Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakiö.
Frjálst fiskverð
°g uppboðsmarkaðir
Uppboðsmarkaður á físki
hefur ekki verið til á ís-
landi, fyrr en hann var opnaður
í Hafnarfírði í síðustu viku. í
þessari viku hefst markaðssala
á físki í Reykjavíkurhöfn. Bæjar-
félög annars staðar á landinu
eru að búa sig undir að verða
með í þessari byltingu. Umræður
hafa öðru hverju orðið um nauð-
syn fískmarkaðs. í kringum
1960 sendu þeir Elías Ingi-
marsson og Einar Bergmann,
sem þá störfuðu hjá Sænska
frystihúsinu, til dæmis Pétri
Benediktssyni, bankastjóra
Landsbankans, greinargerð með
tillögum um fískmarkað í
Reykjavíkurhöfn. Ekkert varð
úr því þá, að skrefíð yrði stigið.
Forsenda þess hefur ávallt verið,
að sjómenn, útgerðarmenn, físk-
salar og fískverkendur tælgu
höndum saman og kysu að varpa
frá sér og ríkinu ákvörðunum
um fískverð og leyfðu markaðn-
um að ráða því.
íslenskir útgerðarmenn og
sjómenn eru ekki ókunnugir upp-
boðsmarkaði á físki. Þeir hafa
selt á honum til helstu kaupenda
á ferskum físki erlendis, í Bret-
landi og Þýskalandi. Vaxandi
útflutningur á þessa markaði
ýtti undir ákvörðunina um
íslenska uppboðsmarkaði. Öllum
var ljóst, að sú aðferð að þrátta
um fískverð við fundarborð hér
og treysta á úrslitavald fulltrúa
ríkisins, ef í nauðir rak, olli því,
að innlendir aðilar gátu ekki
keppt við hina erlendu kaupend-
ur.
Hinn 10. júní síðastliðinn varð
um það samkomulag í verðlags-
ráði sjávarútvegsins að . gefa
almennt fískverð frjálst til 30.
september næstkomandi. Sum-
armánuðina á sem sé að nota
til reynslu og til að kynnast því,
hvemig samskipti sjómanna, út-
gerðarmanna og fískverkenda
þróast við markaðsaðstæður.
„Þetta er spuming um framboð
og eftirspum og eftir því verða
sjómenn og útvegsmenn að haga
sér,“ sagði Óskar Vigfússon,
formaður Sjómannasambands
íslands, í Morgunblaðssamtali
daginn eftir að fískverð var gef-
ið frjálst. Friðrik Pálsson, for-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna, taldi, að nokkuð langur
tími þyrfti að líða áður en menn
hefðu áttað sig á til hvers frels-
ið leiddi.
Eftir fyrsta markaðsdaginn í
Hafnarfírði létu menn vel yfír
verðinu, sem þar fékkst. Töldu
það sambærilegt við það, sem
fengist á mörkuðum erlendis.
Síðan hafa fréttir af breyttum
starfsháttum verið að berast.
Grandi hf. í Reykjavík hefur
ákveðið að taka framvegis þijár
físktegundir til vinnslu, karfa,
ufsa og þorsk, og greiða hæsta
verð fyrir þann físk sem gefur
mestan arð. Aðrar físktegundir
verða settar á markað og seldar
þeim, sem býður hæst.
Forráðamenn fískvinnslu-
stöðva á landsbyggðinni kanna
nú, hvemig þeir eigi að bregðast
við nýjum aðstæðum. Af sam-
tölum við þá, sem skýrt var frá
hér í blaðinu á laugardag, má
ráða, að nokkur óvissa ríki um
viðbrögð á ýmsum mikilvægum
útgerðarstöðum. Hannes Hall-
dórsson hjá Norðurtanganum á
ísafírði sagði að fyrst um sinn
myndi fyrirtækið miða við
síðustu skrá verðlagsráðs og
hann bætti við: „Það er út í blá-
inn að spá um framhaldið. Þessi
ráðstöfun verðlagsráðs var á
engan hátt undirbúin og ég sé
ekki annað en vandanum hafí
verið velt til ijölmargra lítilla
verðlagsráða."
