Morgunblaðið - 23.06.1987, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987
Kongsberg-vopnaverksmiðjan í Noregi:
Umsvif lögreglurann-
sóknar vegna Sovét-
viðskipta aukin
Ósló. Fr& Jan Erík Laure, fréttarítara Morgunblaðsina.
NORSKA lögreglan hefur nú
aukið umfang rannsóknarinnar
á meintum brotum hinnar ríkis-
reknu Kongsbergvopnaverk-
smiðju á „Cocom-sáttmáIanum“.
Lögreglan álítur, að verksmiðjan
hafi selt „ólöglegan“ útbúnað til
Sovétríkjanna.
Áður hafði verið upplýst, að
Kongsbergvopnaverksmiðjan’ seldi,
ásamt japanska fyrirtækinu Tos-
hiba, tölvubúnað til Sovétríkjanrja.
Var búnaðurinn notaður til að draga
úr hávaða frá skrúfum sovéskra
kafbáta, en það hefur í for með
sér, að gangur þeirra er miklu
hljóðlátari og erfíðara er fyrir
NATO að fylgjast með ferðum skip-
anna.
Vitað er, að norska lögreglan er
nú að kanna, hvort verið geti, að
fleiri af ákvæðum Cocom-sáttmál-
ans hafí verið brotin. Talið er
mögulegt, að Sovétmönnum hafí
einnig verið seldur „ólöglegur" bún-
aður til nota í kjarnorkuverum og
hafí það verið gert í samvinnu við
þýsk og ítölsk fyrirtæki.
Sala verksmiðjunnar á hátækni-
búnaði til Sovétríkjanna hefur
valdið miklu fjaðrafoki í Banda-
ríkjunum. Nokkrir fulltrúadeildar-
þingmenn hafa krafíst þess, að
opinber rannsókn fari fram og refsi-
aðgerðum verði beitt gegn Noregi,
auk þess sem rift verði stórum
samningi bandaríska hersins við
verksmiðjuna.
Gro Harlem Brundtland hefur
skrifað Ronald Reagan Bandaríkja-
forseta bréf og harmað fyrmefnd
viðskipti og heitið að gera allt, sem
unnt er, til að koma í veg fyrir, að
þau geti endurtekið sig.
Ákveðið hefur verið, að Thorvald
Stoltenberg utanríkisráðherra og
Johan Jörgen Holst vamarmálaráð-
herra fari til Bandaríkjanna í því
skyni að reyna að blíðka bandaríska
stjómmálamenn.
\y0
J
-X iL jÉÉiir v *
rtf " v<*| k0.
'
mví/'; Z ///, , '■
Reuter
Flugsýning í París
Undanfarna daga stendur yfir
hin árvissa flugsýning í París,
en henni lýkur í dag. Þar sýna
allir flugvélaframleiðendur, Sem
V estur-Þýskaland:
Kohl neitar að framselja flug-
ræningja til Bandaríkjanna
— vill vernda gísla í Líbanon
Bonn, Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, mun ekki framselja
Líbana, sem grunaður er um
flugrán, til Bandaríkjanna þrátt
fyrir þrýsting frá Bandaríkja-
þingi. Kanslarinn óttast að stefna
þýskum gislum í Líbanon í hættu
verði Líbaninn framseldur, að
sögn heimildarmanna innan
stjórnarinnar i Bonn.
Heimildarmennimir sögðu að
Kohl hefði tekið þessa ákvörðun
eftir að hafa ráðfært sig við inn-
anríkisráðherrann, Friedrich
Zimmermann, og dómsmálaráð-
herrann, Hans Engelhard. Búist var
við að Engelhard myndi greina
dómsmálaráðherra Bandaríkjanna,
Edwin Meese, frá því í dag að
Mohammed Ali Hamadei, en svo
heitir Líbaninn, yrði leiddur fyrir
rétt í Frankfurt, sakaður um morð,
flugrán og að hafa haft sprengiefni
undir höndum.
Hamadei var handtekinn á flug-
vellinum í Frankfurt í janúar,
sakaður um að eiga sprengiefni.
Hann er grunaður um að hafa tek-
, ið þátt í ráninu á þotu TWA-flugfé-
lagsins árið 1985 og morði eins
farþeganna, bandarísks sjóliða.
