Morgunblaðið - 19.05.1987, Blaðsíða 2
2 B
flltfrjgttttÞlftMfr /ÍÞRÓTF1R ÞRWJUDAGUR 19. MAÍ 1987
Fsrnando Qomas, markaskor-
arlnn mlkll hjá Porto, som hér
kyssir á gullskólnn, skorar
okki „gullmark" gogn Bayorn.
Hann fótbrotnaöl á dögunum á
œfingu.
KNATTSPYRNA
Kílóaf
gulli fyrir
markið!
ÍTALSKT kaffifyrirtœki bauö
portúgalska félaginu Porto eitt
kíló af gulli fyrir hvert mark
sem liðið skorar í úrslitaleik
Evrópukeppni meistaraliða í
nœsta viku gegn vestur-þýska
liðinu Bayern Munchen.
Ekki var greint frá því hver
ástæða tilboðsins var, en svo
mikið er víst að forráðamönnum
fyrirtækisins hlýtur að vera svona
vel við pólska félagið - eða þá svona
illa við Bayem!
Talið er að kostnaður kaffifyrirtæk-
isins, sem er með m.a. skrifstofur
í Porto, geti orðið um sex hundruð
þúsund krónur vegna þess - en það
fer vitaskuld eftir því hve mark-
heppnir Portúgalamir verða í
leiknum. Tilboðið gildir aðeins í
venjulegum leiktíma, 90 mínútur,
þannig að ef grípa þarf til framleng-
ingar eða jafnveli vítaspymukeppni,
verða það engin „gullmörk" sem
þá verða skoruð.
Taylor frá Watford
tll Aston Villa
Graham Taylor, sem verið hefur
framkvæmdastjóri enska 1. deildar-
liðsins Watford í tíu ár, og stýrði
liðinu frá 4. deild upp í þá fyrstu
á fjórum ámm, hætti í gær hjá fé-
laginu. Samdægurs skrifaði hann
undir þjálfarasamning til fjögurra
ára hjá Aston Villa, sem féll á dög-
unum í 2. deild. En Watford-liðið
var ekki lengi ffamkvæmdastjóra-
laust; Dave Bassett, sem hætti hjá
Wimbledon í síðustu viku, skrifaði
nefnilega undir samning við Wat-
ford í gær.
KORFUBOLTI / NBA—DEILDIN
Boston og Detroit
leika í úrslitum
austurdeildarinnar
LIÐ Boston Celtics sigraði Millwaukee Bucks, 119:113, ísjöundu
viðureign félaganna í undanúrslitum austurdeild bandarísku
NBA-deildarinnar í körfuknattleik um helgina. Boston komst þar
með í úrslit austurdeildarinnar og leikur þar við Detroit Pistons,
sem sigraði Atlanta Hawks í undanúrslitunum. í vesturdeildinni
leika Los Angeles Lakers og Seattle Suporsonics í úrslitum; ein-
um leik er reyndar þegar lokið og fór Lakers þar með sigur af
hólmi.
Bardagi Boston og Millwaukee
'
var stórskemmtilegur. Eftir
flóra leiki hafði Boston unnið þijá
og Millwaukee einn, en þeir síðar-
nefndu unnu síðan
FráGunnari tvo leiki í röð. Því
Valgeirssynii þurfti sjöunda leik-
Bandarikjunum jnn til. Það blés ekki
byrlega fyrir heims-
meisturum Boston því Kevin
McHale og Robert Parish voru báð-
ir meiddir. Þeir léku þó þrátt fyrir
það.
Danny Ainge, besti bakvörður liðs-
ins, meiddist svo um miðjan síðari
hálfleik og varð að fara af velli.
Millwaukee hafði forystu alveg frá
byijun leiks þar til fimm mínútur
voru eftir - en þá fóru leikmenn
liðsins á taugum og hinir leikreyndu
Boston-kappar tóku völdin. Það
sem gerði gæfumuninn í þessum
leik var að leikmenn Boston tóku
hvorki fleiri né færri en 57 fráköst
en leikmenn Milwaukee aðeins 27.
Þar af tóku leikmenn Boston 27
sóknarfráköst, sem flest enduðu
með því að þeir skoruðu auðveldar
körfur, en Millwaukee náði aðeins
7 sóknarfráköstum. Parish, McHale
og Larry Bird voru bestu menn
Celtic að þessu sinni. Parish var
ekki með í 6. leik liðanna en skor-
aði nú 23 stig, hirti 19 fráköst og
blokkaði 4 skot.