Eins og sést af ummælum
þeirra gjörkunnugu manna, sem
vitnað hefur verið til hér að of-
an, veit í raun enginn með
nokkurri vissu, hver framvindan
verður nú þegar fíksverð hefur
verið gefíð frjálst og sala á inn-
lendum fískmörkuðum er hafín.
Ef til vill verður sú raunin, að
skip noti markaðina aðeins endr-
um og eins en fyrir tilstilli þeirra
myndist verð, sem notað verður
til viðmiðunar. Verði þessi raun-
in er hætta á því, að markaðs-
starfsemi takmarkist við þá staði
þar sem unnt er að stunda hana
með minnstum tilkostnaði. Stop-
ul uppboð standa ekki undir
kostnaði við dýra markaðsað-
stöðu. Hitt kann einnig að
gerast, að áhuginn á markaðs-
sölu verði almennur og mikill og
ný skipán verði tekin upp í sam-
skiptum seljenda og kaupenda á
físki. Hefði það fljótt áhrif á
meðferð á físki, gæðakröfur og
sjósókn.
Morgunblaðið telur, að með
því að gefa fískverð frjálst og
stofna uppboðsmarkaði á físki
hafí verið stigið rétt og tíma-
bært skref. Vonandi á tíminn
eftir að leiða í ljós, að svo sé í
reynd. Umþóttunartíminn verður
eríður fyrir marga og sumum
fínnst reynslutíminn til 30. sept-
ember svo stuttur, að þeir geti
komist af með að halda í gamla
horfínu í von um að opinberar
verðákvarðanir verði aftur inn-
leiddar. Ekki síst þess vegna er
brýnt að svo fljótt sem verða
má sé gefín vísbending um fram-
haldið.
í átt til raunveru-
legrar afvopnunar
eftir Caspar
Weinberger
Ákvörðun Sovétríkjanna um að falla
fá þeirri kröfu sinni að ekki yrði rætt
um fækkun meðaldrægra kjamorku-
flauga án þess að geimvamaáætlunin
væri tekin með í reikninginn, hefur
mtt úr vegi helstu hindmninni á vegi
Bandaríkjastjómar til hins yfirlýsta
markmiðs hennar um raunvemlega
afvopnun. Þrátt fyrir það verðum við
að vera varkárir í orðum til þess að
vekja ekki falskar vonir almennings
um það hvenær af samningum í þessa
vem getur orðið.
Frá upphafí hefur stjóm Reagans
staðhæft að hún myndi ekki sætta
sig við neitt minna en raunvemlega
afvopnun. Við höfum verið óhræddir
við að taka okkur allan þann tíma sem
við teljum okkur þurfa til þess að ná
samkomulagi, sem væri aðgengilegt
fyrir okkur og bandamenn vora.
Vegna þessa hafa sjálfskipaðir „sér-
fræðingar" í afvopnun sagt okkur
vera á móti takmörkun vígbúnaðar,
þar sem Kremlveijar gætu aldrei fall-
ist á tillögur okkar.
Gagnrýnendur okkar hafa jafnvel
talið tillögur okkar um raunvemlega
afvopnun bera vott um óhreinlyndi
og óraunhæfni. Hins vegar hafa þeir
bent á eigin leiðir til afvopnunar:
SALT-viðræðumar. Þó urðu þær við-
ræður til lítils annars en að skjalfesta
mestu kjamorkuhervæðingu sögunn-
ar. Ráð þessara „sérfræðinga" er að
leggja aldrei neitt til við ráðamenn í
Moskvu annað en það sem bókað er
að þeir muni fallast á.
Embættismenn Bandaríkjastjómar
em ábyrgir orða sinna og gerða. Það
em fyrrverandi embættismenn og
„sérfræðingamir" ekki. Á sviði samn-
ingaviðræðu við Moskvu er það sem
eftir þessa menn liggur þess eðlis að
vinnubrögð þeirra verða vart talin
eftirbreytni verð.
