Morgunblaðið - 23.08.1987, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1987
B 7
Vígðalaug
þetta leyti. Þá hófst mikil uppbygg-
ing á þessu sviði.
Við stunduðum alls kyns íþróttir
af mikill kostgæfni á þessum árum,
m.a. glímdum við af miklum áhuga.
Það fólk sem útskrifast hefur frá
íþróttakennaraskólanum hefur jrfir-
leitt orðið nýtir þjóðfélagsþegnar.
Það hefur verið ábyrgt í öllu sem
það hefur tekið sér fyrir hendur. Það
hefur líka tekið mikinn þátt í félags-
starfi vítt og breitt um landið. Fjöldi
af þessu fólki er orðið forystufólk í
alls kyns sveitarstjómarmálum,
íþrótta og félagsmálum. Það gleður
okkur verulega að svo hefur farið.
Ég man að á einum fundi hjá Sam-
tökum íslenskra sveitarfélaga sem
ég sat, voru rúmlega þijátíu fulltrú-
ar úrskrifaðir úr íþróttakennaraskól-
anum.
Staða Laugarvatns sem skólaset-
urs hefur að ýmsu leyti breyst á
síðustu árum. Fyrstu áratugina var
mikil ásókn í skólavist á Laugar-
vatni en á því varð breyting eftir
1960. Nú er svo komið að búið er
að leggja Húsmæðraskólann niður,
en hann var draumur okkar hér á
árum áður. Hann blómstraði lengi
vel og það var byggt yfir hann mynd-
arlegt hús, en aðsóknin minnkaði svo
mikið að ákveðið var að leggja hann
niður. Húsmæðraskólinn var fyrst
deild í Héraðsskólanum, konur voru
fengnar til að kenna nokkrum stúlk-
um sem vildu fara í húsmæðranám.
Smám saman þróaðist þetta og
deildin varð að sérstökum skóla.
Héraðsskólinn hefur líka misst
spón úr aski sínum ef svo má segja,
því hér í kring eru áttundi og níundi
bekkir starfræktir í mörgum skólum.
Aðsókn hefur því minnkað verulega
að Héraðsskólanum líka. Hins vegar
er mikil aðsókn að Menntaskólanum
og íþróttakennaraskólanum. Það var
óskaplega gaman þegar verið var
að vinna að því að koma bæði Hús-
mæðraskólanum og Menntaskólan-
um á fót. Það unnu allir hér að þessu
sem einn maður. Ég kenndi 18 ár
leikfími við Menntaskólann og hef í
raun og veru verið meira og minna
bundinn við alla þessa skóla hér.
Það voru um tíma uppi raddir um
að flytja íþróttaskólann burtu héðan.
Nú er búið að byggja yfir hann veg-
legt hús hér og vonandi eru þessi
raddir þá hljóðnaðar. Ég tel að
heimavist sé svo mikið uppeldisatriði
fyrir hvern og einn að ég held að
fólk fari mikils á mis sem ekki á
þess kost að vera í heimavist og
læra þar að umgangast fólk og taka
tillit til annarra. Ég hef iðulega heyrt
krakkana segja sem svo „Þó það
væri nú ekkert annað sem ég hefði
haft upp úr veru minn hér en að
vera á heimavist og kynnast krökk-
unum þannig, þá hefði þetta borgað
sig.“ Hóparnir héðan halda líka með
ólíkindum vel saman, enda eru þess-
ir krakkar nánast eins og ein §öl-
skylda. Hingað hafa líka oft komið
böm sem búið hafa við erfiðar heim-
ilisástaeður og fengið hér mikla
hjálp. Ég veit ekki hvort fólk gerir
sér almennt ljóst hversu þýðingar-
mikill þessi þáttur er.
íþróttakennslan var afskaplega
mikill þáttur í öllu skólastarfi á
Laugarvatni í fjölda ára. Leikfimi-
kennslan var hér a.m.k. einn tími á
dag. Ahuginn var því ekki minni
áður fyrr þó aðstaðan hafi ekki ver-
ið eins góð og hún er núna. Það var
t.d. fastur liður að hafa leikfimissýn-
ingu annan hvem laugardag, ár eftir
ár og sundmót inni í skólanum. All-
ir staðarmenn komu að horfa á
leikfimina og sundkeppnina. Þessir
þættir vom því mikil lífsfyllingu
bæði fyrir böm og fullorðna. Það
var mikil vinna að undirbúa þessi
mót og halda þau.
