Morgunblaðið - 23.06.1987, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987
Noregur:
Olíuauðlindir undir
botni Barentshafs?
Reuter
Tveir íbúar þorpsins Pinarcik við lík eins þeirra sem féllu i árás
skæruliða kúrda á laugardag.
Kúrdar myrða 30 manns í Tyrklandi:
Ósl6, Reuter.
SAMKVÆMT norskum iðntíð-
indum, sem út komu í gær, hafa
Norðmenn fundið vott af olíu
undir hafsbotni Barentshafs, en
hagnýting hennar kann að reyn-
ast erfið, ekki síst vegna gífur-
legrar umsvifa sovéska flotans.
Að sögn jarðfræðinga, kann hér
að ræða um síðasta stóra oliu-
svæði heims, sem enn er óupp-
götvað.
Það var Saga Petroleum, stærsta
olíufyrirtæki Noregs í einkaeigu,
sem skýrði frá því að snefíll af neð-
ansjávarolíu hefði fundist á svæð-
inu.
Hvort olía leynist á svæðinu eður
ei er enn ekki á hreinu og verður
ef til vill ekki ljóst fyrr en í septem-
ber, að því er Kirsten Mork,
talsmaður Saga Petroleum, hermdi
í gær.
Aðalvandamál olíuborana á
svæðinu kunna að vera kafbáta-
ferðir sovéska flotans til og frá
Murmansk á Kola-skaga, en um
Ráðamenn heita hefnd-
um fvrir ódæðisverkið
Ankara, Reuter.
Ankara,
SKÆRULIÐAR aðskilnaðar-
hreyfingar kúrda í Tyrklandi
myrtu 30 óbreytta borgara
síðdegis á laugardag. Tyrkneskir
ráðamenn hafa heitið að ná fram
hefndum en þeir telja að ódæðið
megi að hluta rekja til nýlegrar
samþykktar Evrópuþingsins í
Strasbourg þar sem , að þeirra
sögn, er tekið undir málflutning
kúrda.
Skæruliðar myrtu 30 íbúa þorps-
ins Pinarcik sem er í suðausturhluta
Tyrklands og er þetta hroðalegasta
óhæfuverk þeirra um margra ára
skeið. Skæruliðamir sóttu inn í
þorpið, hófu vélbyssuskothríð og
vörpuðu eldsprengjum. 16 böm á
aldrinum þriggja til fjórtán ára féllu
í árásinni og einungis níu þorpsbúar
sluppu ósárir. 16 fjölskyldur bjuggu
í þorpinu og skildu skæruliðar við
flest húsin í ljósum logum. Frétta-
stofan Hurriyet sagði skæruliðana
hafa verið 60 talsins og hefðu þeir
komið inn í landið frá Sýrlandi.
Skæruliðar kúrda hafa lengi barist
fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis og
hófu þeir vopnaða baráttu að nýju
í ágústmánuði árið 1984. Að und-
anfömu hafa þeir einkum látið til
skarar skríða gegn íbúum smáþorpa
til að hræða almenning til fylgis
við málstað þeirra. Ekki færri en
250 óbreyttir borgarar hafa fallið
í árásum þeirra og um 150 öryggis-
lögreglumenn.
Kenan Evren Tyrklandsforseti
sagði í gær að ódæðisins yrði hefnt.
Turgur Ozal forsætisráðherra sagði
að atburð þennan mætti að hluta
til rekja til ályktunar Evrópuþings-
ins frá því í síðustu viku um
skipulegt þjóðarmorð á Armenum
í síðari heimsstyijöldinni þar sem
jafnframt er fjallað um sjálfstæðis-
baráttu kúrda. Evren forseti og
fleiri stjómmálamenn tóku í sama
streng.
Hermenn hófu þegar ’.eit að ód-
æðismönnunum í námunda við
landamæri Tjrrklands og Sýrlands.
