Morgunblaðið - 23.08.1987, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 23.08.1987, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1987 B 19 Britt Ekland - 44 ára fegurðardís. appelsínusafa að drekka. Kannski hjálpar eiginmaðurinn henni svo að halda sér ungri í anda, en Slim Jim er 19 árum yngri en Britt. Þau hafa nú verið gift í 3 og hálft ár, og hafa að sögn aldrei verið ást- fangnari. Bandaríkjamaðurinn Tino Martinez stekkur í höfn í leiknum gegn Nicaragua. Ferða- manna- paradísin Vestmanna- ejjar Mikill íjöldi erlendra ferða- manna hefur heimsótt Vestmannaeyjar í sumar, og hefur það ekki verið óalgeng sjón að sjá skemmtiferðaskip við bryggju, eða lónandi úti fyrir landi. Ekki hefur það spillt fyrir ánægju gestanna að einmuna blíða hefur verið í Eyjum lengst af sumri. Þess má geta að árlega koma á annað hundrað manns til Vest- mannaeyja, eða um 25 falt fleiri en íbúar bæjarins eru. Meðfylgjandi myndir tók Sigur- geir í Eyjum af nokkrum hinna erlendu gesta. Allt í góðu að eru litlir kærleikar milli ráða- manna í Washington og Managua þessa dagana, en liðsmenn hornaboltaliða Nicaragua og Banda- ríkjanna létu sig það litlu skipta þegar þau áttust við í Indianapolis í síðustu viku. Við upphaf leiksins ávarpaði Bianca Jagger, sem er fædd í Nic- aragua, mannsöfnuðinn, og bað fyrir friði. Leikurinn fór svo í alla staði íþróttamannslega og prúðmannlega fram, en Bandaríkin sigruðu, 18-0. Leikurinn var hluti af undanrásum fyrir Ólympíuleikana í Seoul á næsta ári, en þar þykja lið Bandaríkjanna og Kúþu sigurstranglegust 'í homa- boltakeppninni. Landslið Nicaragua er nú á keppnisferðalagi um nokkrar borgir í Bandaríkjunum, þar sem það fær að kljást við auðveldari andstæð- inga en bandaríska Ólympíuliðið. Þess má svo geta til gamans að það voru bandarískir landgönguliðar sem innleiddu hornabolta í Nicaragua árið 1902 þegar þeir hemámu Atl- antshafsströnd landsins. Vopnasölumálið: Bandarí kj amenn fá skjöl frá Sviss Lausanne, Sviss, Reuter. HÆSTIRÉTTUR Sviss úrskurðaði í fyrradag að bankaskjöl viðvíkj- andi vopnasölumálinu, svonefnda, skyldu afhent bandarískum yfirvöldum. Skjölin eru talin sýna hvernig greiðslum fyrir vopnin var háttað og hvemig kontra-skæruliðum barst síðan féð. Þrír af lykilmönnum í hneykslis- málinu, fyrrverandi aðalhershöfð- ingi bandaríska flughersins, Richard Secord, Albart Hakim, bandarískur kaupsýslumaður,_ og Manucher Ghorbanifar frá Iran, höfðu áfrýjað dómi þess efnis að skjölin skyldu afhent Bandaríkja- mönnum. Lögmenn þremenning- anna höfðu haldið því fram að sú krafa bandarískra yfírvalda að fá skjölin afhent væri utan ramma samkomulags milli ríkjanna um lagalegt samstarf. Samkvæmt niðurstöðu hæsta- réttarins er aðstoð mannanna þriggja við Oliver North ofursta við vopnasöluna til íran líkast til refsi-. vert athæfí samkvæmt svissneskum lögum og þess vegna sé rétt að verða við bón bandarískra dóms- málayfirvalda. Sýnd í sal A kl. 3 — 5 — 7 — 9 og 11 LAUGARAS= * frumsýnir NO-V TtiKNuM' \ vvff ANorcix píí r.ipnc* VC'tC, Ai.NA CANNCS JBNiOK ivV .i'iSS; ts'-S ISl.t NSNT 1 Aí ÆSISPCNNANPI SAGA UC NORRÆNUM <tOPH€WVU VÍKINC*AALPACINNAC & SWAN FltM PROPUCTIÖN kynmatciknimvní',ima »VALHÓLL<' mco aokamvnoinmi ''E.ITLI OUAff! Raddir: FLÖSl ÓLAFSSON • KfflSTINN SKíMUNPSSÖN ■ ÞöRHAU.Uff ''KjíiffPSSON PÁLL ULFAR JÚLIUSSON • NANNA K. JöHANNSPÓTTlR • JÓHANN SlCURPARSÖN LÍSA PÁLSPÓTTIR • CCtCCRT ÞÓRteiFSSON CACNHOPUC ÁRNAPÖTTIR IK'( ÞOR&JORN CffLINGSSON RON víOOT>WlN HCSmCLMANN iciKívcei. ffcieff /VIAC’SCN CC'i .IAM£S VACAfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.