Morgunblaðið - 08.03.1987, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.03.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1987 B 15 VOt?Q0 DER R9PRNTF1 TRRNUDD'? Andans mennirnir brezku, Maug- ham og Rudyard Kipling, gerðu Raffles hótel í Singapore víðfrægt. Það er að vísu ekki á listanum yfii 50 beztu hótelin, en það þykir þjóð- ardýrgripur og er mjög vinsæll meðal ferðamanna. „Allir ferða- menn sem koma til Singapore verða að koma á Raffles," sagði fram- kvæmdastjóri hótelsins, ítalinn Roberto Pregarz. „Þó menn láti hjá líða að fá sér að borða þar og skoða bygginguna geta þeir varla komizt hjá því að bergja þar á drykknum fræga Singapore Sling, sem er gin- kokkteill, sem þjónarnir á Raffles blönduðu fyrst árið 1915.“ Hótel Okura var byggt árið 1962. Þar fara saman austurlenzkur þokki og vestræn þægindi. Tveir starfsmenn eru um hvert hótel- herbergi. í maí síðastliðnum kom Reagan Bandaríkjaforseti þangað ásamt heilum herskara af aðstoðar- mönnum, vopnuðum vörðum, leyni- þjónustumönnum og tölvuvæddum fréttamönnum. Þó gekk allt snurðu- laust eins og þetta væri starfsfólki hótelsins daglegt brauð. Á mörgum hótelum í Asíu ber mjög á starfsfólki frá Sviss og öðr- um Evrópuríkjum. Því er ekki þannig farið á Okura. Japanir reka það að öllu leyti en margir starfs- menn hafa þó fengið menntun sína og þjálfun erlendis. Allir starfs- mennimir kunna eitthvað fyrir sér í ensku. Dvöl á Okura kostar líka sitt. Leiga fyrir herbergi er allt upp í 87 þúsund krónur og þar ofan á leggst um það bil 20% þjónustu- gjald. Um dvalarkostnað á Bangkok Oriental er það að segja að ef menn þurfa að spyrja um verðið er harla ólíklegt að þeir hafi efni á gisting- unni. Stjómendur Bangkok Oriental láta sér sérlega annt um starfsfólk sitt. Þeir greiða há laun, trygging- ariðgjöld og láta sig varða hag og velferð fjölskyldufólks. Fyrir vikið sinnir starfsfólk verkefnum sínum af þvílíkri kostgæfni að það man eftir gestum sem koma eftir langa Qarvem að sögn starfsmanns sem annast almannatengsl hjá hótelinu. Starfsfólkið skrifar hjá sér óskir og venjur og duttlunga viðskipta- vinanna og öllum slíkum upplýsing- um er haldið til haga. - JOSEPH DE RIENZO „Hér er strangur agi og dvölin hér eins óskemmtileg og hægt er að hugsa séru SJÁ: Þjónusta vísað á bug. WHO, Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunin, hefur skipað nefnd manna til að rannsaka þetta mál en með athugunum, sem gerðar hafa verið frá árinu 1976, hefur reynst unnt að finna að minnsta kosti þá þætti, sem einstök tilfelli eiga sameiginleg. Mesti áhættu- þátturinn er það, sem heitir á fræðimáli „apnaea", en hann veldur því, að börnin hætta að anda um stund, líklega vegna þess að mið- taugakerfið er enn ekki orðið nógu þroskað. Ef það gerist einu sinni, að barnið hætti að anda í 15 sek- úndur, er mjög líklegt, að það gerist aftur, sérstaklega að næturlagi. Mörg barnanna, sem urðu vöggu- dauðanum að bráð og rannsóknin náði til, 30—50%, vom lítilfjörlega lasin, oftast dálítið kvefuð, og næst- um öll vom þau með pela en ekki á bijósti. Stór hluti þeirra átti mjög unga móður, yngri en tvítuga, og áhættan virtist enn meiri ef faðirinn var líka innan við tvítugsaldurinn. Aðrir áhættuþættir eru taldir vera lítill fæðingarþungi (oft tengd- ur grindarþrengslum og tóbaks- reykingum) og í Bandaríkjunum kynþátturinn. Þar deyja 16,7 af 1.000 bömum svartra foreldra vöggudauða en aðeins 3,5 af þús- undi hvítra barna. Meðal