Ozal forsætisráðherra vildi ekki láta
uppi hvort þeirra yrði leitað innan
landamæra Sýrlands. í febrúar-
mánuði voru skæruliðar eltir uppi
innan landamæra íraks með sam-
þykki stjómvalda þar.
Hluti þingmanna á þingi EB:
Viðurkenning þjóðar-
morðs nauðsynleg
Barentshaf liggur gífurlegur
straumur sovéskra kafbáta og ann-
arra herskipa. Noregur og Sovétrík-
in hafa í 15 ár reynt að semja án
árangurs um „gráa svæðið" svokall-
aða, en það er víðfeðmt svæði á
landhelgismörkum ríkjanna.
Norskir embættismenn vona þó
að olíufundur verði frekar til þess
að greiða úr deilumálum ríkjanna
en hitt. Finn Sollie, fyrrverandi
stjómarerindreki Noregs og sér-
fræðingur í þeim málum sem lúta
að Barentshafí, sagði að mikill olíu-
fundur gæti reynst heppilegur í
þessu samhengi. „í fyrsta lagi er
olíuborpallurinn, sem mestar vonir
em bundnar við, töluvert vestan við
„gráa svæðið". Gerist eittþvað þar
leiða menn a.m.k. hugann frá hinu
málinu á meðan. I öðru lagi myndi
olíufundur á Barentshafi gefa Norð-
mönnum tækifæri til þess að koma
sínum málum þar á hreint, sérstak-
lega með tilliti til auðlindanýtingar
á hafsbotni.
Talið er að aðmírálar Rauða flot-
ans verði ekki par hrifnir af auknum
umsvifum Norðmanna á svæðinu
vegna hemaðarmikilvægis Barents-
hafs. Hemaðarsérfræðingar á
Vesturlöndum hafa látið þá skoðun
í ljós að slíti menn sundur friðinn
í Evrópu kunni úrslit þess ófriðar
að ráðast í og á Barentshafí.
Glöggir fréttalesendur minnast
þess ef til vill að norskt flutninga-
skip átti kyndug samskipti við
sovéskan kafbát fyrir helgi. Skaut
kafbátnum skyndilega úr kafí við
hlið flutningaskipsins oggáfu Norð-
mennimir matrósunum vestræn
klámblöð í von um að verða launað-
ur greiðinn með vodka. Úr því
rættist þó ekki, en téð flutninga-
skip var einmitt á leið til borpalls
Saga Petroleum.
Strasbourg, Ankara. Reuter.
ÞING Evrópubandalagsins
(EB) samþykkti sl. fimmtudag
að setja ætti Tyrkjum það skil-
yrði fyrir aðild þeirra að EB að
þeir viðurkenndu að árið 1915
hefðu tyrknesk stjómvöld fra-
mið þjóðarmorð á Armenum.
Frá lokum fyrri heimsstyijaldar
hefur hver ríkisstjómin á fætur
annarri í Tyrklandi, neitað ásökun-
um í þessa átt. Í samþykkt þingsins
SUMARLEGTÁ
STÖDVUM ESSO
Nú er hægt að Ijúka undirbúningi
ferðarinnar í rólegheitum á bensínstöðvum
Esso. Þar finnst margt nauðsynlegt í
sumarfríið: íþróttaskór, trimmgallar, stígvél eða
regngallar handa krökkunum, veiðistöng
handa mömmu, grill handa pabba
og ... bensín á bílinn.
Líttu inn í leiðinni,
það er margt girnilegt i hillunum
hjá Esso!
Góða ferð!
Iþróttaskór
Trimmgallar
(peysa, bolur, buxur)
Stígvél
Regngallar
frá 350 kr.
frá 1190 kr.
frá
frá
580 kr.
944 kr.
□
Olíufélagiðhf
FRA JAPAN'
Erum með á lager flestar stærðir af kúlulegum
frá japanska fyrirtækinu Nachi.
Höfum einnig hjóla- og kúplingslegur í margar
gerðir japanskra bíla.
