Morgunblaðið - 08.03.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.03.1987, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1987 Starfsleikni almennra kennara gæti leyst hluta sérkennslunnar Var gert ráð fyrir að kennarar gætu lokið því með BA-gráðu. Námið er skipulagt með nokkuð öðrum hætti en verið hefur í framhaldsdeildum Kl. Áður var boðið upp á eitt ár í fullu námi, en nú er það skipulagt sem fjögurra ára hlutanám sem jafn- gildir tveimur árum í fullu námi, en þáttakendur starfa áfram að hluta við kennslu og áhersla lögð á að tengja námið verkefnum í viðkom- andi skólum. Námið er undir umsjón gistilektors frá Newcastle Poly- technic-háskóla á Englandi, Keith Humphreys. Veigamikið atriði í hinu nýja sérkennslunámi er þáttur sem nefnist starfsleikninám og hófst í fjórum sérskólum ríkisins um ára- mótin 1985-86. Og nú býðst kennurum semsagt þátttaka í starfs- leikninámi þar sem fengist verður við sérkennsluþarfir nemenda í al- mennum grunnskóla og er liður í Qölþættari áformum um aukna símenntun starfandi kennara. Það er sá þáttur sem var að hefjast nú í bytjun ársbyrjun og kom áhugi skólafólks vel fram í því að skólam- ir leystu kennara sína frá kennslu- skyldu með litlum fyrirvara á erfiðum tíma. Að brúa gjána milli al- mennrar- og sérkennslu Það var fróðlegt að vera við upp- haf vinnufundarins mánudaginn 9. febrúar til þjálfunar kennara til að verða leiðbeinendur í eigin skóla. Jónas Pálsson skólastjóri KÍ sagði í ávarpi til þátttakenda að hann telji að þetta sérkennsluverkefni tengist í raun símenntun í starfí. En nú hljóti að verða markvisst gengið í hana. Brottfall eftir hið almenna kennaranám hljóti alltaf að verða um 30%, en þeim kennurum sem halda áfram verði að búa aðstæður til símenntunar. Telur skólastjóri Kennaraháskólans augljósa framtí- ðarþróun þá að grunnnámið eitt ráði ekki úrslitum um hvemig til tekst heldur ekki síður uppbygging endur- menntunar og framhaldsmenntunar. Með þessari tilteknu vinnu, starfs- leikninámskeiðinu.sé verið að færa þetta úr sérskólunum yfír í almenna skólann og framkvæmdin sé mörg- um að þakka. Þessi áfangi byggi á samvinnu við embættismenn og áhuga þeirra sem valdir hafa verið í námið. Þannig færist þetta nær skólanum, nær þörfum hans. Til að átta sig á þeim viðhorfs- breytingum, sem þarna eru á ferð- inn, er fróðlegt að grípa niður í setningar úr umræðum þáttakenda og skipuleggjenda í upphafi, svo sem: „Það er eðlilegt að allir séu saman í skólanum og þá hlýtur að koma til meiri fagmennska, að kenn- arinn sinni meira sjálfur því sem er „sér“. Vonandi að þetta sé upphaf að breytingu," sagði Áslaug Brynj- ólfsdóttir fræðslustjóri í Reykjavík. Og Guðjón Ólafsson, sérkennslufull- trúi, gat þess að kannski sé þetta einmitt sú aðferð sem beita hefði átt í upphafí grunnskólalaganna. Valgerður Jónsdóttir, sérkennslu- fulltrúi og einn skipuleggjenda, vakti athygli á þeirri áherslubreytingu sem orðið hefði, þar sem sérkennslu- þarfír væru ekki lengur skilgreindar eftir fötluninni einni, enda séu sér- kennsluþarfir fatlaðra ekki síður mismunandi en annarra í skólanum. Sé skilgreiningin of þröng, þá lendi börn bæði ofan við og neðan við aðalstrauminn. í staðinn sé hér gengið út frá námsskrá skólans og áherslan er á þroskastigi nemandans