Morgunblaðið - 11.07.1987, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1987
Þorlákshöfn:
Hedda Gabler tekur
7 0 þúsund laxaseiði
Þorlákshöfn.
NORSKA leigfuskipið Hedda
Gabler kom til Þorlákshafnar
miðvikudaginn 8. júlí og þar voru
sett um borð 70 þúsund laxaseiði.
ÞorvalJur Garðarsson, fram-
' kvæmdastjóri fiskeldisstöðvarinnar
Smára hf. í Þorlákshöfn, sagði í
samtali við fréttaritara að þeir
ásamt ísþór hf., hefðu tekið Heddu
Gabler á leigu til að flytja til Nor-
egs þau 140.000 seiði sem þeir
væru búnir að semja um sölu á til
þriggja stöðva í Noregi.
Skipið er sérstaklega útbúið til
flutninga á laxaseiðum, en flutning-
ur á þeim er mjög viðkvæmur ef
um langan veg er að fara.
I skipinu hefur verið útbúinn einn
stór tankur sem er með útbúnaði
til að dæla súrefni í sjóinn og einn-
ig er hægt að endumýja sjóinn í
tankinum á leiðinni.
Fremur seinlegt er að koma öll-
um þessum seiðum frá stöðvunum
í skipið, hafa þarf öll seiðin úr keij-
um og setja þau í sérstaka flutn-
ingstanka sem tengdir eru
súrefnisgeymum.
Þegar komið er með tankana a.
skipi er þeim slakað ofan í lestina
sem er full af sjó, tankamir opnað-
ir og híft upp á ný og renna þá
seiðin út með sjónum.
Þorvaldur sagði að nú væm þeir
búnir að selja öll þau seiði sem
þeir ætluðu ekki að nota sjálfír til
að ala upp í matfískastærð eða
sleppa til hafbeitar.
Þeir hjá Smára hafa nú fengið
aðstöðu til hafbeitar á Svínafossi á
Snæfellsnesi og hafa þegar sleppt
nokkm til pmfu.
Þorvaldur sagði það dreifa
áhættunni að vera með sem flesta
þætti laxeldisins í gangi í einu.
Hjá Smára hf. em nú sjö fastir
starfsmenn en vænta má að þeim
fjölgi í haust en þá er gert ráð fyr-
ir að fyrsta slátmn fari fram en
áður þarf að byggja aðstöðu svo
að slátmn geti farið fram.
Reiknað er með að slátrað verði
um 200 tonnum á ári, verð og eftir-
spum eftir laxi og laxaseiðum hefur
farið vaxandi nú á síðustu mánuð-
um svo útlitið er alls ekki svo slæmt.
Norðmenn borga nú um 100 kr.
fyrir stykkið af 80 til 100 gramma
seiðum sem er ekki verra en í fyrra
sem þá þótti alveg toppverð.
Þorvaldur vildi að lokum taka
það fram að öll aðstaða í Þorláks-
höfn væri mjög góð. Nóg er af
heitu vatni og við hliðina á stöðinni
var borað og þar kom upp bæði
hreint vatn og passlega heitur sjór
en hvorttveggja er mjög mikilvægt
til að sjóvenja seiðin.
J.H.S.
Seiðin háfuð úr kerjunum.
Félag íslenskra fiskmjölsframleiðenda:
Tilraunaverksmiöja verði
ekki í húsakynnum Strandar
AÐALFUNDUR Félags íslenskra
fiskmjölsframleiðenda, sem ný-
lega var haldinn, samþykkti
ályktun þar sem því er fagnað
að stjórnvöld ætla að veita fjár-
magni til uppbyggingar tilrauna-
verksmiðju, sem m.a. er ætlað
að gera tilraunir með fiskimjöl.
Telja fiskmjölsframleiðendur þó
rétt að staðsetja slíka verksmiðju
annars staðar en í húsakynnum
Strandaverksmiðjunnar á Reykja-
nesi, eins og áform eru nú um.
Óska fiskmjölsframleiðendur eftir
því að eiga sem nánasta samvinnu
við Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins og sjávarútvegsráðuneytið um
uppbyggingu tilraunaverksmiðj-
unnar.
Fundurinn samþykkti fjölda
ályktana, m.a. eftirfarandi:
„Fiskmjölsframleiðendur vekja
athygli á því að t.d. danskar fisk-
mjölsverksmiðjur fá raforkuna á
hálfvirði á við það meðalverð sem
íslenskum verksmiðjum er gert að
greiða. Við þessa aðila á íslenskur
fískmjölsiðnaður í harðri samkeppni
á erlendum mörkuðum. Það er
krafa fiskmjölsframleiðenda til
stjórnvalda, að þau hafí skilning á
vanda fískmjölsiðnaðarins og end-
urskoði raforkuverð til verksmiðj-
anna.