Mjög hagstætt verð.
jítruiMMj1
HOFÐABAKKA 9 REYKJAVlK
SlMI 685656 og 84530
á fimmtudag var einnig vikið að
meðferð Tyrkja á Kúrdum, en tekið
var skýrt fram að núverandi stjóm
bæri enga ábyrð á morðunum 1915.
518 þingmenn eiga sæti á þingi
EB og greiddi aðeins hluti þeirra
atkvæði um tillöguna sem var mjög
umdeild. Umræður höfðu staðið alla
vikuna um það hvort þingið væri
rétti vettvangurinn fyrir slíka sam-
þykkt og voru flestir þingmennimir
þeirrar skoðunar að svo væri ekki.
Atkvæði féllu þannig að 68 sam-
þykktu tillöguna um þetta skilyrði,
60 voru á móti og 42 sátu hjá.
Aðrir þingmenn mættu ekki á þing-
fundinn í mótmælaskyni.
Tyrkir sóttu um aðild að EB í
aprílmánuði á þessu ári. Grikkir
hafa lagst á móti því að aðildin
verði samþykkt og nokkrar aðrar
þjóðir telja að ekki sé tímabært að
veita þeim inngöngu. Mannfjöldi er
gagnrýndi Tyrki fyrir meðferð
þeirra á Armenum, safnaðist saman
við þinghúsið í Strasbourg dagana
sem tillagan var rædd og einnig
þegar atkvæði vom greidd.
Turgut Ozal, forsætisráðherra
Tyrklands, brást reiður við er hann
frétti af atkvæðagreiðslunni og
sagði í ræðu er hann hélt á föstu-
dag að niðurstaða hennar væri
mistúlkun á sögunni og gæti orðið
til þess að gefa hryðjuverkamönn-
um byr undir báða vængi. Ef til
þess kæmi væri við Evrópubanda-
lagið að sakast. Sagði hann að
öfgasinnar á þinginu hefðu stutt
tillöguna s.s. kommúnistar, Græn-
ingjar og sósíalistar og myndi þessi
samþykkt ekki hafa nein raun-
veruleg áhrif á aðildarumsókn
Tyrkja að EB.
ERLENT
Arabaríkin
vantar kjam-
orkusprengju
- segir Gaddafi Líbýuleiðtogi
London, Reuter.
MUAMMAR Gaddafi, leiðtogi
Líbýu, telur að ríki Araba sár-
vanti kjarnorkusprengju sem
geti tryggt þeim virðingu ann-
arra þjóða. Gaddafi lét þessi orð
falla á sunnudagskvöld er hann
ávarpaði háskólanema í Libýu.
Gaddafí sagði kjamorkusprengj-
una vera nauðsynlegt vamarvopn,
sem ríki Araba yrðu reiðubúin að
nota væri sjálfstæði þeirra ógnað.
Sagði hann að fátækt ríki sem Kína
nyti virðingar annarra þjóða vegna
þess að það réði yfír slíkum vopnum
og gæti því svarað hótunum og
ógnunum. Kvaðst hann telja að
Arabaríkin ættu að taka Kínveija
sér til fyrirmyndar til að treysta
stöðu sína. Gaddafi bættyi við að
Arabar myndu vera reiðubúnir til
að beita vopninu yrði þeim hótað
árás hvort heldur með hefðbundn-
um herafla eða kjamorkuvopnum.
Fréttir herma að sendimenn frá
Líbýu, Sýrlandi og íran hafí komið
saman í Damascus, höfuðborg Sýr-
lands, árið 1985 og rætt nauðsyn
þess að ríkin eignuðust kjamorku-
sprengju sem beita mætti í átökum
við ísraela. Dagblaðið ash-Sharq,
sem gefið er út í Beirút en er hlið-
hollt Irönum sagði þá að ríkin þijú
héfðu bæði fjármagn og nauðsynleg
pólitfsk sambönd til að komast yfír
þess háttar vopn.