Morgunblaðið - 08.11.1986, Page 11

Morgunblaðið - 08.11.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986 B 11 eftir því. Miklar annir eru hjá ung- verskum tannlæknum og gler- augnasölum. Ströng gæzla er enn á landamær- unum, en verðirnir eru kurteisir. Ekki er lengur leitað í farangurs- geymslum bifreiða þegar ferða- menn fara úr landi. Erlendir bílar eru heldur ekki stöðvaðir til að kreíja ökumenn þeirra um skilríki. Ungveijar fá að fara til Vestur- landa einu sinni á þriggja ára fresti, jafnvel heilar fjölskyldur ef óskað er. Sumir fá að fara oftar, ef þeir þurfa ekki erlendan gjaldeyri og fá meðmæli frá vinum eða ættingjum. Þó mundu margir flytjast úr landi, ef fjölskyldutengsl og aðrar einka- aðstæður kæmu ekki í veg fyrir það, en af efnahagslegum en ekki pólitískum ástæðum. Fólk sem vinnur rannsóknarstörf, kennarar og alls konar “menntamenn" eru illa launaðir samanborið við verka- menn og hafa minni möguleika á að útvega sér aukavinnu. Flokkurinn hefur smám saman dregið úr eftirliti sínu í atvinnu- og viðskipta- lífinu. Þekking og reynsla eru nú lykill að stöðuhækkunum ekki síður en flokks- skírteini, en þeir sem komast áfram verða að leggja það á sig að sækja námskeið í marxisma. ÓÁNÆGJA Sumir segja að Ungveijaland hafí breytzt í bærilegt fangelsi og Kadar sé mjúkmáll og góðlátlegur fangelsisstjóri. Stöðnun síðustu ára hefur valdið vonbrigðum, en þjóðin virðist óánægðust vegna þess henni finnst að henni hafí verið mútað. Pólitískt lýðræði hefur ekki aukizt, þótt vera megi að lýðræði eigi eftir að aukast innan flokksins og Ung- veijar verði frumheijar á því sviði sem öðrum á austur-evrópskan mælikvarða. Ungveijar og Kadar hafa gert með sér nokkurs konar þegjandi samkomulag, sem gæti hljóðað þannig: “Ég skal bæta efnahags- ástandið, veita ykkur talsvert málfrelsi, leyfa ykkur að ferðast til útlanda og lesa þær bækur sem þið óskið, ef þið lofið mér því að sætta ykkur við stjóm kommúnistaflokks- ins og óhjákvæmi- lega leiðsögn Rússa og valdið ekki truflun eða óróa." Sumum Ungveijum finnst þetta jafngilda því að þeir hafi selt sálu sína fyrir gúllas! Vel má vera að þeir eigi erfitt með að sætta sig við þetta lengur og hræringa geti orðið vart á nýjan leik. Þeir virðast vera eirðarlausir, þar sem þeim fínnist þetta vansæmandi. Ungveijar hafa alltaf verið stolt þjóð á sama hátt og Pólveijar, einu þjóðir Austur- Evrópu sem Rússar hafa borið virðingu fyrir, og ekki er víst að þeir sætti sig við þetta til lang- frama. Kenningar kommúnista hafa ekki haft áhrif á þá og flokkurinn er í vamarstöðu. Yfírgangur hans hefur minnkað og hann þarf að vera á verði gegn skoðunum al- mennings. Saga Ungveija greinir frá mörg- um uppreisnum og ósigrum og þeir hafa oft þurft að ganga til sam- vinnu við erlend hemámsyfirvöld. Þeir lærðu fljótt eftir innrás Tyrkja á 16.öld að ef þeir vildu fá kröfum sínum framgengt borgaði sig að benda á að ef ekki yrði gengið að þeim kynnu þeir að gera uppreisn. Segja má að þeir hafí líka leikið þennan leik gegn Rússum og með þeim árangri að núverandi vald- hafar hafí talsvert svigrúm. Síðan uppreisnin var gerð hafa þeir reynt eftir megni að sníða versta agnúana af kerfí, sem var þröngvað upp á þá í stríðslok. Sovézkt hemámslið er enn í landinu, en þótt Ungveijum hafi ekki orðið að þeirri ósk sinni að tryggja sér frelsi og fullveldi hefur þeim tekizt að varðveita sjálf- stæða þjóðarvitund. GH tók saman. Lestun ms. Isberg Goole: 17/11, 2/12, 17/12. Zeebrugge: 19/11, 4/12, 19/12. Bremerhaven (Hamborg): 20/11, 5/12, 20/12. Esbjerg: 21/11, 6/12, 22/12. Hafnarfjörður: 25/11, 10/12, 26/12. Kælivara — frystivara — gámar — bretti. Ok hf.f S: 651622 OG 43933 EFTIR KL. 18.00. c§3Húsnæðisstofnun ríkisins Auglýsing um dráttarvexti Af lánum, sem verðtryggð eru með lánskjaravísitölu, eru reiknaðir dráttarvextir á 15. degi frá gjalddaga. Af lánum, sem verðtryggð eru með byggingarvísitölu, verða reiknaðir dráttarvextir einum mánuði eftir qjalddaga. Reykjavík, 7. nóvember 1986. Húsnæöisstofnun ríkisins Samband íslenskra kristniboðsfélaga SAMBAND ISLENSKRA KRISTNIBODSFELAGA Kristniboðsdagurinn 1986 Kristniboðsdagur Þjóðkirkjunnar er að þessu sinni 9. nóvember. Þá verður kristniboðsins minnst í kirkjum landsins og tekið á móti gjöf- um til starfsins. Sérstakar kristniboðssam- komur verða haldnar á eftirtöldum stöðum: Akureyri: Samkomur í félagsheimili KFUM & K, Sunnuhlíð laugardag 8. nóv. og sunnudag 9. nóv. kl. 20.30. Ræðumaður: Stína Gísladóttir. Akranes: Samkoma í félagsheimili KFUM & K. sunnudag 9. nóv. kl. 20.30. Kristniboðsþáttur Susie Backman. Ræðumaður: Páll Friðriksson. Reykjavík: Samkoma í húsi KFUM & K við Amt- mannsstíg sunnudag 9. nóv kl. 20.30. Kór KFUM & K syngur. Kvikmynd frá Kenya. Ræðumaður: sr. Guðmundur Óli Ólafsson. Kristniboðsvinum og velunnurum eru færdar bestu þakkir fyrir trúfestu og stuðning við kristniboðið á liðnum árum og því treyst, að liðsinni þeirra bregðist eigi heldur nú. Samband íslenskra kristniboðsfélaga. Aðalskrifstofa Amtmannsstíg 2B. Pósthólf 651. Gíróreikningur 65100 — 1. Reykjavík. plaköku helgi eitar plakökur alla helgina plapie plakaka plaskífur arísartertur rönsk eplakaka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.