Morgunblaðið - 20.05.1987, Síða 3
r
ptoípMiMfi&ifo /IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987
B 3
Markabikarar
Morgunblaðsins
EINS og í fyrra verðlaunar Morg-
unblaðið þann leikmann, sem
skorar fyrsta markið í SL
mótinu-1. deild í ár og markabikar
Morgunblaðsins verður einnig
veittur því liði, sem flest mörk
skorar í deildinni. Báðir gripirnir
eru til eignar og þeim fylgir sú
von að skemmtileg sóknarknatt-
spyrna sitji í fyrirrúmi.
í fyrra voru skoruð 12 mörk í
1. umferð og skoraði Bjarni Svein-
björnsson fyrsta mark deildarinnar
fyrir Þór gegn Val eftir 2.32 mínút-
ur. Bjarni er hins vegar fjarri góðu
gamni í ár, verður ekki með vegna
meiðsla.
íslandsmeistarar Fram skoruðu
flest mörk í fyrra, 39 talsins í 18
leikjum, Skagamenn komu næstir
með 33 mörk, Valsmenn skoruðu
31 mark og önnur lið færri. Fram-
arar hlutu því markabikar Morgun-
blaðsins, en markakóngar þeirra,
Guðmundur Torfason, sem skor-
aði 19 mörk og Guðmundur
Steinsson með 10 mörk, leika nú
báðir með erlendum liðum eins og
flestum er kunnugt.
Skori tvö eða fleiri lið jafnmörg
mörk, þá verður markabikarinn
veittur því liði, sem á markakóng
deildarinnar í haust. Ef tveir menn
í sitthvoru liði verða markahæstir,
verður gengið út frá næst marka-
hæsta manni og síðan koll af kolli,
ef með þarf.
Á myndinni til hægri eru marka-
bikarar Morgunblaðsins. Verð-
launagripinn til vinstri hlýtur sá
leikmaður, sem skorar fyrsta
markið í deildinni, en hinn fær það
lið, sem flest mörkin skorar.
Einkunnagjöf
Morgunblaðsins
MORGUNBLAÐIÐ mun í sumar
eins og mörg undanfarin ár gefa
leikmönnum einkunn fyrir
frammistöðu þeirra íleikjum SL-
mótsins og velja lið hverrar
umferðar. Þá verður dómurum
einnig gefin einkunn, en það hef-
ur ekki verið gert í nokkur ár.
Einkunnagjöf leikmanna verður
með sama sniði og áður. Einkunn-
in 5 þýðir frábær, 4 merkir mjög
góður, 3 stendur fyrir góður, 2 er
sæmilegur og sýni leikmaður slak-
an leik, fær hann 1 í einkunn.
Leikmaður fær ekki einkunn, leiki
hann 15 mínútur eða skemur.
Varðandi dómarana þá er tekið
mið af leiðbeiningum KDSÍ fyrir
eftirlitsdómara. Einkunnastiginn er
frá 1 til 10. 10 stendur fyrir frá-
bær, 9 fyrir framúrskarandi, 8 fyrir
mjög góður, 7 fyrir góður, 6 fyrir
fullnægjandi, 5 fyrir sæmilegur, 4
fyrir slæmur, 3 fyrir mjög slæmur,
2 er ófullnægjandi og 1 mjög afleit-
ur.
Stigahæsti maður sumarsins,
„leikmaður íslandsmótsins", verð-
ur heiðraður í mótslok, sömuleiðis
stigahæsti dómarinn og svo
markakóngur deildarinnar.
Valsmenn
prúðastir
í þrjú ár
SÍÐAN 1975 hafa þau lið í 1. og
2. deild karla, sem sýnt hafa prúð-
mannlegastan leik f deildar-
keppninni verið verðlaunuð
sérstaklega og hlotið Dragostytt-
urnar. Eftirtalin fólög í 1. deiid
hafa hlotið gripina:
1975 Fram 1981 KA
1976 ÍBK 1982UBK
1977FH 1983ÍBÍ
1978 Fram 1984Valur
1979 ÍBK 1985Valur
1980 Víkingur 1986 Valur
MTIB-1.DI110
Næst þegar þú ferð til Asíu í viðskiptaerindum ættirðu
að hugsa um þann möguleika að fara í gegnum Amsterdam.
Schiphol flugvöllur í Amsterdam er heimavöllur KLM,
sem er eitt af reyndustu flugfélögum heimsins. KLM flýgur til
28 borga í Miðausturlöndum og Austurlöndum fjær, svo sem
Dubai, Tokýó, Melbourne, Bangkok og Singapore.
Ef þú ferð til dæmis frá Keflavík á föstudagsmorgni með
Arnarflugi ertu kominn á Schiphol á hádegi. Þaðan tekur þú
svo þægilega breiðþotu KLM klukkan 14.35 til Hong Kong.
Það gefur þér samt tíma til að skoða hina gríðarstóru
fríhöfn Schiphol flugvallar, þar sem yfir 50.000 vörutegundir
eru í boði.
Það er sama hvert þú ert að fara. í næsta skipti skaltu
taka þægilegt tengiflug KLM sem nær til 127 borga í 76
löndum. Og fara um Schiphol. Heimsins besta tengiflugvöll.
Nánari upplýsingar hjá Arnarflugi í síma 84477 og hjá
ferðaskrifstofunum.
Áætlun ARNARFLUGS til Amsterdam
lirottfor Lending Brottför Lending
Keflavík Amsterdam Amstcrdam Kcflavik
Þriðjutiaga 07:00 12:05 13:00 14:15
Miðvikudaga 07:00 12:05 13:00 14:15
Föstudaga 07:00 12:05 13:00 14:15
Laugardaga 07:00 12:05 13:00 14:15
Allir tímar eru staðartímar
Traust flugfélag KLM
'—' Royal Dutch Airlines