Nokkrum dögum eftir handtöku
Hamadeis var tveimur Vestur-
Þjóðveijum, þeim Rudolf Cordes og
Alfred Schmidt, rænt í Beirút. Tal-
ið er að hópur öfgasinnaðra síta,
Hizbollah-hreyfingin, sem vinveitt
er írönum, hafi rænt mönnunum.
manns veijanda Hamadeis munu
réttarhöldin heijast á þessu ári.
eitthvað að kveður, helstu nýj-
ungar á flugsviðinu og öðru því
tengt. Þar var meðal annars sýnd
hin nýja franska herþota, Rapha-
el, en í fyrradag tilkynnti
Jacques Chirac, forsætisráð-
' herra Frakklands, að bæði
franski flotinn og flugherinn
myndu taka vélina í notkun árið
1996. Að undanförnu hefur mik-
ið verið deilt um hvort ráðist
verður í smíði vélarinnar, þar
sem sýnt er að hún verður feyki-
dýr i framleiðslu og mun auð-
veldara að kaupa sambærilegar
eða betri vélar annars staðar
frá. Segja menn að hér hafi því
þjóðarstolt ráðið meiru lieklur
en ráðdeild. Á hinni myndinni
má sjá Concorde-þotu koma til
lendingar i fylgd franskrar list-
flugsveitar.
Breski Verkamannaflokkurinn::
Vinstriarmurinn
styrkir stöðu sína
Kanada:
Jarðfræðingar finna
neðansjávargíg
Toronto, Reuter.
KANADÍSKIR vísindamenn
hafa uppgötvað stóran gig á
sjávarbotninum austur af Nova
Scotia. Talið er að gigurinn sé
eftir loftstein, sem fallið hafi
fyrir meira en fimmtíu milljón-
um ára. Vísindamennirnir telja
að hér sé jafnvel komin skýr-
ingin á ævilokum risaeðlanna.
Lubomir Jansa, foringi jarð-
fræðinganna, sem vinna að
rannsóknum á gígnum, segir að
þessi uppgötvun geti verið „mjög
mikilvæg" við ákvörðun þess hvað
það var, sem orsakaði útrýmingu
risaeðla og forsögulegs sjávarlífs.
„Við þekkjum svæðið og aldur
gígsins, og nú getum við farið að
rannsaka nánar hvaða skemmd-
um á lífríkinu þessi árekstur olli,“
sagði Jansa.
Sumir vísindamenn hafa sett
fram þá kenningu að risaeðlur og
fleiri forsögulegar lífverur hafí
horfíð af sjónarsviðinu fyrir um
það bil 65 milljónum ára vegna
loftslagsbreytinga, sem orsakast
hafi af hrapi hluts utan úr geim-
numn á Jörðina. Kenningar þeirra
gera ráð fyrir því að aðskotahlut-
urinn hljóti að hafa lent í vatni,
því að enginn af hér um bil eitt-
hundrað gígum, sem þekktir eru
á þurrlendi, sé frá þessu tímabili.
Að sögn Jansa gefíir þessi fyrsti
fundur neðansjávargígs eftir loft-
stein vísindamönnum tækifæri til
þess annað hvort að staðfesta eða
hrekja þessar kenningar.
Neðansjávargígurinn er um 48
kflómetrar í þvermál og þrír kfló-
metrar á dýpt. Hann er á land-
grunninu suðaustur af Nova
Scotia á 120 metra dýpi. Hópur-
inn, sem vinnur að rannsókn,
gígsins telur að loftsteinninn, sem
myndaði hann, hafí verið tveir til
íjórir kflómetrar í þvermál.
Áreksturinn hefur sennilega vald-
ið gífurlegri flóðbylgju og skýja-
þykkni yfír allri Norður-Amerflcu
um tveggja ára skeið, að sögn
Jansa.
Áætlað er að frekari rannsókn-
ir á gígnum muni taka þijú til
flögur ár. „Við erum mjög stutt
komnir," sagði Jansa.
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
í kosningunum nýlega fjölgaði
þingmönnum í vinstriarmi þing-
I síðustu viku samþykkti öld-
ungadeild Bandaríkjaþings að
hvetja Vestur-Þjóðveija til að fram-
selja Hamadei, og sagði samninga-
viðræður við mannræningja ekki
koma til greina. Öldungadeildar-
þingmaður repúblikana, Alfonse
D’Amato, varaði við því að ef Þjóð-
veijar neituðu framsalinu myndi
það skaða samskipti ríkjanna.
