Morgunblaðið - 23.06.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987
Morgunblaðið/Sverrir
Almennur hámarkshraði á þjóðvegum með bundnu slitlagi hefur verið hækkaður í 90 kOómetra á
klukkustund.
Hamarkshraði á veg-
um með bundnu slit-
lagi 90 kílómetrar
Hámarkshraði á þjóðvegum
með bundnu slitlagi hefur verið
hækkaður úr 80 kílómetrum á
klukkustund í 90 kilómetra.
Þetta á þó ekki við um vegar-
kafla sem teljast til þjóðvega en
liggja um kaupstaði eða kauptún.
Breyting þessi tók gildi síðasta
föstudag, 19. júní. Eins og fyrr
sagði á þetta aðeins við um þjóð-
vegi með bundnu slitlagi, til dæmis
Keflavíkurveg, Grindavíkurveg,
Suðurlandsveg og Þingvallaveg. A
Þingvallavegi er nokkurra kfló-
metra kafli, sem enn hefur ekki
verið lagt bundið slitlag á, en það
verður gert nú í sumar. Pull ástæða
er til að minna fólk á að draga úr
hraða þar sem þjóðvegir með
bundnu slitlagi liggja um þéttbýli,
til dæmis eiga þessar reglur ekki
við um þann kafla Vesturlandsveg-
ar sem liggur í gegnum þéttbýlis-
kjamann í Mosfellssveit.
Almennur hámarkshraði á veg-
um utan þéttbýlis er áfram 70 km
á klukkustund og almennur hám-
arkshraði í þéttbýli er sem fyrr 50
km á klst. Gilda þær reglur nema
annað sé gefíð til kynna með um-
ferðarmerki. Þá er einnig vert að
minna ökumenn á, að hámarks-
hraðareglur eru allar miðaðar við
akstur við bestu aðstæður. Hinn
aukni hámarkshraði gildir ekki fyr-
ir allar bifreiðar. Þannig verður
hámarkshraði vörubifreiða, sem eru
meira en 3500 kg að heildarþyngd,
aldrei meiri en 80 km á klst. og
hámarkshraði bifreiða sem draga
tengi- eða festivagna verður aldrei
meiri en 70 km á klst.
VEÐUR
11°
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 f gær)
I/EÐURHORFUR í DAG, 23.06.87
YFIRLIT á hádegi (gær: Yfir Grænlandi og hafinu norður af íslandi
er víðáttumikið og kyrrstætt háþrýstisvæði. Um 1000 km suður
af Hvarfi er 998 millibara djúp lægð sem fer hægt austnorðaustur.
SPÁ: Hægviðri eða norðaustan gola á landinu. Um norðan- og
austanvert landiö verður skýjað en bjartviöri á suður- og vestur-
landi. Hiti á bilinu 10 til 16 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
MIÐVtKUDAGUR og FIMMTUDAGUR: Austan- og norðaustan
gola eða hægviðri. Víða skýjað um norðan- og austanvert landið
og jafnvel súld suöaustanlands en bjartviðri suðvestan- og vestan-
lands. Hiti á bilinu 7 til 10 stig norðan-, austan- og suðaustanlands
en allt að 15 stig um vestanvert landiö.
