Morgunblaðið - 04.09.1987, Side 16

Morgunblaðið - 04.09.1987, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987 1500 á mánuði. 2000 útborgun Rotel 1080 rafeindastýrð kr. 11.900, staðgreidd 11.300. Rotel 1060 rafeindastýrð kr. 10.900, staðgreidd 10.355. Rotel 1030 stillanlegt sog kr. 8900, staðgreidd 8450. Svissneskar glæsilegar ryksugur. Láttu sumartilboðið ekki fara fram hjá þér. Einar Farestveit &Co.hf. Borgartúni 28, simi 91-622900. Flugvellir og ferðamál eftirHalldór Jónsson Þegar maður virðir fyrir sér Ak- ureyri frá Vaðlaheiðarhlíðum á fögrum sumardegi, þá getur maður ekki annað en dáðst að því, hvemig vandamálin hafa verið leyst þama með fyllingunni og brúnum yfir pollinn. Fyrir innan liggur flugbrautin, sem er nú um 1.940 metra löng og 30 metra breið. Til þess að hún geti tekið við stærstu flugvélum, þyrfti hún að vera um 3.000 metra löng og 60 metra breið. Væri hún það, þá gæti Akureyrarflugvöllur verið varaflugvöllur fyrir milli- landaflugið. En slíkur flugvöllur krefst ýmissar þjónustu, sem nægt framboð er af á Akureyri. Þegar ég virti þetta fyrir mér af Vaðlaheiðarhlíðum einn dýrðleg- an veðurdag í sumar, þá datt mér í hug, hvort ekki væri ráð að lengja flugbrautina í gegn um þjóðveginn út í pollinn og breikka hana um leið. Þessi endi þyrfti ekki að vera í notkun nema þegar mikið stæði til. Þá mætti einfaldlega loka vegin- um með bómum sitthvoru megin, eins og tíðkast við jámbrautarspor, rétt á meðan stórþotan lendir. Síðan er allt sem fyrr og Akureyringar geta notað spottann þess á milli sem kvartmflubraut eða eitthvað þess háttar. Hin venjulega flugumferð myndi nota núverandi völl í sinni mynd. Þar sem þess flugvöllur yrði ekki notaður nema til vara, þegar Keflavík væri lokuð vegna veðurs og þá betra veður á Akureyri, þá sýnist ekki þurfa að óttast aðflugið svo mjög, þó vissulega sé það í þrengra lagi fyrir ókunnuga. En það er ekkert verra en á mörgum flugvöllum erlendis, t.d. í Innsbruck og Hong Kong. Þama virðist vera möguleiki á því að leysa varaflug- vallardæmið á ódýran hátt. __ Þetta breytir ekki því, að íslend- ingum er mikil nauðsyn á að koma einnig upp góðum og stórum flug- velli á Egilsstöðum, bæði sem varaflugvelli og sem miðstöð fyrir björgunar- og eftirlitsflug. Frá Eg- ilsstöðum yrði styst fyrir vamarliðið að fljúga í veg fyrir Rússann, þegar hinar nýju radarstöðvar okkar og NATO verða þeirrar varar. Mætti segja mér, að það eitt myndi spara vamarliðinu ómældar fjárhæðir í eldsneytiskostnað einungis, þar sem þama styttist flugleiðin á hveija þotu um 450 sjómflur á hvert út- kall, vegna umferðar fyrir Austur- landi. Sá kostur sem aðsetur björgunarþyrla og eldsneytisvéla á Egilsstöðum hefði í för með sér fyrir öryggi sjómanna á hafinu fyr- ir austan land, verður ekki mældur. Nægir að nefna Synetu- og Suður- landsslysin til þess að átta sig á þýðingu þess, að sem styzt sé í björgunarsveitir þegar hættu ber að höndum. Uppbygging flugvalla landsins er því eitt brýnasta byggðamálið, sem við höfum við að glíma í dag. Aðeins með greiðum samgöngum Halldór Jónsson „Uppbygging flugvalla landsins er þvi eitt brýnasta byggðamálið, sem við höfum við að glíma í dag. Aðeins með greiðum samgöngum getum við byggt þetta land. A samgöngumál í lofti, á láði og legi, verður því að leggja höfuðáherzlu til þess að þegnar landsins geti staðið sem jafnast að Vlgl.“ getum við byggt þetta land. Á sam- göngumál í lofti, á láði og legi, verður því að leggja höfuðáherzlu til þess að þegnar landsins geti stað- ið sem jaftiast að vígi. í Kvöld ki.21 Valgeir Guðjónsson * * \ Mf * i ¥ Hveragerði. Valgeir Guðjónsson heldur tónleika 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.