Morgunblaðið - 08.11.1986, Síða 2

Morgunblaðið - 08.11.1986, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986 30 AR FRA UPPREISNINNIIUNGVERJALAIMPI ina bera þeir sem hafa tekið saman höndum um að endurvekja ógnar- stjóm Stalíns og Rakosis (þ.e. þægasta skósveins Stalíns).“ I hrokafullri og klaufalegri út- varpsræðu kl.8 um kvöldið lagði Gerö áherzlu á að Ungveijar stæðu í mikilli þakkarskuld við Sovétríkin. Hann kallaði stúdenta og verka- menn “fjandmenn þjóðarinnar" og “þjóna afturhaldsins" og sakaðiþá og aðra mótmælendur um “þjóð- rembing". Þar með hellti hann olíu á eldinn: mann- fjöldinn fylltist heift og allt fór í bál og brand. Einn hópurinn steypti af stalli risastóm Stalínslíkneski, sem gnæfði yfir borginni, og dró að húni ungverskan fána, sem rauð stjarna “alþýðulýðveld- isins“ hafði verið skorin úr. Annar hópur fór að húsi stjómarmálgagnsins “Fijáls þjóð“ (Szabad Nep) og krafðist þess að það birti verkfallsáskorun. Mótmælin tóku á sig nýja og hættulega mynd þegar fólk safnað- ist saman um líkt leyti við útvarps- húsið og krafðist þess að kröfum þess yrði útvarpað. Þegar því var ekki sinnt ruddust nokkrir inn í bygginguna. Menn úr öryggislög- reglunni, AVH (sem áður hét AVO), skutu á mannfjöldann, en fólkið fékk vopn frá nær- stöddum her- mönnum, sem höfðu samúð með þeim, m.a. ungum Tékkum úr Pe- töfí- herskólanum. Útvarpið flutti danslög til kl.23„ en klukkustundu síðar náðu uppreisnarmenn skrif- stofum “Fijálsrar þjóðar" á sitt vald. Um nóttina báðu Gerö og Andras Hegedus forsætisráðherra sovézka hemámsliðið um aðstoð í síma með samþykki Nagys og um kl.4 bmn- uðu 70 sovézkir skriðdrekar og 50 brynvarðir bílar inn í Búdapest. Um 200,000 verkamenn streymdu frá úthverfunum inn í borgina og upp- reisnarmenn létu heimatilbúnum sprengjum rigna yfir skriðdrekana, rifu upp götuhellur, veltu sporvögn- um, reistu götuvígi og lögðu eld að opinberum byggingum. Um 350 féllu og 700 særðust um nóttina. Um daginn börðust verkamenn við AVH-menn, eða “Avóa“, og hermenn í mörgum verksmiðjum og á öðrum vinnustöðum. Bardagar héldu áfram við útvarpsstöðina og jámbrautar starfsmenn reyndu að ná jámbrautarstöðvum borgarinnar á sitt vald. Námamenn reyndu að ná leggja undir sig tvær námur fyrir utan borgina og fréttir bárust af bardögum í nálægum borgum. Símasamband við Búdapest rofnaði og fréttir urðu óljósar. NAGY KOSINN Miðstjóm flokksins kom til fund- ar í aðalstöðvum flokksins snemma um morgun- inn og skipaði Imre Nagy forsætisráðherra, en skipun hans hafði engin áhrif (Gerö varð áfram framkvæmdastjóri flokks- ins). Neyðarástandi var lýst yfir og skyndiréttarhöldum hótað. Seint um daginn komu Anastas I. Mikoyan og Mikhail A. Suslov, fulltrúar í stjómmálaráði sovézka kommúnistaflokksins, með flugvél frá Moskvu og fóru rakleitt til aðal- stöðva flokksins. Þeir gáfu til kynna að þeir sættu sig við skipun Nagys (þeir vissu e.t.v. ekki hvemig stjóm hann hygðist mynda) og viður- kenndu að það hefðu verið mistök að kalla út sovézka setuliðið. Morguninn eftir, fimmtudaginn 25.október, réðu sovézkir skrið- drekar lögum og lofum á götum Búdapest. Síðdegis skutu “Avóar" með vélbyssum af húsaþökum á fólk á mótmælafundi á Þinghú- storginu og felldu 600. Uppreisnar- menn mddust inn í vélbyssu- geymslu og hermenn, sem gengu í lið með þeim, hröktu AVH-menn úr prentsmiðju. Æ fleiri hermenn komu til liðs við uppreisnarmenn GÖTUR HREINSAÐAR Götur í Búdapest voru hreinsað- ar, en mikilvægir staðir víða í borginni vom á valdi uppreisnar- manna. Bardagamir héldu áfram, þótt útvarpað væri áskomn þar sem sagði: “Við biðjutn ykkur, sem enn hafið vopn undir höndum og stofnið saklausu fólki í hættu, að leggja þau frá ykkur og þá mun verður ykkur óhætt.“ Um nóttina biðu sovézku hermennimir mikinn ósig- ur. Sundurskotin lík hundmða sovézkra hermanna lágu eins og hráviði á götunum eftir hörð átök. Mörg hundmð sovézkir hermenn gáfust upp og báðust vægðar. Sum- ir þeirra fengu að fara úr landi. Seinna þennan dag, laugardag- inn 27.október, fóm Mikoyan og Suslov frá Ungveijalandi og Gerö með þeim. Allt virtist velta á því hvort Nagy gæti mótað stefnu, er Rússar jafnt sem ungverskir ættj- arðarvinir gætu sætt sig við. Þennan dag endurskipulagði Nagy stjórn sína og dró úr völdum stalín- ista. Tveir af leið- togum Smá- bændaflokksins, Zoltan Tildy fv. forseti og Bela Kovacs, fengu sæti í henni og “fijálslyndur" kommún- isti og heimspekingur, Georg Lukacs, varð mennta- málaráð- herra. Lukacs sagði í útvarpsávarpi: “Það er höfuðverkefni þessarar stjórnar að gerbreyta þeirri kreddu- bundnu og þröngsýnu stefnu, sem hefur verið fylgt til þessa, og styðja sérhvert heilbrigt framtak, hver sem í hlut á, svo að framvegis finn- ist öllum sönnum Ungveijum að hið sósíalistíska ungverska föðurland sé þeirra föðurland.