Morgunblaðið - 08.11.1986, Blaðsíða 5
*<■ 'MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986
u 5
stöðu að hjálpa okkur. Skip okkar
er að sökkva. Ljósin eru að slokkna.
Skuggamir yfír hinni ungversku
fósturmold verða dekkri með hverri
klukkustundinni sem líður. Veitið
okkur bróðurlega aðstoð!"
Hópar manna héldu áfram að
veita viðnám, þótt það væri óðs
manns æði vegna skorts á vopnum
og slæmra samgangna. Frelsishetj-
umar í Kiljanbúðunum vörðust af
mikilli hreysti í þrjá daga undir
foiystu Maleters. Síðustu 40 menn-
imir hörfuðu þegar þeim hafði verið
heitið náðun og voru stráfelldir þeg-
ar þeir gengu út. Þegar Rússar
bjuggu sig undir að gera öfluga
árás á aðalstöðvar Þjóðvarð- liðsins
hörfuðu þeir sem þar vom til vam-
ar hörfuðu frá Búdapest, en sovézk-
ar þyrlur sveimuðu yfír þeim og
röktu slóð þeirra.
Landslagið í Ungverjalandi er
óhentugt til skæmhemaðar og von-
ir um vestræna aðstoð urðu fljót-
lega að engu. Barizt var í fímm
daga í Búdapest, Pecs, Györ og á
fleiri stöðum. Þrjátíu þúsund verka-
menn vörðust í Csepel til 14.
nóvember, en þá lögðu þeir og
síðustu einangmðu andspymuhóp-
amir í Búdapest niður vopn.
Andspymunni var lokið, en verka-
menn tóku upp verkföll og skæm-
hemað, sem stóð í margar vikur. í,
Ujpest og Csepel gættu sovézku
innrásarmennimir þess vandlega
að halda sig í hæfílegri fjarlægð frá
verkamönnum.
Samkvæmt opinbemm tölum
féllu 5-6.000 og 13,000 særðust,
en 20-25,000 féllu að sögn ind-
verska sendiráðsins í Búdapest.
Rússar birtu engar tölur um mann-
tjón. Varlega áætlað misstu þeir
a.m.k. 1500 menn fallna, en 7,000
að sögn Indverja. Eignatjónið var
gífurlegt eins og enn má sjá sums
staðar í Búdapest. Tuttugu þúsund
íbúðir eyðilögðust. Um 200,000
flýðu land skv. opinbemm tölum (52
komu til íslands).
AVH endurheimti fyrri völd sín
og sendi menn sína út á götumar
í fýlgd með sovézkum hermönnum
til að smala saman “gransamlegu
fólki". Samkvæmt óopinbemm
heimildum vom 40,000 fangelsaðir
fyrir “gagnbyltingarstarfsemi" og
pyntaðir. Nauðungarflutningar
ungmenna til Sovétríkjanna hófust
ll.nóvember þrátt fyrir mótmæli
verkamannaráða.
Janos Kadar, hinn nýi forsætis-
ráðherra, sveik Nagy þegar bardög-
unum var lokið og Rússar brotið
síðustu hópa andspymumanna á
bak aftur með stórskotaárásum.
Aðfaranótt 23.nóvember fóm Nagy
og nokkrir samstarfsmenn hans úr
júgóslavneska sendiráðinu, þegar
Kadar hafði heitið þeim því að þeir
gætu farið frjálsir ferða sinna.
Rússneskir öryggislögreglumenn
tóku þá fasta og fluttu þá til Rúm-
eníu. Nagy og félagar hans vom
teknir af lífi í júní 1958 eftir leyni-
leg réttarhöld, ásamt nokkmm
öðmm ungverskum leiðtogum,
þeirra á meðal Maleter hershöfð-
ingja.
Þegar Nagy hafði verið dæmdur
til dauða sagði hann í skeleggri
ræðu, sem var ekki birt fyrr en 10
ámm síðar “Ég veit að einn góðan
veðurdag munu fara fram önnur
Nagy-réttarhöld og þá fæ ég upp-
reisn æm.“ Þótt margt hafí breytzt
á betri veg í Ungverjalandi síðan
uppreisnin var gerð hefur maður-
inn, sem sveik hann og tók við af
honum, ekki orðið við ósk hans um
endurreisn. Hann er eini maðurinn,
sem getur tekið slíka ákvörðun, en
hefur enn ekki séð ástæðu til þess.
Hann hefur ráðið lögum og lofum
í þau 30 ár, sem liðin era síðan
uppreisnin var gerð, en hún er ekki
gleymd þrátt fyrir vinsældir svo-
kallaðs “gúllaskommúnisma" hans.
GH
VAREFAKTA er vottorð dönsku neytendastofnunarinnar um
eiginleika vara, sem framleidendur og innfiytjendur geta sent
hemi til prófunar, ef þeir vilja, með öðtum orftum, ef þeir
þora!
EKTA DÖNSK GÆDIMED ALLT Á HREINU
fyrir smekk og þarflr Noröuriandabúa
gædi á góðu verði!
þorir og þolir KALDAR STAÐREYNDIR um þad sem
máii skiptir, svo sem kslisviö, frystigetu, einangrun, styrk-
leika, gangtíma og rafmagnsnotkun.
Hátúni 6a. sími (91) 24420
Skrifstofan Háaleitisbraut 1 er opin virka daga
frá kl. 9-22 og um helgar kl. 10-17.
Sjálfstæðismenn, eflum flokksstarfið,
gerum skil á heimsendum happdrættismiðum
.HAPPDRÆTB
HAUST.
SJ ALFSTÆÐISFLOKKSINS
VF.RÐMCHR VINMNGAR
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
HRINGIÐ í SÍMA 82900