningunum værí betur varið til kaupa á læknin- gatækjum. í lok greinarinnar sagðist Fyodorov vera reiðubú- inn til að heimsækja viðkomandi lyftuverksmiðju og aðstoða tæknimenn þar til að koma sam- an almennilegum útbúnaði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.