Morgunblaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
Barmmerkinu nælt í Sigtrygg Jóhannsson nemanda Hlíðaskóla.
Allir ung’lingar
fá barmmerki frá
Lionshreyfingunni
LIONSHREYFINGIN á Norður-
iöndum hefur tileinkað sér fyrsta
Laugardag í mai sem baráttudag
gegn vímuefnum.
Islenskir Lionsmenn hafa helgað
sig baráttu fyrir betra lífí og bjart-
ari framtíð ungs fólks og áttu því
aðild að stofnun samtakanna Vímu-
laus æska.
í tilefni baráttudagsins munu
Lionsfélagar um land allt heim-
sækja hvem einasta grunnskóla og
næla merkinu Vímulaus æska í
barm allra unglinga sem eru 12 og
13 ára. Þess er vænst að ungling-
amir beri merkið næstu daga og
gangi um leið í lið með Lionssam-
tökunum í vamarbaráttu gegn
vímuefnum.
Á §órða þúsund Lionsmenn og
konur munu jafnframt skarta merk-
inu Vímulaus æska á bflum sínum
til hvatningar samborgurunum til
að beijast gegn þeim ógnvaldi sem
vímuefnin eru. í úrslitakeppni í hjól-
reiðum sem fram fer á Laugardals-
vellinum þennan sama dag munu
allir keppendur verða auðkenndir
með merkinu Vímulaus æska.
(Fréttatilkynning)
Öryggis- og tækni-
sýning í Volvosainum
VELTIR hf. hefur fengið hing-
að til lands öryggis- og tækni-
sýningu Volvo, er vakið hefur
athygli viða um Evrópu. Á sýn-
ingunni er m.a. rakin saga og
þróun VolvobUanna, þróun
rannsókna á sviði öryggis og
hönnunar í þau 60 ár sem liðin
eru frá smíði fyrsta Volvobfls-
ins.
Sólarlanda-
ferðir meðal
vinninga á
hluta veltu
í Hafnarfirði
LIONSKLÚBBURINN Ásbjöm í
Hafnarfirði efnir til hlutaveltu
Þungamiðja sýningarinnar er
öryggi farþega og eru þessu gerð
skil með myndböndum, tilrauna-
brúðum og sérútbúnum módelum
af undirvagni og farþegarými
Volvobílanna.
Þá er á sýningunni lögð sérstök
áhersla á rannsóknir á sviði akst-
ursöryggis og m.a. í þeim tilgangi
sýnt hvemig ABS-bremsukerfi er
hannað ásamt tölvustýringu á veg-
gripi, RTC, sem Volvo kynnti fyrst
á síðastliðnu ári.
Samhliða öryggissýningunni
efnir Volvo til bflasýningar á
þremur stöðum á landinu; í Volvo-
salnum, Skeifunni 15, á Akranesi
á bflasölunni Bílás og á Húsavík
hjá Jóni Þorgrímssyni.
Volvosýningin verður opnuð í
Volvosal, Skeifunni 15, laugardag-
inn 2. maí og stendur til laugar-
dagsins 9. maí.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Þeir vora að vinna við pípulagniraar að morgni kosningadagsins þegar þessi mynd var tekin. Frá
vinstri: Ólafur Guðlaugsson, Björa Björasson, Sigurjón Guðjónsson, Helgi Skaftason, Halldór Theodórs-
son, Óskar Haraldsson, Ragnar Danielsson, Jón Bogason og Arinbjöra Snorrason.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Pípulagnir um
30 kílómetrar
Keflavík.
EGILL Ásgrimsson pípulagn-
ingameistari í Reykjavik sér um
allar pípulagnir i nýju flugstöð-
inni og er þetta stærsta verk í
pípulögnum hér á landi til þessa.
Fjarhitun _ var hönnunaraðili
verksins. Áætiað er að þessi
verkþáttur kosti liðlega 100
milljónir króna og sé um 10% af
heildarkostnaði við bygginguna.
Að sögn Helga Skaftasonar
tæknifræðings hjá Agli Ásgrims-
syni hefur verkið gengið vonum
framar og ef allt fer samkvæmt
áætiun verður öllum pípulagn-
ingum og frágangi að mestu
lokið í júni nk.
„Við hófum framkvæmdir í mars
1987 og fórum hægt af stað í
fyrstu, en í september og fram að
vígsludegi voru um 40 manns að
störfum hjá okkur," sagði Helgi
Skaftason í samtali við Morgun-
blaðið. Helgi sagði að flestir af þeim
sem ynnu við pípulagnimar hefðu
töluverða reynslu á þessu sviði.
„Þetta eru menn frá Akureyri og
úr Ámessýslu sem hafa starfað við
virkjunarframkvæmdir í sinni
heimabyggð og kunna því vel til
verka á þessu sviði."
