Morgunblaðið - 19.05.1987, Qupperneq 12
ítffffflR
ÓLYMPÍULEIKAR SMÁÞJÓÐA í MÓNAKÓ
íslendingar unnu
27 gullverðlaun
Ragnheiður setti þrjú íslandsmet og vann sjö gullverðlaun
Eövarð Þ6r EAvarAsson
hefur oft haft ástæðu til að fagna.
ÍSLENDINGAR unnu 27 gullverðlaun, 14 silfurverðlaun og 7
bronsverðlaun á Ólympíuleikum smáþjóða sem lauk í Mónakó
á sunnudaginn. Sundfólkið stóð sig best og vann 22 gullverð-
laun og setti alls 15 íslandsmet. Sundkonan Ragnheiður
Runólfsdóttir varð sigursælust einstaklinga. Hún vann sjö
gullverðlaun og setti þrjú íslandsmet.
Islenska sundlandsliðið tekur
varla þátt í móti nú orðið án
þess að fjölmörg íslandsmet eru
sett. Sundfólkið sannaði þetta enn
einu sinni í Mónakó
um helgina og er
árangur þeirra ótrú-
lega góður.
Ragnheiður setti
Valur
Jónatansson
skifar
Þrjú íslandsmet
Ragnheiður Runólfsdóttir var mjög sigursæl á mótinu í Mónakó. Hún setti þijú íslandsmet og vann sjö gullverðlaun og
ein silfurverðlaun. Bryndís Ólafdóttir er á minni myndinni. Hún sett íslandsmet 100 m skriðsundi.
mín. Bryndís Ólafsdóttir setti ís-
landsmet í 100 m skriðsundi og
vann fimm gullverðlaun. Hún bætti
metið, sem systir hennar Hugrún
átti, um 1/10 úr sekúndu.
Eðvarð Þór vann sex greinar
Eðvar Þór Eðvarðsson var nokkuð
frá sínu besta en vann þó sex gull-
verðlaun. Það sýnir best hversu
mikill afreksmaður hann er. Ungi
sundmaðurinn úr Hafnarfirði, Arn-
þór Ragnarsson, vann tvenn gull-
verðlaun og það gerði Hugrún
Ólafsdóttir einnig.
Þórdís nálægt sínu besta
Fijálsíþróttafjólkið vann þrenn gull-
verðlaun. Pétur Guðmundsson
sigraði í kúluvarpi, kastaði 18,53
metra og var nálægt sínum besta
árangri. Aðalsteinn Bemharðsson
sigraði í 400 metra hlaupi á 49,22
sekúndum og Þórdís Gísladóttir
sigraði hástökki og varð önnur í
100 m grindahlaupi. Hún stökk
1,86 metra í hástökkinu og átti
góða tilraun við íslandsmetið sem
er 1,88 m. Hún hljóp 100 m grind
á 14,64 sek.
Júdómenn unnu
tvenn gullverAlaun
íslensku júdómennimir unnu tvenn
gullverðlaun, ein silfurverðlaun og
ein bronsverðlaun. Ómar Sigurðs-
son sigraði flokki 71 til 78 kg.
Karl Erlingsson sigraði í flokki 65
til 71 kg. Sigurður H. Bergmann
varð annar í plús 86 kg flokki og
Hafsteinn Halldórsson varð þriðji í
78 til 86 kg flokki.
Haraldur Olafsson varð annar í
sínum flokki í lyftingum, lyfti 125
kg í snörun og 160 kg í jafnhöttun.
Birgir Borgþórsson varð fjórði í
sínum flokki, lyfti 135 kg í snömn
pg 165 kg i jafnhöttun.
íslenska körfuknattleiksliðið varð í
öðru sæti á mótinu. Það tapaði fyr-
ir Mónakó í æsispennandi úrslita-
leik, 75:80. Heimamenn höfðu yfír
í leikhléi en íslendingar náðu fimm
stiga forskoti í upphafi seinni hálf-
leiks en heimamenn sigu síðan
framúr og stóðu uppi sem sigurveg-
arar. íslenska liðið fékk þó tvívegis
góð tækifæri á að minnka muninn
og jafna undir lokin. Pálmar var
stigahæstur með 21 stig.
íslendingar unnu flest verðlaun á
mótinu. Auk íslands tóku eftirtald-
ar þjóðir þátt í leikunum: Luxem-
borg, Lichtenstein, Andorra, San
Marino, Mónakó, Malta og Kýpur.
þijú íslandsmet og vann sjö gull-
verðlaun og ein silfurverðlaun. I
200 metra baksundi bætti hún eldra
metið, sem hún átti sjálf, um rúm-
lega þijár og hálfa sekúndu, synti
á 2.28,91 mín. í 100 m baksundi
bætti hún eldra metið um tæpar
þijár sekúndur í undanráusum og
í úrslitum gerði hún enn betur og
bætti sig um tvær sekúndur, synti
á 1.13,39 mín. Ragnheiður var einn-
ig í boðsundsveitunum í 4 x 200
og 4 x 100 metra skriðsundi, en
stúlkumar settu íslandsmet í báð-
um þessum greinum.
Magnús setti tvö íslandsmet
Magnús Ólafsson sett íslandsmet í
100 og 200 m flugsundi. Hann
bætti eldra metið um hálfa sekúndu
í 200 metrunum, synti á 2.14,05
mín. í 100 m bætti hann eldra
metið um tæpa sekúndu og komst
niður fyrir mínútuna, synti á 59.90
Yfir rána
við 1,88 metra sem er íslandsmet. Hún
Þórdís Gísladóttir stökk 1,86 metra í hástökki og sigraði. Hún átti góða tilraun
varð einnig önnur í 100 m grindahlaupi á mótinu í Mónakó.
LOTTO: 4 22 25 26 29