Morgunblaðið - 08.03.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.03.1987, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1987 Alþýðuleikhúsið vinnur nú að ujppsetningu finnska leikritsins „ERU TÍGRISDYR í KONGÓ66, sem Qallar um sjúkdóminn alnæmi frá sjónarhól almenna borgarans. Morgunblaðið/Þorkell Alþýðuleikhúshópurinn sem vinnur að uppsetningunni. F.v. Harald G. Haralds, leikari, Ingibjörg Björnsdóttir, aðstoðarleikstjóri, Viðar Eggertsson, leikari, Gerla, framkvæmdastjóri, Inga Bjarnason, Ieikstjóri og Vilhjálmur Vilhjálmsson, höfundur leikmyndar. Því meira sem ég veit, því minna er ég hrædd A: Ferð þú í Aids-próf? B: Kemur ekki til greina. A: Hvers vegna ekki? B: Hún gæti hafa smitað mig... essar línur eru fengnar úr leikriti, en sam- kvæmt þeirri áherslu sem nú er lögð á að fræða, ekki bara með- limi svonefndra áhættuhópa, heldur allan almenning um sjúkdómin al- næmi, eðli hans og smitleiðir, má geta sér til um að það séu raun- verulegar samræður á borð við setningamar hér að ofan sem heil- birgðisyfirvöld óttast á meðal annars. „Því meira sem ég veit, því minna er ég hrædd," segir Inga Bjama- son, leikstjóri og þau orð endur- spegla vafalítið mátt almennrar fræðslu um sjúkdóminn alnæmi. Reyndar gera þau meira, því hvað varðar umrætt leikrit, „Eru tígrísdýr í Kongó" má segja að í þeim felist ástæða þess að leikritið var skrifað og vonandi afleiðing af sýningu þess. Leikritið fjallar í, stuttu máli sagt, um tvo rithöfunda, ósköp venjulega menn sem fá það verk- efni að skrifa gamanleikrit um alnæmi fyrir tvo karlleikara. „Eru tígrisdýr í Kongó", byggir á sam- ræðum rithöfundanna um væntan- legt leikrit, spaugi um gúmmí- hanska og munngrímur í upphafi, sem færist yfir í alvarlegri samræð- ur, eftir að þeir fara að vinna verkið og setja sjálfa sig í mögulegar stell- ingar sem fómarlömb sjúkdómsins. „Lálla Theatem í Helsinki setti þetta leikrit upp í ágúst sl. og hef- ur sýnt það fyrir fullu húsi síðan,“ segir Viðar Eggertsson, leikari, sem ásamt Haraldi G. Haralds fer með hlutverk í leikritinu. „Lilla Theatem er þekkt fyrir að flytja sígild verk, en að eiga jafn- framt alltaf möguleika á að setja upp verk sem em í anda þess sem er að gerast í þjóðfélaginu, ekki síst til að vera rödd í þjóðfélags- umræðunni. Þegar umræða um alnæmi kom upp í Finnlandi, ámóta skyndilega og hér, varð hún ekki mjög ólík því sem hefur gerst hjá okkur, beindist aðallega að sumum hliðum sjúkdómsins og baráttunnar gegn honum. Mikil áhersla var lögð á eina hlið málsins, en önnur féll í skuggann. Forsvarsmenn Lilla ..Theatem ákváðu að koma inn í þessa um- ræðu og fengu til liðs við sig „hirðskáld" leikhússins, Bengt Ahlfors, leikritahöfund, sem m.a. skrifaði „Umhverfis jörðina á 80 dögum", sem Lilla Theatem sýndi hér á Listahátíð einu sinni. Bengt Ahlfors skrifaði svo, ásamt öðrum leikritahöfundi, Johan Barg- um, þetta leikrit, „Eru tígrisdýr í Kongó", þar sem þeir velta upp öll- um fordómum sem hafa komið upp gagnvart alnæmi og miskilningi. Afgreiða það á mjög snyrtilegan hátt og höfða sérstaklega til áhorf- andans sem hugsar „þetta kemur mér ekki við“,“ segir Viðar. Inga Bjamason, leikstjóri tekur við og bendir á