Morgunblaðið - 23.08.1987, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1987
B 11
Nikulás og orrustan við Tsu-
shima: ef la átti rússneska flotann
með gullinu.
Republic og hélt kyrru fyrir um
borð ásamt nokkrum skipverjum.
Baltic sigldi til New York og
Florida var fylgt til hafnar.
Þrjú skip reyndu að draga
Republic í von um að koma skipinu
upp á grunnsævi. Republic var
hálffullt af sjó og ferðinni miðaði
hægt. Sealby skipstjóri harðneitaði
að yfirgefa skipið meðan það væri
ofan sjávar, en skipaði öllum öðrum
að fara frá borði nema Williams
2.stýrimanni, sem bauðst til að vera
hjá honum. RepubUc seig dýpra
og dýpra og hvarf loks í djúpið
kl.8.40, 30 klukkustundum eftir að
áreksturinn varð.
Sealby náði í rá og hélt sér uppi
á henni, klifraði svo upp á lestar-
hlera og forðaði sér undan rekald-
inu. Honum og Williams var báðum
bjargað um borð í björgunarbát, en
þeir voru mjög þjakaðir. Fjöldi
manns hyllti skipstjórann við kom-
una til New York.
Binns loftskeytamanni var hamp-
að enn meir en skipstjóranum og
hann var dýrkaður eins og hetja.
Það var fyrst og fremst talið snar-
ræði hans að þakka að tekizt hafði
að bjarga nær öllum þeim sem voru
í Republic áður en skipið sökk.
Aðeins sex biðu bana — tveir í
Republic og fjórir á Florida.
Binns var ákaft fagnað þegar
hann sneri aftur til Englands og
hann var sæmdur heiðursmerki.
Har.n varð loftskeytamaður á Adr-
iatic undir stjóm E.S. Smiths, sem
síðar varð skipstjóri á Titanic.
Binns fylgdi ekki Smith og mörgum
félögum sínum yfir á Titanic og
varð vinsæll og vellaunaður blaða-
maður í New York. Hann kenndi
flug í Kanada í stríðinu, hélt áfram
blaðamennsku, • en helgaði sig
seinna loftskeytatækni á ný.
Republic gleymdist fljótt. Smíði
Titanics var hafin og enginn vildi
vekja athygli á gullinu í Republic.
Þegar Titanic sökk í apríl 1912 var
á það bent að á næstu tíu árum á
undan hefði White Star- skipafélag-
ið flutt 1,179,594 farþega og aðeins
misst tvo, báða með Republic.
Löng leit
Kafari í New York, Martin Bay-
erly, fann flak Republics 1981 og
hefur síðan reynt tvívegis að bjarga
verðmætum úr því. Það hefur hins
vegar ekki tekizt vegna mikilla
strauma og hákarla á þessum slóð-
um. Hann telur að gullið sé einhvers
staðar í tveimur öryggisgeymslum
á öðru þilfari skipsins.
Uppdrættir, sem gerðir voru á
sínum tíma, sýna ekki rétta stað-
inn, þar sem flak Republics er að
finna. Auk þess glötuðust teikning-
amar af skipinu og það hefur verið
eitt af leyndarmálum þess. Skip-
asmíðastöð í Belfast, sem smíðaði
skipið, varð fyrir loftárás og White
Star- félagið varð gjaldþrota.
Björgunarfélagið hefur endur-
gert teikningar af skipinu með hjálp
ungs flotaarkitekts, Bob Stevens,
og skipasmíðastöðvarinnar. Án að-
stoðar Stevens hefði Bayerly varla
tekizt að sannfæra fjársterka aðila
um að gull væri að fínna í flakinu
og fá þá til að láta fé af hendi rakna
til kaupa á nauðsynlegum tækjum.
Stevens er þó varkár þegar hann
er spurður hvort hann sé í engum
vafa um að gull sé í flakinu. „Nú
í v «»8*
þegar ég hef setið í fjögur ár og
virt fyrir mér ljósmyndir af því
frnnst mér erfitt að dæma um hve
mikla möguleika við höfum,“ sagði
hann í viðtali fyrir skömmu.
Upplýsingar um leitina eru af
skomum skammti, en Stevens virð-
ist hafa fundið þijá eða ijóra staði,
þar sem fjársjóðurinn kann að leyn-
ast. „Einn þeirra er rétt hjá þeim
stað þar sem skipið brotnaði í spón
þegar það sökk,“ segir hann.
