Morgunblaðið - 23.06.1987, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Trúða-
menning?
Vígsluhátíð nýja Útvarpshússins
á Fossvogshæðum var athyglis-
verð fyrir margra hluta sakir.
Útvarpsmenn voru að sjálfsögðu
glaðir á vígslustundu og hljóta að
hyggja á landvinninga er þeir setjast
við hljóðnema í 1000 milljóna setr-
inu. Og vissulega geta landsmenn
senn andað léttar er metnaðarfullir
ríkisstarfsmenn hafa svalað metnaði
sfnum með byggingu „minnisvarð-
anna“, sjónvarpið bara eftir að flytja
í Fossvogshöllina og hinar „þröngu"
skrifstofur Seðlabankans senn full-
skipaðar — æ ég gleymdi Borgarráð-
húsinu. Eitthvað verða hinir snjöllu
hönnuðir lands vors að hafa fyrir
stafni og sér víst ekki högg á vatni
þótt heilu steinsögunarverksmiðjum-
ar rfsi til að saga bautasteina hinna
stórhuga ríkisstarfsmanna.
Hvers megna hinir mörgu og smáu
einkarekstursmenn gegn þessum
stórhuga ríkisstarfsmönnum er hafa
í hlaðinu gullasnann ljónviljuga er
hinn þakkláti skattborgari fóðrar að
sjálfsögðu með hinni mestu ánægju,
enda vilja alþýðumenn ekki fyrir
nokkum pening standa gegn menn-
ingarsókn ríkisstarfsmannanna. En
stundum gerast þau undur og stór-
merki á lofgerðarstundu — stund
þegar hinir stórhuga ríkisstarfsmenn
stíga í pontu að lofa meistaraverkin
— að einn úr „innsta hringnum" fer
útaf sporinu og englakórinn koksar.
Við vígslu Utvarpshallarinnar er
ríkisstarfsmennimir vom komnir
langleiðis til himnaríkis í lofræðunum
kvað þá ekki við þrumuraust Sverris
Hermannssonar menntamálaráð-
herra eins og saltkembdur gustur
af Vestfjörðum þar sem menn hafa
hingað til verið hvað duglegastir við
að afla í jötu gullasnans: Eg sakna
þess að hafa ekki enn hið íslenska
sjónvarp; ég hef þráð íslenskt sjón-
varp og tel að íslenska þjóðin þurfi
á því að halda. Báðar sjónvarpsstöðv-
amar sem nú starfa hella yfír okkur
efni úr útlendum lágmenningarmsla-
tunnum . . . íslendingar þurfa miklu
meira af íslensku menningarlegu
eftii. Aðalerindi mitt hér í dag var
að minna á þessa nauðsyn."
Kokteilskvetta
Það var eins gott að gestimir í
Útvarpshöllinni vom ekki teknir að
innsigla frægðarverkin með kokteiln-
um, en ég er sammála vfkingnum
Sverri um að ekki dugir að reisa
glæsilega bautasteina á Fossvogs-
hæðum, ef ekki verður vandað betur
til hinnar innlendu dagskrár ríkis-
sjónvarpsins, en þar skiptir magnið
ekki höfuð máli heldur gæðin. Tökum
dæmi af þætti er Ásdís Loftsdóttir
stýrði á ríkissjónvarpinu síðastliðið
sunnudagskveld og nefndist: Er ný
kynslóð að taka við? f þætti þessum
var rætt við athafnamenn er lýstu
stuttlega lífsaðstæðum sínum en ekki
var haft fyrir því að gægjast svolítið
á bakvið tjöldin til dæmis með því
að rannsaka ögn starfsvettvang at-
hafnamannanna og stöðu ungs fólks
á vinnumarkaðinum almennt. Slík
upplýsingasöfnun kostar náttúmlega
peninga en gullasnar hafa meiri
áhuga á minnisvörðum úr stáli og
steinsteypu. Annars sómdi Ásdís sér
ágætlega í spyrilsstúkunni þar til
kom að því að yfírheyra „skáldið" í
hópnum. Sá maður var svo viss um
eigin „skáldgáfu" að hann kvaðst
ekki eiga neinar tómstundir „. . .