að við undirbúning uppsetningarinnar hér hafi Al- þýðuleikhúsið leitað til Landlæknis- embættisins, sem telji verkið þarft innlegg í umræðuna sem hér er um alnæmi. „Eins hefur Margrét Guðnadóttir veirufræðingur bent á að innan tíu ára eða svo, sé líklegt að allir í þessu litla þjóðfélagi muni þekkja til einhvers eða einhverra með þenn- an sjúkdóm, verði fólk þá svo heppið að þekkja hann ekki af eigin raun. Þess vegna reiðir á að fjalla um málið, ekki síst frá sjónarhóli þeirra sem telja sig með öllu hólpna og málið ekki koma sér við,“ segir Inga. Hún bætir við að aðstoðar- landlæknir, Guðjón Magnússon, hafi einnig bent á að í mörgum til- vikum hafi leikhús átt ríkan þátt í að eyða fordómum, t.d. varðandi geðveiki og alkóhólisma, enda sé oft auðveldara að höfða til fólks með ieikhúsi en beinum áróðri. Hvar og hvenær ætlar svo Al- þýðuleikhúsið að höfða til fólks? „Við ætlum að gera tilraun með hádegisleikhús, nokkuð sem hefur lítið verið gert hér, en er orðin hefð t.d. í bresku leikhúslífí," segir Inga. „Leikritið verður sýnt í hádeginu á veitingahúsi í miðbænum, veitinga- húsinu Gauk á Stöng, en svo er ráðgert að hafa sýningar líka í skól- um og á vinnustöðum, enda er leikritið þannig að það er mjög auðvelt að setja það upp nánast hvar sem er. Þetta er heldur ekki nema 45 mínútna löng sýning, þannig að hún ætti að passa mjög vel að þessu leyti." Um það hvort önnur leikrit hafí komið til greina segir Inga, þetta leikrit vera það sem að mati Al- þýðuleikhússins félli best inn í umræðuna hér og þjóðfélagið. „Ég er búin að lesa nokkur önn- ur verk sem byggja á alnæmi, flest bandarísk, sem fjalla þá yfírleitt um sjúkdóminn út frá hommum eða öðrum áhættuhópum og byggja á allt öðru þjóðfélagi en gerist í „Eru tígrisdýr í Kongó". Þetta er eina verkið sem ég hef séð þar sem höfðað er til hins al- menna borgara fyrst og fremst. Ég held að umfjöllun á þann hátt geti hjálpað mikið til, því ef að líkum lætur þarf að kenna fólki að um- gangast alnæmi, rétt eins og það þurfti að kenna því á sínum tíma að umgangast berkla. Það þykir ljóst að þessi sjúkdómur verður í okkar þjóðfélagi um einhver ókomin ár og því verðum við að læra að lifa með honum," segir Inga. „Við vonum að sýningin hjálpi fólki að taka við sér, því að hvort sem fólk tilheyrir áhættuhópi eða ekki, þá hafa sjálfsagt flestir velt fyrir sér þeim möguleika að fá sjálf- ir sjúkdóminn eða að hann heiji á ástvini þeirra og þekking og fræðsla er það sem þarf. Éins og ég sagði áðan, því meira sem ég veit því minna er ég hrædd. Eftir að hafa unnið við þetta íeikrit veit ég meira um sjúkdóminn og það sem honum viðkemur og því minna er ég hrædd við ógn hans í okkar þjóðfélagi. Vonandi verður svo með áhorfendur að lokinni sýn- ingu líka,“ segir Inga. Auk hennar taka þátt í leiksýn- ingunni leikaramir tveir, Harald G. Haralds og Viðar Eggertsson, en leikmynd er eftir Vilhjálm Vil- hjálmsson, aðstoðarleikstjóri er Ingibjörg Bjömsdóttir, en fram- kvæmdarstjóri sýningarinnar er Gerla, Guðrún Erla Geirsdóttir. Þýðandi verksins er Guðrún Sigurð- ardóttir. Leikritið verður fmmsýnt um miðjan þennan mánuð. Viðtal: Vilborg Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.