Morgunblaðið - 05.04.1987, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1987
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Þorsteinn Gunnarsson,
leikstjóri:
Þettaer
leikrit
inni í öðru
leikriti
ÞORSTEINN Gunnarsson, leik-
ari, er leikstjóri Óánægjukórsins.
Þorsteinn hefur leikstýrt töluvert
mörgum verkum, bæði i leikhúsi,
útvarpi og í Leiklistarskóla ís-
lands. Af sviðsverkum er
skemmst að minnast sýningar
Leikfélags Reykjavíkur á Guð gaf
mér eyra, einnig Villiöndinni og
Valmúanum. Ég spurði Þorstein
hvort leikrit eftir Alan Ayck-
bourn hefði áður verið sett upp
hér á landi.
„Já, Leikfélag Reykjavíkur setti
upp leikritið Rúmrusk fyrir nokkrum
árum og var það sýnt í Austurbæj-
arbíó. En það er í rauninni furðulegt
að ekki skuli hafa verið sett upp
fleiri verk eftir hann hér, því hann
hefur skrifað milli 30 og 40 verk.
En Óánægjukórinn er alveg sérstakt
verk. Það var frumsýnt fyrir einu
og hálfu ári í breska Þjóðleikhúsinu
og það er enn verið að sýna það þar
við miklar vinsældir. Þess utan hefur
það verið sett upp vítt og breitt um
Bretland, já og um heiminn."
En afhveiju ákvaðstu að fá Sig-
urð Siguijónsson að láni?
Þorsteinn Gunnarsson, Ieikstjóri
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á því að leikhúsin vinni saman. Þeg-
ar ég setti upp Guð gaf mér eyra,
fékk ég Sigurð Skúlason úr Þjóðleik-
húsinu. Sjálfur hef ég tvisvar ieikið
í Þjóðleikhúsinu. Mér finnst mjög
spennandi að koma svona samvinnu
á og vil lýsa þakklæti mínu til Þjóð-
leikhússins fyrir að gera þetta kleift.
Þessi æfíngatími hefur verið mjög
skemmtilegur, þótt hann hafí verið
í styttra lagi miðað við það sem nú
gengur og gerist.
Eg hef áhuga á að koma á sam-
vinnu milli leikhúsanna, því mér
fínnst þetta mjög gefandi fyrir alla
aðila. Það er „inspirerandi" fyrir
mann sem leikara að fá tækifæri til
að leika í öðru umhverfí og með
öðrum leikurum, ekki alltaf sama
hópnum, ár eftir ár. Fyrir utan Sig-
urð, höfum við Margréti Ákadóttur
í Óánægjukómum. Hún hefur Ieikið
hvert stóra hiutverkið á eftir öðru
hjá Alþýðuleikhúsinu, en hún er nú
í fyrsta skipti að leika hér í Iðnó.
Ég er mjög ánægður með hópinn
sem stendur að þessari sýningu.
Ekki síst hana Unu Coilins, sem
teiknar búningana. Það er skemmti-
leg tilviljun að áhugaleikhópurinn í
Óánægjukómum er að setja upp
Betlaraóperuna. Betlaraóperan var
leikin á Herranótt á sínum tíma og
það var Una sem gerði búningana
þar. Hún er því á heimaslóðum. Það
hefur verið okkur mikill styrkur, því
þetta er leikrit inni í öðru leikriti."
ssv
Frá æfingu á Öánægjukórnum (Morgunbiaðið/Bjami)
Óánægjukóríiin
- síðasta verkefni leikársins frumsýnt
LEIKFÉLAG Reykjavíkur
frumsýnir, næstkomandi
þriðiudagskvöld, gamanleik-
inn Oánægjukórinn, eftir Alan
Ayckbourn. Inn í leikinn er
fléttað fjölda söngva og fjör-
ugri tónlist og fjallar hann um
leikflokk áhugaleikara sem er
að æfa Betlaraóperuna eftir
John Gay. Heldur uppburð-
arlítill skrifstofumaður, Guy
Jones, gengur til liðs við leik-
flokkinn og er hann til að
byrja með lítilsmegnandi og
tvístígandi, bæði í listinni og
öllum samskiptum sínum við
aðra úr hópnum. Ýmsir
óvæntir atburðir verða til þess
að áður en kemur að frumsýn-
ingu er hann orðinn sá sem
allt snýst um, jafnt innan sviðs
sem utan.
