Morgunblaðið - 19.05.1987, Síða 8
8 B
ptojPitiMiifoifo /ÍÞRÓTTIR ÞRSÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987
Stundum
getur gefist
vel að hugsa
aðeins
St. Mirren bikarmeistari
EIÐISTORGI
ST. MIRREN sigraði mjög
óvænt í skosku bikarkeppninni,
lagði Dundee United að velli
1:0 eftir framlengdan leik að
viðstöddum rúmlega 50 þús-
und áhorfendum.
Iain Ferguson, sem er 19 ára,
skoraði markið í fyrri hluta fram-
lengingarinnar, fékk boltann á
miðjum vallarhelmingi United, þaut
upp völlinn með John Clark á hæl-
unum og skoraði örugglega.
Leikurinn var frekar leiðinlegur á
að horfa þar til í framlengingunni
og voru leikmenn Dundee United
óvenju daufír. Liðið leikur seinni
úrslitaleikinn í Evrópukeppni fé-
lagsliða á morgun og verður að
gera betur, ef ekki á illa að fara.
Sigurvegararnir héldu hins vegar
til Singapore og munu leika sjö leiki
í Asíu.
VEIÐI
Guðmundur
Guðjónsson
skrifar
Litur, lögun, stærð og fleira í
fari veiðiflugna er stangveiði-
mönnum mikið umhugsunarefni.
Hvað er veiðilegast og það sem
meira máli skiptir,
hvað er veiðnast?
Um hvað laxinn
hugsar þegar hann
sér fluguna er svo
annar handleggur
eða ættum við að
segja annar uggi. Fluguveiðimenn
hafa rejmt svo margt í samskipt-
um við laxinn, að hver kenningin
um gildi flugna fæðist af annarri,
en fáar standa eftir sem hinar
einu sönnu. Hér fer á eftir lítil
saga sem gefur vísbendingu um
smásmugulegheit laxa og benda
atburðir hennar til þess að laxinn
sé raunverulega mjög nákvæmur
og mikill smásjárskoðari. Hann
taki sko ekki hvað sem er þótt
tökuskapið hellist yfir hann. Svo
er það sagan:
Tveir veiðifélagar voru að veiða
saman í Langá á Mýrum í fyrra-
sumar. Skiptu stöng og skiptust
á að kasta ýmsum flugum fyrir
marga laxa sem lágu í einum af
betri veiðihyljum efri árinnar.
Laxinn stökk í sífellu, en vildi
ekki sinna flugum félaganna,
enda frekar lítið vatn í ánni, sólsk-
í öðru kasti, og fimm mínútum
síðar var óskaplega dæmigerðum
4 punda Laxárhæng landað.
Nú átti hinn félaginn leikinn
og sá sem hafði veitt laxinn hvatti
vin sinn til að taka sína stöng og
reyna sömu flugu, enda hafði slíkt
hent sig hjá þeim áður að taka
tvo—þijá á sömu flugu í beit eins
og kallað er. En vinurinn var ný-
búinn að hnýta á hjá sér Collie
Dog straumflugu númer 4 og vildi
endilega reyna hana frekar og bar
fyrir sig að hann kynni hvort eð
er betur við sína eigin stöng, en
annar er rétthentur, hinn örv-
hentur. Svo taldi vinurinn sér trú
um að ef laxinn væri að komast
í tökustuð eftir allt saman, þá
gæti flugan hans alveg eins gefið
veiði eins og litli tætti Þingeying-
urinn. En hann varð ekki var og
fór þó vandlega yfir allan veiði-
staðinn.
Sá sem laxinn dró hvatti vin
sinn þá enn til að reyna sína stöng
með tilheyrandi flugu, en við það
var ekki komandi. Félaginn féllst
að vísu 'á að reyna Þingeying
númer 10, en valdi hann úr sínum
eigin öskjum og tefldi fram ný-
hnýttu og spengilegu eintaki.
Aftur fór hann jrfir hylinn vand-
lega án þess að hreyfa lax. Skilaði
Þegar þessl hafði ginið við Pingeyingnum hefði auðvitao att að rejma
þá flugu strax aftur...
in og næstum 20 stiga hiti. Svo
gerðist loks það sem vinimir von-
uðu: Það kulaði talsvert er
dtjúgan skýjabakka dró fyrir sólu.
„Nú gengur rófan," sagði annar
kappanna og valdi áer Þingeying
nr. 10. Þetta var vesældarlegt
eintak sem Laxárurriðar höfðu
brutt og sundurtætt fyrr um
sumarið. Þó voru fáein gul hár
eftir í vængjunum, en búkurinn
var vægast sagt trosnaður. Og
hvað haldið þið? Jú, það var lax á
svo ánni aftur í hendur félaga
síns. Sá reyndi auðvitað aftur
snjáðu fluguna sína og fékk annan
lax í þriðja kasti, 5 punda hæng.