hvar sem hann er staddur. Það taki tíma að átta sig á þessu. Ein ástæð- an fyrir því að þessari vinnu sé dreift á tvö ár, sé sú að tíma tekur að framkvæma hugmyndir. Tími og svigrúm verði að gefast til að átta sig á efasemdum sem upp koma um það hvemig það sem um er fjallað nýtist kennurunum í daglegu starfí. Þama verður lögð áhersla á að kenn- arinn sjálfur sé fær um að meta þarfírnar. Að greina þarfímar sé einmitt þáttur í fæmi kennarans. Og Ólafur Proppé lektor, sem einnig er í undirbúningsnefndinni fyrir starfsleikninámið gat þess að í þeim viðhorfum sem hér væru á ferðinni, fælist að brúa þá gjá sem er milli sérkennslu og almennu kennslunnar. Gert sé ráð fyrir því að hinn al- menni kennari verði fær um að kenna bömum með hinar ýmsu sér- þarfir. Hann þurfí að geta ráðið við það í daglegu kennslustarfí. Sú stefnumarkandi aðferð sem hér er á ferðinni ætti að geta orðið til þess að sérkennsla verði fyrir hendi í al- mennri kennslu. Kennarinn eigi að vera með í að búa til námskrá, sem komi ekki bara að ofan inn í skól- ann. Þá verði farið að skipuleggja námsskrána í skólastofunni. Þessi ummæli gefa hugmynd um hvert krókurinn er farinn að beyj- ast. Bretinn Keith Humphreys frá Polytechinc- háskóla í Newcastle, sem hefur mikla reynslu að baki í sérkennslumálum og hefur í hálft annað ár verið gistilektor hér á ís- landi, sagði í fyrirlestri sem hann flutti við setningu námskeiðsins að þessi hugsanagangur sé ekki nýr. Hann hafi verið að þróast í Bret- landi í tíu ár og mjakast í ákveðinn farveg. Næg en ónýtt þekking Humphreys getur skoðað skóla- mál okkar utanfrá, eins og sérfræð- ingar OECD skýrslunnar umtöluðu. Og kom því margt býsna athyglis- vert fram hjá honum. Af kynnum sínum af íslensku skólastarfí kemur honum það svo fyrir sjónir að meðal skólamanna á íslandi sé geysimikil samansöfnuð þekking, sem þeir hafa keppst við að draga að sér úr ýmsum áttum. En það sem vanti sé geta og tími til að nota þessa þekkingu: „Eg held ekki að skorti þekkingu í skólunum heldur aðstoð við að nota hana. Hver ráðgjafínn hefur komið af öðrum með góð ráð, sem kennar- ar hafa hlustað á af áhuga, en síðan hafa þau ekki komið að notum í daglegu starfí. Við erum hér að reyna að móta hlutverk kennara með hæfni til að sinna bömum með sér- kennsluþarfir. Fmna leið og vera þeim hvatning til að nýta hæfíleika sína til jákvæðrar kennslu." Fyrirles- arinn hafði áður gagnrýnt ríkjandi neikvæðu í hugsun þegar um er að ræða sérkennslumál, sem ganga út á það að greina þau frá sem ekki geta. Ekki sé þó vitað hvaða böm þetta em sem hafa sérkennsluþarfir. Þau sem sett em í eitthvert sér- hólfíð em ekki öll eins. Bömin sem ekki ná prófí þurfa ekki endilega að vera börn með sérkennsluþarfir, þótt mörg þeirra séu það. Bömum getur mistekist af ýmsum ástæðum, t.d. af því einu að þau era viðkvæm fyrir kulda og heyra illa hluta af árinu, eins og hann gerði sjálfur þegar hann var í skóla. Var þá tal- inn latur. Og þannig færast þau kannski sífellt lengra frá aðal- straumnum í bekknum. Sumum þeim sem á eftir verða er með hjálp hægt að kippa aftur upp svo þau fylgi fjöldanum og önnur sem hefur mistekist aðlögun af því þau em of greind má draga aftur inn í hópinn með hjálp. En klukkutíma hjálp á viku til þess dugir skammt. Ef árangur á að nást við að beina þeim aftur inn í aðalstrauminn með bekknum, þá verður það að gerast skjótt, hratt og af krafti. Hví skyldi þá ekki fyrst og fremst vera notuð jákvæð uppbygging í upphafí fremur en neikvætt mat til að ná þessum bömum inn í aðalstrauminn með hinum?