Margrét Ákadóttir, Guðrún Ásmundsdóttir, Margrét Ólafsdóttir og
Sigrún Edda Björnsdóttir í hlutverkum sínum í Betlaraóperunni í
Óánægjukórnum
Höfundurinn, Alan Ayckboum
er einn þekktasti gamanleikjahöf-
undur Breta um þessar mundir.
Hann hefur samið á §órða tug leik-
rita sem mörg hver hafa verið sýnd
vitt og breitt um veröldina. Ayck-
boume stýrir litlu leikhúsi í bænum
Scarborough í Norður Englandi, þar
sem hann semur verk sín og leik-
stýrir þeim sjálfur. Þar hafa öll
hans verk, utan eitt, verið fmm-
sýnd.
Óánægjukórinn er eitt nýjasta
verk Ayckboums. Það var fmmsýnt
fyrir hálfu öðm ári í breska Þjóð-
leikhúsinu, hlaut þegar mjög góðar
viðtökur og er enn sýnt þar. A þessu
eina og hálfa ári hefur leikritið víða
verið sett upp og hlotið mörg verð-
laun, meðal annars verðlaun
breskra gagnrýnenda sem besta
leikrit ársins 1985.
Hjá Leikfélagi Reykjavíkur er
það Þorsteinn Gunnarsson sem leik-
Sigurður Sigurjónsson, leikari:
Anægjuleg tilbreyting
að leika í Iðnó
LEIKFÉLAG Reykjavíkur og
Þjóðleikhúsið höfðu í vetur skipti
á leikurum. Aðalsteinn Bergdal,
hjá Leikfélaginu leikur i Hallæ-
ristenómum hjá Þjóðleikhúsinu
og Sigurður Siguijónsson, þjá
Þjóðleikhúsinu, leikur nú með
Leikfélagi Reykjavíkur í
Óánægjukóraum. Ég hitti Sigurð
að máli og spurði hvernig honum
fyndist þessi skipti reynast.
„Ég er mjög ánægður með
þetta," sagði Sigurður, „og ég vildi
óska þess að gert yrði meira af
þessu í framtíðinni. Þetta kostar
að vísu mikið skipulag, en ég held
að þetta sé allra hagur. Þetta er
mikil tilbreyting, ekki síst fyrir
áhorfendur. Markaðurinn er ekki
stór hér og þessvegna er öll tilbreyt-
ing heldur til bóta. Það er líka mjög
gott fyrir leikarann að fá að vinna
í nýju umhverfí og með nýju fólki."
Nú ert þú fyrst og fremst gaman-
leikari. Hefurðu engan áhuga á
alvarlegri hlutverkum?
„Jú, auðvitað hef ég það. Það
verður að segja að þau em nokkuð
Morgunblaðið/Bjami)
Sigurður Siguijónsson sem Guy
Jones í Óánægjukórnum
færri dramatísku hlutverkin sem
ég hef leikið. Þó em þau til, eins
og „Amadeus" og ég var í dra-
matísku hlutverki í „Milli skinns og
hörunds." Ég get viðurkennt að ég
verð stundum alveg hundleiður á
kómikinni og þá fyrst og fremst
vegna þess hversu erfitt það er að
vera að burðast við að vera fyndinn
í tíma og ótíma. Mér er ekkert eðlis-
lægt að vera fyndinn, en þetta hefur
einhvemveginn atvikast svona.
Ég hef enga skýringu á því.
Vissulega hef ég oft gaman af að
fást við „kómik,“ þrátt fyrir allt.“
„Varstu fenginn í Óánægjukór-
inn til að sprella?
„Nei, svo furðulegt sem það er,
þá er hlutverkið hér bæði gaman
og alvara. Það má kannski segja
að aðstæður þessa manns, Guy Jo-
nes, em ekki mjög spaugilegar fyrir
hann, en þær virðast mjög fyndnar
fyrir áhorfandann. Ég mundi eigin-
lega segja að hann væri eina
persónan í verkinu sem er ekkert
fyndin."