Helgi sagði að pípulögnunum
mætti skipta í 7 sjálfstæð kerfi sem
öll væm ákaflega fullkomin. Af-
kastamest er slökkvikerfið í flug-
stöðinni og á það að geta flutt 63
lítra á sekúndu. Snjóbræðslukerfin
em tvö, annað fyrir bifreiðastæði
og hitt í flughlaði. Þetta em hvort
tveggja lokuð kerfí með frostlegi
í, en em hituð upp með hitaveitu-
vatni. í þessi kerfi vom lagðir um
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Helgi Skaftason tæknif ræðingur við brunavaraakerfið í kjallara flug-
stöðvarinnar. Þetta kerfi er ákaflega fullkomið og á að geta dælt
63 litrum á sekúndu fari það í gang. Á innfelldu myndinni má sjá
að rörin eru flest af stærri gerðinni og erfitt að komast að þeim.
80 kflómetrar af hitaþolnum plast-
römm, en pípulagnir í flugstöðinni
væm um 30 km og væm rörin að
sverleika 3/8 og upp í 8 tommur.
„Það má skoða þetta líka út frá
öðm sjónarhorni og mæla þetta í
megavöttum. í flugplanið fer
varmaorka á við 5 megavattavirkj-
un, en 4,5 megavött í bflastæðin.
Verk eins og þetta er fyrst og
fremst skipulagsatriði og samstarf-
ið við aðra verktaka hefur verið
með miklum ágætum og raunar
gengur svona dæmi ekki upp að
öðmm kosti. Við höfum lagt til
mest allt efnið sem notað hefur
verið eða um 90% og fluttum það
inn frá Bandaríkjunum. Þaðan era
t.d. öll hreinlætistækin komin.
Neysluvatnið kemur úr vatnstankn-
um á Keflavíkurflugvelli og er það
klórblandað og líkar mönnum
misjafnlega að drekka það.“
Helgi sagði að nú væm 18 manns
starfandi á vegum Egils Ásgríms-
sonar í flugstöðinni og í lok maí
yrðu þeir enn færri, enda ætti öllum
pípulögnum að verða að mestu lok-
ið fyrir þann tíma.
- BB
Hljómsveitin Bendix spilar í Hollywood nú um helgina.
sunnudaginn 3. mai nk. að Kapla-
hrauni 2-4, ofan Kaplakrika i
Hafnarfirði.
Á hlutaveltunni verða 8-10 þús-
und munir og engin núll. Fjöldi
vinninga verða á boðstólum s.s.
tvær utanlandsferðir, rafmagns-
tæki, leikföng, fatnaður, sportvör-
ur, bækur ofl.
Öllum ágóða af hlutaveltunni er
varið til liknarmála í Hafnarfirði.
Eldri Hún-
vetningnm
boðið í kaffi
Húnvetningafélagið í
Reykjavík býður öllum eldri
Húnvetningum til kaffidrykkju í
Domus Medica sunnudaginn 3.
mai nk. Húsið verður opnað kl.
15.00.
Bendix í
Hollywood
VEITINGAHIJSIÐ Hollywood
heldur áfram að draga fram í
dagsljósið hljómsveitir sem
gerðu garðinn frægan á árunum
1965 til 1975.
Um helgina verður það hljóm-
sveitin Bendix sem spilaði á þessum
ámm um allt land og var ættuð úr
Hafnarfírði. Hljómsveitin Bendix er
þekktust fyrir það að vera fyrsta
hljómsveit Björgvins Halldórssonar.
Hljómsveitin var stoftiuð 1966 og
starfaði til 1969. Björgvin Halldórs-
son starfaði í hljómsveitinni til 1968
en þá gekk hann til liðs við hljóm-
sveitina Flowers og síðan í Ævin-
týri.
Hljómsveitina Bendix skipa nú
sem áður Björgvin Halldórsson,
Gunnar Ársælsson, Viðar Sigurðs-
son, Steinar Viktorsson og Pétur
Stephenssen.
Bendix spila í Hollywood föstu-
dagskvöldið 1. maí og laugardags-
kvöldið 2. maí.
GENGIS-
SKRANING
Nr. 80 — 30. apríl 1987
Kr. Kr. ToU-
Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 38,520 38,640 38,960
St. pund 64,076 64,276 62,743
Kan. dollari 28,801 28,891 29,883
Dönskkr. 5,7277 5,7455 5,7137
Norskkr. 5,7574 5,7754 5,7214
Sænskkr. 6,1652 6,1844 6,1631
Fi.mark 8,7945 8,8219 8,7847
Fr.franki 6,4588 6,4789 6,4777
Belg. franki 1,0388 1,0421 1,0416
Sv.franki 26,3241 26,4061 25,8647
Holl. gyUini 19,1119 19,1714 19,1074
V-þ.mark 21,5677 21,6349 21,5725
Íblíra 0,03013 0,03023 0,03026
Austurr. sch. 3,0667 3,0773 3,0669
Porb escudo 0,2776 0,2785 0,2791
Sp.peseti 0,3072 0,3082 0,3064
Jao.ven 0,27599 0,27685 0,26580
írsktpund 57,628 57,807 57,571
SDR (Sérst.) 50,2197 50,3757 49,9815
ECU, Evrópum. 44,8065 44,9460 44,7339