“ Kovacs sagði: “Ég tel myndun þessarar sam- steypustjómar nauðsynlega vegna þess að kommúnistaflokkurinn get- ur ekki stjórnað landinu einn. Ástandið krefst þess að aftur verði komið á friði, reglu og öryggi." Nýja stjómin vakti ekki traust, þar eð margir “rakosistar" áttu sæti í henni, og ppreisnin virtist óstöðvandi. Nagy tilkynnti að hafn- ar yrðu viðræður við Rússa um sambúð landanna. Hann var bund- inn af samkomulagi, sem hann hafði gert við Mikyan og Suslov, en var í stöðugu sambandi við byllt- ingamefndimar og samþykkti æ fleiri tilslakanir til að koma á lögum og reglu. Þegar það tókst ekki neyddist hann til að ganga upp- reisnarmönnum að hönd. Stór hluti ungverska hersins var genginn í lið með uppreisnarmönn- um. Kiljan- herbúðimar í Búdapest urðu aðalmiðstöð andspymunnar og Pal Maleter hershöfð- ingi tók að sér stjómina þar. Kjarni frelsiss- veitanna vom stúdentar, mennta- og félagar þeirra vom tregir til að láta til skarar skríða gegn verka- mönnum. Útlendingar, sem flýðu frá höf- uðborginni, kölluðu Búdapest “borg ógnarinnar" og “helvíti á jörðu.“ Svissneskur blaðamaður sagði: “Ég hef séð með eigin augum hvemig 20 leiðtogar mótmælaaðgerðanna í Búdapest vom hengdir í fánastöng- um og götuljóskerum á breiðgö- tunni meðfram Dóná. Menn geta Rússarnir koma: menn úr Rauða hernum í Búdapest; sovézkir skrið- drekar sækja inn í borgina. Líkneski Stalíns var steypt af stóli í upphafi uppreisnarinnar; ömurlegt var um að litast ílok hennar. ekki gert sér í hugarlund hve hræði- legir atburðirnir í Búdapest em ... fólki er samalað saman og það er skotið á staðnum." Austurrísk kona sagði: “Ég mun aldrei á ævinni gleyma þessari sjón. Ungveijar gengu fylktu liði gegn rússnesku skriðdrekunum, óttalausir og tóm- hentir með engin vopn í höndunum. Þetta fólk dó fyrir frelsi föður- landsins." Byltingamefndir og verkamann- aráð uppreisnarmanna tóku völdin í höfuðborgum flestra héraða, sum- ar eftir blóðug átök við lögreglu, og gáfu út flugmiða og tilkynning- ar. Frelsishetjur náðu yfirráðum yfir landamærasvæði milli bæjarins Magyarovar og landamærastöðvar- innar Hegyeshalom með stuðningi ungverskra hermanna. I Magyaro- var féllu 80 borgarar í örstuttri skothríð “Avóa“, sem vom síðan yfirbugaðir. Gat hafði verið rofið í járntjaldið og þúsundir manna streymdu yflr landamærin frá Aust- urríki til að hitta ættingja og vini, sem þeir höfðu ekki séð ámm sam- an. Vestur-Ungveijaland, Pecs, Mi- skolc og fleiri borgir í Suður- og Austur- Ungveijalandi urðu öflug vígi uppreisnarmanna. I Györ (Ra- ab)fengu uppreisnarmenn sovézka setuliðið til að hörfa út í skóg og útvarpsstöð þeirra hafði eftir yfir- manni þess: “Að mínu mati er upp- reisn ungversku þjóðarinnar fylli- lega réttlætan- leg.“ Uppreisnar- menn í Miskolc útvörpuðu kröfum um tafarlausan brottflutning sovézka herliðsins, myndun nýrrar stjórnar, verkfallsrétt og náðun uppreisnar- manna. Nagy gekk að þessum kröfum föstudaginn 26.október og hét því í útvarpsávarpi og hét því að biðja Rússa að flytja her sinn úr landi, ef uppreisnarmenn legðu niður vopn. Nú var Gerö vikið úr stöðu flokksleiðtoga og eftirmaður hans valinn Janos nokkur Kadar, sem fáir könnuðust við, en stalínistar höfðu handtekið nokkmm ámm áður fyrir “klofningsstefnu". Stalín- istar vom þó sem fyrr í meiri- hluta í stofnunum flokksins og ríkis- stjóminni eftir þessa breytingu. Kadar reyndi að róa almenning eins og Nagy og viðurkenndi að verkamenn tækju þátt í uppreisn- inni. En ræður og loforð megnuðu ekki að stöðva uppreisnarmenn og bardagarnir héldu áfram. Frelsis- hetjumar gerðu sér vonir um sigur og treystu því að Sameinuðu þjóð- imar mundu bjarga ástandinu, þótt það væri út í hött.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.