Morgunblaðið - 11.09.1987, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 11.09.1987, Qupperneq 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987 HELGIÞORGILS FRIÐJÓNSSON, MYNDLISTARMAÐUR: (Morgunblaðið/Einar Falur) Á KJARVALSSTÖÐUM og í Gallerí Svart á Hvítu stendur nú yfir sýning á verkum Helga Þorgils Friðjónssonar, myndlist- armanns. í Galleríinu sýnir Helgi grafík, vatnslitamyndir og olíupastel, en á Kjarvalsstöð- um, sýnir hann olíumálverk í austursal hússins. Helgi er fæddur árið 1953. Hann var við Myndlistar— og handíðaskóla íslands árin 1971 til 1976. Eft- ir það lá leiðin til Hollands, þar sem Helgi dvaldi við nám árin 1976 til 1979. Hann hefur hald- ið fjölda einkasýninga víða um heim, meðal annars í Haarlem, Luzern, Syracusa, Stokkhólmi, Z“urich og Malmö og tekið þátt í mörgum einkasýningum, þar á meðal Biennale de Paris, í San Fransiskó, Amsterdam, Lundi, New York og í Kóreu. Að sjógðu hefur Helgi einnig haldið sýn- ingar í Reykjavík. Hann er jú Eg lifði æsku mína að mestu í Búðardal," segir Helgi. „Foreldr- ar mínir bjuggu þar. En ekki bara í Búð- ardal, því égvar alltaf í svein í Dölunum á sumrin, fram að tvítugsaldri. Þannig að ég er svolítill sveitamaður. Reyndar hef ég alltaf lagt áherslu á að vera Dalamaður. Enn þann dag í dag vinn ég mikið þar á sumrin. Ég hef þar vinnuaðstöðu á eyðibýli. Maður sækir einhvemveginn alltaf á æsku- slóðimar aftur. Eins og laxinn." Ertu laxveiðimaður? „Nei, ég hegða mér bara eins og hann. Reyndar var ég alltaf í sveit við eina mestu laxveiðiá landsins, á Höskuldsstöðum við Laxá í Lax- árdal. Þangað sem komu frægir leikarar til að veiða, eins og Bing Crosby. En ég vissi ekkert hvaða fólk þetta var. Það var nú svo með frægðina. Hún náði ekki vestur í Dali. Ég var alltaf mikið einn með sjálfum mér. Ég lék mér mest við læk á Höskuldsstöðum þar sem Höskuldur á að hafa uppgötvað málið hjá Melkorku. Þar lék ég mér með leggi, stundaði mikinn fjárbú- skap. Ég ætlaði um tíma að verða bóndi og listamaður, en svo sá ég að það færi illa saman. Búðardalur er aðallega miðstöð fyrir sveitimar í kring og atvinnulífíð er mest í kringum sláturhúsið og kaupfélag- ið. Þannig var þetta líka þegar ég var að alast upp. Ég gekk í skóla í Búðardal til 12 ára aldurs, en flutti þá í Stykkis- hólm. Ég hélt þó áfram að vara í sveit á Höskuldsstöðum, og síðan Breiðabólsstað á Fellsströnd, á sumrin. Mérfínnst mikill kostur að hafa verið í sveit sem bam og ungl- ingur. Það kemur manni að miklu gagni í vinnuserni í dag. Ég vann alla daga með eldri manni. Kannski vorum við allan daginn að grafa holur fyrir girðingastaura. Maður lærði mikla þolinmæði. Allavega vorkenni ég í dag þeim bömum sem maður sér á götunum og hafa ekk- ertað gera. Ég var í Stykkishólmi til 15 ára aldurs. Þá kom ég til Reykjavíkur og var einn vetur í Verslunarskólan- um. Hann átti ekki við mið, en ég þurfti að bíða í eitt ár eftir að kom- ast í myndlistarskólann og ég held satt að segja að ég hafí verið þama í Versló afþví ég nennit ekki að vinna í eitt ár. Það kom nokkuð snemmað að ég ætlaði að verða eitthvað á lista- sviðinu. Lengi