Morgunblaðið - 19.05.1987, Side 4
4 B
gjjgtgttgftlgftifr /ÍÞRÓTTIR ÞRJÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987
KNATTSPYRNA / MEISTARAKEPPNI KSI
Annar titill
Skagamanna í höfn
á tímabilinu
AKURNESINGAR eru sigurveg-
arar í Meistarakeppni KSÍ1987
eftir sigur á íslandsmeisturum
Fram í leik liðanna á sunnudag.
Þar með bera Akurnesingar
sæmdarheitið meistarar meist-
aranna. Þetta er annartitillinn
sem Skagamenn vinna á þessu
tímabili, en þeir sigruðu einnig
í Litlu bikarkeppninni sem lauk
um fyrri helgi. Leikurinn fór
fram á Akranesi og er fyrsti
leikurinn á þessu tímabili sem
fram fer á grasi.
Leikurinn fór rólega af stað og
virtust bæði liðin leggja mikla
áherslu á vömina. I bæði liðin vant-
aði lykilleikmenn sem ekki gátu
leikið vegna
meiðsla, þannig em
Ólafur Þórðarson,
Alexander Högna-
son og Sigurður
Halldórsson frá í Akranesliðinu og
Pétur Ormslev, Viðar Þorkelsson
Jón
Gunnlaugsson
skrífarfrá
Akranesi
og Þorsteinn Þorsteinsson hjá Fram
svo nokkrir séu nefndir. Fyrir
bragðið stilltu bæði liðin upp nýjum
leikmönnum í nokkrar stöður og
stóðu þeir sig allir sérstaklega vel.
Eins og áður segir fór leikurinn
rólega af stað og segja má að ekk-
ert afgerandi marktækifæri hafi
skapast fyrr en fyrsta markið var
skorað. Það var á 28. mínutu. Akur-
nesingar fengu þá hornspymu frá
vinstri og eftir baráttu í vítateign-
um fékk Guðbjöm Tryggvason
boltann og sendi hann í netið. Strax
eftir markið fengu Frammarar sitt
besta marktækifæri. Eftir góða fyr-
irgjöf Ormars Örlygssonar átti
Pétur Amþórsson skot í stöng.
Akumesingar náðu betri tökum á
leiknum framan af síðari hálfleikn-
um og gerðu oft harða hríð að
marki Fram. Seinna markið kom á
51. mínútu og var það sérlega fal-
legt. Sveinbjöm Hákonarson átti
þá góða fyrirgjöf frá vinstri. Þránd-
ur Sigurðsson fékk þar knöttinn í
þröngu færi, lagði hann fyrir sig,
lék út í vítateiginn og afgreiddi
síðan knöttinn snyrtilega í netið.
Eftir því sem leið á leikinn dofnaði
yfir honum að nýju og virtust liðin
sætta sig við orðinn hlut. Greinilegt
var að leikmenn þreyttust á blautu
grasinu, enda völlurinn gljúpur.
Bæði liðin virðast vel undirbúinn
fyrir komandi átök. Sérstaklega
vöktu athygli nokkrir nýliðar í báð-
um liðum sem stóðu sig mjög vel.
Bæði liðin hafa orðið fyrir mikilli
blóðtöku frá síðasta keppnistíma-
bili, þrátt fyrir það verða þau bæði
sterk í sumar, á því er enginn vafi.
Að leik loknum afhenti Ellert
Schram formaður KSÍ Akumesing-
um sigurlaun sín og fögnuðu
áhorfendur, sem vom um 800 tals-
ins, mjög þegar þau voru afhent,
enda hefur gengi Akranesliðsins í
Meistarakeppni KSÍ verið allt annað
en glæsilegt á undanfömum ámm.
Dómari var Guðmundur Haraldsson
og línuverðir þeir Eyjólfur Ólafsson
og Eysteinn Guðmundsson og stóðu
þeir sig mjög vel.
ÍTALÍA
Platim i samtali við Morgunblaðið eftir kveðjuleik sinn:
Þarf að kynnast nýjum heimi
UM 23.000 manns kvöddu Mic-
hel Platini á leikvanginum í
Tórínó á sunnudaginn, en þá
lék hann með Juventus gegn
Brescia og vann Juve 3:2. Sá
sigur varö til þess að Juventus
varð í 2. sæti 1. deildarinnar.
