Morgunblaðið - 30.10.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986
Hugnr í mönnum á aðalfundi Ferða-
málasamtaka Vesturlands
Stykkishólmi.
AÐALFUNDUR ferðamálasamtaka Vesturlands var haldinn í Hótel
Stykkishólmi þriðjudaginn 21. okt. sl. Var fundur þessi mjög vel
sóttur víðast hvar úr umdæminu og sýnir það áhuga þann sem ferða-
mál eiga nú i fólki og fyrirtækjum.
Kynning á WOLTZ snyrtivörum
í dag kl. 14.00-18.00
Topptískan
Miðbæjarmarkaðinum
Förðunarmeistari farðar viðskiptavinina
Fundurinn hófst með því að Sig-
urður Skúli Bárðarson, Stykkis-
hólmi, formaður samtakanna, setti
fundinn og bauð fulltrúa velkomna
og fagnaði góðri sókn. Fundarstjóri
var Guðmundur Lárusson skip-
stjóri, Stykkishólmi. Sigurður Skúli
flutti skýrslu stjómarinnar um störf
yfírstandandi árs og greindi frá
þeirri grósku sem þegar er komin
í ferðamál landsmanna. Ferða-
mannastraumur er að aukast og
með meiri samskiptum íslendinga
við aðrar þjóðir hljóta þessi mál að
ná bæði aukningu og festu.
Þeir sem komið hafa í Vestur-
landsumdæmi og notið ferða og
leiðsagnar hafa látið mjög vel af
þessum kynnum. Og á hótelum er
þegar farið að líta til næsta sum-
ars. Þá hafa ýmis nýmæli verið á
döfínni; siglingar hraðbáta með
leiðsögumönnum um Breiðaijörð og
hefir gefíst vel og mun tekið upp
víðar. Sigurður kvað ýmsa erfíð-
leika í starfínu og það færi ekki
fram hjá neinum að mörgu þyrfti
að breyta í ferðamálum og koma
til betri vegar. Nefndi nokkur dæmi
í því sambandi svo sem starfsemi
ferðaþjónustu ríkisins o.fl.
Óli J. Ólason, ferðamálafulltrúi
Vesturlands, tók næst til máls og
flutti ítarlega skýrslu. Hann er í
hálfu starfi hjá samtökunum. Hann
nefndi nokkur viðfangsefni, m.a.
gat hann um vinnu sem lögð hefði
verið í að koma á ferðaþjónustu-
braut við Fjölbrautaskólann á
Akranesi. Bæði skólastjóri og
menntamálaráðuneyti hefðu tekið
vel í þær hugmyndir og nú væri
að fylgja þeim eftir. Taldi nauðsyn-
legt í fyrsta lagi að halda svæðis-
bundin námskeið fyrir leiðsögu-
menn og í öðru lagi að athuga með
samvinnu við ferðaþjónustu bænda
SNORRABHAUT 56 SIMI 1 35 05
GLÆSIBÆ SÍMI 3 43 50
um almennt námskeið fyrir starfs-
fólk í ferðaþjónustu.
Þá ræddi hann um hugmynd sem
hann hefði reifað ásamt Reyni
Adólfssyni, ferðamálaftr. Austur-
lands, um að fá útvarpið til að hafa
ferðaþætti frá landsbyggðinni.
Þetta varð til þess að Vesturland
fékk góðan þátt í útvarpið en með
alltof stuttum fyrirvara, en gott
fólk fékkst til að taka saman leiðar-
lýsingu allt frá botni Hvalfjarðar
til Gilsfjarðarbotns.
Þá ræddi Óli um upplýsingamið-
stöð. Nokkur hreyfing hefði komist
á það mál m.a. með skipun nefnd-
ar, en betur má ef duga skal.
Hann sagði að hugmynd hefði
komið fram um að ferðamálasam-
tök umdæmanna og bænda stofn-
uðu sameiginlega ferðaskrifstofu.
Þetta mál væri í athugun. Hann fór
nokkrum orðum um markaðsmálin.
Ræddi um auglýsingar og að aug-
lýsingastofum hefði verið skrifað
og óskað eftir tillögum frá þeim
um sameiginlegar auglýsingar hjá
aðilum á Vesturlandi. Þá voru end-
urprentuð 1.000 stk. af upplýs-
ingabæklingi samtakanna, en
nauðsynlegt væri að gefa hann út
endurskoðaðana sem fyrst. Þessi
bæklingur hefír komið að gagni.
Ferðakaupstefna var haldin á Akra-
nesi. Góð þátttaka var frá söluaðil-
um í Reykjavík og frá fjölmiðlum
komu yfír 20 manns. Þetta er þeg-
ar farið að bera árangur. Þá var
tekið þátt í AJþjóðakaupsteftiu í
september sem VestNord-nefndin í
ferðamálum stóð að. Þá minntist
hann á samvinnu ferðamálasam-
taka landsins og fundar á Selfossi
í mars sl. þar sem aðalmál fundar-
ins var kynningarmál, fjármál
samtakanna og upplýsingamiðstöð.
Allt væri þetta til að auka samhug
f ferðamálum og þegar margar
hendur ynnu að þessu væri árang-
urs að vænta. Þetta kæmi þétt og
jafnt.
Óli sagði að hann teldi að nú
eftir 5 ára starf samtakanna mætti
segja að þau væru á krossgötum.
Ef allir aðilar legðu sig fram mætti
mikils vænta.
Halldór Bjamason, markaðsstjóri
Evrópufl. Ajnarflugs, var mættur
á fundinn og flutti athyglisvert er-
indi um ferðamál og urðu miklar
umræður um erindi hans. Var hon-
um sérstaklega þakkað.
Sigurður Skúli Bárðarson baðst
undan endurkosningu sem formað-
ur og voru honum þökkuð farsæl
störf af fundarmönnum.
í stjóm vom kosin: Óskar Bald-
ursson, Ferstiklu, Kristleifur Þor-
steinsson, Húsafelli, Sveinbjöm
Sveinsson, Stykkishólmi, en fyrir
vom Halldór Brynjólfsson, Borgar-
nesi, Jóh. Ellertsson, Reykjavík,
Friðrik Jónsson, Akranesi og Guð-
jón Yngvi Stefánsson, Borgamesi,
sem er í stjóm kjörinn af samtökum
sveitarfélaga.