Morgunblaðið - 04.09.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987
9
Sumarhús í Borgarfirði
Nýlegur 4-6 manna bústaður með öllum þægind-
um til leigu.
Stangaveiði og gott berjaland í nágrenninu.
Upplýsingar í síma 93-51426.
NÝI W&KÓUNN
Innritun hefst
mánudaginn
7. sept.
Innritun og upplýsingar
virka daga kl. 13-19.
Simar 38830 og 51122.
F.Í.D.
Benz sendibílar
209-D '86 m/gluggum. 309-D ’85.
309-D ’85 m/15 sætum. 207-D ’85.
309-D ’84. 307-D ’78 m/15 sætum.
307-D '78 m/stöðvarleyfi.
Kassabílar með lyftu og leyfi. Japanskir sendibílar
í úrvali. Rútur o.fl. o.fl.
við Miklatorg sími 15014-17171
Albert stóð
ekki við orð
sín
f þessu viðtali við Þor-
stein Pálsson er m.a.
eftirfarandi kafli nm
samsldpti bans við Albert
Guðmundsson, þegar
forsætísráðherra er
spurður, hvað hafi komið
honum mest á óvart f
þeim samskiptum. Hann
segin „Sennilega, að Al-
bert Guðmundsson skyldi
ekki standa við orð sín.
í þessu uppgjöri lagði
hann á það gífurlega
áherzlu, að ég tryggði
honum efsta sætið á
framboðslista flokksins f
Reykjavík, þótt hann
segði af sér ráðherra-
dómi. Að hans beiðni
gekk ég í það að hafa
áhrif á stjórn fulltrúa-
ráðsins f Reykjavík. Hún
var að langstærstum
hluta andvig þeirri
beiðni, en mér tókst að
fá í gegn samþykki henn-
ar, sem kostaði geysilegt
átak. Mér kom þvi nýög
á óvart, að Albert skyldi
ekki standa við orð sín
og kfjúfa Sjálfstæðis-
fiokkinn. Það kom svo á
daginn, að það varð mér
til tjóns, að hafa sýnt
honum langlundargeð og
umburðarlyndi. Og hann
beit höfuðið af skömm-
inni, þegar hann sakaði
mig um tvöfalt siðgæði
fyrir að verða við þeirri
ósk hans að tryggja hon-
um stuðning stjórnar
fulltrúaráðsins við
áframhaldandi setu hans
á listamun."
Ráðherrastóll
Þegar Þorsteinn er
spurður um aðdraganda
þess, að hann tók sæti i
ríkisstjóm haustið 1985
kveðst hann hafa verið
staðráðinn i þvf að fara
ekki inn í þá gömlu stjórn
og segir síðan: „Ég taldi
heppilegra fyrir mig per-
sónulega að koma að
SJUl
Ævintýri á póli-
tískri gönguför?
Tímaritið Mannlíf birtir í nýútkomnu tölu-
blaði samtal við Þorstein Páisson,
forsætisráðherra undir fyrirsögninni
„Ævintýri á póiitískri gönguför". Þar ræð-
ir Þorsteinn m.a. uppgjör sitt og Sjálf-
stæðisflokksins við Albert Guðmundsson
og víkur að ýmsum öðrum málum svo
sem gagnrýni Morgunblaðsins á ráð-
herraval Sjálfstæðisflokksins og öðrum
þáttum í starfsemi flokksins.
slíku verki eftir að hafa
sjálfur leitt fiokkinh i
stjómarmyndunarvið-
ræðum. En eftír verkfall
opinberra starfsmanna
haustíð 1984 sem auðvit-
að varð að mestu leytí til
vegna klúðurs af hálfu
þess ráðherra, sem fór
með samningamálin i
rfldsstjóminni, þá var
óþjákvæmilegt að ég
gripi inn f. Það gekk
ekki þrautalaust." Þann-
ig að þú ferð inn í rflds-
stjómina tílneyddur, til
að leiðrétta mistök Al-
berts Guðmundssonar og
koma honum burt úr
fjármálaráðuneytinu?
„Já, á vissan hátt. Ella
hefði ég haldið minu
striki ..."
Ráðherrastóll
Matthíasar Á.