allra hópa er vöggudauðinn algengari meðal tekjulítils fólks, sem býr við bágar aðstæður. Almennar ráðleggingar um það hvernig koma skuli í veg fyrir vöggudauða em einfaldlega listi yfír hollar lífsvenjur. Konur ættu ekki að ala börn of ungar; reykja eða neyta annarra vímuefna meðan þær ganga með; ákveða sjálfar þungunina og hafa barnið á bijósti í sex mánuði að minnsta kosti. Ef eftir þessu er farið má trúlega draga úr vöggudauðanum um 40%. - LIESL GRAZ Sóknin hert gegn sölumönnum dauðans Enrique Parejo Gonzales, sendi- herra og nýskipaður formaður eiturlyfjanefndar Sameinuðu þjóð- anna, bað fundarmenn afsökunar á því að hann gæti ekki talað mjög skýrt. Ástæðan var sú, að hann var enn ekki gróinn sára sinna, skot- sára á hálsi, en þau fékk hann vegna einarðrar baráttu sinnar sem fyrrum dómsmálaráðherra í Kól- umbíu gegn eiturlyfjasölunum. Perejo tók þann kost að segja af sér sem dómsmálaráðherra þegar ljóst var, að setið var um líf hans, og þá var hann skipaður sendiherra í Búdapest í Ungveijalandi, á ör- uggum stað að því er ríkisstjórnin taldi. Um miðjan janúar var hann hins vegar skotinn niður á götu í borginni og skilinn þar eftir í blóði sínu. Árasai-maðurinn hélt vafa- laust, að hann væri látinn en Perejo lifði af. Snemma í síðasta mánuði var Perejo fluttur af sjúkrahúsi í Vest- ur-Þýskalandi og á ráðstefnu í Vín en þar lögðu fulltrúar 80 þjóða drög að nýrri, alþjóðlegri samþykkt um eiturlyfjamál. Á hún að gera al- þjóðlegum eiturlyijakóngum erfið- ara um vik við að fara sínu fram án tillits til laga eða landamæra. Ströng gæsla var um Perejo og var hún enn hert þegar fréttist, að valdamesti eiturlyfjakóngurinn í Kólumbíu, Carlos Lehder Rivas, hefði verið handtekinn og framseld- ur til Bandaríkjanna. Lehder er talinn hafa staðið að baki 60% kók- aíninnflutningsins til Banda- ríkjanna og viðbúið, að eiturlyfja- salarnir reyndu að hefna sín. Óflug gæsla var því höfð um alla, sem líklegt var, að þeir reyndu að taka sem gísla. „Ef hægt er að tala um trúlegt skotmark þá er það þessi ráðstefna," sagði einn fundar- manna. Eiturlyfjanefnd SÞ, eins og aðrar stofnanir samtakanna, sem við sömu mál fást, gerir sér fulla grein fyrir, að hún er að beijast gegn samtökum, sem eru betur vopnum búin en herir sumra landa. „í sumum löndum Rómönsku- Ameríku er ástandið svo alvarlegt," sagði Ann Wrobleski, formaður bandarísku sendinefndarinnar, „að verði ekki gripið fljótt í taumana munu eiturlyfjahringarnir verða svo öflugir, að þeir geta fengið ríkis- stjórnir kosnar að vild sinni eða bolað þeim burt." Það voru ríkisstjómir í Róm- önsku-Ameríku, sem gengust fyrir því, að ráðstefnan var haldin. I al- þjóðasamþykktinni er kveðið á um samræmdar aðgerðir ríkisstjórn- anna og þær hvattar til að gera eiturlyíjagróðann upptækan, hvort sem hann birtist í bankainnistæðum eða íbúðablokkum. Einnig er reynt að stoppa í götin í alþjóðalögum en í skjóli þeirra geta eiturlyfjakóng- arnir stjórnað starfseminni úr flugvél eða skipi, sem er utan lög- sögu og laga. Samkvæmt nýju samþykktinni ber umsvifalaust að framselja eitur- lyfjasala ef fram á það er farið og einnig er lýst stríði á hendur nýjum eiturlyfjategundum, efnafræðileg- um eiturlíkingum, sem unnt er að breyta lítillega til að þær falli ekki undir venjulegar skilgreiningar á eiturlyíjum. Eiturlyfjanefndin gekk frá frum- drögum nýju reglugerðarinnar en næsta skrefið verður stigið í sumar þegar ráðherrar hvaðanæva úr heimi, þeir, sem