Auk gullsins munu kafaramir
leita að bókasafni, sem J.P. Morgan
hafði meðferðis, ekki sízt fágætum
frumútgáfum. Sérfræðingar telja
að unnt sé að bjarga bókunum,
þótt þær hafi legið á hafsbotni í
78 ár.
Mikið í húfi
Minnstu munaði að Bayerly gæfi
draum sinn um að bjarga Republic
upp á bátinn þegar hann varð uppis-
kroppa með peninga fyrir nokkmm
ámm. Hann fékk þá til liðs við sig
Robert Polackwich, krabbameinss-
érfræðing í Tampa, Florida, sem
hjálpaði honum að afla fjár til björg-
unaraðgerðanna með samskotum.
Annar mikilvægur bandamaður
Bayerlys, Michael Gerber, var svo
sannfærandi að aðeins tveimur vik-
um eftir að hann tók við fjármála-
stjóm leiðangursins hafði því marki
verið náð að safna tveimur milljón-
um Bandaríkjadala, sem nauðsyn-
lega þurfti til að hægt yrði að
hefjast handa.
Björgunartilraunin hófst í lok
júní og búizt er við að henni ljúki
ekki fyrr en í lok ágúst. Skipstjór-
inn á björgunarskipinu, Inspector,
Georg Larsen, er danskur og auk
hans em fimm Danir í áhöfninni.
Kafaramir, sem em 20 talsins, em
kanadískir og undir stjóm Brad
Stabenow. Larsen skipstjóri á m.a.
að tryggja að björgunarskipið sé
hreyfingarlaust yfir flakinu. Ef það
fer að reka slitnar líflína til kafar-
ana, sem em við störf í flakinu á
100 metra dýpi 18 tíma á sólar-
hring, sex í einu.
Leitarmenn telja að þeir muni
finna meira gull í Republic en kaf-
aramir sem fundu spænsku galeið-
una Nuestra Senora de Atocha
við Florida (Mbl.7.8.85). Gull, silfur
og fleiri eðalmálmar að verðmæti
um 156 milljónir punda hafa fundizt
í galeiðunni til þessa og kafaramir
gera ráð fyrir að þeir eigi enn eftir
að bjarga munum að verðmæti 60
milljónir punda úr flakinu.
Florida-ríki gerði kröfu til mikils
hluta ú'ársjóðsins í galeiðunni. En
Republic sökk ekki á gmnnsævi
heldur á alþjóðlegri siglingaleið,
utan við lögsögu Massachusetts.
Björgunarmennimir fá að launum
90-100% af því sem þeir finna í
flakinu, ef engir eigendur gefa sig
fram. gH
f Utsala
10% viðbótarafsláttur
30-50%
AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM VÖRUM.
Dæmi um verð:
Dragtir frá kr. 4.500,-
Uliarkápur frá kr. 10.350,-
Kjólar • frá kr. 3.300,-
Pils frá kr. 1.620,-
Blússur frá kr. 2.400,-
af öllum vörum verslunarinnar þá
daga sem eftir eru af útsölunni.
Hverfisgötu 64a, s. 25260.
VOGAVINDAN FRA FÆREYJUM ER
EITT FULLKOMNASTA OG ÖRUGGASTA
VEIÐITÆKI SINNAR TEGUNDAR.
Ein fullkomnasta færavinda í heimi -
Vogavindan - er nú í boði til útflutnings.
Hún er algjörlega tölvustýrð og alveg
sjálfvirk.
Meö þvi einu aö ýta á takka seturðu af staö
veiöiforrit sem notið hefur mikilla vinsælda í
Færeyjum.
Vogavindan er tölvustýrö og forritið hefur aö
geyma allar skipanir til að stunda hag-
kvæmar veiðar . . . öll veiðin er sjálfvirk.
Þegar fiskur bítur á, kemur vælutónn og
stafurinn „F“ sést á stjórnboröi tölvunnarog
um leið dregur Vogavindan fiskinn upp.
Vogavindan er vökvaknúin og yfirleitt með
orkugjafa frá vél bátsins, en einnig er hægt
að tengja hana við rafmagn frá rafgeymum.
Höfum einnig fyrirliggjandi fullkomin línuspil
fyrir báta allt að 200 tonnum.
Við framleiðum full-sjálfvirkar og hálf-sjálf-
virkar Vogavindur og sömuleiðis handknún-
ar Vogavindur.
Óskir þú kynningarbæklinga eða nánari
upplýsinga þá hringdu eða skrifaðu:
'UTVEGUR HF.
HEIÐARGERÐ117.
108 REYKJAVÍK.
SÍMI30002.
ÖILWÍND P/F J. K. Joensen & Sonur
BJARNI DTSlA