Síðar i samtalinu er
forsætísráðherra spurð-
ur um aðild Matthiasar
Á. Mathiesen að rflds-
stjórainni. Sá kafii er
svoh\jóðandi: „Hótaði
Matthias Á. Mathiesen
stríði í kjördæminu, ef
hann yrði ekki r&ðherra
áfram?
„Hann hótaði engu,“
svarar Þorsteinn, „en
hann sóttist n\jög fast
eftír þvi að verða áfram
ráðherra vegna kjör-
dæmisins. Og það gerðu
fleiri."
Hefur ekki Matthfas
með þessu andófi veikt
þina stöðu og grafið und-
an þvi valdi, sem þing-
flokkurinn hafði afsalað
sér í hendur formanns?
„Þótt ég hafi talið
óþjákvæmilegt að for-
maður fiokksins fengi
þetta verk i sinar hendur
á ný teldi ég fráleitt að
láta emstrengingslegan
geðþótta ráða þeirri
ákvörðun . . . Þótt end-
uraýjun hafi mfldð gildi
þá hefur það einnig gildi
að hafa innanborðs mann
eins og Matthias, sem
kom inn f þingflokkinn
fyrir Viðreisn og tengir
þannig saman gamla og
nýja tima . . . Aðalatrið-
ið er auðvitað að sjaldan
hafa orðið jafn skörp
endurnýjunarskil í ráð-
herraliði. Einmitt þess
vegna hefur það valdið
nokkram sárindum.
Skrif Morgunblaðsins um
ráðherravalið lýstu þvi
ekki venjulegri hófstíll-
ingu og skarpskyggni
þess.““
Er Morgnn-
blaðinu 1 nöp
við varafor-
manninn?
Síðan segir i viðtali
Mannlffs við Þorsteín
Pálsson: „Það hefur ver-
ið gagnrýnt, ekki sfzt af
Morgunblaðinu, að nefnd
sú, sem forysta Sjálf-
stæðisflokksins setti á
laggirnar til að leita
skýringa á óförum
fiokksins í kosningunum
sé leidd af varaformanni
hans, þ.e. að forystan
hafi þar gerst dómari i
eigin sök. Þorsteinn vísar
þessari gagnrýni & bug.
Nefndinni hafi aldrei
verið ætlað að finna
sökudólga eða algilda
lausn. Henni hafi verið
ætlað að koma af stað
umræðu innnn flokksins.
„Ég leit svo á,“ segir
hann, „að það væri
skylda forystunnar að
ýta þessu starfi úr vör —
að virkja flokldnn til að
hugsa um þetta verkefni.
Það verður að segjast
eins og er, hvað gagnrýni
Morgunblaðsins varðar,
að vinnm minnm þar er
svolftíð í nöp við vara-
formann fiokksins. Ég
held, að þar sé undirrótin
að þessari gagnrýnL““
Hver verður
eftirmaður
Þorsteins?
Loks er Þorsteinn
Pálsson spurður nm
hugsanlegan eftírmann
hjuin i formennsku Sjálf-
stæðisflokks og hvort
Davið Oddsson borgar-
stjóri verði sá maður.
Hann segin „Já, ég vildi
nýög gjarnan, að hann
tæki við af mér. Það
gætí varaformaðurinn
lika gert. Svo er ekki
ólfldegt, að yngri konur
kæmu þar tíl ólita, svo
sem Inga Jóna. Davíð er
að minu matí ákaflega
sterkur og skemmtílegur
pólitíkus. Og góður vin-
ur. Ég taldi, að hann
hefði átt að fara i for-
mannsframboð á þeim
landsfundi, sem síðan
kaus mig. Hann var ekki
tílhiiinn til þess þá vegna
stöðu sinnar sem borgar-
stjóri. Ef hann hefði
gefið kost á sér, hefði ég
ekki farið i framboð. Við
höfðum um þetta náið
samráð á sinum tíma.
Reyndar hafði Geir
Hallgrfmsson samráð við
okkur báða um hvor okk-
ar færi f ram, þegar hann
hættí.“
afsláttur á lambaframpörtum
\
<
CD
e
t=
Ljúffengur biti á lágu verði
Gerðu góð kaup þegar þú átt leið í næstu matvörubúð og fáðu þér lambaframpart frá Sláturfélaginu með 10% afslætti.
SLÁTURFÉLAG
<§£
SUÐURLANDS