Morgunblaðið - 23.08.1987, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.08.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1987 B 27 Skrímslaleit í Skotlandi Ágæti Velvakandi Mig langar til að hella nokkrum vænum tárum úr viskubrunni mínum í staup hinna auðtrúuðu. En þannig er nú mál með vexti að grein nokkur birtist í Velvakanda þann 20. þessa mánaðar og fjallaði um hið fræga Loch Ness skrímsli eða „Nessie" eins og við sem vitum betur nefnum þetta hugarfóstur einfaldlega. Hugarfóstur? Já, hugarfóstur! Sem dæmi má geta þess er ég, sem er nú hálfur Skoti (Nessie) og hálf- ur íslendingur (Lagarfljótsormur) en ekki eitthvað sem birtist á ís- landi úr annarri vídd vegna dul- rænna áhrifa, var staddur í Skotlandi fyrir átta árum með hjálp Flugleiða og eigin hreyfiorku en ekki vegna dulrænna afla. Fór ég ásamt frænda mínum til Loch Ness í köfunarleiðangur. Ekk- ert skrímsli var að finna en vatnið var kalt og skyggni lélegt, þótt aðeins væri farið niður á þriggja metra dýpi svo ekki sé minnst á hina tíu. Að loknu sundi var farið á krá eina og teygaður bjór og viskí. Rætt var um ísland og fleira gáfu- legt eins og skrímslið. Spurði ég öldung einn um það hvort virkilega væri skrímsli í vatninu. Hann glotti við tönn og sagði eitthvað á þessa leið: „Nei, við þurfum ekki að sjá það núna. Það er svo mikið um ferðafólk þetta sumarið." „En hvað þá um Columba hinn helga? Munkinn sem rak óvættinn í vatnið fyrir um 600 árum síðan,“ spurði ég. „Hann var klikkaður. Til þess að geta verið tekinn í dýrlingatölu, verður maður að vera klikkaður.“ Virtist þeim gamla vera í nöp við ákveðinn trúarhóp sem óþarfi er að fjölyrða um hér. En hvað aðra trúarhópa varðar virðist sem svo að þar sem tilvist Nessie verður aldrei sönnuð, ein- faldlega vegna þess að „hún“ er bara hugarfóstur, verða menn að finna aðra leið eins og að láta „hana“ birtast annað slagið vegna dulrænna áhrifa. En það eru börn sem eiga að lifa í ævintýraheimi álfa og óvætta en fullorðið fólk í heimi raunveruleik- ans. Ronald Kristjánsson P.S. Meðan ég man, þá er jú til skrímsli í Loch Ness en það sökk rétt fyrir utan Uroqhuart kastala þegar verið var að taka kvikmynd um Sherlock Holmes á sjöunda ára- tuginum. Til er fræg ljósmynd er sýnir bægsli ólíkt því á nokkru lif- andi dýri en þeir sem vita betur vita að þetta er (var) eign ensks kvikmyndavers. Frelsi og öryggi á vegum landsins Sleggjudómar Rakel Sigurðardóttir skrifar: Ég las grein eftir Önund Ás- geirsson þriðjudaginn 18. ágúst sl. í Morgunblaðinu. Greinin heitir „Náttúruvemd og selir". Ég er á sama máli og hann í sambandi við það sem hann segir um „náttúruverndarsamtök“, sem ganga undir nafninu „Greenpeace". Ég var stödd í Ísrael þegar ég las í „Jerusalem Post“ að tveir þokkapiltar úr álíka samtökum sem nefna sig „Sea Shepherd" hefðu sökkt tveimur hvalveiðiskipum í Reykjavíkurhöfn og unnið spellvirki í hvalveiðistöðinni í Hvalfirði. Þegar þessir hryðjuverkamenn komu heim til sín var þeim fagnað sem hetjum! Ég er hjartanlega sammála greinarhöfundi um að fólk í slíkum samtökum, eða sem einstaklingar, eigi að snúa sér frekar að sínum eigin löndum í sambandi við nátt- úruspjöll. Ekki veitir víst af! Aftur á móti setur hann sjálfa greinina á lægra plan með því að fullyrða að Svíar séu siðspilltasta þjóð Evrópu. Hvaðan hefur maður- inn þessar upplýsingar? Hafa verið gerðar nokkrar markverðar rann- sóknir um þetta? Eða þekkir hann svo mörg lönd í Evrópu að hann geti fullyrt þetta af sinni eigin reynslu? Éða eru þetta bara sleggju- dómar? Ósköp þykir mér það líka ömur- legt, að annað hvort hefur maðurinn uppi sleggjudóma um hinn frábæra listamann Svía, Ingmar Bergman, eða hefur