Verði Hamadei sekur fundinn í
Frankfurt á hann lífstíðardóm yfír
höfði sér. í Bandaríkjunum hlyti
hann sennilega dauðadóm. Reagan
Bandaríkjaforseti sagði eftir samtal
þeirra Kohls í Feneyjum fyrir
nokkrum dögum, að honum væri
sama hvar Hamadei yrði dæmdur,
svo fremi að hann yrði ákærður
fyrir morð. Faðir sjóliðans, sem
myrtur var í flugráninu, segist hins
vegar óttast að réttarhöldin verði
látalæti ein og að Hamadei verði
sleppt eftir fáein ár. Að sögn eigin-
flokks Verkamannaflokksins.
Allar likur eru nú á, að tveir
aðalhópar vinstrisinnaðra þing-
manna vinni saman að kosningu
í_ skuggaráðuneyti flokksins.
Áhrif miðjumanna í skuggaráðu-
neytinu munu því fara dvinandi.
Vinstriarmurinn í nýjum þing-
flokki Verkamannaflokksins er í
meirihluta. Þingflokkurinn skiptist
í þrennt í hægrisinnaða og miðju-
menn, í Tribune-hópinn, sem
samanstendur af vinstrimönnum og
miðjumönnum, og Camtaign-hóp-
inn, sem er yst til vinstri. I fyrsta
skipti er útlit fyrir, að Tribune-
hópurinn og Camtaign-hópurinn
muni vinna saman að kjöri í
skuggaráðuneytið. Úlfúðin á milli
þessara vinstrihópa hefur venjulega
komið í veg fyrir samvinnu þeirra.
Hægri hópurinn hefur verið miklu
betur skipulagður og því átt mun
fleiri fulltrúa í skuggaráðuneytinu
en vinstriarmur þingflokksins.
Ef af þessari samvinnu verður,
gæti hún valdið Denis Healey og
Peter Shore, sem hafa verið í for-
ystu fyrir hægriarmi flokksins,
vandræðum. Healey hefur enn ekki
ákveðið, hvort hann gefur kost á
sér í skuggaráðuneytið, en Shore
hefur lýst yfír vilja sínum til að sitja
áfram. Vitað er, að Kinnock vill
gera miklar breytingar á skugga-
ráðuneytinu og yngja upp aðstoðar-
menn sína. Vinstriarmur flokksins
gæti komið í veg fyrir, að hann
byggði skuggaráðuneytið upp að
sinni vild, en talið er líka, að hann
sé þess fysandi, að Healey og Shore
dragi sig í hlé. Kinnock hefur gefíð
til kynna, að Bryan Gould, sem
stjómaði kosningabaráttu flokksins
nú, og John Smith, skoskur þing-
maður, sem situr nú í skuggaráðu-
neytinu, hljóti mestan frama í
þessum breytingum.
Bretland:
50 kíló af kókaíni gerð upptæk
Lundúnum, Reuter.
Á SUNNUDAG gerðu breskir
tollverðir upptæk 50 kUógrömm
af kókaíni að verðmæti um 580
miUjónir króna. Þetta er mesta
magn kókains, sem náðst hefur
í einu í Bretlandi.
Talsmaður tollgæslunnar sagði
að nokkrir menn hefðu verið hand-
teknir í áhlaupi á hús í Harley-
stræti í Lundúnum. I húsinu em
lúxusíbúðir, sem leigðar em útlend-
ingum. Talsmaðurinn skýrði ekki
nánar frá málsatvikum.
Á síðasta ári vom gerð upptæk
f Bretlandi 94 kfló af kókaíni. í
febrúar náði tollgæslan fjömtíu og
þremur kflóum af kókaíni í Essex,
norðaustur af Lundúnum. Menn
hafa nú miklar áhyggjur af aukinni
kókaínneyslu meðal ungs efnafólks,
sem græðir stórfé á verðbréfamörk-
uðum Lundúna.
David Mellor innanríkisráðherra
sagði fyrr á árinu að fleiri tollverð-
ir yrðu ráðnir til starfa til að hafa
hemil á kókaínsmygli til Bretlands.