Morgunblaðið - 08.11.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986
É $
skólanemendur, verkamenn,
menntamenn, margir hermenn og
lögreglumenn. Jafnvel 10 ára
drengir og stúlkur börðust með
frelsishetjunum.
Andstæðingamir voru fyrst og
fremst sovézka hernámsliðið,
30,000 starfsmenn og nokkrar
deildir ungverska hersins, sem voru
þó óáreiðanlegar. Baráttuhugur
sovézku hermannanna var ekki upp
á marga físka. Þótt mörgum sögum
færi af grimmdarverkum þeirra
voru þeir ekki allir ijandsamlegir
uppreisnarmönnum. Að sögn eins
leiðtogi uppreisnarmanna töldu þeir
að í Ungveijalandi væru 800,000
kommúnistar, en þeir reyndust vart
20,000, og það var þeim mikið sál-
rænt áfall að sjá heila þjóð rísa
gegn þeim. Sovézkir fangar fengu
góða meðferð og mörgum þeirra
var ekið burt úr höfuðborginni og
sleppt.
Smám saman náðu Rússar að
mestu undirtökunum í Búdapest og
samið var um vopnahlé sunnudag-
inn 28. október. Tiltölulega rólegt
var í borginni og aðeins barizt
umhverfis Kilian-herbúðirnar.
Kirkjuklukkum var hringt og kl.ll
um morguninn var útvarpað áskor-
un til frelsishetjanna í Kilianbúðun-
um: “Ef þið leggið niður vopn fáið
þið uppgjöf saka og getið farið
óhindraðir heim til ykkar.“ Ekkert
mark v'ar tekið á áskoruninni og
bardögunum var haldið áfram, þótt
rólegt væri í miðborginni. Skrið-
drekar voru þar á verði og leitað
var að vopnum á vegfarendum, en
margir hættu sér út á götumar og
þar hófust íjörugar samræður um
horfumar.
BROTTFLUTNINGUR
Nagy gaf þessa mikilvægu yfír-
lýsingu í útvarpsávarpi: “Ung-
verska stjómin hefur komizt að
samkomulagi við sovétstjómina.
Sovézka herliðinu hefur verið skip-
að að hörfa þegar í stað frá
Búdapest. Við munum koma á fót
nýrri lögreglu, sem mun eingöngu
sjá um löggæzlu. AVH verður leyst
upp þegar í stað.“ Nagy hét því
jafnframt að ganga að öllum öðmm
kröfum uppreisnarmanna.
Mánudaginn 29.október féllu að-
alstöðvar kommúnistaflokksins og
Nagy flutti skrifstofu sína í þing-
húsið. Lífið virtist vera að færast í
nokkurn veginn eðli- legt horf og
rússneskir hermenn og ungverskar
frelsishetjur sáust ræðast við í bróð-
emi. Mikoyan og Suslov komu aftur
frá Moskvu og höfðu meðferðis yfír-
lýsingu.þar sem Rússar virtust
ganga að flestum kröfum byltingar-
manna og hétu því að dvöl sovézka
herliðsins yrði tekin til endurskoð-
unar.
Erlend blöð greindu hins vegar
frá því að Rússar drægju saman
herlið á lands- byggðinni og væru
að búa sig undir að betja uppreisn-
ina niður. Hvarvetna í landinu var
orðrómur á kreiki um að sovézka
herliðinu bærist liðsauki. Utan-
ríkisráðherra Rússa, Dimitri Shep-
ilov, sagði að rússneska herliðið í
Búdapest færi ekki þaðan fyrr en
uppreisnarmenn legðu niður vopn
og neitaði að svara því hvort herlið
Rússa færi af landi brott.
Þriðjudaginn 30.október, til-
kynnti Nagy að Kremlveijar hefðu
samþykkt að kalla heim sovézka
herliðið og brottflutningur þess
hófst samdægurs. Mikoyan og
Suslov fóru ásamt Gerö og virtust
hafa samþykkt fáðstafanir Nagys
til að koma aftur á lögum og reglu.
Um leið lýsti Nagy yfír endalokum.
alræðis kommúnista, hét fíjálsum
kosningum og boðaði myndun nýrr-
ar stjómar allra flokka. Kadar lýsti
því yfir að “verkamannaflokkur",
sem hann var að stofna og átti að
leysa kommúnistaflokkinn af hómi,
“styddi í einu og öllu allar ákvarð-
ur á laggimar undir stjóm Pal
Maleters.
Ástandið var skuggalegt eftir
átökin. Lík lágu enn eins og hráviði
á götum Búdapest. Hætta var á
farsóttum og hungursneyð blasti
við í mörgum hémðum. Strangar
heilbrigðisráðstafanir vom fyrir-
skipaðar og lík fjarlægð og jörðuð.
Blaðið “Rödd þjóðarinnar" skrifaði:
“Bömin svelta, skortur er á elds-
neyti, gasbirgðir og rafmagnsbirgð-
ir era á þrotum. Sjúkrahúsin ráða
ekki lengur við ástandið. Um leið
og kraftar þjóðarinnar þverra eykst
hætta á endurreisn harð- stjórnar
stalinista og rakosista." Ljós vom
tendmð á gröfum fómarlamba bylt-
ingarinnar meðan Rússar bjuggu
sig undir árás á Búdapest.