Um 50 franskir og ítalskir
fréttamenn komu sérstaklega
til að vera viðstaddir formlega
yfirlýsingu Platinis þess efnis
að hann væri hættur hjá Ju-
ventus.
Eftir að hafa innsiglað sigurinn
gegn Brescia gerðu Juventus-
menn sér dagamun. Boniperti
forseti liðsins bauð til kampavíns-
veislu frétta-
Frá Brynju mannasal við hliðina
Tómer á á búningsklefum
llaliu liðsins, ræddi stutt-
lega við fréttamenn
og þakkaði Platini samfylgdina.
„Eg er hættur í knattspymu vegna
þess að ég veit að morgundagurinn
verður ekki betri en dagurinn í
dag,“ sagði Michel Platini er frétta-
ritari Morgunblaðsins hitti hann á
sunnudaginn. Ég held að á morgun
hafí ég ekki lengur þann viljastyrk
sem þarf til að svitna og beijast í
fótboltanum. Ég hef þurft að hafa
mikið fyrir því að verða þokkalegur
íþróttamaður og ég fínn að nú hef
ég ekki lengur sama metnað og
sama kraft og áður til að gera bet-
ur og verða betri en ég er nú. Þess
vegna fínnst mér rétt að setja
punktinn hér aftan við minn íþrótta-
feril."
- Er eiithver sérstakur Juvent-
usmaður sem þú kemur til með
að sakna meira en annarra?
„Nei, enginn sérstakur. Þetta em
allt góðir vinir mínir og verða það
áfram. Þó ég leiki ekki framar með
liðinu er ekki þar með sagt að leik-
mennimir verði ekki vinir mínir
áfram.“
— Hvenær ákvaðstu að end-
urnýja ekki samning þinn við
Juventus?
„í september í fyrra ákvað ég að
þetta yrði mitt síðasta leiktímabil
með Juventus."
Aðspurður um hvað hann hygðist
Símamynd/Reuter
Platinl spllaðl slðaata lalk alnn
fyrlr Juvantus á sunnudaglnn.
Juva vann 3:2 an Platinl skor-
aði akki.
gera í framtíðinni sagðist Platini
mundu reyna að lifa eins eðlilegu
lífí og hægt væri. „Ég hef verið
atvinnumaður í 17 ár og á þess
vegna eftir að kynnast því sem við
getum kallað heimi hinna venju-
lega. Ég þarf að kynnast nýjum
heimi, heimi sem ég hef ekki getað
kynnst sem þekkt og opinber per-
sóna. Ég reikna með að ég muni
einbeita mér að viðskiptum mínum
og kannski vera með sjónvarps-
þætti.“
- Viltu verða íþróttafréttamað-
ur?
„Það eru nú svo margir íþrótta-
fréttamenn til í heiminum að ég
veit ekki hvort það er líka pláss
fyrir mig,“ segir hann hæversklega
og bætir svo við: „en ég kem örugg-
lega til með að vinna þætti sem
tengjast áhugamáli mínu.“
— Ætlar þú að leika knattspyrau
í góðgerðarskyni, til dæmis til
styrktar unglingum sem eiga við
eiturlyfjavandamál að stríða?
„Þeir krakkar í Frakklandi sem eiga
við slík vandamál að stríða þurfa
ekki peninga heldur atvinnu. Éf ég
á að eftir að leika knattspymu í
framtíðinni verður það fýrst og
fremst vegna þess að ég hef gaman
af því. Þannig hefur það verið und-
anfarin 20 ár og ég sé ekki hvers
vegna það ætti að breytast."
- Hver fannst þér mesti munur-
inn þegar þú komst frá St.
Etienne til Juventus?