fara með eiturlyfja- mál, munu koma saman til fundar. Er það fyrsti ráðherrafundurinn af því tagi og þá munu öryggisráðstaf- anirnar verða meiri en Vínarbúar hafa nokkru sinni upplifað. - SUE MASTERMAN Þarftu að láta tukthúsa ein- hvem náinn? w Iágúst 1986 var ég á ferð í Fuji í Japan, um 100 kílómetra frá Tókýó, og þar hitti ég Tadishio Goda, sem sýndi mér betrunarhúsið Bushoin, sem hann rak þar í borg- inni. Umhverfis athafnasvæðið var gaddavír, en Goda var áfjáður í að sýna mér starfið sem fór fram inn- kenndi konunum sjálfum um hvern- ig komið væri. Þær hefðu keypt tvennar buxur í einu af því að þær voru svo ódýrar og ekki passað eins vel upp á þær og áður. Erfiðleikarnir, sem eru á því að verða sér úti um einkatölvu, koma vel fram í örvæntingarfullu lesenda- bréfí frá frú S. Belyaeva. „Maðurinn minn og ég ákváðum að kaupa eina,“ segir hún í blaðinu Komsomolskaya Pravda. „Og hvers vegna ekki? Það er ekkert vit í öðru en að vera í takt við tímann. Blöðin segja, að bráðum verði einkatölva komin inn á hvert heim- ili.“ Þau hjón höfðu lagt stund á tölvuforritun á stofnuninni þar sem þau vinna bæði og spurningin var aðeins þessi: Hvaða tegund átti að kaupa? Frú Belyaeva ákvað að kaupa þá margauglýstu BK-0010 og fór síðan í tölvuverslunina, „Elektron- ika-búðina“. Þegar hún kom þangað gat hún samt ekki komið auga á neinar tölvur. „Þar sem ég ætlaði að kaupa tölvu,“ sagði Belyaeva, „fannst mét best að tala við einhvern sérfróðan og sneri mér að ráðgjafanum, lag- legri stúlku með upplýsingabækling fyrir framan sig.“ Eftirfarandi samtal átti sér nú stað: „Eg hef lesið það einhvers stað- ar, að þið séuð nú líka komin með tölvur, sem byggjast á Basic-forrit- unarmálinu.“ „Þú ættir að lesa dálítið minna.“ „Nú, hvers vegna?“ „Vegna þess, að þær eru ekki til og munu ekki verða." „Stundum eru þó tölvur til sölu.“ „Nei.“ „Jú, einhveijar tölvur hljóta þó að vera fáanlegar." „Nei. Engar." Frú Belyaevu fannst nú nóg kom- ið af þessum spurningaleik en bað þó um að fá að sjá bæklinginn um BK-0010-tölvuna. „Stúlkan rótaði í boxinu sínu og sagði síðan, að hún hefði ekkert um þessa tölvu." Belyaeva fór nú til verslunar- stjórans en þar var auglýsinga- spjald uppi á vegg og á það letrað stórum stöfum: „BK-0010-heimiIis- tölvan.“ „Loksins lifnaði aðeins yfir mér en verslunarstjórinn bað mig um að fylla út eyðublað hjá afgreiðslu- manninum og snúa mér síðan til annars ráðgjafa, í vöruhúsinu sjálfu." Belyaeva var komin þangað á minna en hálftíma „og þar barði ég lengi að dyrum. Loksins kom ungur maður til dyra. „Frá hvaða búð kemurðu? Við höfum ekki feng- ist við svona ráðleggingar lengi, lengi.“ Síðan þagnaði hann, fór og kom aftur með tvo bæklinga." Ungi maðurinn vildi þó fá eitthvað til tryggingar áður en hann afhenti pésana." Frú Belyaeva lét hann fá regnhlífina sína. Frú Belyaeva ákvað nú að hringja í ráðuneyti rafeindaiðnaðar- ins til að spyijast fyrir um tölvuna en þar fékk hún þessi svör: „Þú ættir að snúa þér til „Elektronika- búðarinnar“.