Mikið pólitískt uppnám ríkti á
Ungverjalandi. Flokkar, sem höfðu
verið bannaðir, tóku til starfa á ný,
þar á meðal Smábændaflokknur
Tildys og flokkur jafnaðarmanna
undir forystu Önnu Kethly. Þeir
leiðtogar og þingmenn lýðræðis-
flokkanna, sem höfðu ekki verið
líflátnir og vom lausir úr fangels-
um, komu aftur fram í dagsljósið
og ungverska þjóðin bar greinilega
traust til þeirra. Kadar sá þetta og
talaði um nýja “þriðju leið, sem
mun ekkert eiga skylt við annað
hvort titoisma eða kommúnisma
Gomulka“.
HLUTLEYSI
Fimmtudaginn l.nóvember lýsti
Nagy yfír hlutleysi Ungveijalands
og úrsögn landsins úr Varsjár-
bandalaginu og bað Sameinuðu
þjóðimar um vemd. Með þessu gekk
hann lengra en Gomulka hafði gert
í Póllandi og lengra en Rússar gátu
sætt sig við. Þeir óttuðust áhrifin
í öðmm fylgiríkjum og stuðnings-
menn íhlutunar náðu yfírhöndinni
í Kreml. Kremlveijar ákváðu að
mynda nýja stjórn í Ungveija- landi
undir forystu Kadars, þótt þeir
héldu áfram að ræða við Nagy.
Næstum því samtímis réðust Bretar
og Frakkar á Súez og Vesturveldin
höfðu um nóg annað að hugsa en
Ungveijaland. Líklega hefur árásin
átt þátt í ákvörðun Rússa um að
láta til skarar skríða.
Sameinuðu þjóðimar gátu enga
vemd veitt Ungveijalandi og hafa
sjaldan verið eins máttvana. Rússar
beittu neitunarvaldi í Öryggisráðinu
gegn ályktun, þar sem hvatt var
til brottflutnings sovézka herliðsins.
Allsheijarþingið samþykkti sams
konar ályktun og skipaði nefnd til
að kanna málið, en Rússar neituðu
að eiga samstarf við hana og eng-
inn árangur náðist. í Súezdeilunni
létu Bretar og Frakkar undan þrýst-
ingi “almenningsálitsins í heimin-
um,“ en Rússar vom ekki eins
áhrifagjarnir og hundsuðu SÞ, sem
héldu stormasama fundi, en gátu
ekki tekið ákvörðun, jafnvel ekki
um að senda fulltrúa til Ungveija-
lands til að kanna ástandið.
Sama dag og Nagy flutti ræðu
sína bámst þær fréttir að sovézkt
Imre Nagy í hópi stuðningsmanna.
Ættjarðarvinir.
anir, sem stjórnin hefur tekið í dag.“
Á sama tíma stóð hann í viðræðum
við Rússa án vitundar Nagys.
Þennan dag var Josef Mindez-
enty kardinála, sem hafði verið
dæmdur í 15 ára f angelsi 1949,
sleppt úr fangelsinu í Felsoepeteny.
Þegar hann sneri aftur til Búdapest
til að taka á ný við starfi æðsta
yfirmanns ungversku kirkjunnar
var öllum kirkjuklukkum landsins
hringt. Trúað fólk kraup á kné á
meðfram leiðinni, sem hann fór um,
hann blessaði mannfjöldann og
margir grétu. í augum sanntrúaðra
Ungveija var Mindzenty tákn frels-
is, sjálfstæðis og baráttu gegn
kommúnisma og sovézku hernámi.
Hann hugðist endurreisa flokk
kristilegra demókrata, sem hafði
starfað fyrir stríð, en sagði erlend-
um blaðamönnum að hann styddi
Nagy.
Rússneskir skriðdrekar og her-
sveitir fóm frá Búdapest, en
sovézkir verðir urðu eftir við land-
varnaráðuneytið, innanríkisráðu-
neytið, sovézka sendiráðið og á
fleiri stöðum að sögn útvarps upp-
reisnarmanna. Samkvæmt fréttum
frá landamær- unum söfnuðu Rúss-
ar liði og í ljós kom að þeir mundu
ekki hörfa frá landinu. Þvert á
móti var hermt “að þúsundir
sovézkra skriðdreka streymi inn í
land okkar og vélvætt fótgöngulið
sæki yfír landamærin." Rússneska
herliðið virtist búa sig undir að snúa
aftur til Búdapest.
Síðasta vígi AVH, útvarpsstöðin
í Búdapest, féll þennan dag og ný
stöð upp- reisnarmanna tilkynnti:
“Kjörorð okkar er sannleikurinn,
allur sannleikurinn og ekkert nema
sannleikurinn." Alþýðuher var sett-
Pal Maleter hershöfðingi ogKil-
ian-herbúðirnar, miðstöð upp-
reisnarmanna, þar sem hann fór
með stjórnina.
Mindzenty kardináli: sleppt úr
haldi.