„I Frakklandi fannst mér knatt-
spyman vera leikin meira fyrir
leikmennina sjálfa. Hér á Ítalíu
fínnst mér hins vegar eins og liðin
leiki frekar fyrir fréttamenn og
aðdáendur. Þetta þarf ekki endilega
að vera neikvætt, því oft geta blaða-
menn orðið til þess að hvetja menn
til að bæta sig og gera alltaf betur.“
- Þegar þú setur á vogarskál-
arnar það sem þú hefur gefið
Juventus og það sem þú hefur
þegið, hvort er þyngra?
„Ég hef þegið margt frá Juventus.
Mjög margt. Leikmenn fara og
koma en íþróttafélagið er alltaf á
sínum stað. Ég held að það sem
ég hef þegið frá Juventus sé þyngra
á þessari vogarskál þinni," segir
hann og glottir út í annað eins og
honum einum er lagið, þegar honum
fínnast spumingar blaðamanna
þreytandi.
- Hefur þér ekki þótt erfitt að
vera svona mikið í sviðsljósinu
eins og þú hefur verið undanfar-
in fimm ár?
„Nei, alls ekki. Það er ekkert erfítt
að vera í sviðsljósinu ef maður bara
skorar," segir hann og gamla glot-
tið er aftur komið á sinn stað. Síðan
brýtur hann sér leið í gegnum
mannþröngina sem bókstaflega
girðir hann af. Hann heldur út í
bifreið sína, ekur hægt af stað og
hundmð ungmenna hlaupa með-
fram bifreiðinni og hrópa: „Viva
Platini, sei grande."
Platini er 31 árs að aldri. Hann
hefur leikið með Juve síðan 1982
og á þeim tíma hefur liðið tvívegis
sigrað í ítölsku 1. deildinni, einu
sinni í Evrópukeppni bikarhafa og
einu sinni orðið Evrópumeistari
meistaraliða. Hann heftir skorað
106 mörk í 223 leikjum á þessum
tíma. Hann var fyrirliði franska
landsliðsins er það varð Evrópu-
meistari 1984 og einnig í tvígang
er liðið komst í undanúrslit heims-
meistarakeppninnar, 1982 og 1986,
en heimsmeistaratitillinn er sá eini
sem Michel hefur ekki unnið á ferli
sínum.
SL-MÓTIÐ
Verða Valsmenn meistarar eins og flestir halda?
Þrjú lið af Norðurlandi leika nú í deildinni
Er rétt að „selja“ íslandsmótið?
Nú er fótknötturinn farinn
að rúlla um knattspyrnu-
velli landsins. Önnur deildin
hófst um helgina og fyrsta um-
ferð 1. deildarinnar verður leikin
annað kvöld. Vellir landsins
koma misjafnlega
undan vetri og því
fara einhveijir leikir
fram á möl en fljót-
lega ætti að vera
mögulegt að leika á
grasi alls staðar.
Meistaraflokks-
menn eru ekkert of
hrifnir að leika á
möl en þó er varla
hægt að vorkenna
þeim mikið því flest
lið í neðri deildunum
leika á möl allt árið
og yngri flokkar
margra félaga sem
eiga ágætis gras-
velli fá ekki að leika á þeim.
Fyrst yngstu strákamir eru
nógu góðir til að leika á möl,
þó grasvöllur sé til staðar, er
þeim fullorðnu varla mikil vork-
un.
Margir „knattspymusérfræð-
ingar" eru þeirrar skoðunar að
Valsmenn verði íslandsmeistar-
ar í ár. Liðið hefur leikið vel í
vorleikjum sínum og „kom vel
undan vetri“, eins og fyrirliði
þeirra Þorgrímur Þráinsson orð-
aði það. Víst er um að liðið hefur
leikið mjög sannfærandi í vor
og ef þeir halda því áfram eiga
þeir alla möguleika á íslands-
meistaratitlinum. Litlar breyt-
ingar hafa orðið á liðinu. Ársæll
Kristjánsson er hættur en Sævar
Jónsson kominn í vömina í hans
stað. Stefán Amarson mark-
vörður er farinn í KR aftur en
Guðmundur Baldursson bættist
í hópinn og síðan má geta þess
að Þorgrímur Þráinsson virðist
í mun betra formi nú en í fyrra
enda var hann meiddur þá og
náði sér aldrei á strik. Fleiri
nöfn mætti nefna en liðið er
skipað sterkum einstaklingum í
hverri stöðu og einnig á vara-
mannabekknum.
