Morgunblaðið - 27.08.1987, Side 1
JAtoYgnnÞIftfcto
HLJOMVAKAR
Rafís heitir heitir fyrirtæki sem sérhæft hefur sig í hönnun
og uppsetningu hljóðkerfa. Þannig á fyrirtækið heiðurinn að
hljóðkerfum umtöluðustu byggingum landsins um þessar
mundir - Flugstöðinni og Kringlunni. En Rafís starfar á fleiri
sviðum eins og fram kemur í viðtali við
forsvarsmenn þess í blaðinu i dag.
12
FRUMKVÖÐLAR
I annari grein slnni um frum-
kvöðla heimsækir Stefán
Halldórsson Darrel H. Clark
sem rekur vinsælustu út-
varpsstöðina í New Hamps-
hire í Bandaríkjunum. Á
siðasta ári var hann útnefnd-
ur útvarpsmaður ársins i því
fylki fyrir framlag sitt til út-
varpsrekstrar á þeim slóð-
um. En stöðvar hans eru
ekki aðeins vinsælar heldur
einnig
tæknilega mjög
fullkomnar.
Ratsjár 2
Case 3
Fólk 3
Tollur 5
Nýjung 5
Stjórnsýsla 5
ASEA/BBC 10
Olían 10
VIÐSKIFn AIVINNULÍF
-----------------L——----------------n
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 27. AGUST 1987 BLAÐ L/
Samvinnuhreyfingin
Tekjumar
a.m.k. 43.400
milljónir 1986
- fimm milljörðum hærri en hjá ríkissjóði
Kaupfélag Beru-
íjarðar gjaldþrota
Eigið fé neikvætt um 42 milljónir en
reynt að ná 30% nauðungarsamningum
Á SÍÐASTA ári námu tekjur
samvinnuhreyfingarinnar
a.m.k. 43.400 milljónum króna.
Þar af velti Samband íslenskra
samvinnufélaga 15.516 milljón-
um króna og kaupfélögin alls
20.000 milljónum króna.
Kaupfélag Eyfírðinga, KEA,
velti 6.221 milljón króna og eru
þá talin með samstarfsfyrirtæki
þess. Önnur kaupfélög veltu alls
um 15.200 milljónum króna. Olíu-
félagið hf. sem er að meirihluta í
eigu Sambandsins velti 3.539
milljónum króna. Kaupfélögin,
MIKIL eftirpurn en lítið framboð
virðist einkenna fasteignamark-
aðinn í Reykjavík eins og er.
Meiri hreyfing virðist þó vera að
koma á fasteignamarkaðinn nú,
þegar sumarleyfum er að ljúka.
„Það er ekkert til að selja. Það
selst allt gott sem kemur,“ sagði
Sigurður Óla í fasteignasölunni
Laufás. „Það er óskapleg eftirspurn.
Allir sem hringja, þeir meina eitt-
hvað. Það er búið með að fólk hringi
bara af forvitni til að láta meta eign-
ir sínar einungis til að vita, hver
eignastaða þess er. Allir bíða nú
spenntir eftir því, hvað gerist hjá
húsnæðismálastjórn á næstunni. Þar
eru hundruð ef ekki þúsundir óaf-
greiddra lánsloforða fýrirliggjandi.
SÍS, Olíufélagið og nokkur sam-
starfsfyrirtæki veltu því um
43.400 milljónum. Til saman-
burðar má geta að heildartekjur
ríkissjóðs á síðasta ári námu rúm-
lega 38.200 milljónum króna.
í árslok 1986 námu heildar-
eignir Sambandsins 7.762 milljón-
um króna. Útlán Samvinnubank-
ans, Iðnaðarbankans og
Verzlunarbankans í lok síðasta
árs námu alls 7.658 milljónum
króna. í heild var niðurstöðutala
efnahagsreiknings kaupfélaganna
14.112 milljónir í lok 1986.
Sjá nánar C6
Ef það losnar um það haft, sem
nú hefur verið á húsnæðisstjómar-
lánunum, þá eru líkur á að fasteignir
hækki verulega í kjölfar þess, slík
hefur eftirspumin verið. Ég tel hins
vegar, að fólk sé sér almennt ekki
vel meðvitað um, að greiðslbyrði
húsnæðisstjómarlánanna á eftir að
hækka verulega, ef vextimir á þeim
hækka mikið."