Aðalfundurinn telur verð á loðnu
ekki fijálst meðan eigendur loðnu-
skipa geta selt afla sinn erlendis
líki þeim ekki þau verð sem íslensk-
ar verksmiðjur bjóða. Á sama tíma
er verksmiðjum á íslandi óheimilt
að kaupa afla erlendra loðnuveiði-
skipa. Er það skýlaus krafa físk-
mjölsframleiðenda að þeir búi í öllu
við sömu rekstrarskilyrði og erlend-
ir samkeppnisaðilar.
Að lokum óskað aðalfundurinn
eftir því að flutningsverðjöfnun á
svartolíu verði hætt.“
Á aðalfundinum var Jónas Jóns-
son, framkvæmdastjóri Sfldar- og
fískimjölsverksmiðjunnar hf. í
Reykjavík, útnefndur fyrsti heiðurs-
félagi Félags íslenskra fiskimjöls-
framleiðenda.
Jónas hefur starfað að fískmjöls-
iðnaði í 49 ár, eða frá árinu 1938
er hann hóf störf sem gjaldkeri og
bókari hjá Sfldarbræðslunni hf. á
Seyðisfírði. Árið 1943 varð hann
framkvæmdastjóri Síldarbræðsl-
unnar. Tíu árum síðar tekur hann
við framkvæmdastjórastöðu Síldar-
og fískimjölsverksmiðjunnar hf. hjá
Kletti. Frá árinu 1955 út sjöunda
áratuginn stóð Jónas í togaraútgerð
auk starfa að fískimjölsiðnaði. Árið
1963 sameinast Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjan hf. og Síldarverk-
smiðjan við Orfírisgarð. Rak Jónas
eftir það báðar verksmiðjurnar.
Jónas átti dijúgan þátt í stofnun
Félags íslenskra. fískmjölsframleið-
enda. Hann var varaformaður frá
stofnun þess 30. maí 1960 til ársins
1981 er hann lét af því starfi að
eigin ósk. Auk þess hefur Jónas
gegnt fjölda trúnaðarstarfa lyrir
félagið.
Formaður Félags íslenskra físk-
mjölsframleiðenda var endurkjörinn
Jón Reynir Magnússson, fram-
kvæmdastjóri Síldarverksmiðja
ríkisins.
Framkvæmdastjóri félagsins er
Jón Ólafsson.
SÓLCOLA
Það er öðruvísi!
H
löfóar til
_____.fólks í öllum
starfsgreinum!
Morgunblaðið/J6n H. Sigurmundsson
Framkvæmdastjórar Smára og ísþórs á bryggjunni Þorvaldur og
Sigurgisl.
Nýja heilsugæslustöðin á Eyrarbakka
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Eyrarbakki:
Heilsugæslustöðin
flutt í nýtt húsnæði
ÞAÐ VAR áhugi heimamanna
fyrir að gera gamla læknisbú-
staðinn að dvalarheimili fyrir
aldraða sem ýtti á eftir að hafist
var handa við að endurnýja hús-
næði heilsugæslunnar á Eyarar-
bakka. Heilsugæslustöðin var
áður í Iæknisbústaðnum.
Gamli læknisbústaðurinn, Sól-
vellir, hefur þjónað sem heilsu-
gæslustöð í 40 ár. Til að bæta
aðstöðuna og gera kleift að innrétta
Sólvelli sem dvalarheimili var keypt
hús sem Guðmundur M. Einarsson
húsasmiður á Eyrarbakka hafði
smíðað og það innréttað. Það er
ríkið sem greiðir 85% af kostnaði
og heimamenn 15%.
Nýja heilsugæslustöðin er
skreytt með myndum eftir börn úr
bamaskólanum og fara vel. Gestum
við opnunina þótti myndirnar ekki
síðri en einhver rándýr stórverk.
Það færi líka vel á 90. afmælisári
hreppsins að skreytingar væru
heimafengnar. — Sig. Jóns.
Sigurður Ingi Sigurðsson læknir, Svava Þorkelsdóttir hjúkrunar-
fræðingur, Magnús Sigurðsson læknir, Páll Sigurðsson ráðuneytis-
stjóri, Ingibjörg Magnúsdóttir deildarstjóri, Hafsteinn Þorvaldsson
sjúkrahússforstjóri og Magnús Karel Hannesson oddviti.
Heimsnýjung
á fStAtfD>!