ég keyri stöðugt á innsoginu einsog
hin skáldin". Asdís virtist ekki hafa
hinn minnsta áhuga á kveðskap
þessa sjálfsömgga „skálds", aðeins
lífsstílnum. Fyrir þjóð sem er að
mestu horfin frá kveðskapariðkun
er máski þægilegt að eiga að sjón-
varpsmenn er leita uppi einstaklinga
er kunna að stiga á stokk og lýsa
eigin „skáldgáfu" í tíma og ótíma
en viljum við í raun og vem slíka
trúðamenningu?
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP
©
ÞRIÐJUDAGUR
23. júní
6.4S Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin — Hjördís
Finnbogadóttir og Oðinn
Jónsson. Fréttir eru sagðar
kl. 8.00 og veðurfregnir kl.
8.15. Fréttayfirlit kl. 7.30 og
síöan lesið úr forustugrein-
um dagblaðanna. Tilkynn-
ingar lesnar kl. 7.25, 7.55
og 8.25. Guömundur Sæ-
mundsson talar um daglegt
mál kl. 7.20. Fréttir á ensku
sagðar kl. 8.30.
0.00 Fréttir. Tilkynningar.
0.05 Morgunstund barn-
anna: „Sagan af Hanska,
Hálfskó og Mosaskegg" eft-
ir Eno Raud. Hallveig
Thorlacíus les þýðingu sína
(2).
0.20 Morguntrimm. Tónleik-
ar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.06 Samhljómur. Umsjón:
Þórarinn Stefánsson. (Frá
Akureyri.)
(Þátturinn verður endurtek-
inn að loknum fréttum á
miðnætti.)
11.55 Útvarpið í dag.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn — Breyt-
ingaaldurinn, breyting til
batnaðar. Umsjón: Helga
Thorberg.
14.00 Miðdegissagan: „Franz
Liszt, örlög hans og ástir"
eftir Zolt van Hársány. Jó-
hann Gunnar Ólafsson
þýddi. Ragnhildur Stein-
grímsdóttir les (7).
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
16.20 Afríka — Móðir tveggja
heima. Fjórði þáttur: Sjálf-
stæðisbaráttan. (Endurtek-
inn þáttur frá sunnudags-
kvöldi.)
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin.
Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpiö.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.06 Síðdegistónleikar.
a. „Andante favori í F-dúr“,
Andor Foldes leikur á píanó.
b. Píanókvintett í Es-dúr op.
16. Friedrich Gulda og Blás-
arasveit Fílharmóníusveitar-
innar í Vínarborg leika.
17.40 Torgið
Umsjón: Þorgeir Ólafsson
og Anna M. Sigurðardóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá morgni sem Guð-
mundur Sæmundsson
flytur.
Glugginn — Drageyri, gam-
all bær á Amager. Umsjón:
Sigrún Siguröardóttir.
20.00 Darius Milhaud og Eug-
ene Bossa.
a. Konsert fyrir marimbu,
víbrafón og hljómsveit eftir
Darius Milhaud. Tainer Kus-
ima og Sinfóníuhljómsveitin
í Norrköping leika; Jorma
Panula stjórnar.
b. „La Cheminé du Roi
René" eftir Darius Milhaud.
„Ayorama” — tréblásturs-
kvintettinn leikur.
c. „Þrjár myndir" eftir Eug-
ene Bossa. Robert Aitken
og Robert McCabe leika á
flautu og píanó.
20.40 Réttarstaöa og félags-
leg þjónusta. Umsjón:
Hjördís Hjartardóttir. (End-
urtekinn þáttur frá deginum
áður.)
21.05 Sembalkonsert í D-dúr
eftir Carl Philipp Emanuel
Bach. Bob van Aspersen
og „Melante '81 “ —kamm-
ersveitin leika.
21.30 Útvarpssagan: „Leikur
blær að laufi" eftir Guð-
mund L. Friöfinnsson.
Höfundur les (15).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.16 Veðurfregnir.
