Morgunblaðið - 27.08.1987, Page 5

Morgunblaðið - 27.08.1987, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, V1DSK3PTI/AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987 C 5 Tollar Hafa íför gjörbyltingu á vinnubrögðum í verzluninni - segir Árni Reynissson, framkvæmdastjóri Fél. ísl. stórkaupamanna um nýju tollalögin NÝJU tollalögin, sem ganga í gildi 1. september nk., eiga eftir að valda gagngerum breytingum í starfi fyrirtækja í innflutnings- og útflutningsverzlun. Bankastimplunin svo- nefnda verður afnumin, ný tollskýrsla og ný tollverðskýring halda innreið sína og í tengslum við hin nýju lög verður tekin upp ný tollskrá í byrjun næsta árs. Af þessu tilefni sneri Morgunblaðið sér til nokkurra kunnra manna á þessu sviði og spurði þá álits á hinum nýju lögum og þeim breyt- ingum, sem þau eiga eftir að hafa í för með sér. runnar. Tollkrítin og gjaldfrestur eru aftur á moti sitthvað. Erlendur gjaldfrestur var ákveðinn með „Þessar breytingar valda gjör- byltingu á öllum vinnubrögðum í verzluninni. Samt eru ýmsir hlutir, sem eftir er að ákveða framkvæmd á,“ sagði Ámi Reynisson, fram- kvæmastjóri Fél. ísl. stórkaup- manna. „Þar koma fyrst tollkrítin og skipun ríkistollanefndar, sem á að taka við úrskurðarhlutverki í ágreiningsmálum. Þá eru einnig smærri atriði, sem skipa þó miklu máli, eins og heimildir til að senda tollskjöl í telefaxi. Lang stærsta málið eru svo tolltaxtamir sjálfir. Við munum fylgja því fast eftir, að endurskoðun þeirra ljúki með laga- setningu næsta vetur.“ „Það er margs að gæta varðandi nýju tollalögin," sagði Sigurður Jó- hannsson, forstöðumaður Gjaldeyri- seftirlits Seðlabankans. „SÁ misskilningur virðist t. d. kominn upp hjá sumum, að með afnámi bankastimplunarinnar geti fengizt lengri gjaldfrestur á greiðslu vö- var stjómvaldsauglýsingu árið 1980 og honum hefur ekki verið breytt. Af- nám bankastimplunarinnar ein sér breytir því engu varðandi reglumar um erlendan greiðslufrest." „Almennt má segja, að þetta séu miklar framfarir miðað við eldri lög, en þó er þar allt of mikið af reglugerðarákvæðum," sagði Krist- mann Magnússon í PFAFF. „Mér skilst að stjómvöld séu ekki tilbúin þrátt fýrir fimm til sex mánaða tíma með að hafa allar reglugerðir til- búnar, þegar lögin ganga í gildi. Síðan er auðvitað til skammar fyrir stjómvöld að hafa ekki gengið frá seinni hluta laganna, það er að segja á leiðréttingu á tollskránni sjálfri. Hún var aldrei tekin með í marz sl. og henni hefur verið frest- að í mörg ár af órökstuddum og ástæðulausum ótta við að tekjur ríkisins myndu skerðast. Þessi lög breyta því engu um tollana sem slíka heldur eingöngu um tollmeð- ferð. Við munum því búa við sama molbúakerfið áfram hvað varðar toll á vörum." 5) (?) © Á) © © S"\ © © ■3' \ZS s~\ \„/ © /~\ s~\ v.y NÝJUNG — Þetta er nýja stimpilklukkan frá Hug sem býður starfs- fólki góðan dag að morgni og kveður það að kveldi. Hugiir hannar tölvu- vædda sthnpilklukku FYRIRTÆKIÐ Hugur hf. hefur nýverið sett á markað tölvubúað sem ætlað er að leysa af hólmi hefðbundnar stimpilklukkur. „Það hefur lengi verið áhugamál hjá okkur að finna hentugt tæki til að létta af forsvarsmönnum fyrir- tækja þeirri leiðigjömu vinnu sem rýni í mismunandi læsileg stimpil- kort er, “ segir Gunnar Ingimundar- son hjá Hug um þessa nýjung fyrirtækisins. „Hugmyndin með þessu tæki er fyrst og fremst að flýta allri vinnu við launauppgjör og auðvelda um leið allt eftirlit með starfsmannahaldi." Kerfið samanstendur annars veg- ar af stimpilklukkunni sjálfri sem kölluð er Útvörður og hins vegar af Bakverði, viðmiklum úrvinnslu- hugbúnaði fyrir einmenningstölvu. „Við lögðum á það mikla áherslu við hönnun þessa kerfis að það yrði sem þægilegast í