Morgunblaðið - 20.05.1987, Qupperneq 13
B 13
# Baldur Scheving
Próf 1957
• Guftmundur Haraldss
Próf 1961, um 60 millirst.
• Magnús Jónatansson
Próf 1973, 243 störf
• Ólafur Lárusson
Próf 1982
• Sveinn Sveinsson
Próf 1979
• Þorvarður Björnsson
Próf 1961, um 1100 störf
fltajpmMiiMfr /IÞROTTIR MJÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987
A-dómarar
I
• Bragi V. Bergmann
Próf 1976, um 500 störf
• Eysteinn Guðmundss
Milliríkjad., um 1000 störf
• Eyjólfur Ólafsson
Próf 1980
• Kjartan Ólafsson
Próf 1972
• Magnús Theodórsson
Próf 1969
• Óli P. Olsen
Millirikjad., um 1000 störf
• Þóroddur Hjaltalín
Próf 1972
• Ingi Jónsson
Formaður KDSÍ
Ingi Jónsson:
Ekki leikur
án dómara
„ALLIR vita að kappleikur fer ekki
fram án dómara og línuvarða,
þeir eru hluti af leiknum og und-
irbúa sig f samræmi við þær
kröfur, sem til þeirra eru gerð-
ar,“ sagði Ingi Jónsson, formaður
Knattspyrnudómarafélags ís-
lands.
„Dómarastarfið er mjög van-
þakklátt og oftar en ekki eru þeir
skammaðir. En getur þú tekið hár-
rétta ákvörðun á broti úr sekúndu?
Þetta þarf fólk að hugsa um, en
öll gagnrýni á fullan rétt á sér og
dómarar eins og leikmenn reyna
ávallt að gera sitt besta.
A-dómarar eru þeir, sem dæma
í 1. deild karla. Eftirlitsdómarar eru
á öllum leikjum í 1. og 2. deild og
eru A-dómarar valdir samkvæmt
frammistöðu á síðasta keppnis-
tímabili. Áður en tímabilið hefst,
fara þeir í þolpróf og taka einnig
skriflegt próf og reyndar geta þeir
verið kallaðir fyrirvaralaust í próf á
leiktímabilinu, ef ástæða þykirtil."
-Hvers vegna gerast menn dóm-
arar?
„Félögin þurfa á fjölda starfs-
krafta að halda á hinum ýmsu
sviðum og félögin þurfa yfirleitt að
fá menn til að sækja dómaranám-
skeið, en oftar en ekki róa þau á
röng mið, fá leikmenn eða aðra
störfum hlaðna félagsmenn til
þessara verka, sem þola ekki
pressuna og hætta fljótlega.
En sem betur fer eru alltaf ein-
hverjir inni á milli, sem hafa mikinn
áhuga á starfinu og sækjast eftir
því. Þessir menn vilja vinna fyrir
félag sitt, þar sem þeir telja sig
koma best að gagni og þeir eru
metnaðarfullir.
Helsta viðurkenning, sem dóm-
ari fær, er að fá alþjóðaskírteini,
en samkvæmt reglugerð, megum
við vera með sjö alþjóðadómara.
Allir íslenskir dómarar eru dæmdir
eftir frammistöðu alþjóðadómar-
anna og því höfum við ekki alltaf
fyllt flokkinn, heldur aðeins valið
þá bestu, en núna erum við með
þrjá milliríkjadómara."
-Eru einhverjar nýjar reglur frá
fyrra ári?
„Já. í fyrsta lagi er vakin athygli
á því, að liðin mega ekki vera í
samlitum sokkum. í öðru lagi mega
leikmenn ekki hita upp fyrir aftan
mörkin og í þriðja lagi skal heima-
lið sjá um að þrír knettir sóu til
taks, einn við hvort mark í umsjá
ábyrgs aðila. Þá er rétt að benda
á að þjálfari hefur ekki heimild til
að fara inn á völlinn þó leikmaður
meiðist, aðeins liðsstjóri og læknir.
• Friðgeir Hallgrímsson ® Gi'sli Guðmundsson
Próf 1976 Próf 1976, um 400 störf
G0RE-TEXR
gallar
Discovery
Stærðir: 48 — 54
Verð: 13.570.-