22.20 Leikrit: „Hefðarmærin
og kontrabassakassinn"
eftir Arnold Hinchcliffe
byggt á sögu eftir Anton
Tsjekov. Þýðandi: Ingibjörg
Þ. Stephensen. Leikstjóri:
Guðmundur Ólafsson. Leik-
endur: Harald G. Haralds-
son, Ragnheíöur Tryggva-
dóttir, Jóhann Sigurðarson,
Róbert Arnfinnsson,
Bryndís Pétursdóttir, Viðar
Eggertsson, Gunnar Rafn
Guðmundsson, Kjartan
Bjargmundsson og Pálmi
Gestsson. (Endurtekið frá
fimmtudagskvöldi.)
23.10 l'slensk tónlist.
a. „Næturþeyr" eftir Sigurð
E. Garðarsson. Höfundur-
inn leikur á píanó.
b. Ólöf Kolbrún Harðardóttir
syngur lög eftir Ingibjörgu
Þorbergs. Guðmundur
Jónsson leikur á píanó.
c. Tríó í a-moll eftir Svein-
SJÓNVARP
ÞRIÐJUDAGUR
23. júní
18.30 Villi spæta og vinir
hans.
23. þáttur. Bandarískur
teiknimyndaflokkur. Þýö-
andi Ragnar Ólafsson.
18.55Unglingarnir í hverfinu.
Fjórði þáttur. Kanadískur
myndaflokkur í þrettán þátt-
um. Hér eru á feröinni
gamlirkunningjar, Krakkarn-
ir í hverfinu, sem nú eru
búin að slíta barnsskónum
og komnir í unglingaskóla.
Þýðandi Gunnar Þorsteins-
son.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Poppkorn.
Umsjón: Guðmundur Bjarni
Harðarson og Ragnar Hall-
dórsson. Samsetning: Jón
Egill Bergþórsson.
20.00 Fréttir og veöur.
20.35 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Bergerac.
Breskur sakamálamynda-
flokkur f tiu þáttum. Fyrsti
þáttur í nýrri syrpu um Ber-
gerac rannsóknarlögreglu-
mann á Ermarsundseyjum.
Þýðandi Trausti Júlíusson.
21.35 Miönesheiði — saga
herstöðvar í herlausu landi.
Frumsýnd ný íslensk kvik-
mynd um varnarliðið á
Keflavikurflugvelli, hlutverk
þess og áhrif á íslenskt
þjóðfélag, og afstööu fs-
lendinga, Bandaríkjamanna
og Sovétmanna til herstöðv-
arinnar á Miðnesheiði.
Handrit og stjórn: Sigurður
Snæberg Jónsson.
23.05 Her í herlausu landi —
hver eru áhrifin?
Umræöuþáttur. Stjórnandi:
Ingimar Ingimarsson.
23.35 Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
23. júní
§ 16.45 Sveitastúlkan með
gullhjartað (Country Gold).
Bandarísk sjónvarpsmynd
frá 1982 með Loni Ander-
son, • Cooper Huckabee,
Earl Holiman og Linda Ham-
ilton í aðalhlutverkum.
Léikstjóri er Gilbert Cates.
Myndin lýsir vináttu vinsæll-
ar söngkonu og upprenn-
andi stjörnu í sveitatónlist-
inni. Ekki er þó allt sem
sýnist því hin unga söng-
kona vílar ekki fyrir sér að
nota allt og alla á frama-
brautinni.
18.20 Knattspyrna — SL-
mótið — 1. deild. Umsjón:
Heimir Karlsson.
19.30 Fréttlr.
20.00 Miklabraut (Highway
To Heaven).
Bandarískur framhaldsþátt-
ur með Michael Landon og
Victor French í aðalhlutverk-
um.
Enn sem fyrr er engillinn
Jonathan Smith á faralds-
fæti til hjálpar þeim sem á
vegi hans verða.
§ 20.50 Laus úr viðjum (Lett-
ing Go).
Bandarísk sjónvarpsmynd
byggð á bók dr. Zev Wand-
erer. Myndin fjallar um
ástvinamissi, skilnað og
sársauka þann og erfiðleika
sem fylgja í kjölfarið.