“ Keith Humphreys sagði þetta starf hljóta að fara fram í hinum almenna skóla, þar sem kennarinn gegnir lykilhlutverki. Sumir kennar- ar komi þar að vísu ekki auga á bömin með vandamálin, af því að þeir ráða ekki við þau. Þeir hljóti þó að vilja koma til móts við nemend- uma, vanti ekki þekkingu til þess en þurfi aðstoð til að nýta sér hana. Þegar farið var í skólana í septem- ber í haust til að spyrjast fyrir um hvort áhugi væri á ofangreindri vinnu var starfíð eiginlega hafíð, að hans dómi. Mikilvægast taldi hann að skólanir og allir kennaramir þar, fái að vita hvað er á seyði. Séu með í því. Þeir em ekki að sækja eitt- hvað nýtt heldur breikka sína eigin skynjun og skilning og fá staðfest- ingu á því sem þeim hefur ef til vill fundist. Breytingar í kennslu em ekki jafn hraðvirkar og veðrabrygði. íþróttamenn þurfa að þjálfa sig lengi Keith Humphreys gistilektor frá Newcastle Polytechnic háskóla í Englandi. til að ná árangri. Breyttir kennslu- hættir krefjast líka þjálfunar, eins og breski lektorinn orðaði það. Hver skóli komi tii móts við sín börn I greinargerð frá undirbúnings- nefnd starfsleikninámsins má fínna þessa setningu:„ í starfsleikninám- inu er gengið út frá þeirri gmndvall- arforsendu að hver skóli verði að vera fær um að koma til móts við sérkennsluþarfir þeirra bama sem í honum em. En það er undir því komið að 1) áhugasamir kennarar innan hvers skóla samræmi vinnu- brögð sín og skipuleggi starfíð með allan skólann í huga, 2) skólastjóm- endur og fræðsluskrifstofur taki ötulan þátt í starfínu og stuðli að því að þekkingu og reynslu sé miðl- að milli skóla og fræðsluumdæma." Þar segir líka til skýringar á því hvemig þessar sérkennsluþarfír verða gjarnan til:„ Þegar kennsla í almennum gmnnskóla er skoðuð kemur í ljos að námsskráin sem bömum stendur til boða er mjög þröng og lítt sveigjanleg. Bömum er ætlað að vinna með ákveðnar námsbækur sem ætlaðar em hveiju námsári fyrir sig. í öllum skólum á íslandi má til dæmis sjá 10 ára nem- endur vinna með „Stærðfræði 4A“ eða „Stærðfræði 4B“. Fyrir nokkuð stóran hóp gengur þetta vel en fyrir njikinn hluta bama er slíkur ósveigj- anleiki í námsvali alls ófullnægjandi. Haldið er aftur af duglegustu nem- endunum þó svo að þeir séu vel færir um að vinna námsefni sem ætlað er þó nokkuð eldri nemendum. Af þessum sökum verða duglegu bömin leið og til óþæginda og kenn- arinn telur þau til vandræða. Annar hópur bama er ekki fær um að vinna námsbækur sem ætlaðar em þeirra aldurshópi. Þessi böm em fljótt stimpluð sem hjálparbörn. Með öðr- um orðum, um leið og bamið fellur utan þeirrar þröngu námsskrár sem námsbækumar skapa er það oft á tíðum skilgreint sem bam með sér- kennsluþarfír. Vandamálið eykst eftir því sem bamið eldist því sífellt verður erfíðara fyrir það að standast þær kröfur sem skólinn gerir. Bam- ið bíður stöðugt ósigur. Örlítil seinkun í þroska hjá átta ára bami getur haft það í för með sér að bam- ið er álitið latt og óþægt. Smám saman fer bamið að fínna til