framan af vissi ég ekki hvort ég vildi verða rithöfund- ur eða myndlistarmaður. Ég var alltaf að skrifa og teikna. Þetta var alveg frá byijun. Frá fæðingu held Helgi Þorgils Friðjónsson ég, svei mér þá. Hinsvegar var það ekki fyrr en upp úr 15 ára aldri að ég áttaði mið á því að menn vom eingöngu listamenn. Ég hafði alltaf haldið að menn væru eitthvað annað með, til dæmis bændur. Til dæmis var Stefán frá Hvúitadal, bóndi úr nágrenninu. Á tímabili orti ég undir áhrifum frá honum. Um tíma hvarflaði að mér að verða prestur úti á landi, afþví þeir hefðu svo lítið að gera. Sennillega hefurþað verið mesti miksskilning- ur hjá mér. Þeir hafa örugglega nógaðgera." Hélstu kannski að það yrði snúið að lifa eingöngu af listinni? „Nei, ég hef aldrei haft áhyggjur af því. Persónlulega leiðist mér allt- af þegar fólk er að kvarta og kveina. Maður ákveður þetta sjálfur og I verðuraðtakaþvísemaðhöndum ber. Reyndar hefur þetta ekki verið auðvelt fjárhagslega, en maður lifír engu Van Gogh lífí lengur. Ef mað- ur hugsar til hans og fleiri meistara, ætti maður ekkert að kvarta." Finnst þér listamenn á íslandi bara hafa það gott? „Ég held að hjá sumum sé þetta mjög auðvelt. Ef fólk metur það sem maður gerir, er auðveldara að vera hér en annars staðar. Ég tek það fram að ég er ekki í þeim hópi. En hér kaupir almenningur mikið af myndum. Ég, persónulega, fæ meiri pening fyrir myndir mínar erlendis frá, en hér heima. Ég sendi myndir mjög reglulega út, bæði á einkasýningar og á samsýningar. Eftir jólin verð égtil dæmis með einkasýningar í Malmö, Z“urich, Helsinki og hugsanlega í Kaup- mannahöfn." En svo við snúum okkur að myndunum þínum. Það sem kem- ur manni fyrst á óvart er að þær eru flestar af karlmönnum og dýrum í framhaldi af einhvers konar karlmennsku, til dæmis hestar og kentárar. Ertu að tjá þig um stöðu karlmannsins í heiminum í dag? „Já, ég held að þetta sé að megn- inu til sjálfsskoðun og svo um- hverfisskoðun í gegnum sjálfan mig. Ég er ekki að hugsa um stöðu karlmannsins út af fyrir sig. Ég skoða stöðu manneskjunnar yfír- leitt. En ég er ekki að gagnrýna neitt. Ég mála hlutina eins og þeir eru. Þetta er meira sálfræði. Fyrir mér eru þetta allt tákn. Dýrin þurfa ekki að taka þátt í þjóð- félaginu og njóta því viss frelsis. Að mörgu leiti eru þetta trúarlegar myndir og ég get skýrt það pínulí- tið með því að í dag skiptir engu máli hvort þú ert trúaður eða ekki, vegna þess að allt gengur út frá þessum kristna þætti, lög og annað sem maðurinn þarf að lifa eftir. Ekki svo að skilja að mér fínnist lifandi trú óþörf í dag. í mér er einhver trúþáttur, en þetta er eitt- hvað sem hver og einn verður að gera upp við sig. Mér leiðast slag- orð um trúnna, sem hafa ekkert á bak við sig. sjálfur þekki ég ekkert kerfí sem er betra en trúin, svo mér finnst óþarfí að eyða henni. Hún er oft góð sem eintal við sálina. Allavega vona ég að mjmdimar mínar gefí frá sér einhvem straum upphafningar, frekar en að fólki fínnist þær ljúfar og fallegar. Upp- hafningu eins og náttúran getur líka gefíð okkur."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.