Alex Schuster (John Ritter)
býr með 10 ára syni sínum
en á erfitt með að fóta sig
f lífinu eftir að kona hans
fórst i flugslysi. ( öðrum
enda bæjarins býr Kate
(Sharon Gless) en hún er í
þann mund að skilja eftir
fimm ára sambúð. Þau hitt-
ast þegar þau reyna bæði
að leita sér hjálpar og rugla
saman reitum. Með helstu
hlutverk fara Sharon Gless
(Cagney og Lacey), John
Ritter og Max Gail. Leik-
stjóri er Jack Bander.
§ 22.20 Brottvikningin (Dis-
missal).
Sjötti og síöasti þáttur ástr-
alsks framhaldsmynda-
flokks um brottrekstur Whit
Whitlams, forsætisráðherra
Ástralíu, úr embætti og
mesta stjórnmálahneyksli i
sögu Ástralíu. Aðalhlutverk:
Max Phipps, John Stanton
og John Meillon.
§ 23.10 Lúxuslíf (Lifestyles Of
The Rich And Famous).
Litið inn til hinna ríku og
frægu í Hollywood. í þess-
um þætti er m.a. komið við
hjá Hugh Hefner, Dorothy
Hamill og Gordon Mclen-
don.
§ 00.00 Réttlætanlegt morð?
(Right to Kill).
Bandarísk kvikmynd frá
1985 með Frederic Forrest,
Chris Collet, Karmin Murc-
elo og Justine Bateman í
aðalhlutverkum. Leikstjóri
er John Erman.
Þ. 16. nóvember 1982
ákvað hinn sextán ára gamli
Richard Jahnke að láta til
skara skrfða og drepa föður
sinn. Hann fékk sautján ára
gamla systur sina til liös við
sig og aö móður þeirra við-
staddri skaut Richard föður
sinn til bana. Myndin er
byggð á sannsögulegum
atburðum og veltir upp
þeirri spurningu hvort morð
geti verið réttlætanlegt.
Myndin er stranglega
bönnuA bömum.
01.30 Dagskrárlok.
björn Sveinbjörnsson. Rut
Ingólfsdóttir, Páll Gröndal
og Guðrún Kristinsdóttir
leika á fiölu, selló og píanó.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
Umsjón. Þórarinn Stefáns-
son. (Endurtekinn þáttur frá
morgni.)
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengd-
um rásum til morguns.
^1
ÞRIÐJUDAGUR
23. júní
00.10 Næturvakt útvarpsins,
Gunnlaugur Sigfússon
stendur vaktina til morguns.
6.00 I bítið. — Rósa G. Þórs-
dóttir.
Fréttir á ensku'sagöar kl.
8.30.
9.06 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Skúla Helgasonar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón:
Leifur Hauksson, Guðrún
Gunnarsdóttir og Gunnar
Svanbergsson.
16.05 Hringiðan. Umsjón:
Broddi Broddason og Erla
B. Skúladóttir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Á grænu Ijósi. Umsjón:
Kristján Sigurjónsson.
22.05 Háttalag. Umsjón:
Gunnar Salvarsson.
00.10 i 'æturvakt útvarpsins.
Gunnlaugur Sigfússon
stendur vaktina til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.03-19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Umsjón: Tómas Gunnars-
son.
g§3
ÞRIÐJUDAGUR
23. júní
07.00—09.00 Pétur Steinn og
morgunbylgjan. Pétur kem-
ur okkur réttu megin framúr
með tilheyrandi tónlist og
lítur yfir blöðin.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og
9.00.
09.00—12.00 Valdís Gunnars-
dóttir á léttum nótum.
Sumarpopp allsráöandi, af-
mæliskveöjur og spjall til
hádegis. Litiö inn hjá fjöl-
skyldunni á Brávallagötu
92. Fréttir kl. 10.00 og
11.00.
12.00—12.10 Fréttir.
12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Þor-
steinn spjallar við fólkið sem
ekki er í fréttum og leikur
létta hádegistónlist. Fréttir
kl. 13.00.
