Morgunblaðið - 13.09.1987, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 13.09.1987, Qupperneq 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1987 Safnastofnun Austurlands: Minjasafnið að Burstar- felli endurbætt Viðgerð á Dalatangavita lokið GAGNGERAR endurbætur hafa verið gerðar á minjasafninu að Bustarfelli í Vopnarfirði og við- gerð á Dalatangavita lauk í sumar. Gestum Sjóminjasafnsins á Eskifirði fjölgaði úr 686 í 1083 á árinu en opnunartimum var fjölgað og koma skólabarna var tíðari. Úr Þjóðhátíðarsjóði var veitt kr. 135.000 til viðgerða á Löngubúð á Djúpavogi en heima- menn hafa að auki aflað kr. 60.000. Stefnt er að ljúka viðgerð hússins fyrir 400 ára verslunar- afmæli Djúpavogs árið 1989. í ársskýrslu Safnastofnun Aust- urlands kemur fram að 956 gestir komu að Burstarfelli á síðasta ári. Eftir gagngerar endurbætur á bæj- arhúsunum voru vistarverur opnaðar til sýnis sem áður voru lokaðar vegna skemmda. Viðgerð verður haldið áfram á næsta ári og áfram þar til allur bærinn er kom- inn í viðunandi horf. Upplýsingar um safnið liggja nú frammi í hveiju herbergi með helstu söguatriðum, aldur, notkun og fleira. Þá liggja frammi einblöðungar á þremur tungumálum með sögu bæjarins og búseta. Gestir Náttúrugripasafnsins í Neskaupsstað voru 750 árið 1986 en það var opið daglega yfir sumar- tímann og er talsvert notað við kennslu á vetuma. Þar eru nú um 100 tegundir uppstoppaðra fugla, álíka mikið af skeljum og sniglum, villt íslensk spendýr, lífverur af sjávarbotni, berg- og steintegundir og steingervingar auk uppstopp- aðra físka. Skólaböm hafa sótt byggðasafn Austur- Skaftafellssýslu í ríkari mæli á síðasta ári. Gott samstarf hefur verið milli Byggðarsafnsins og hins nýja skjalasafns og hafa starfsmenn þeirra uppskorið margt verðmæta í sameiningu. Safnið á í erfíðleikum með geymsluhúsnæði og sýningaraðstaðan er fullnýtt. Á næsta ári verður sótt um styrk til byggingar geymsluskála og í ráði er að koma brunavömum safnsins í gott lag. Sótt hefur verið um friðun á fundarhúsi Lónmanna frá árinu 1912. Hefur verið ákveðið að bjarga húsinu, gera við það eftir þörfum og helst að fá því sitt gamla hlut- verk sem samkomuhús. Þá hefur verið ákveðið að hefja viðgerð á Stafafellskirkju. Á vegum Safnastofnunar Aust- urlands var unnið að fomleifagreftri á tveimur stöðum. Grafið var kuml úr heiðni og gerð frumrannsókn á fornri tótt á Berunesi í Reyðarfirði. Þeirri rannsókn lýkur næsta sumar. Boðað var til vinnudaga við Byggðasafnið á Höfn en Sólveig Georgsdóttir þáverandi safnakenn- ari við Þjóðminjasafnið hafði kynnt starfsemi sína grunnskólakennur- um á Austurlandi. Unnin voru verkefni af ýmsu tagi auk þess sem fram komu margar hugmyndir um notkun á safninu við kennslu. Hefur tvisvar verið farið með muni af Minjasafni Austurlands í skóla á Egilsstöðum og í Fellabæ og börn- um sagt frá gömlum dögum. Annað skiptið fyrir jól og seinna áður en þau fóru í vorferð að skoða kuml- stæði sem rannsakað var á síðast- liðnu ári. í samvinnu við Sögunefnd Egils- staðarhrepps var sett upp söguleg ljósmyndasýning í Valaskjálf á 40 ára afmæli hreppsins í vor. Þá að- stoðaði safnastofnuni við uppsetn- ingu sýninga vegna 200 ára afmælis Eskifjarðar á síðastliðnu ári. (Úr fréttabréfi) Nýr skóla- sijóri við Tón- listarskóla Rangæinga TÓNLISTARSKÓLI Rangæinga verður settur 1. október nk. og verður skólastarfið með svipuð- um hætti og undanfarin ár. Sigríður Sigurðardóttir hefur látið af störfum sem skólastjóri og i hennar stað hefur verið ráð- inn Helgi Hermannsson. Hefur hann verið kennari við skólann um árabil. Auk Sigríðar hafa látið af störf- um Friðrik G. Þórleifsson og Margrét Tryggvadóttir kennarar. Einhveijar breytingar verða á stundakennaraliði skólans, en Kjartan Ólafsson mun sjá um söng- deild skólans. Japanskar skylmingar IAIDO — KENDO — JODO Þriggja mánaða námskeiðfyrir byrjendur hefst 22. septembernk. Upplýsingarog skráning hjá SHODUKAN-félaginu á íslandi í sima 33431 og 38111. FRYSTI-0G KÆLIKLEFAR tilbúnir á mettíma Nú getum við einnig boðið léttari og ódýrari einingar sem henta mjög vel í minni kæliklefa. Þær einingar eru úr 55 mm þykkum einingum og með k-gildi 0,37 Úr Barkar einingum færð þú frysti- og kæli- klefa af hentugri stærð, níðsterka, þægilega að þrífa, auðvelda í uppsetningu og einangr- aða með úreþan, -besta einangrunarefni sem völ er á. Hentug grunnstærð á einingum margfaldar notagildi klefanna þannig að þeir reynast frábær lausn fyrir verslanir, fiskvinnslur, Hringið eða skrifið eftir frekari upplýsingum Barkar frysti-og kæliklefar leysa vandann víðar en þig grunar kjötvinnslur, mötuneyti, veitingahús, hótel, heimahús og alls staðar þar sem þörf er á Vandaðri geymslu til kælingarogfrystingar. Krókalæsingar, einfaldar en sterkar tryggja skjóta og trausta uppsetningu. Níðsterk klæðning með plasthúð auðveldar fullkomið hreinlæti. BÖRKURhf. HJALLAHRAUNI 2 SÍMI 53755 PÓSTHÓLF 239 • 220 HAFNARFIRÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.