Morgunblaðið - 05.04.1987, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1987
t t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegan andláts
jaröarför systur okkar, mannsins míns og föður okkar,
VALGERÐARÞÓRÐARDÓTTUR. SIGURÐAR SVEINSSONAR
Sigríður Þórðardóttir, frá Sleggjulæk.
Jón Þórðarson, Halldóra Gfsladóttir,
Ari Þórðarson, Gunnar Þórðarson, Halldóra Þórðardóttir, Gfsli Þórðarson. Kristfn Mántylá, Arndfs Sigurðardóttir, Gísli Sigurðsson.
Kveðjuorð:
Gísli
Andrés-
son Hálsi
t
Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur vinarhug vegna
andláts foreldra okkar,
HELGU SVEINBJÖRNSDÓTTUR
og
EINARS HJÖRLEIFSSONAR.
GuArún V. Elnarsdóttir,
Hjörleif Einarsdóttir,
Sveinbjörn Þ. Elnarsson.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960
FRYSTI-OG KÆUKLEFAR
tilbúnir á mettíma
m \mwm
Ur Barkar einingum færð þú frysti- og kæli-
klefa af hentugri stærð, níðsterka, þægilega
að þrífa, auðvelda í
uppsetningu og einangr-
aða með úreþan,
-besta einangrunarefni
sem völ er á.
Hentug grunnstærð
á einingum margfaldar
notagildi klefanna
þannig að þeir reynast
frábær lausn fyrir verslanir, fiskvinnslur,
kjötvinnslur, mötuneyti, veitingahús, hótel,
heimahús og alls staðar þar sem þörf er á
vandaðri geymslu til
kælingar og frystingar.
Krókalæsingar,
einfaldar en sterkar
tryggja skjóta og
trausta uppsetningu.
Níðsterk klæðning
meðplasthúðauðveldar
fullkomið hreinlæti.
Hringið eða skrifið eftir frekari upplýsingum
Barkar frysti-og kæliklefar leysa vandann víðar en þig grunar
BORKURhf.
HJALLAHRAUNI 2 • SlMI 53755 • POSTHOLF 239 • 220 HAFNARFIRÐI
Fæddur 14. nóvember 1917
Dáinn 1. mars 1987
Á Skólavörðuholtinu, í hinni
nývígðu Hallgrímskirkju, sem mun
vera stærsta guðshús á Islandi, fór
hinn 9. marz sl. fram jarðarför Gísla
Andréssonar á Hálsi, en hann lézt
í hörmulegu bílslysi 1. dag marz-
mánaðar. Til þeirrar athafnar komu
á annað þúsund manns til að kveðja
mikinn heiðursmann og þakka góð-
vild og vel unnin störf í þágu
margvíslegra góðra málefna.
Sá, sem þetta ritar, átti þess
ekki kost að taka þátt í þessari fjöl-
mennu kveðjustund sökum fjarveru
í mjög fjarlægu heimshorni, en
langar að setja fram nokkrar minn-
ingar um náinn samverkamann og
góðan vin.
Eg minnist fyrstu kynna við Gísla
á Hálsi í sumardvöl á barnsárunum
á prestssetrinu Reynivöllum í Kjós
og var þá aðeins níu ára gamall,
en Gísli á Hálsi var tíu árum eldri.
Minnisstæðar eru samkomur Ung-
mennafélagsins „Drengs" í Kjós,
sem þá voru oft haldnar í „Þing-
húsinu" á Reynivöllum. Þar fóru
Hálsbræður fremstir í flokki og vel
man ég hvemig sópaði að þeim
Gesti, Gísla og öðrum Hálsbræðr-
um.
Leiðir okkar Gísla lágu annars
lítið saman og kynni okkar urðu
ekki náin fyrr en hann tók sæti í
stjóm Sláturfélags Suðurlands á
árinu 1964 og einkanlega eftir að
hann tók við stjórnarformennsku í
Sláturfélaginu af Pétri Ottesen, al-
þingismanni, eftir lát hans 1968.
Um ættir, uppruna, menntun og
uppvaxtarár Gísla Andréssonar
mun ekki fjallað hér þar eð margir
hafa gert þessu góð skil í minning-
argreinum eftir andlát Gísla á
Hálsi, en mig langar að rifja upp
nokkur atriði úr ágætu starfi þessa
látna sómamanns í þágu Sláturfé-
lags Suðurlands og kynni mín af
honum á þeim vettvangi.
Frá stofnárinu 1907 til 1968
höfðu aðeins tveir menn gegnt for-
mennsku í stjórn SS, þeir Ágúst
Helgason í Birtingaholti 1907—
1948 og Pétur Ottesen alþingismað-
ur 1948—1968. Það var mikill vandi
á höndum þeim manni sem valdis*
til að taka við formannsstörfun
eftir þessa skömnga, en til þess
kusu sunnlenskir bændur Gíslí
Andrésson, Hálsi í Kjós. Hann naul
frá upphafi trausts og vaxandi virð-
ingar innan Sláturfélags Suður-
lands og á hann hlóðust margvísleg
trúnaðarstörf fyrir alla bændastétt
landsins. Hefur Gunnar Guðbjarts-
son, fyrrv. formaður Stéttarsam-
bands bænda, látið þau sönnu orð
falla nýlega, að „með Gísla er fall-
inn einn af atkvæðamestu félags-
málamönnum, sem starfað hafa
fyrir bændastéttina síðustu áratug-
ina“. Bændur hafa misst skeleggan,
traustan foringja og baráttumann
fyrir betri lífskjömm. Hann var
íslenzkum bændum einnig góð fyr-
irmynd. Búskapur á Hálsi var
jafnan framúrskarandi um ræktun,
húsakost og gæði framleiðslunnar.
Það kom oft í hlut Gísla Andrés-
sonar eftir að hann tók við for-
mennsku í SS að stjóma fjölmennun
fundum og fórst það jafnan vel úr
hendi, enda mikill félagsmálamaður
og góður fundarstjóri.
Samstarf.smenn Gísla á Hálsi í
SS sakna hollráðs vinar. Hann var
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Jticiiripiml&Iafotfo