Morgunblaðið - 13.09.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1987
B 35
Ingvar Arnarson
— Kveðjuorð
ekki heldur kom öllum sonumsínum
vel til manns. Kristín og Áslaug
systur Jóhönnu hafa ekki látið sitt
eftir liggja og Margrét móðir henn-
ar í öllu til hjálpar og aðstoðar.
Hann var því síður en svo einn eða
yfirgefínn í veikindum sínum.
Síðasta myndin sem ég sá af honum
sýnir hann brosa ennþá þessu hlýja
fallega brosi, þá var hann í smá-
sundlaug við sumarbústað Jóhanns
ásamt bömunum sínum og Jó-
hanni. Honum leið alltaf svo vel í
vatninu og fór þangað hveija ein-
ustu helgi. Brosið var svo hlýtt að
það blekkti mig og ég spurði Ás-
laugu hvort honum væri nú að
batna. Rétt tveimur vikum síðar
kom lausnin.
5. september sl. var útför hans
gerð í Nicosiu og — pilturinn þama
að sunnan — er kominn heim í faðm
móðurinnar miklu — moldarinnar
þangað sem vegurinn okkar allra
liggur. Þá bið ég að jörðin taki vel
á móti þreyttu bami sínu og moldin
hvíli lauflétt á líkama hans. Allt það
sem hann var bömum sínum og
fjölskyldu hér heima geyma þau í
minni sínu. Andreas Lapas var
sannur og verðugur fulltrúi grískrar
menningar og ól böm sín upp þann-
ig að þau era sterkir stofnar.
Þar sem hér era fluttar innilegar
samúðarkveðjur til fjölskyldu hans
á íslandi er samúð mín ekki sízt
með móðurinni Maríu á Kýpur. Til
þess að hún fái að vita að drengur-
inn hennar var virtur og elskaður
á þessu landi langt í norðri.
Þegar farfuglamir fljúga yfír
Miðjarðarhafíð á leið sinni til Afríku
hvfla þeir sig gjaman á eyjum.
E.t.v. kemur einhver við á Kýpur
með kveðjuna frá íslandi svo „ ...
ívafíð rauða" — kærleikurinn tengi
þessar eyjar saman þar sem tvær
fjölskyldur áttu saman ást og von
í Andreas Lapas.
Guðríður Erna Arngrímsdóttir
Fæddur 15. maí 1970
Dáinn 6. september 1987
Mánudaginn 7. september barst
mér sú hörmulega frétt að vinur
minn og skólabróðir Ingvar Arnar-
son hefði farist í hörmulegu bílslys
að morgini síðastliðins sunnudags.
Ingvari kynntist ég fyrst í Lauga-
nesskólanum og seinna lágu leiðir
okkar á ný saman í Laugalækja-
skóla.
Ingvar var áberandi glaðlyndur
og skemmtilegur enda var hann
vinmargur. Er ég kom að utan
síðastliðið sumar eftir eins árs dvöl
sem skiptinemi í Bandaríkjunum,
hitti ég Ingvar á ný og var hann
mjög ánægður og stoltur yfír nýja
bílnum sínum og var hann þá ný-
lega búinn að taka ákvörðun um
það hvaða lífsstarf hann ætlaði að
leggja fyrir sig.
Það verður tómlegt að labba nið-
ur Laugaveginn án þess að heim-
sækja Ingvar inn í versluninni sem
móðir hans rekur og þar sem hann
starfaði oft. Erfitt er til þess að
hugsa að eiga aldrei eftir að sjá
hann keyra brosandi framhá á hvíta
bílnum sínum.
Það hefur verið höggvið stórt
skarð í vinahópinn í Laugames-
hverfínu. Þeir deyja víst ungir sem
guðirnir elska.
Ég votta fjölskyldu, ættingjum
og vinum hans mína innilegustu
samúð og vona að guð veiti þeim
styrk í þessari miklu sorg.
Margrét Þórðardóttir
Lregsteinar
MARGAR GERÐIR
Marmorex/Gmít
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 5403C,
222 Hafnarfjörður
Vegna flutninga seljum við
á spreng-hlægilegu verði t.d.:
Gólfteppi frá kr. 295.- m2 — Flísar á gólf og veggi
frá kr. 770.- m2 — Hreinlætistækjasett í litum
(baðkar, handlaug, W.C.) frá kr. 15.000.- —
Handlaugar frá kr. 1.000.- — Baðkör frá
kr. 1.500.- — Ennfremur blöndunartæki,
baðmottur, baðhengi, baðljós, o.m.fl.
Þetta stórkostlega tæklfærl
má enginn láta framhjá sér fara.
jy ÚTSÖLUMARKAÐUR
tarma
Reykjavíkurvegi 64 — S: 652285
Cjj CD
Aero. 2: Byrjendur.
Aero. 3: Framh.
Aero. 4: Púl.
Boddy Work: Ekkert hopp.
Fat burn: Stanslaust hopp.
Innrítun er hafín í síma: 39123 og 35000
Auk þess að geta mætt allt að 5 sinnum
í viku hefur þú frjálsan
aðgang að einum full —
komnasta þrektækjasal í
landinu.
iíu
A T H .
Eina stöðin á Islandi með
AEROBIC dýnu á gólfi.
Hlýfir hnjám og baki og
gerir allar æfingar mýkri.
(Engin þörf á dýrum skóm.)
KENNARARí VETUR.
Magnús Scheving. Jóna Einars.
Elísabet Sigfúsd. Fríða Halldórs.
Agúst Hallvarðs.
g
Allir kennarar okkar eru ný komnir af námskeiði hjá
Madeleine Lewis frá Los Angeles California og bjóðum
við því upp á eitt þð besta og þróaðasta í Aerobic
á Islandi.