„Sérfræðingamir" hljóta að hafa
orðið býsna undrandi þegar fregnir
bárast af því á haustmánuðum 1985
að Kremlarbændur væm reiðubúnir
að ihuga 25% niðurskurð á kjamorku-
vopnum, þá 40% og loks 50%, en fram
að því höfðu „sérfræðingamir" hent
gaman að tillögum Reagans um alvar-
legan niðurskurð á kjamavopnum.
Ekki má heldur gleyma því að þessar
hugmyndir vom aðalumræðuefnið á
Reykjavíkurfundi leiðtoganna.
Fram að þessu hefur þeirrar
hneigðar gætt að fresta erfíðum við-
fangsefnum eins og raunvemlegri
afvopnun og sannreyningu hennar til
einhverrar óljósrar framtíðar. Af-
vopnunarsamningar, sem leyfðu í
raun íjölgun kjamorkuvopna og engin
leið var að vita hvort væri framfylgt,
gáfu samningamönnum okkar falska
Caspar Weinberger.
„Við munum halda
áfram að vefengja
grundvallarkenningu
sovéskra samninga-
manna: „Mitt er mitt, en
þitt er samningsatriði“.
Hernaðarmáttur er fyr-
irbæri sem Kremlar-
bændur skilja og þeir
viðurkenna að við eigum
öryggishagsmuna að
gæta, en einn órjúfan-
legur þáttur þeirra er
að viðhalda trúverðugri
fælingu.“
öryggiskennd og ótíndri alþýðunni var
sagt að mikill árangur hefði náðst:
„Við undirrituðum samninga, ekki
satt?“
Samt sem áður skyldi ekki gleyma
því að takmörkun á vígbúnaði og jafn-
vel afvopnun em ekki markmið í
sjálfu sér. Hvort tveggja em tæki sem
nota á til þess að efla þjóðaröryggi.
Mestu mistök þeirra, sem hæst hafa
látið um afvopnun, er að telja hana
sjálfa markmiðið og hafa því mælt
með viðræðum án þess að skeyta
neinu um önnur öryggissjónarmið.
Slík afstaða samræmist einfaldlega
ekki heilbrigðri skynsemi.
Þegar Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseti, gerði það að tillögu sinni árið
1981 að öll meðaldræg lqamorkuvopn
skyldu upprætt — núll-lausnin svo-
nefnda — sökuðu gagnrýnendur hann
um einfeldni og sögðu Sovétmenn
aldrei myndu fallast á slíkt nema
kjamorkuherafli Bretlands og Frakk-
lands væri innifalinn. Á síðasta ári
féllu Sovétmenn frá þeirri kröfu sinni
og á þessu ári tilkynntu þeir að geim-
vamaáætlunin væri ekki óyfírstígan-
legt vandamál í þessu samhengi.
Af hvetju skyldu þessi sinnaskipti
hafa orðið? Auk stuðnings Frakka og
Breta við stefnu okkar varð tvennt
til þess. í fyrsta lagi sú óhagganlega
stefna Reagans að semja í krafti end-
umýjaðs herstyrks. í öðm lagi sú
stefna að gefa sér nægan tíma til
samninga þegar jafnmiklir hagsmunir
Bandaríkjanna og bandamanna þeirra
em_ í húfí.
Árið 1983 þegar Reagan kynnti
enn eitt frávikið frá viðtekinni stefnu,
geimvamaáætlunina, sögðu andmæl-
endur hennar að hún myndi riðla
ógnaijafnvæginu. Þar kom glögglega
í ljós brengluð rökvísi þeirra, sem vilja
semja um afvopnun hvað sem hún
kostar, því þeir litu á þessa leið út
úr vítahringnum sem enn einn spila-
peninginn á samningaborðinu.
