Morgunblaðið - 05.04.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1987
45
með góðan afla, um 40 þúsund
pund eftir fjögurra daga túr. Á
bátnum er fjögurra manna áhöfn
og er vélstjórinn sameignarmaður
Jóns, hann heitir Guðjón (Lilli)
Guðmundsson fæddur á Neskaup-
stað en alinn upp í Reykjavík, þar
sem hann vann sem bflstjóri þegar
hann fór í ævintýraleit til Banda-
ríkjanna 1973. Guðjón hefur alltaf
búið í Seattle en Jón var búinn að
vera með bát í San Francisco í um
tvö ár, þegar hann frétti af þessum
báti sem var í eigu banka eftir gjald-
þrot útgerðarinnar og hringdi í
Guðjón sem þá hafði í langan tíma
verið að svipast um eftir báti til
kaups.
Nú eru að verða tvö ár síðan
þeir keyptu bátinn og þrátt fyrir
allskonar óhöpp í fyrstu hefur þeim
tekist að halda velli og virðist þeim
að útgerðin sé nú komin vel fyrir
vindinn.
Þeir félagamir hafa ekki legið á
liði sínu, t.d. er Guðjón búinn að
búa í bátnum allan tímann og hefur
aldrei farið í frí og Jón býr í hálf-
gerðu greni í San José, 100 mflur
frá höfninni, með konu sinni og
tveim bömum til að 'spara húsa-
leigu.
Arið skiptist að mestu í tvær
vertíðir. Yfír sumarið er veitt í flot-
Fishermans Wharf
bak við túristana
Fishermans Wharf í San Franc-
isco er frægur túristastaður og
flestir halda að þar sé ekkert að
sjá nema minjagripaverslanir, bari
og matsölustaði og nokkra nýmál-
aða gamla fiskibáta til að skapa
stemmninguna. En á bak við glans-
myndina er virkilega lífleg fískihöfn
þar sem allt getur gerst og afla er
landað stundum allan sólarhring-
inn.
Pier 45 er gríðarlega stór hafnar-
garður með löndunarbryggjum og
aðstöðu til að vinna afla að tak-
mörkuðu leyti. Þar leggur Sea
Master upp hjá fyrirtæki sem heitir
North Beach Star Fisheries.
Aflinn á uppleið
í kringum 1980 hmndi afli flski-
báta í norður Kyrrahafí og var
aflinn í lágmarki um 1984. Þá vom
síðustu togveiðibátamir í San
Francisco að hætta veiðum. Einn
útgerðarmannanna þekkti til Jóns
Grímssonar frá því hann var skip-
veiji þar fyrsta árið ytra, en Jón
hafði þá stundað krabbaveiðar í
Alaska um nokkurra ára skeið.
Hringdi hann í Jón og falaðist eftir
honum sem netamanni. Jón neitaði
Snjómokstur í Albany.
SV/HV
Landað úr Sea Master í San Francisco-höfn. Mannlífið er fjöl-
breytt, svartir og gulir vinna skítverkin, en hvítu yfirmennimir sjá
um að vinnan gangi eins hratt og mögulegt er.
troll og er aflinn seldur í netinu til
verksmiðjuskipa frá austantjalds-
löndunum. Síðasta _ár seldu þeir
Pólverjum aflann. Á meðan þessi
vertíð stendur er komið til hafna á
ströndinni við Oregon og Washing-
ton eftir olíu og vistum en enginn
fastur aðsetursstaður er í landi.
Yfir veturinn róa þeir svo frá Fish-
ermans Wharf í San Francisco og
físka þá bæði í flotvörpu og botn-
vörpu.
Þeir félagamir em framsæknir
og hafa nú þegar tekið upp viðræð-
ur við fyrirtækið sem kaupir af
þeim fískinn um kaup á hluta af
því félagi.
því en sagðist tilbúinn að koma og
verða skipstjóri. Svo fór að um
samdist, þótt Jón hefði aldrei verið
skipstjóri áður og hefur reyndar
aldrei í stýrimannaskóla komið.
Hann bætti því svo inn í samning-
inn að keypt yrðu strax í upphafí
tvö troll frá netagerð Reykdals
Jónssonar í Seattle. Hann hóf svo
veiðar um miðjan október. Þegar
árið var gert upp kom í ljós að
hann aflaði 80% ársafla skipsins á
rúmum tveim mánuðum.
Síðan hefur útgerð togarans De-
borah Ann gengið mjög vel og er
vaxandi áhugi fyrir útgerð togbáta
frá San Francisco.
Skömmu eftir að Jón byijaði
skipstjóm réð hann til sín íslending
sem lengi hafði starfað í Alaska
Marinó Sigurbjömsson frá Vest-
mannaeyjum og er hann ennþá
skipveiji á Deborah Ann.
Síldarkílóið á 64 krónur
En þessa dagana em mestu um-
svifín við höfnina vegna síldarinnar.
Sfldargöngur em nú vaxandi og
Japanir og Kóreumenn borga mjög
hátt verð fyrir sfldina eða um 64
krónur fyrir kflóið. En mestu verð-
mætin em samt í hrognunum sem
þeir kaupa á allt að 1600 krónur
kflóið. Er talað um hér að á veit-
ingastöðum í Japan kosti hrognin
allt að tíu sinnum meira, enda trúa
Japanir því að þau auki þeim kyn-
getuna.