LA Lakers og Seattle Supersonics
leika til úrslita í vesturdeildinni og
mættust fyrsta sinni um helgina í
Los Angeles. LA sigraði 92:87 í
hörkuleik sem var þó ekki sérlega
vel spilaður. Besti maður vallarins
var James Worthy hjá Lakers, hann
skoraði 27 stig.
Pétur fær keppinaut
SAN Antonio Spurs, lið Péturs
Guðmundssonar í NBA-deildinni,
var heppið um helgina þegar dregið
var um það hvaða lið fær að velja
fyrst úr þeim hópi leikmanna sem
koma úr háskólum víðs vegar um
Bandaríkjunum í vor. Spurs var
dregið síðast og fær því að velja
fyrst! Forráðamenn liðsins eru
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
ákveðnir í að velja leikmanna að
nafni David Robinson, sem er, að
mati fréttamanna í Bandaríkjunum,
lang bestur þeirra leikmanna sem
valið stendur um. Hann leikur stöðu
miðheija, sömu stöðu og Pétur, og
fær íslendingurinn hávaxni því
verðugan keppinaut þar sem Robin-
Besti varnarmaðurinn
Michael Cooper hjá Los Angeles Lakers var á dögunum kjörinn besti vamarmað-
ur NBA-deildarinnar í vetur. Hann hefur leikið frábærlega með liði sínu í
úrslitakeppninni.
Valsmönnum spáð
Islandsmeistaratign
VALSMÖNNUM var í gær spáð
íslandsmeistaratign í knatt-
spyrnu á hausti komanda af
forráðamönnum og fyrirliðum
1. deildarliðanna. Af 300 mögu-
legum stigum fengu Valsmenn
274,5 stig en Framarar var
spáð öðru sætinu með 247,5
stig.
Þetta er þriðja árið í röð sem
slík spá er birt áður en 1. deild-
in fer af stað og í öll skiptin hefur
það lið orðið meistari sem spáð var
efsta sætinu. Hvort það verður eins
nú ræðst vitanlega ekki fyrr en í
haust - en „knattspymusérfræðing-
ar“ virðast nokkuð sammála um að
Valsmenn séu sigurstranglegastir
nú. Það kemur svo sem ekki á
óvart, liðið hefur leikið vel það sem
af er vetri og sigraði nýlega í
Reykjavíkurmótinu.
Spáin var annars á þessa leið:
1. Valur..................274,5
2. Fram....................247,5
3.ÍA 238
4.KR 211,5
5. ÍBK 164,5
6. Þór 150,5
7.KA 119
8.FH 87
9. Víðir 79,5
10. Völsungur 78
SPURT ER/ Hverjir verða íslandsmeistarar karla í knattspyrnu?
Jón
Sigurðsson
„Það hef ég ekki hugmynd
um. Ég fylgist ekkert með
fótbolta og yfirleitt fylgist
ég mjög lítið með íþróttum.
Skjóta á eitthvað lið? Tja,
þú segir nokkuð. Ætli við
skjótum ekki bara á Fram-
ara.“
Helen
Símonard.
„Ég hef ekki hugmynd um
það. Bíddu nú aðeins við,
ætli ég segi bara ekki Val-
ur. Af hveiju þeir? Bara,
ég held með þeim, annars
fylgist ég lítið með fót-
bolta, aðeins þó þegar
landsleikireru."
Magnús
Friðbergss.
„Víkingur auðvitað! Nei,
heyrðu mig, þeir eru víst í
annari deild og geta því
ekki unnið þá fyrstu. Þá
verð ég að skjóta á eitthvað
annað lið. Ætli ég segi
ekki Valur, annars fylgist
ég lítið með knattspymu."
Helgi
Eiriksson
„Framarar, það er enginn
spuming. Hvers vegna?
Nú, auðvitað vegna þess
að þeir eru bestir. Ég er í
Fram og fylgist vel með
fótboltanum. Ef Fram
tekst ekki að vinnamótið
þá reikna ég með Val.“
Steinar
Sigurðsson
„ Auðvitað Framar, ég er
Framari eins og Helgi og
þeir vinna þetta örugglega.
Ef þeim tekst ekki að vinna
þá held ég að... nei ann-
ars, ég held ekkert um
það. Framarar vinna þetta
bara.“
IManna
Árnadóttir
„Hvaða lið vinnur? Valsar-
ar hljóta að vinna þetta,
ég held með þeim. Annars
fylgist ég ekki mikið með
knattspymunni en hins
vegar hef ég fylgst nokkuð
með körfuboltanum á vet-
uma.“