Hvað sem því líður kom skýrt fram
að almenningur studdi forsetann og
því gat Kremlarbændum verið ljóst
að þrátt fyrir gagnrýni þrýstihópa
myndi stjóm Reagans ekki hvika frá
þeirri stefnu að leita ömggari og
hættuminni fælingar.
Eftir Reykjavíkurfundinn spáði
fyrrverandi afvopnunarsamninga-
maður því að ekki kæmi til „neinna
samninga um lang- og meðaldrægar
kjamorkuflaugar nema að Banda-
ríkjamenn drægju í land með geim-
vamaáætlunina." Sjálfum sér
samkvæmur bætti hann við: „Það
leikur enginn vafí á því að geim-
vamaáætlunin er ágæt til þess að
spila út í samningaviðræðu; spuming-
in er hvenær." Þrátt fyrir þessi orð
gerðist það nú samt sem aldrei átti
að geta gerst: Sovétherramir sáu að
við myndum ekki falla frá geim-
vamaáætluninni og hættu að gera
niðurfellingu hennar að skilyrði fyrir
afvopnunarviðræðum.
Fortíð „sérfræðinganna" ein og sér
ætti að vera nóg til þess að menn
eyði ekki tíma sínum í ónýta afvopn-
unarstefnu þeirra. Bandaríkin eiga
ekki að sætta sig við annað en raun-
vemlegan niðurskurð kjamorku-
vopna, þó svo að nægu sé eftir haldið
til trúverðugrar fælingar. Þá gætum
við litið á nýlegar sovéskar tillögur
með varfæmislegri bjartsýni í stað
þess að vera með sífellt svartsýnis-
nöldur um að forsetinn muni aldrei
ná samningum. Ennfremur yrðu
Genfar-viðræðumar þá alvarlegur
vettvangur afvopnunar á sviði meðal-
drægra kjamorkuvopna, þar sem að
stefnan felur ekki í sér að samið skuli
samninganna vegna. Hvemig sem
loks verður samið í Genf verða þeir
samningar að samrýnast öryggis-
Breska þjóðleikhúsið
þjónar illa hagsmunum Skota
Rætt við Svein Einarsson sem tók þátt
í ráðstefnu um þjóðleikhús í Skotlandi
SVEINN Einarsson fyrrverandi
Þjóðleikhússtjóri var fyrir skömmu
boðinn til Skotlands til þess að taka
þátt í ráðstefnu um efnið: Vantar
Þjóðleikhús f Skotlandi? Ráðstefnan
var haldin á vegum Menningarráðs
Skotlands.
Sveinn Einarsson sagði í samtali við
Morgunblaðið að ráðstefnan hafí verið
mjög fíölmenn og hana sóttu m.a. flest-
ir frammámenn í leikhúsum í Skotlandi.
Auk Sveins fluttu framsöguerindi m.a.
þeir Frank Dunlopp, sem er þekktur
leikstjóri og núverandi yfirmaður Edin-
borgarhátíðarinnar, og einn af þekkt-
ustu leikstjómm fínna, Jack Wittika,
en hann gegnir nú stöðu leikhússtjóra
Sænska leikhússins í Helsinki.
„í stuttu máli var niðurstaða ráð-
stefnunnar sú að Breska þjóðleikhúsið
í Lundúnum þjónar ákaflega illa menn-
ingarhagsmunum Skota," sagði
Sveinn. „Það var samdóma álit á ráð-
stefnunni að ástæða væri til að hafa
stofnanir og samtök sem leggðu rækt
við það sem er einkennandi fyrir hvem
stað og hveija þjóð. Sérstaklega á þess-
ari fjölmiðlaöld þegar mikil hætta er á
að öll sérkenni þurrkist út.
Ég held að Skotamir hafí verið mjög
ánægðir með þessa niðurstöðu. Þeir
höfðu búist við að minni leikflokkar
yrðu hræddir við að stofnun þjóðleik-
Sveinn Einarsson
húss hefði í för með sér minni fjárveit-
ingu til þeirra. Svo reyndist vera
samstaða um að nauðsynlegt væri að
hafa flaggskip".