Ég kynntist körfubolta hjá Braga
Magnússyni og Sigríði Valgeirsdótt-
ur. Ég byijaði að kenna körfubolta
við íþróttakennaraskólann árið 1946
og var einn af frumkvöðlunum í
þeirri grein, má segja. Þá hafði
körfubolti sama og ekkert verið
stundaður hér á landi. Ég var svo
heppinn að það var amerískur piltur
hér á Laugarvatni í einn vetur og
ég lét hann kenna mér það sem
hann kunni í körfubolta. Ég sá strax
að þetta var góður innanhússleikur.
Ég setti á stað bekkjamót í körfu-
bolta milli skólanna héma og það
hefur nú verið f gangi fram undir
þetta, svokallað „Þórismót" í körfu-
bolta.
Seinni árin hefur leikfímikennsla
minnkað til muna hér í skólunum á
Laugarvatni, þó hún sé vissulega
meiri hér en víðast hvar annars stað-
ar.
Ég hef ekki nema allt hið besta
að segja um þetta lífsstarf sem ég
hef eytt öllum mínum tíma í. Auk
kennslunnar eyddi ég 25 sumrum í
að þjálfa fyrir Héraðssambandið
Skarphéðinn. Ég hef mætt á öllum
landsmótum UMFÍ síðan árið 1940
og ætla að halda því áfram. Ég hef
lagt mikinn tíma í þjálfun og kennslu
öll þessi ár, af því að ég vildi láta
krakkana héma á Suðurlandi njóta
einhvers af því sem mér fannst ég
hafa farið á mis við sem krakki.
Ég var mikið frá á þessum tíma
og fjöldskyldan fékk að kenna á
því. En konan mín er íþróttakennari
eins og ég og skildi þetta allt sam-
an. Við kynntumst þegar _hún var í
íþróttakennaraskólanum. Ég kenndi
henni um tíma. Hún heitir Ester
Kristinsdóttir og er úr Reykjavík.
Hún starfaði við íþróttakennslu með-
an bömin vom ekki orðin mörg, en
þau urðu fimm og því varð smám
saman minna úr kennslu hjá henni.
Elsta dóttir okkar er íþróttakennari
líka.
Ég hætti að kenna fyrir tveimur
ámm og sinni nú eingöngu starfí
oddvita fyrir Laugardalshrepp, en í
þessu oddvitastússi hef ég við síðan
árið 1970. Lítilsháttar leikfími
stunda ég þó enn. Ég hef stundað
smávegis leikfimi fyrir sjálfan mig
alla tíð frá því ég var ungur maður
og það geri ég enn til þess að halda
mér í þjálfun. Hófleg leikfimi er
holl fyrir hvem og einn. Leikfimi á
að liðka fólk og styrkja það og ekki
síst gera það hamingjusamara í eig-
in líkama.
Wagoeneer LTD 1988
komnir beint frá verksmiðju, ónotaðir, með öllum
þeim aukabúnaði sem þeir hugmyndaríku geta látið
sig dreyma um að hafa í bfl.
Árs ábyrgð.
Verð kr. 1680.000 m/ryðvörn og skráningu.
Aðalumboðið hf.
Aftvinnu
r=TT~~i l 41 _ -V
Um miðjan október n.k. opnum viö nýtískulega stórverslun á
2. hæö í glæsilegri nýbyggingu okkar í Mjóddinni.
Þess vegna viljum við ráða hóp af áhugasömu og frísku fólki
(helst meö reynslu) í ýmis störf. Athugið aö um hlutastörf getur
veriö aö ræöa.
Svæðisstjóra í þessar deildir:
Herrafatnaöur, dömufatnaöur, ungbamafatnaöur,
skófatnaöur, sportvörur, heimilisvörur.
Við afgreiðslu:
HerrafatnaÖur, dömufatnaður, unglingafatnaður,
ungbamafatnaður, skófatnaður, snyrtivömr, raftæki,
bækur, leikföng, sportvörur, skólavörur, búsáhöld,
gjafavörur, heimilisvömr, kaffitería.
Önnur störf:
Vörumóttaka, skráning.
Þetta eru lifandi störf sem bjóða upp á góð laun og
umtalsverð fríðindi.
Umsækjendur sæki um á sérstöku umsóknareyðublaði sem
fæst í KaupstaÖ, öllum KRON verslunum og á skrifstofu
KRON, Laugavegi 91,4. hæö.
Frekari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 22110
alla daga milli klukkan 10 og 12.
3 KAUPSTAÐUR
ÍMJÓDD
Spennandi vinnustaður fyrir hresst fólk.