Morgunblaðið - 08.03.1987, Síða 20

Morgunblaðið - 08.03.1987, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1987 B 21 20 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1987 Lengi leitað að svona tónlistarfræðslu - segir Pálína Jónsdóttir, sem er á námskeiðinu ásamt syni sínum, Hilmi Ágústssyni „Ég sperrti eyrun þegar ég heyrði að það ætti að fjalla um tónlist í víðu samhengi á nám- skeiði í Tónlistarskólanum, enda lengi verið að leita að svona tón- listarfræðslu," segir Pálína Jónsdóttir sem er á námskeiðinu ásamt syni sínum, Hilmi Ágústs- syni. „Eg hlusta mikið á tónlist og þá oft sem undirspil fyrir önn- ur verk, en langaði að vita meira," segir Pálína, sem kveðst oft setj- ast niður og hlusta á tónlist að ioknum tíma. „Svo fór ég á tón- leika eftir annan tímann og fann strax að ég hlustaði öðruvísi og hafði enn meira gaman af en áð- ur.“ Kammertónlist er, að hennar sögn, í mestu uppáhaldi. „Ég held að það vanti verulega að mennta fólk almennt betur í tónlist, þannig að það fái meira út úr henni, án þess að ég sé að meina að allir eigi að verða kon- sertpíanistar," segir Hilmir, sem kveður sín helstu kynni af tónlist vera frá Pólýfónkórnum komin. „En ég kom hingað fyrst og fremst af áhuga á klassískri tón- list, enda breytist tónlistarsmekk- ur manns með tímanum," segir hann og Pálína tekur undir það. „Sú var tíðin að það var sagt við mann - mamma komdu og hlusta ðu á Bítlana, það er jafn íalleg tónlist og Bach eða Beethoven." Og þau eru sammála um að hvort heldur sé um að ræða Bítlana eða Bach, þá geri námskeiðið þau að betri hlustendum. Aldrei of gamall til að læra - segir Sigurður Hannesson, 77 ára Hilmir Ágústsson „Ég er og hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að menn verði aldrei of gamlir til að læra.“ Þannig kemst Sigurður Hannes- son að orði og fylgir sinni skoðun eftir, en hann er elsti nemandinn á námskeiðinu, 77 ára gamall. Tónlist hefur þó verið eitt af hans áhugaefnum um dagana, en Sigurður bjó lengst af á ísafírði þar sem hann leigði Ragnari H. Ragnars skólastjóra tónlistarskólans á Isafirði herbergi undir kennslu þannig að tónlist hljómaði í hús- inu daglega. Þar að auki fóru böm hans þrjú, Anna, Eggert og Hafsteinn í tónlistarskóla Isafjarðar og eitt þeirrar er reyndar ennþá í tónlistarskóla, sem kennari þó en ekki nem- andi, en það er Anna Málfríður Sigurðardóttir sem kennir í Tón- listarskóla Kópavogs. „Anna sagði mér frá þessu námskeiði og það er nú allveg nauðsynlegt að gera eitthvað fyrir sjálfan sig, þannig að ég ákvað að fara. Þetta er líka ágæt hvatning til að lesa svolítið í málfræði," seg- ir Sigurður. Hann kveðst hafa látið bömin um hljóðfæranámið lengst af, en þó aðeins kynnt sér það sjálfur. „Ég fékk fyrst einhverja tilsögn á píanó 1979, en þá hafði ég fengið smávegis tilsögn á fíðlu í einn vetur, líklega 1983, en fyrstu fiðluna mína pantaði ég upp úr pöntun- arlista 1928,“ segir Sigurður sem reyndar á aðra fiðlu af ísfirskum ættum, sem asgeir Jónsson, smíðaði. „En það gekk ekki vel að samræma tónlist- amám með vinnunni þegar ég var leigubílstjóri, þó maður reyndi að fylgjast með því sem krakkamir vom að læra. Konan mín, sem hét Guðmundína Helgadóttir gerði það einnig og öllu betur, því hún sótti einn vetur námskeið í tónlistarskól- anum á ísafirði til að geta fylgst betur með námi systkynanna. Það var auðvitað mikil og góð hvatning fyrir krakkana. Ég held að það hljóti að vera ómetanlegt fyrir börn sem eru í tónlistamámi að finna áhuga foreldranna og finnst jákvætt þegar heimavinnandi húsmæður eða aðrir foreldrar sem það geta, sem senda börnin sín í tónlistar- skóla og hefja sjálfir nám.