14.00—17.00 Ásgeir Tómas-
son og sfödegispoppiö.
Gömlu uppáhaldslögin og
vinsældalistapopp f réttum
hlutföllum.
Fréttir kl. 14.00, 15.00,
16.00.
17.00-19.00 I Reykjavík
síödegis. Leikin tónlist, litiö
yfir fréttirnar og spjallað við
fólkiö sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 17.00.
18.00-18.10 Fréttir.
19.00—21.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaöi
Bylgjunnar. Flóamarkaður
og tónlist. Fréttir kl. 19.00.
21.00—24.00 Sumarkvöld á
Bylgjunni með Þorstaini Ás-
geirssyni.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar — Bjarni Ólafur
Guðmundsson. Tónlist og
jjpplýsingar um veður og
flugsamgöngur.
ÞRIÐJUDAGUR
23. júní
7.00— 9.00 Inger Anna Aik-
man. Morgunstund gefur
gull f mund og Ingerervökn-
uð fyrir allar aldir með
þægilega tónlist, létt spjall,
og viðmælendur koma og
fara, semsagt, þægilegt að
vakna við.
Stjörnufréttir kl. 8.30. Fréttir
einnig á hálfa tímanum.
9.00—12.00Gunnlaugur
Helgason. Jæja .. . Helga-
son mætturlll Það er öruggt
að góð tónlist er aðalsmerki
Gulla Helga. Strákurinn fer
með gamanmál, gluggar í'
stjörnufræðin og bregður á
leik með hlustendum í hin-
um ýmsu get-leikjum,
síminn er 681900.
Stjörnufréttir kl. 11.55.
Fréttir einnig á hálfa tíman-
um.
12.00—13.00 Pia Hansson.
Hádegisútvarpið er hafið.
Pia athugar hvað er að ger-
ast á hlustunarsvæði Stjörn-
unnar, umferðarmál,
sýningar og uppákomur.
Góðar upplýsingar í hádeg-
inu.
13.00—18.00 Helgi Rúnar
Óskarsson. Lagalistinn er
fjölbreyttur á þessum bæ.
Gamalt og gott leikiö af fing-
rum fram, með hæfilegri
blöndu af nýrri tónlist. Helgi
fylgist vel með því sem er
að gerast.
16.00—19.00 Bjarni Dagur
Jónsson. Ykkar einlægur.
Þessi hressi sveinn fer á
kostum með kántritónlist og
aðra þægilega tónlist, (þeg-
ar þið eruð á leiöinni heim).
Spjall við hlustendur er hans
fag og verölaunagetraun er
á sínum stað. Síminn er
681900.
Stjörnufréttir kl. 17.30.
19.00—20.00 The Shadows,
Fats Domino, Buddy Holly,
Brenda Lee, Little Eva,
Connie Francis, Sam
Cooke, Neil Sedaka, Paul
Anka. Ókynntur klukkutími
með þvi besta, sannkallaöur
Stjörnutími.
20.00—21.00 Helgi Rúnar
Óskarsson. Stjörnuspil,
Helgi lítur yfir spánnýjan vin-
sældalista frá Bretlandi og
leikur lög af honum.
21.00—23.00 Árni Magnús-
son. Hvergi slakaö á. Árni
hefur valiö allt þaö besta til
að spila á þessum tfma,
enda dagur að kveldi kom-
inn.
Stjörnufréttir kl. 23.00.
23.00—00.00 (slenskir tónlist-
armenn. Hinir ýmsu tónlist-
armenn (og konur) leika
lausum hala í einn tfma með
uppáhalds plöturnar sínar.
í kvöld: Guömundur Rúnar
Júlfusson.
00.00—00.16 Spennusaga
fyrir svefninn. Jóhann Sig-
urðarson leikari les eina
spennusögu.
00.15— 7.00 Gfsli Sveinn
Loftsson (Áslákur). Stjörnu-
vaktin hafin ... Ljúf tónlist,
hröð tónlist, sem sagt tón-
líst fyrir alla.