“ „Já, en þeir hafa bara umsóknar- eyðublöð þar,“ sagði hún en eftir að símtalið hafði slitnað nokkrum sinnum gafst hún upp. Þrátt fyrir allt á venjulegur Moskvubúi meiri möguleika á að eignast einkatölvu en að komast yfir miða að Bolshoi-leikhúsinu. Einn þeirra hefur reiknað það út, að vegna forgangs ferðamanna, sem borga í erlendum gjaldeyri, geti Moskvubúinn fengið einn miða — á fimm ára fresti. - ANDREW WILSON an girðingarinnar. Hann sagði að Vesturlandabúar gætu margt af sér lært um samskipti við „óstýriláta æsku“. Nú kann samt endir að verða bundinn á starfsemi hans, því að síðustu þijú misserin hafa orðið fjögur svipleg dauðsföll í þessu einkafangelsi þannig að ekki er óhugsandi að yfirvöld láti loks loka því. Snemma á árinu 1986 drap einn af vörðum Tadishio Goda fanga nokkurn í einangrunarklefa. Þann 11. febrúar síðastliðinn kom svo upp eldur í fangelsinu klukkan hálf sex að morgni. Þrír fangar létust og þar af tveir sem brunnu til bana í einangrunarklefum sem voru gluggalausir og læstir með hengi- lásum. Margar fjölskyldur í Japan eru reiðubúnar að greiða stórfé fyrir að fela ættingja sem valda þeim „óþægindum" á einhvern hátt. Þeir sem vista ættingja sína hjá Goda þurfa að greiða 40 þúsund krónur í inntökugjald en það er gjald fyrir sex mánaða dvöld í Bushoin og er óendurkræft. Eftir það kostar mán- aðargjaldið um 2.500 krónur. í nóvember 1986 opnaði Goda annað betrunarhús í Tsukuba til að svara aukinni eftirspurn. Japan- ir taka það afar nærri sér ef einhver úr fjölskyldunni sýnir afbrigðilega hegðun. „Hingað koma fíkniefnasjúkling- ar, líkamlega bæklað fólk, geðveikt fólk og þroskaheft. Þetta er allt af sama sauðahúsi," sagði Goda mér. Einn fanga sá ég sem virtist vera blindur. Skömmu síðar kom ég aftur til að taka atriði fyrir sjónvarpsmynd- ina „Gleymdu milljónirnar". Þá sá ég átta einangrunarklefa í röð og út úr einum þeirra heyrðist ákafur g^átur. Vörðurinn sem hafði verið fenginn mér til fylgdar, opnaði klef- ann og þar húkti tvítugur karlmað- ur, Hori að nafni, en foreldrar hans höfðu sent hann til Goda vegna þess að hann var háður vímuefnum. Klefi hans var aldimmur. Báru- jám hafði verið neglt fyrirgluggann og klefadymar bám þess glögg merki að Hori eða fyrirrennarar hans í klefanum höfðu reynt að bijótast út. „Ég sef allan daginn," snökkti Hori, og bætti svo auðmjúk- lega við: „Mér þykir afar leitt hversu mikil vandræði ég hef bakað fjölskyldu minni." Vörðurinn, Nag- anime að nafni, tilkynnti við svo búið af dæmgerðri japanskri kurt- eisi að Hori hefði ekkert meira til málanna að ieggja og læsti hann aftur inni í klefanum. „Hér er strangur agi og dvölin hér eins óskemmtileg og hægt er að hugsa sér,“ sagði Goda. „Vist- menn hlýða á átta guðsþjónustur daglega. Matur er útdeildur að þeim loknum og þeir sem ekki em við- staddir fá því ekki mikið að borða.“ Það furðulegasta af öllu er, að Goda virðist ekki hafa neinn laga- legan rétt til að halda þessu fólki fangelsuðu en talar samt mjög opin- skátt um starfsemi sína. Sam- kvæmt stjómarskrá Japans er fólki óheimilt að loka ættingja sína inni í einkafangelsum. Bushoin er ekki sjúkrahús og Goda stærir sig raun- ar af því að hvorki læknar né hjúkmnarfólk séu í starfsliði hans. Opinská ummæli hans bera vitni um það hversu Japönum er um- hugað um að losa sig við þá, sem falla ekki að þjóðfélagsmynstrinu í Japan og þeirri samkeppni sem þar tíðkazt. Lögreglan handtók Goda og yfir- heyrði hann þegar Ijóst var að einn af vistmönnum í Bushoin hafði ver- ið myrtur. En síðan var honum sleppt aftur og hann hófst handa þar sem frá var horfið. Eftir bmn- ann, sem skýrt var frá hér að framan, var Goda þó handtekinn á nýjan leik, en allt bendir samt til þess að hann verði aftur látinn laus innan tíðar og haldi áfram að halda „afbrigðilegu" fólki bak við lás og slá. - DAVID COHEN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.