} gráður á Celsíus
Skúrir
El
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
o
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig: -J Q I
* Vindörin sýnir vind- 1C
stefnu og fjaðrirnar •
vindstyrk, heil f)öður V
er 2 vindstig. *
V
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
•> •>
oo
4
K
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akuroyri hhi 11 veAur lóttskýjað
Reykjavík 12 þokumðða
Bergen 15 skýjað
Heleinki 21 skýjað
JanMayen 3 alskýjað
Kaupmannah. 15 akýjað
Narsaarsauaq 18 akýjað
Nuuk 9 láttskýjað
Osló 12 riqninq
Stokkhólmur 21 láttskýjað
Þórshöfn 9 alskýjað
Algarve 28 akýjað
Amsterdam 17 rlgning
Aþena 28 láttakýjað
Barcelona 21 akýjað
Bertin 18 akýjað
Chlcago 21 súld
Feneyjar 23 láttakýjað
Frankfurt 17 akýjað
Hamborg 16 skýjað
Las Palmas 24 láttakýjað
London 18 rigning
LosAngeles 17 akýjað
Lúxemborg 17 hálfskýjað
Madrid 27 láttskýjað
Malaga 25 léttakýjað
Mallorca 24 akýjað
Mlami 28 skúr
Montreal 22 alskýjað
NewYork 21 þokumóða
Parfs 19 skýjað
Róm 24 láttskýjað
Vfn 11 rlgnlng
Washington 26 þokumóða
Winnlpeg 20 láttskýjað
Landsvirkjun:
Nýtt erlent lán lækk-
ar vaxtakostnað um 50
milljónir króna á ári
LÁNSSAMNINGUR irnlli
Landsvirkjunar annarsvegar
og Industrial Bank of Japan
Ltd. í Tokyo og átta annarra
japanskra banka og lánastofn-
ana hinsvegar var undirritaður
í London í gær. Samningurinn
er um lán til Landsvirkjunar
að fjárhæð 5 milljarða japan-
skra Yena eða jafnvirði um
1350 milljóna íslenskra króna á
núverandi gengi. Skuldbreyt-
ing þessi mun lækka vaxtagjöld
Landsvirkjunar um sem næst
50 milljónir króna á ári. Halldór
Jónatansson, forstjóri Lands-
virkjunar, undirritaði samning-
inn af hálfu Landsvirkjunar.
Lánið er til tíu ára og afborgun-
arlaust fyrstu fímm árin en
endurgreiðist síðan með ellefu
hálfsárslegum greiðslum, Lands-
virkjun er þó heimilt að greiða
lánið upp að meira eða minna leyti
hvenær sem er á seinni fímm árum
lánstímans. Vextir af láninu eru
4,9%.
Þetta lán verður notað til þess
að greiða upp eldra lán Lands-
virkjunar hjá Mitsui Trust and
Banking Company Ltd., Tokyo,
öðrum japönskum bönkum og
lánastofnunum, sem tekið var
1982 og ber mun hærri vexti en
nýja lánið eða 8,7%.
1,99% hækkun
á byggingar-
vísitölu
BYGGINGARVÍSITALA var 319,84
stig í júní eða 1,99% hærri en í
maí. Síðastliðna 12 mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar hækk-
að um 18,5% en undanfama þijá
mánuði 4,9%, sem jafngildir 21,0%
verðbólgu á heilu ári.
Af hækkun vísitölunnar frá mai til
júní stafa um 0,8% af hækkun á töxt-
um útseldrar vinnu 1. júní sl., 0,4%
stafa af 4,1% hækkun á verði steypu,
0,2% stafa af 4,2% hækkun gatna-
gerðagjalda og um 0,6% eru tilkomin
vegna hækkunar á verði ýmiss bygg-
ingarefnis jafnt innlends sem innflutts.
Hinn 1. júlí taka gildi ný lög um
vísitölu byggingarkostnaðar og þá
jafnframt nýr visitölugrundvöllur, sem
hefur grunntölu 100,0 og miðast við
verðlag i júnímánuði 1987.
Birgír Harðarson látinn
Birgir Harðarson, forstöðu- gji
maður skrifstofu Eimskips i
Norfolk, varð bráðkvaddur i
New York ríki hinn 20. júní sl.,
þar sem hann var á ferðalagi
með fjölskyldu sinni.
Birgir var fæddur 18. ágúst
1946. Hann varð stúdent frá Versl-
unarskóla íslands árið 1968 og
viðskiptafræðingur frá Háskóla ís-
lands 1972. Birgir hóf störf hjá
Eimskipafélagi íslands hinn 1. jan-
úar 1980. Var forstöðumaður
meginlandsdeildar á flutningasviði
félagsins til ársins 1985 er hann
tók við forstöðu skrifstofu Eim-
skipafélagsins í Norfolk, þegar
félagið opnaði þar eigin skrifstofu.
Árin 1973 til 1976 starfaði Birgir
sem ráðgjafí hjá Útflutningsmið-
stöð Iðnaðarins og var forstöðu-
maður bflasmiðju Kaupfélags
Ámesinga árin 1976 til 1979.
Eiginkona hans var Kristín
Kristjánsdóttir og eignuðust þau
eina dóttur. Þau slitu samvistum.
Eftirlifandi sambýliskona Birgis er
Harpa Guðmundsdóttir.