minni- máttarkenndar og andúðar á skólan- um. í stað þess að líta svo á að bamið hafí sérkennsluþarfír ef það fullnægir ekki kröfum staðlaðrar námsskrár ættu kennarar að líta á það sem sjálfsagðan hlut að hvert bam þurfí sína eigin námsskrá sem sniðin er sérstaklega að þörfum þess. Með því móti ætti nemandinn á hveijum tíma að fá að glíma við verkefni við sitt hæfi og geta náð árangi. Meðfylgjandi línurit sýnir hvað gerist þegar sérkennsluþarfír em skilgreindar út frá námsskrá. Þegar kemur að samræmdu gmnnskólaprófí kemur eftirfarandi í ljós: 1) ákveðinn fjöldi nemenda (30%) stenst ekki samræmdu prófín 2) Annar hópur nemenda tekur ekki samræmdu prófin og lýkur gmnn- skólanum með undanþágu sem veitir engin réttindi til framhaldsnáms 3) Ailmargir nemendur með sér- kennsluþarfir standast samræmdu prófín. „Segja má að bam hafí sér- kennsluþarfír þegar það þarfnast meiri stuðnings frá kennaranum sínum en önnur böm á sama aldri. Slíkur stuðningur tengist oftast námskrá skólans og getur falist í stuðningi í einstökum námsgreinum, öðmm kennsluaðferðum eða breytt- um kennsluaðstæðum.“ Þessi skil- greining W.K. Brennans á sérkennsluþörfum er kjaminn í þeim hugmyndum sem gengið er út frá í starfsleiknináminu. Jafnframt er því haldið fram að ein meginforsendan til að koma betur til móts við sér- kennsluþarfír bama sé að styrkja fagvitund allra kennara og efla starfsleikni þeirra." Sérhjálp utan eða innan bekkjar Þetta era markmiðin með starfs- leikninni. En til að átta sig betur á því hvemig þar gætir breyttra við- horfa, hefur verið fróðlegt að fylgj- ast með sérkennsluumræðum á almennum vettvangi að undanfömu, þar sem markmiðið hefur iðulega verið talið að fá sem allra mest magn af sérkennslu, gefíð upp í hundraðshlutum og án samhengis við aðra kennslu eða aðstæður eða t.d. fjölda nemenda á hvem kenn- ara. Þetta markmið hafa skólar reynt að leysa eða leyst á nokkuð mismunandi vegu, enda eðli sínu samkvæmt mismundandi aðstæður. í sumum skólum em bömin ekki fleiri en svo að unnt er að veita hveiju og einu sérstaka athygli og aðstoð, og fer þá gjaman saman við það að utan skólans em ekki aðrir fagmenn til taks. Á íslandi mun sérkennslumagnið vera frá 7% upp í 20% af kennslunni, mest í Reykjavík, skv. nýjustu könnun. Mismunurinn er ekki einstakur fyrir fsland af því við búum í stijálbýlu landi, eins og margir halda. I Bret- landi er munurinn milli skóla 5-30% af kennslumagni, skv. nýlegri grein yfirmanns skólamála þar í landi. Hér munum við taka hærra hlutfa.Il af bömum út úr almennu kennslunni til að aðstoða þau miðað við að hjálpa þeim inni í bekkjunum en að minnsta kosti sum önnur ríki. Hér 94% af þeim bömum sem hjálpað er, sem em um 6 á móti hveijum 100 skólabarnanna. En aðeins 30% í Danmörku, þar sem þau fá meiri hjálp inni í skólanum. Eflaust má deila um hvort þetta sé gott eða vont og hvort of langt eða of skammt er gengið. En aukin starfsleikni kennara hlýtur hvað sem öðm líður að auka sérkennslu í almennum bekkjum. Texti: Elín Pálmadóttir Hér ræðir Magnús Magnússon sérkennslufulltrúi menntamálaráðuneytisins við þær Val gerði Jónsdóttur sérkennslufulltrúa og Þóru Kristinsdóttur lektor í kaffihléi - eflaust um sérkennslu og starfsleikni kennara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.