“ Sigurður kveðst hlusta mikið á tónlist af plötum heima við og hafa komið sér upp þokka- legu safni. „Þegar ég hlusta á tónlist þá geri ég ekkert annað á meðan, set plötu á fóninn og kem mér notalega fyrir til þess eins að hlusta. Annað þýðir ekki ef það á að njóta ttónlistarinn- ar. Svo hef ég farið á nokkra tónleika eftir að ég flutti suður fyrir þremur ámm, en hefði mátt vera duglegri við það. Á Isafirði fór ég á alla tónleika sem ég gat.“ Hann kveðst mikið þakklátur Tónlistarskólanum í Kópavogi fyrir námskeiðin og segist telja tónlistamám þroskandi fyrir fólk á öllum aldri. „Sérstaklega held ég að böm hafí gott af því að kynnast tónlist og hljóð- færaleik. Einhver sem _ var í tónlistarskólanum á ísafirði sagði einhvemtíma að hann spil- aði þegar honum leiddist og hann spilaði þegar honum liði vel.-Svona er tónlistin, fólk get- ur alltaf fundið sig í henni og hún er, eins og íþróttimar, af- skaplega gott veganesti fyrir böm og unglinga. Tónlistamám hjálpar krökkum til að læra að setja sér takmörk og vinna að þeim, kennir þeim dálitla þraut- segju og ég heid að þegar slík þrautseigja sé einu sinni til stað- ar þá verði hún áframhaldandi hjá þeim í lífinu." Pálína Jónsdóttir Morgunblaðið/Árni Sæberg Magnús R. Jónsson og Sigurlaug Guðmundsdóttir. * Ahugi á klassískri tónlist vaknað í seinni tíð - segja hjónin Magnús R. Jónsson og Sigurlaug Guðmundsdóttir sem fóru á námskeið af einskærum tónlistaráhuga. Hjónin Magnús R. Jónsson og Sigurlaug Guðmundsdóttir segj- ast hafa skellt sér á námskeiðið af einskæmm áhuga á tónlist. „Við höfum mjög gaman af að fara á tónleika, er vomm kannski heldur feimin við að dæma til um tónlistina sem boðið var upp á og ákváðum að fara á námskeiðið þegar við sáum það auglýst," seg- ir Sigurlaug og kveðst finna talsverðan mun þó ekki sé langt liðið á námskeiðið. Ekki segjast þau áður hafa setið á bekk í tónlistarskóla, „nema í árangurslitlum píanótím- um í tvo, þijá vetur sem krakki,“ segir Magnús. „En tónlistars- mekkurinn breytist með ámnum og áhuginn á klassískri tónlist hefur vaknað í seinni tíð. Það er bara svo gott að hvíla sig heima og hlusta á klassíska tónlist, eða þá að skreppa í óperuna. Það er ánægjulegt að fylgjast með grós- kunni sem er í ópemlífinu og svona námskeið kennir okkur að meta tónlistina betur. Fýrst og fremst komum við nú hingað fyr- ir eigin ánægju.“ Hugmyndin ættuð frá móðursysturinni Tónlistarskólinn í Kópavogi býður nú upp á tónlistar- fræðslu fyrir fullorðna, undir leiðsögn Aagot Óskarsdóttur, tónlistarkennara. Við litum inn á námskeiðið nýlega. mennum skólum var til skamms tíma mjög bágborin, a.m.k. á þeim tíma sem nemedumir hér sátu á skólabekk. í flestum tilvikum var hún lítið annað en söngur. Svo er annar mikilvægt atriði í þessu sambandi, sem er að margt fólk er óvant að hlusta einbeitt á tónlist. Megnið af þeirri tónlistar- framleiðslu sem dynur á manni daginn út og inn, til dæmis úr út- varpi, gerir ekki kröfur um gagn- rýna hlustun. Þetta er eiginlega dæmigert fyrir hlustunarvenjur flestra að þeir nota tónlist meira sem bakgrunn fyrir aðrar athafnir, heldur en að hlusta fyrst og fremst. Hættan er auðvitað sú að fólk venj- ist slíkri hlustun og eigi erfitt með að einbeita sér. Svo getur áhugi fólks á svona námi einnig komið til af því að það á börn í tónlistamámi og vill geta fylgst betur með því,“ segir Aagot og bætir brosandi við þvi sem henni fínnst nú líklegasta ástæðan:,, tón- list er bara svo skemmtilegt fag að ég er ekkert hissa á að fólk vilji fara á svona námskeið." Það eru um 22 þáttakendur að þessu sinni á námskeiðinu. Og þó móðursystirin sem forðum átti hug- myndina sé ekki í hópnum þá segir Aagot að hún ætli sér áræðanlega á námskeið til að læra það sem tekið er fyrir, sem er hljóðfræði og ágrip af sögu nótnaritunar, hugtök og heiti í tónlist, hljóðfærafræði og ágrip af tónlistarsögu sem tekur yfir miðaldatónlist, renaussance og barokk, klassík, rómantík, 20 öldina og íslenska tónlist. ViðtöhVilborg Einarsdóttir Morgunblaðið/Ámi Sæberg Hópurinn sem er á námskeiðinu, ásamt kennaranum. Það eru hressileg