Morgunblaðið - 23.06.1987, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987
33
Metþátttaka
í sólstöðu-
göngunni
Morgunblaðið/Magnús Sverrir Olafsson
Veðrið var með fegursta móti á meðan á sólstöðugöngiumi stóð
Reykhólahreppur:
Mikill sigur frá-
farandi sveitar-
stj ór nar manna
TALIÐ er að mUli fjögur og
fimm hundruð manns hafi tekið
þátt í sólstöðugöngu að þessu
sinni. Þetta er í þriðja sinn sem
gangan er farin og hafa þátt-
takendur aldrei verið fleiri en
nú.
Lagt var af stað á miðnætti
aðfararnótt sunnudagsins 21.
júní í blíðskaparveðri sem hélst
út alla gönguna. Gangan hófst
á Seltjarnarnesi þar sem gengið
var um nesið. Þaðan lá leiðin í
Sundahöfn og út í Viðey. Þaðan
var siglt út á Kjalarnes og farið
í rútu að Mosfelli. Þar hófst
lokaáfangi göngunnar sem end-
aði tæpum sólarhring síðar á
Breiðabólsstaðareyri á Alfta-
nesi. Þar var tendruð brenna
og skátar stóðu fyrir fjölda-
söng.
Sólstöðugangan var farin að
tilstuðlan Náttúruverndarfé-
lags suðvesturlands og áhuga-
hóps um byggingu náttúru-
fræðihúss. Viðkomandi
Skátar stjórnuðu fjöldasöng við
brennuna.
sveitafélög tóku einnig mikinn
þátt í framkvæmdinni.
Með í ferð voru sögufróðir
menn og líffræðingar sem
fræddu þátttakendur um það
sem fyrir augu bar.
Reynt að narra einn í Kjósinni. Mjög róleg veiði hefur verið í þeirri á það sem af er, en vonir eru nú
bundnar við að smálax fari að skila sér.
Kosið var í hinum nýstofnaða
Reykhólahreppi á sunnudag.
Tveir listar voru í framboði.
U-listi sem borinn var fram af
fráfarandi s veitarstj órnar-
mönnum og R-listi sem borinn
var fram af samtökum um efl-
ingu byggðar í Reykhólum. 266
voru á kjörskrá og kusu 218
þeirra. Úrslit urðu þau að U-
listi fékk 172 atkvæði og sex
menn kjörna en R-listi fékk 42
atkvæði og einn mann kjörinn.
Þrír seðlar voru ógildir og einn
var auður.
Þeir sem mynda hreppsnefnd
Reykhólahrepps eru Guðmundur
Ólafsson, Grund, Áshildur Vii-
hjálmsdóttir, Króksfjarðamesi-,
Einar Hafliðason, Fremri Gufudal,
Smári Baldvinsson, Borg, og Karl
Kristjánsson, Gautsdal, af U-lista
og Stefán Magnússon, Reykhól-
um, af R-lista.
Reykhólahreppur varð til við
sameingu fímm hreppa og tekur
sameiningin formlega gildi 4. júlí
nk. Hin nýja hreppsnefnd mun
fljótlega koma saman og verður
þá fyrsta verk hennar að kjósa sér
oddvita og varaoddvita.
Meðalverð á
Fiskmarkaðnum
35.43 krónur
græna Frances í stærðinni 8. Tveir
14 punda fískar eru stærstir og
sex 12 punda fískar hafa einnig
komið á land, hinir eru langflestir
9—10 pund.
„Skilyrðin eru núna óðum að
ná sínu besta og laxinn streymir
upp ána,“ sagði Torfi að lokum.