ekki meiri listasmekk en svo að hann kann ekki að meta list Ingmar Bergmans. Hvað hefur verið fórnað mörgum mannslífum í umferðinni á undan- förnum árum? Þau teljast í tugum á hveiju einasta ári. Nýlega var hámarkshraðinn auk- inn upp í 90 km á klukkustund á vegum úti. Nú var það á allra manna vitorði, að með því var enn verið að auka hættuna, því að við sem ökum úti á vegunum og héldum okkur á fyrrverandi hámarkshraða, sáum á eftir næstum hvetjum ein- asta bfl hverfa úr augsýn. Aldrei hefi ég orðið vitni að því að þeir sem þannig brutu reglur umferðarlaganna hafi verið stöðv- aðir af vegalögreglunni og þeir áminntir. Aldrei. Enda var hækkun hámarkshraðans rökstudd með því að þeir sem vildu aka hraðara en hámarkshraði var leyfður, þyrftu þá ekki að lenda í því að btjóta umferðarlögin. Stefnan er: Meiri hraði, meiri hraði, skítt með manns- lífin. En nú sl. sunnudag varð ég vitni að því að vegalögreglan lét til sín taka. Fjórar konur voru í bíl á skemmtiferð á Borgarfjarðarleið. Veðrið og landið skartaði öllu því fegursta sem ísland getur nokkru sinni átt. Bílstjórinn ók rólega í nokkurri umferð og hélt sig vel úti á kanti. Útsýnið heillaði og verið var að horfa til fjalla og jökla og ræða um umhverfið og njóta hinnar björtu sunnudagsferðar, þegar allt í einu kemur vegalögreglan og stöðvar bílinn. Hvað var um að vera? Var eitt- hvað athugavert við bílinn sem hann vildi hjálpa til við að lagfæra? Bílstjórinn opnar hurðina og spyr hvað sé að. Þú ekur allt of hægt, umferðin getur tafist, svarar hnappamaðurinn ákveðinn. Er kominn lágmarkshraði hér á Borgarfjarðarleiðum? spyr bílstjór- inn. Nei, ekki er það nú, svarar hnappamaður, en ef ekið er svona hægt með beinu línunni þá er hætta á að menn freistist til að bijóta reglumar með, því að aka fram úr á óbrotinni línu. Nú ber allt að sama brunni. Öku- maður má ekki hafa frelsi til að aka á löglegum hraða sem honum hentar, vegna þess að þeir sem vilja aka hraðar, jafnvel yfir hámarks- hraða, þyrftu líka að bijóta um- ferðarreglurnar með því að þurfa að drífa sig fram úr yfir óbrotna línu. Við sem ökum á lögleyfðum hraða krefjumst í nafni frelsisins að mega aka á vegum landsins eins og okkur hentar og að líka sé tekið tillit til okkar, ekki síður en þeirra sem aka á hámarkshraða og þeirra alltof mörgu sem með of hröðum akstri, þótt hámarkið sé komið í 90 km á klukkustund eru tilbúnir að bijóta umferðarlögin. Kona í Borgarnesi Margir þekktu brýrnar Þriðjudaginn 11. ágúst voru birt- ar í Velvakanda fjórar myndir sem Geir G. Zoega hafði tekið á sínum tíma en ekki var vitað hvar. Var skorað á lesendur að hafa samband við Viktor Ingólfsson hjá Vegagerð ríkisins ef þeir þekktu brýrnar. Margir höfðu þegar hringt í Viktor eftir að myndirnar voru birtar í Vegamálum, tímariti vegagerðar- manna, en margir lesendur Velvak- anda þekktu þær einnig og nú er vitað hvar allar myndirnar voru teknar. Mynd 1. Brú yfir Síká í Hrúta- firði. Brúin stendur ennþá en búið er að byggja nýja við hlið- ina á henni. Mynd 2. Brú yfir Bláskeggsá við Þyril í Hvalfirði. Brúin er löngu komin úr notkun en leif- arnar af henni standa ennþá. Mynd 3. Brattabrekka, ef myndin prentast vel má greina foss í Bjarnardalsá í baksýn. Mynd 4. Þessi mynd er tekin í Þingeyjarsýslu við Laxárvirkj- un, nú er búið að virkja fossana sem sjást fyrir ofan brýrnar. ÚTSALA Garn — garn Frábært verð. Póstsendum. Óðinsgata 1, sími 13130. KUPLINGSPRESSUR KÚPLINGSDISKAR KÚPLINGSLEGUR Fyrir flestar tegundir evrópskra og japanskra fólks- og vörubifreiða. Útvegum í allar helstu tegundir fólks- og vörubifreiða. Þekking Reynsla Þjónusta FALKIN N SUPURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.