Á fundi hjá félagi 1. deildarliða
í gær gerðu forráðamenn, þjálf-
arar og fyrirliðar félaganna það
að gamni sínu að spá um röð
liðanna og þar urðu Valsmenn
í efsta sæti. Undanfarin þijú ár
hefur þessi leikur verið viðhafð-
ur og svo skemmtilega hefur
viljað til að það lið sem spáð
hefur verið titilinum á fundinum
hefur orðið íslandsmeistari.
Einnig hefur deildin unnist með
38 stigum undanfarin ár og því
velta menn því nú fyrir sér hvort
ekki sé óþarfí að leika þar sem
vitað sé hversu mörg stig meist-
aramir fá og hveijir þeir verða!
í ár leika þijú lið frá Norður-
landi í 1. deildinni og er þetta
í fyrsta sinn sem slíkt gerist.
Þórsarar hljóta að stefna hátt í
deildinni en markmið KA og
Völsungs, sem komu bæði upp
úr annari deild, hlýtur að vera
að halda sér í henni. Gaman
væri ef það tækist því með meiri
dreifingu liða um landið ætti
áhuginn að aukast og það hefur
sýnt sig að fólk úti á landi kem-
ur frekar til að hvetja sína menn
en fólk á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta virðist eiga við í öllum
íþróttum. Fólk úti á landi virðist
gefa sér meiri tíma til að fara
á völlinn eða í íþróttahúsið til
að fylgjast með keppni heima-
liðsins, enda er mun skemmti-
legra að fylgjast með leikjum í
húsum eða völlum úti á landi
en hér í Reykjavík. Áhorfendur
eru virkari og mun einlægari
enda halda þeir alfarið með öðru
liðinu og heimta sigur hvað sem
það kostar.
Islandsmótið heitir að þessu
sinni SL-mótið 1. deild. Sam-
vinnuferðir Landsýn styrkja
með þessu félögin sem leika í
deildinni og er þetta nýmæli hér
á landi en heftir verið við lýði
um nokkurra ára skeið erlendis,
til dæmis í Englandi, og gefíst
vel. Þær raddir heyrast hér að
það sé óviðeigandi að „selja“ 1.
deildina á þennan hátt. Það er
ljóst að forráðamenn 1. deildar-
félaganna, og allir forráðamenn
íþróttafélga, hafa gengið á milli
fyrirtækja og stofnana til að
„betla" fjármagn til að standa
straum af rekstri deildanna.
Eflaust breytir þessi samningur
við SL því ekki að forráðamenn-
imir þurfí að „betla“ fjármagn
hjá velviljuðum fyrirtækjum, en
ef þetta gæti orðið til að forráða-
mennimir ættu náðugri daga er
það á vissan hátt nóg til að rétt-
læta „söluna".
Forráðamenn félaganna hafa
lengi unnið ómælt starf í sjálf-
boðavinnu og fæstir, nema þeir
sem í þeirra spomm hafa verið,
gera sér ljóst hversu mikið þess-
ir menn leggja á sig. Eftir því
sem hærra kemur í deildum og
betri árangur næst aukast kröf-
umar og leikmenn einbeita sér
að æfingum og leikjum en taka
sífellt minna þátt í öðram þátt-
um sem snúa að íþróttinni. Hjá
mörgum félögum, sérstaklega
úti á landi, þurfa leikmenn sjálf-
ir að standa í ýmsum „redding-
um“ sem forráðamenn „stóra"
félaganna annars annast.
Skúli Unnar
Sveinsson
Valsmenn á bakl
Valsmenn eru taldir sigurstranglegir í sumar. Hér
eru þrir þeirra á hestbaki en leikurin sem á eftir
kom tapaöist þannig að þeir hita örugglega ekki
aftur upp á baki.
Hart barlstl
Skagamenn eiga hér í vök að verjast. Þeir hafa yngt mikið upp hjá sér
en það viröist ekki há þeim mikið ef marka má árangurinn í vor.