böm með hljóðfæratöskur sem blaðamað- ur mætir á göngu sinni upp stigann i tónlistarskóla Kópa- vogs. En ekki em það börain'sem málið snýst um, heldur fullorðnir nemendur skólans sem mæta þangað einu sinni í viku á nám- skeið í tónlistarfræðslu fyrir fullorðna. „Hugmyndina að svona nám- skeiði má eiginlega relqa til móðursystur minnar sem einu sinni spurði mig af hveiju ekki væri boð- ið upp á fullorðinsfræðslu í tónlist- arskólanum," segir kennarinn á námskeiðinu, Aagot Óskarsdóttir, tónlistarkennari. „Ég greip hug- m^mdina á lofti og bar hana upp í skólanum. Það leist öllum vel á og fyrsta námskeiðið var haldið í haust.“ Námskeiðin eru í ellefu vik- ur og er það sem nú stenduf yfir annað sinnar tegundar. En hvað fræðist fólk um í tónlistarfræðslu? „Eiginlega er þetta inngangur að hlustun. Ég fjalla um helstu byggingarþætti tónlistar, hljóð- færafræði og ágrip af tónlistar- sögu,“ segir Aagot og bætir við: „Takmarkið er að koma fólki á spo- rið með að hlusta á tónlist, án þess að gert sé ráð fyrir að það *hafi lært eitthvað á hljóðfæri eða í tón- fræði áður.“ - Er mikill áhugi fyrir nám- i> skeiðunum? „Já, hann er töluvert mikill og ég get mér þess til að hann sé ein- hverskonar andsvar við því flóði af dægurtónlist sem hér hefur hellst yfir fólk. Ég held að fólk fari að leita að einhveiju bitastæðara og Aagot Óskarsdóttir, tón- listarkennari. þá séu leiðbeiningar kannski kær- komnar. Þessi vaxandi óperuáhugi sem er greinilegur í okkar þjóð- félagi er gott dæmi um þetta viðhorf. Óperutónlist er líka mjög heillandi svið að byija á,“ segir Aagot, en námskeiðunum lýkur ein- mitt á að hópurinn fer saman á tónleika. - Er það erfitt að hlusta á tón- list, að fólk þurfi leiðbeiningar? „Það er mjög misjafnt hvort mönnum reynist erfitt að hlusta eða ekki. En tónlistarmenntun í al- Evrópubandalagið: Smjör- fjallinu eytt? Brussel, Reuter. SAMKOMULAG hefur náðst inn- an Evrópubandalagsins (EB) um róttæka áætlun til að minnka mjólkurframleiðslu aðildarríkj- anna um 9,5% á tveimur ámm. Markmiðið með þessu er að minnka þær umframbirgðir bandalagsins af smjöri, sem hlaðizt hafa upp ár frá ári að undanförnu. « Frans Andriessen, yfirmaður EB á sviði landbúnaðarmála, fagnaði þessu samkomulagi mjög á fimmtu- dag og sagði, að með því yrði vonandi fundin lausn á vandamáli, sem miklum erfiðleikum hefði vald- ið á undanförnum árum. Eins og er þá er um ein millj. tonn af óseldu smjöri til í frystigeymslum aðildar- landanna og er nú vonast til, að unnt verði að losna við þesssar miklu birgðir smám saman, án þess að annað smjörfjall hlaðist upp í staðinn. Bylting- ina vantar Vestur-Berlín, Reuter. EINN vinsælasti poþpsöngvari Sovétríkjanna kvaðst i gær ekki vera jafn bjartsýnn varðandi umbótaviðleitni Gorbachevs Sov- étleiðtoga og margir starfs- bræður sínir. „Vissulega á bylting sér stað þessa dagana, en það vantar byltingarmenn til að framkvæma liana,“ sagði Bul- at Okudzhava á fréttamanna- fundi í Vestur-Berlín. Okudzhava kvaðst þrátt fyrir þetta telja að samband listamanna og ríkisvalds hefði aldrei verið betra í sögu Sovétríkjanna. Hann sagðist álíta að þjóðfélagið væri illa undir breytingarnar búið og að margir gengu um með þær ranghugmyndir að tekist hefði að sigrast á hinum ýmsu meinsemdum samfélagsins. Söngvarinn er staddur í Vestur- Berlín ásamt fleiri sovéskum lista- mönnum til að kynna nýja menningarstrauma í Sovétríkjun- um. Jarðskjálfti í Chile Antofagasta, AP. BYGGINGAR eyðilögðust og raf- magn fór af í jarðskjálfta, sem átti upptök sín skammt undan hafnarborginni Antofagasta í norðurhluta Chile á fimmtudag. Lögregla í Chile sagði að skjálft- inn hefði mælst 5,5 stig á Riehter kvarða, en talsmaður jarðfræði- stofnunarinnar í Washington sagði að skjálftinn hefði mælst 7,3 stig á Richter. Ekki var vitað um slys á mönnum. Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.