En meiri varð veiðin ekki í þetta
sinn. Þeir laxar sem eftir lifðu
héldu áfram að stökkva og velta
sér öðru hvoru. Vinimir höfðu
lært lexíu sem þeir töldu sig þó
hafa lært áður. En trúlega bara
gleymt henni aftur og það kostaði
annan félaganna trúlega lax við
þetta tækifæri.
Reuter
Slgurmarkl fagnaö
Nick Pickering og Lloyd McGrath til hægri fagna sigurmarki Coventry. Til vinstri er Gary Mabbutt, sem skoraði sjálfs-
markið, og ber hann þess greinilega merki.
Davíð sigraði Golíat
og nýtt nafn á bikarinn
Dave Bennett frá Coventry maður bikarleiksins
ÍBÚAR Coventry fögnuðu bik-
armeisturunum gífurlega, er
þeir komu heim úr frægðarför
frá Wembley. Himinninn var
blár, bærinn var blár, fólkið í
bláu. Coventry, sem aldrei í
104 ára sögu félagsins hafði
leikið á Wembley, kom, sá og
sigraði, þegar liðið vann Tott-
enham 3:2 íframlengdum
úrslitaleik ensku bikarkeppn-
innar — nýtt nafn var skráð á
bikarinn.
Varaformaður Coventry hefur
ávallt haft trú á sínum mönn-
um. Fyrir sjö mánuðum voru Iíkum-
ar einn á móti fimmtíu að Coventry
jrrði bikarmeistari,
Frá Bob varaformaðurinn fór
Hennessy í veðbanka, setti
ÍEnglandi þúsund pund á sína
menn og fékk því
fimmtíu þúsund pund borguð út
eftir leikinn!
„Ég vissi að við myndum sigra í
framlengingunni," sagði John Sil-
lett, framkvæmdastjóri Coventry.
„Leikmenn Tottenham voru niður-
lútir án þess að gera sér grein fyrir
því og þeir vom búnir. Við áttum
hins vegar nóg eftir og framleng-
ingin var okkar, en leikurinn í heild
var það besta, sem ensk knatt-
spyma hefur upp á að bjóða.“
Gert er ráð fyrir að um 500 milljón
manns hafi horft á leikinn í beinni
útsendingu og víst er að um hann
verður rætt í nánustu framtíð, því
leikurinn var í einu orði sagt frá-
bær. Sjálfsmark Gary Mabutt réði
úrslitum og hefur það aldrei fyrr
gerst í sögu keppninnar, en tvisvar
áður hefur sami maður skorað fyrir
bæði liðin. Clive Allen skoraði sitt
49. mark á tímabilinu á 2. mínútu,
en Dave Bennett jafnaði skömmu
síðar. Mabutt kom Spurs aftur yfir,
en Keith Houchen jafnaði með
stórglæsilegu skallamarki.
David Pleat, framkvæmdastjóri
Spurs, var ekki ánægður með sína
menn. „Ef sumir þeirra hefðu leikið
eins og þeir geta leikið, hefðum við
sigrað. Við vanmátum Coventry
ekki, við vissum hvað við þurftum
að gera, en gerðum það ekki og
leikmennimir vita það.“
Leeds og Charlton áfram
og leika um lausa sætið
Veiðivörur
CHARLTON vann Ipswich 2:1
í seinni leik liðanna í úrslita-
keppninni um sæti í 1. deild
og Leeds tapaði með sömu
markatölu fyrir Oldham á
sunnudaginn. Charlton og Ips-
wich gerðu jafntefli í fyrri
leiknum og Leeds vann 1:0
heima, en þar sem mark á úti-
velli telst tvöfalt, verða það
Leeds og Charlton, sem leika
um lausa sætið.
SKOTLAND
Keith Edwards var hetja Leeds
eins og í fyrri leiknum. Billy
Bremmner, framkvæmdastjóri, hef-
ur tröllatrú á honum sem varamanni
gggm og Edwards hefur
Frá Bob ekki brugðist. í fyrri
Hennessy leiknum kom hann
iEnglandi jnná og skoraði eina
markið og í þeim
seinni skoraði hann, þegar 30 sek-
úndur voru til leiksloka.
Jim Melrose skoraði bæði mörk
Charlton, sem enn heldur í vonina
um að halda sætinu, en leikimir
gegn Leeds verða 23. og 25. maí.
Aldershot kom heldur betur á óvart.
Þetta litla og fátæka 4. deildarlið
gerði sér lítið fyrir og sendi hið
fomfræga lið Bolton í neðstu deild.
Phil Neal er framkvæmdastjóri
Bolton og Asa Hartford er annar
frægur leikmaður félagsins, en allt
kom fyrir ekki. Aldershot vann fyrri
leikinn 1:0 heima, gerði 2:2 jafn-
tefli úti og leikur því við Wolves
um sæti í 3. deild.
KNATTSPYRNA / ENGLAND