notkun. Notendur búnaðar af þessu tagi em iðulega óvanir tölvum og því skiptir miklu að fyrstu kynni þeirra af þeim séu góð,“ segir Gunnar. Skráning með þessu tæki fer þannig fram að starfsmaður skráir númer sitt á lyklaborð og klukkan svarar með því að bjóða góðan dag- inn og birta nafn viðkomandi. Öll gögn geymast í minni Útvarðar en eru síðan reglulega færð yfír á ein- menningstölvu þar sem unnið er frekar úr þeim. Einnig er unnt að tengja kortalesara við Útvörð og þarf þá eingöngu að renna korti um rauf til að stimpla sig inn. Tæki þetta hefur nú verið í notk- un um eins árs skeið hjá vinnufata- gerðinni Max þar sem starfa um 70 manns. ■ „Starfsmönnum hefur flölgað ört hjá okkur á undanfömu árum og eins og víða var vinna við tímasöfnun af stimpilkortum farinn að taka alltof mikinn tíma,“ segir Sævar Kristinsson, framleiðslustjóri fyrirtækisins. „Kerfið sparar okkur nú þessa miklu vinnu og var fljótt að borga sig. Starfsmenn tóku allir þessari nýjung vel og allir eru fegn- ir að hafa losnað við stimpilkortin. Opinber stjórnsýsla „Stofnanir verða að vera í sífelldri endurskoðun “ Rætt við Skúla Guðmundsson, forstöðu- mann Framkvæmdadeildar Innkaupa- stofnunar ríkisins í tilefni skipulags- breytinga hjá stofnuninni Umsjón: Árni Sigfússon, Leifur Eysteinsson og Bjarni Ingvarsson Nýlega voru gerðar skipulags- breytingar hjá Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins. Mark- miðið með breytingunum var fyrst og fremst að tryggja það að farið væri að lögum í sambandi við opin- berar framkvæmdir. i framhaldi af störfum nefndar sem skipuð var árið 1984 var lögð fram breyting á frumvarpi til laga um opinberar framkvæmdir á Alþingi haustið 1986. Breytingarnar fengust ekki samþykktar. í framhaldi af því var ákveðið að endurskipuleggja Fram- kvæmdadeildina, en sú stofnun sér að mestu leyti um framkvæmd lag- anna frá 1970. Markmiðið með breytingunum var, eins og nefnt var í byrjun, að gera Framkvæmdadeildinni kleift að starfa í anda laganna um opin- berar framkvæmdir frá árinu 1970. Samkvæmt lögum fer Fram- kvæmdadeildin með yfirstjórn verklegra framkvæmda allt frá því að undirbúa útboð, meta þau, hafa eftirlit með verklegum framkvæmd- um og síðast að koma frá sér skilamati á framkvæmdinni. Við ræddum við Skúla Guðmundsson, forstöðumann Framkvæmdadeildar Innkaupastofnunar um þessar breytingar. Langur aðdragandi Skúli var fyrst spurður hver að- dragandinn hafl verið að þessum breytingum. Skúli sagði að fyrsta tilraunin til að breyta lögunum frá 1970 hafi verið gerð árið 1974. Þá hafí fyrsta nefndin verið sett á lag- gimar af þáverandi Qármálaráð- herra. Niðurstaðan þá varð að það væri engin ástæða til að breyta. Þá voru það sveitarfélögin sem voru óánægð. Skúli hélt áfram og sagði: „Það er ekkert vafamál að frá því að lögin vom sett vom ýmsir óán- ægðir með sinn hlut. Þeim fannst að lögin væm þeim fjötur um fót. Samt hefur það verið þannig að þrátt fyrir óánægju með lögin þá em þau það góð að engar raun- hæfar tilraunir hafa verið gerðar til breytinga þar til nefndin var sett á stofn árið 1984. Nefndin frá 1984 var skipuð vegna þess að til- laga kom fram á Alþingi þess efnis að leggja ætti Framkvæmdadeild- ina niður ásamt nokkmm öðmm stofnunum. Útfrá því var skipuð nefnd til að endurskoða þennan þátt ríkisrekstrar. Nefndin skilaði af sér sumarið 1986 og í framhaldi af því var lagt fram fmmvarp um breytingu á framkvæmdamálum ríkisins. Lögin gerðu ráð fyrir breytingum sem ollu starfsmönnum miklum áhyggjum og var ástandið orðið slæmt hjá okkur þennan vet- ur. Fmmvarpið náði hinsvegar ekki fram að ganga og liggur það satt að segja í lausu lofti núna.