„Aðrir fasteignasalar sem Morg-
unblaðið ræddi við tóku í sama
streng. „Yfirleitt hefur innstreymi
eigna aukizt þegar líða tekur á
ágúst, það er vaninn. Nú virðist
vera einhver tappi vera í þessu. Það
kann að stafa af töfínni hjá hús-
næðismálastjóm en einnig af því,
að fólk er hrætt við verðbólguna og
við að eignir eigi af þeim sökum
KAUPFÉLAG Berufjarðar í
Djúpavogi er gjaldþrota en unnið
er að því að ná nauðungarsamn-
eftir að hækka eitthvað á næstunni.
Það bíður því með að selja“, sagði
Jón G. Sandholt hjá Fasteignasöl-
unni Skeifunni.
„Það er mjög líflegt á fasteigna-
markaðinum í dag,“ sagði Sverrir
Kristinsson í Eignamiðluninni. „Það
er lífleg sala á góðum íbúðum og
húsum og eftirspum er góð. Fram-
boð mætti hins vegar vera meira.
Við gerum þó ráð fyrir, að framboð
aukizt að sumarleyfum loknum.
Þannig hefur það aukizt síðustu
daga og á væntanlega eftir að auk-
ast enn í september."
„Eftirspumin er mikil en framboð-
ið lítið og þannig hefur það verið
allt árið,“ sagði Jónas Þorvaldsson
( fasteignasölunni Stakfell. Það er
þó sérstaklega í þriggja herbergja
ingum við lánadrottna. Félagið
fékk greiðslustöðvun 5. janúar
siðastliðinn og gilti hún til 5. júní.
íbúðum, sem eftirspurnin hefur verið
meiri en framboðið allt síðan nýja
húsnæðismálalöggögin var sett. Eg
vil hins vegar engu spá um verð-
hækkanir. Þær ráðast alfarið á
framboði og eftirspurn.
„Framboðið er allt of lítið," sagði
Þorsteinn Steingrímsson í Fast-
eignaþjónustunni. „Það tel ég
byggjast á tveimur atriðum. í fyrsta
lagi þá var mikil sala í vor á grund-
velli lánsloforða frá húsnæðismála-
stjóm. f öðm lagi þá höfum við haft
feiknarlega gott sumar og margur
dregur við sig að setja eignir i sölu
af þeim sökum en bíða eftir haust-
hretinu með slíkar ákvarðanir. Því
býst ég við að ffamboð aukist, þegar
Iíða tekur á haustið."
Um síðustu áramót var eigið fé
orðið neikvætt um tæpar 42 millj-
ónir króna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var reynt að selja selja
eignir kaupfélagsins á síðasta vetri
en það tókst ekki fyrir utan hótel
sem var í eigu þess. Kaupfélag
Bemfjarðar hefur átt við vaxandi
vandamál að stríða, en kaupfélags-
stjóri þess hætti störfum haustið
1986. Kaupfélag Austur- Skaftfell-
inga annaðist slátmn á félagssvæði
Kaupfélags Bemfjarðar á liðnu ári.
Að auki leigði fyrmefnda kaup-
félagið verslun og mjólkurstöð þess
síðamefnda og kaypti vömbirgðir
verslunarinnar.
Skuldir Kaupfélag Bemfjarðar
námu samkvæmt efnahagsreikn-
ingi um síðustu áramót 114,6
milljónum króna, þar af vom
skammtímaskuldir liðlega 80 millj-
ónir króna. Eignir vom bókfærðar
á 72,9 milljónir króna og eigið fé
neikvætt um 41,7 milljónir króna.
Unnið er að því að ná nauðungar-
samningum við lánadrottna, þannig
að 30% af skuldum verði greitt. Þá
liggur fyrir vilji forráðamanna Sam-
bandsins að það og fyrirtæki þess
felli niður almennar kröfur upp á
25 milljónir króna, ef að greiðir
fyrir að nauðasamningar náist.
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga og
Búlandstindur hf. hafa einnig sam-
þykkt að kaupa varanlega rekstr-
aríjármuni Kaupfélag Bemfjarðar
á bókfærðu verði sem er rúmlega
46 milljónir króna. Félögin hafa
sett það skilyrði fyrir kaupunum
að nauðasamningar náist.
Fasteignamarkaður
Mikil eftirpurn en
lítið framboð á fasteignum