Morgunblaðið - 13.09.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1987
B 27
Ásgeir
fjallkóngur.
Morgunblaðið/Sig.Sigm.
Fagnaður með
fjallkóngi
Hrunamanna
Sungið af innlifun, frá vinstri:
Stefán Jónsson á Hrepphólum,
Brynjólfur Guðmundsson á
Núpstúni, Guðmundur Stefáns-
son í Skipholti, Sigurgeir
Sigmundsson á Grund, og Hjalti
Gunnarsson í Fossnesi.
Fjallkóngur Hrunamanna, Ásgeir Gestsson, bóndi á Kaldbak, varð
fimmtugur þann 27. ágúst sl., og var afmælinu slegið saman við
vígsluhátíð á nýju, veglegu húsi fyrir fjallmenn á Geldingatanga, skammt
norðaustan við Laxárgljúfur. Fjöldi fólks tók þátt í gleðinni, enda fjallkóng-
urinn vinsæll maður og glaðsinna, og var mikið sungið, því Hrunamenn
eru rómaðir söngmenn.
Hrunamenn hafa það stundum á orði að Ásgeir sé eins konar Bjartur
í Sumarhúsum þessarrar aldar, en jörð hans, Kaldbakur, liggur ofarlega
upp með Stóru-Laxá, og er ein afskekktasta jörð á Suðurlandi, og er
nokkuð harðbýlt þar. Ásgeir er fjárglöggur með afbrigðum, og kann öll
mörk á Suðurlandi utanbókar.
Siobhan Fahey (t.v.) í
blómakjólnum, og Dave
Stewart koma út úr
þorpskirkjunni í Dangui.
Poppbrúðkaup
ársins
að var mikið um dýrðir þegar
poppstjörnurnar Dave Stew-
art, gítarleikari Eurythmics, og
Siobhan Fahey úr Bananarama létu
pússa sig saman í smábænum
Dangui í Normandí-héraði í Frakkl-
andi um daginn. Sérstaklega vakti
brúðarkjóllinn mikla athygli, en Si-
obhan saumaði og blómskreytti
hann sjálf, væntanlega til að reyna
að tjá tilfinningar sínar á þessarri
hátíðarstundu á sýnilegan máta, en
einnig til að fela væntanlegan frum-
burð þeirra hjóna, sem á að koma
í heiminn núna í nóvember.
Það gekk samt ekki með öllu
átakalaust að koma brúðkaupinu
um kring, því að miklar deilur risu
milli þeirra Daves og Siobhanar um
hver ætti að vera svaramaður við
athöfnina. Dave vildi fá Bob Gel-
dof, hinn aðlaða söngvara og
Afríkutónleikaskipuleggjanda, til
að gegna þessu heiðurshlutverki -
en Dave var svaramaður við brúð-
kaup Bobs og Paulu Yates - en
Siobhan er eitthvað upp á kant við
Bob, og sagði að ef hann yrði svara-
maður yrði Dave að gjöra svo vel
að finna sér aðra brúði. Dave varð
að láta undan þessum úrslitakost-
um, en Bob fékk þó að koma sem
óbreyttur veislugestur.
Dave er 35 ára gamall, og sló í
gegn í byrjun þessa áratugar með
hljómsveitinni Eurythmics, ásamt
söngkonunni Annie Lennox. Annie
á að hafa sagt um Dave þegar hún
sá hann í fyrsta skipti, að hann liti
út eins og hann hefði verið dreginn
á afturlöppunum í gegnum lim-
gerði, en allt um það þá áttu Dave
og Annie í ástarsambandi í 5 ár.
Dave kynntist síðan hinni 26 ára
gömlu Siobhan í fyrra, með fyrr-
greindum afleiðingum. Hann vinnur
nú með Mick Jagger að gerð sóló-
plötu hins síðamefnda, en hún ætlar
sér að taka það rólega á næstunni
og helga sig baminu eins mikið og
hún getur.
COSPER
— Píparinn kemur ekki fyrr en eftir klukkutíma.
BÍLLINN
OG RAKKINN
Fyrir hálfu ári síðan náði Elísabet
Taylor þeim merka áfanga að ná
bílprófi í fyrsta sinn, og verður það að
teljast nokkuð vel af sér vikið af hinni
55 ára gömlu kvikmyndastjörnu. Til að
halda upp á þetta fór Elísabet í næstu
Ferrari-verslun, og bað um dýrasta bílinn
sem til væri í eldrauðum lit, og var það
auðsótt mál.
Eftir nokkra mánuði fékk Beta hins
vegar bakþanka, og keypti sér nýjan bíl
af nákvæmlega sömu gerð, en hvítan
að lit. Ástæðan? Hvítur bíll fer miklu
betur við kjölturakkann hennar, hann
„Scraps", sem er snjóhvítur.
Elísabet Taylor - nýi
billinn færi örugglega
vel við kjólinn hennar.