“ Skúli sagði einnig: „Eftir þetta þurfti að taka einhvem veginn á málum Framkvæmdadeildar og var ráðist í endurskipulagningu deildar- innar. Til þess var fenginn starfs- maður fjárlaga-og hagsýslustofn- unar og vann hann verkefnið á stuttum tíma. Það var nauðsynlegt að koma lagi á þetta þar sem starfs- andi var ekki góður, mikil óvissa ríkti meðal starfsmanna um fram- tíðina. Augljóst var að það þurfti að bæta þjónustu deildarinnar og stefna markvissara að því að þjóna því hlutverki sem deildinni er ætlað í lögum." Samráð við starfsmenn Aðspurður um það hvemig hafi verið staðið að breytingunum sagði Skúli: „Fullt samráð var haft við starfsmenn deildarinnar og verkið var unnið í samvinnu við starfs- menn og stjómendur. Hlutverk deildarinnar var skilgreint og fjallað á opinskáan hátt um hvað farið hefði úrskeiðis og kannaðar leiðir til að gera betur. Eina leiðin sem virtist fær var að fá einhvem utan- aðkomandi aðila til að fjalla um málið. Okkur hefði ekki tekist þetta nema að ýtt væri á utanfrá." Skúli sagði það augljóst mál að það væri erfitt að hugsa um slík málefni þegar álagið er mikið í því sem deildin á að gera. Aðferðin sem var notuð hafi boðið upp á það að starfs- mönnum fannst þeir sjálfír vera meira virði en þeim fannst áður. Þeir hafí haft sitt að segja um rekst- urinn og hvemig hægt væri að bæta og breyta. Skúli hélt áfram og sagði: „Eg held að það hafi ver- ið tekið tillit til þeirra óska í þessum efnum. Menn fengu tækifæri til að segja hug sinn, það má segja að það hafí beinlínis verið ætlast til þess af þeim.“ Virkari stjórnun, bætt þjónusta Skúli var spurður um helstu breytingar. Hann sagði niðurstöð- una hafa verið þá að samþykkt hafí verið breyting á skipulagi deild- arinnar sem gilda eigi í eitt ár til reynslu. Skúli hélt áfram og sagði: „Þetta ár verður síðan notað til að endurskoða reksturinn enn betur og til að reyna þetta nýja skipulag. Tilgangur breytinganna er að gera stjómun og rekstur allan virkari. Stofnunin getur boðið upp á viðtæk- ari þjónustu þar sem markmiðið er að auka upplýsingaflæði og spara fé. Ráðinn verður sérstakur hönn- unarstjóri sem verður til þess að við getum veitt ráðgjöf og aðstoð í sambandi við hönnun og samninga þannig að öll gögn verði betri og markvissari. Einnig var stofnað starf verkefnastjóra til að hafa betri yfírsýn yfír eftirlit með verklegum framkvæmdum. Þetta leiðir til þess að skipting verkefna milli manna verður meiri og álagið dreifíst. Með breytingunum er hægt að spara tíma, fyrirhöfn og peninga." Þess má geta hér að verkefnastjóri var ráðinn Hörður Kristjánsson sem hefur mikla reynslu á þessu sviði. Einnig var starf fjármálastióra eflt til muna og var Baldur Olafsson ráðinn til þeirra starfa. Þetta verður til þess áð öll fjármálastjórnun er á hendi fjármálastjóra sem er breyt- ing frá því sem áður var. Skúli sagði að með þessu yrði upplýsinga- flæði innan stofnunar virkara þannig að starfsmenn viti betur hvað er að gerast. Auk þessa verði upplýsingaflæði út úr stofnuninni betra og skráning upplýsinga verði markvissari. Bætt stjómun skilaði sér í betri vinnubrögðum þannig að þjónusta við ráðuneyti og lands- byggðina batnar. Markmiðið er því betri stjómun og betri þjónusta til að spara peninga. Skipurit g-ildi í ár Skúli var spurður um framhaldið: „Eins og ég sagði áðan þá gildir þetta skipurit í eitt ár til reynslu. Við reynum að fylgjast með því hvemig það virkar og gerum tillög- ur til úrbóta. Skipuritið verður síðan endurskoðað að ári liðnu og þá sjáum við hvað setur. Stofnanir eins og Framkvæmdadeildin verða að vera í sífelldri endurskoðun til að geta boðið upp á góða þjónustu sem verður til að auka hagræðingu og spamað í ríkisrekstri," sagði Skúli Guðmundsson forstöðumaður að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.