Það er athyglisvert, að laxveiði
hefur stóraukist, en sjómenn hér
hafa miklar áhyggjur af vaxandi
innflutningi á eldislaxi frá Noregi,
sem þegar er farinn að valda vem-
legri verðlækkun á laxi.
Gamaldags vinnubrögð
En vinnubrögðin á Pier 45
minntu mig mest á þegar ég fyrir
u.þ.b. 30 ámm var að byija að landa
físki úr togumnum heima.
Fiskurinn er goggaður með eins-
konar kvíslum úr haugnum í lestinni
í löndunarmál, síðan er honum
sturtað í dmlluga trékassa á hafn-
arkantinum eftir að hvert mál hefur
verið vigtað á gamalli lóðavigt.
Þeir Jón og Guðjón em einu menn-
imir sem hafa notað plastkassa og
ísað fískinn beint í þá um borð eins
og gerist á íslandi, en þeir vom
báðir þeirrar skoðunar að það væm
mörg ár þangað til ætla mætti að
sú tækni yrði almenn hér.
í lestinni vinna bamungir Víet-
namar og negrar, en á bryggjunni
vom yfírmennimir ráðgjafínn Nam
Ho, sölustjórinn Miami og hinn
ítalsk ættaði eigandi Pierro.
Það tók mig alla nóttina að landa
þessum tuttugu tonnum og þegar
ég kom niðureftir aftur um morgun-
inn vom menn að ganga frá. Þeir
félagamir höfðu ekkert sofíð um
nóttina og var nú farið í að útrétta
fyrir bátinn, en svo vildi Jón endi-
lega ljúka því af að koma mér í
almennilega gistingu. Hann vissi
um gott hótel rétt uppi í götunni,
þangað var haldið og gekk hann
svo djarflega fram í að útvega mér
herbergi að það var búið að reka
mig út af því aftur áður en ég var
alveg búinn að fylla út innritunar-
kortið. Minn var nú ekki aldeilis
tilbúinn að gútera svona dónaskap,
heimtaði hótelstjórann og sagðist
bara kaupa helvítis hótelið ef þess
þyrfti með. Á meðan á samninga-
umræðunum við hótelstjórann stóð
löbbuðum við Guðjón okkur yfír
götuna þar sem ég fékk afbragðs-
herbergi á skikkanlegu verði.
Jón hélt svo heimleiðis eftir erfíð-
an dag en við Guðjón ákváðum að
fara saman og skoða næturlífið við
höfnina þar sem Guðjón þekkir orð-
ið hvem barstól eftir tveggja ára
dvöl.
Hann er búinn að lenda í ýmsum
ævintýmm í Kyrrahafinu, m.a. orð-
ið skipreika þrisvar, frá þessu ætlar
hann að segja mér á meðan við
röltum milli baranna næstu nótt.
En nú líður að kvöldi hér í Vent-
úra.
Skútumar sem hafa fyllt flóann
í dag halda nú til hafnar og ung-
mennin með brimbrettin henda
þeim í bflana og halda heim. Sólin
er að lækka á lofti og Ijósin að
kvikna. í húmi næturinnar ætla ég
að skoða mig um og njóta lífsins
og gleyma öllu heima í kulda heim-
skautanæturinnar. í fyrramálið
höldum við svo áfram með sögumar
hans Guðjóns og sjóferðarsöguna
mína á Sea Master þegar við feng-
um mesta afla sem komið hefur á
bátinn í einu hali og allt fór í steik.
Höfundur er fréttaritari Morgua-
blaðsins á tsafirði.
Ég hefi opnað
sálfræðistofu
í Austurstræti 10.
Aðaláhersla er lögð á dáleiðslumeðferð, en annarri
sálfræðimeðferð er einnig sinnt svo og prófunum og
námskeiðahaldi.
Viðtalsbeiðni i síma 24162 virka daga kl. 16.30-17.30.
Víðir Hafberg Kristinsson,
sálfræðingur.
# ' .“ \
Imi bwt
SÉRVERSLUN MEÐ ELDHÚS- 0G B0RÐBÚNAÐ
NÝBÝLAVEGI24-SÍMI41400
HEILDSÖLUDREIFING
S. MAGNÚSSON HF.
NÝBÝLAVEGI24 - POB 460 - 202 KÓPAVOGI - S: 41866
\ J
Chevrolet (Silverado) pick-up, 6,2 diesel, 4x2.
2 stk. Chevrolet Blazer (Silverado) 1982 4x4, 6,2 diesel.
Seljast allir á mjög góðu verði úr tollvörugeymslu eða
á götuna. Til afhendingar í þessum mánuði.
Útvegum bifreiðir frá USA.
Innflutningsþjónustan
símar 985-20066 og eftir kl. 19 92-6644.
Fyrir björgunarsveitir, skólakeyrslu o.fl.
GMC Surup 4x4, 6,2 diesel, Sierra 1983 með öllu.