Leginn 24 pundari
í Laxá
Að sögn Péturs Bjömssonar
veiðimanns í veiðihúsinu í Þránd-
argili við Laxá í Dölum hefur
veiðin verið léleg í Laxá það sem
af er. Pétur og félagar opnuðu ána
eins og sagt er á laugardaginn og
á hádegi í gær höfðu aðeins sex
laxar komið á land. Stærstur
þeirra var 24 punda hængur sem
Hans Kristjánsson veiddi á maðk
í Efri-Kistu. „Laxinn var aðeins
leginn og enginn lax sem við höf-
um veitt hefur verið með lús. Sá
minnsti var 7 punda, bjartur fisk-
ur, en ekki lúsugur. Hann var líka
fyrsti flugulaxinn og kom hann á
rauða Frances," sagði Pétur. Hann
sagði og slangur af laxi í ánni og
hann væri genginn upp um allt,
en tæki afleitlega í hlýju og ört
minnkandi vatninu. „Áin hefur
lækkað um að minnsta kosti hálft
fet síðan við byijuðum, hún er
mjög vatnslítil og það er augljóst
hvað þarf til að hressa veiðina við,“
sagði Pétur að lokum.
Viðunandi byrjun
í Soginu
Að minnsta kosti 5 laxar veidd-
ust i Soginu fyrsta daginn, en
fregnir bárust ekki frá Alviðru og
Þrastarlundi. Hins vegar veiddust
4 laxar í Ásgarðslandi og einn í
Bildsfelli. Enginn í Syðri-Brú. Það
fylgdi sögunni, að menn hefðu séð
góðan slatta af laxi, en hann hefði
tekið illa og grannt. Þannig hristu
nokkrir sig af önglum veiðimanna
og hrósuðu happi að sleppa með
skrekkinn. Stærsti fískurinn sem
fréttist af var 14,5 pund, en allir
voru laxarnir að sögn stórir.
Stóra full af
fyrirheitum
Stóra-Laxá var allt að því óveið-
andi vegna vatnsmagns og skols
fyrsta daginn, laugardaginn, en
samt veiddust tveir laxar og fleiri
sluppu. Á efsta svæðinu veiddist
einn 16 punda fiskur og á svæði
tvö kom 14 pundari á land úr
Bergsnösinni. Síðast er fréttist
hafði dregið fyrir sólu og snjóbráð
hafði rénað. Áin leið áfram full
af fyrirheitum, köld að vísu, en
með þó nokkru af laxi.
FISKMARKAÐURINN í Hafn-
arfirði var með togarafisk á
boðstólnum í gærdag ásamt
bátafiski og var heildarsölu-
verðmæti dagsins rétt undir
tveimur milljónum króna. Alls
voru boðin upp rúmlega 55 tonn
og var meðalverð nokkru hærra
en fyrsta uppboðsdaginn, eða
um 35.43 krónur kílóið.
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær
að hann væri mjög ánægður með
þær undirtektir sem markaðurinn
hefði fengið og það söluverð sem
fengist hefði fyrir aflann.
Meginhluti aflans sem boðinn
var upp í gær var þorskur, eða
rúmlega 44 tonn og var meðalverð
fyrir hann 36.64 krónur, og hæsta
verð fór upp í 44 krónur. Fyrir
ýsu fékkst meðalverð 61.31 króna
og meðalverð á ufsa var 17.46
krónur. Hluti aflans sem boðinn
var upp í gær var bátafiskur.
í dag verður svo boðið upp á
60 tonn af þorski og 55 tonn af
karfa úr togaranum Víði ásamt
30 tonnum af bátafiski, og á morg-
un verður afli úr togaranum
Karlsefni RE boðinn upp.
Konditori -
athugasemd
NOKKRIR lesendur Morgun-
blaðsins hafa haft samband og
gert athugasemd við auglýsingu
er birtist í sunnudagsblaðinu 21,
júní. Auglýsingin var frá Sveini
bakara um opnun fyrsta kondit-
oris á íslandi. Lesendurnir vildu
koma því á framfæri að starf-
rækt hefur verið konditori á
Blönduósi í tæp tvö ár, Krútt
kökuhús — konditori var opnað
15. september 1985.