Morgunblaðið - 20.09.1987, Side 6

Morgunblaðið - 20.09.1987, Side 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987 I Full þörf verðurfyrir allar vinnandi hendur Ungu fólki fer fækkandi, gömlu fólki fjölgandi Ef til vill spyr margur hvemig á því standi að ekki sé allt gert til þess að stuðla að því að hægt sé að koma bömum vandræðalaust í gæslu meðan að forldrar þeirra vinni hin ýmsu störf sem sinna þarf í þágu framleiðslu og samfélagslegrar skyldu. í samtölum sem blaðamaður Morgunblaðsins átti við ýmsa þá sem vinna að þessum málum kom fram sú skoðun að það væri vissu- lega mikið gert en ýmsir þættir yllu því að ástandið er eins og raun ber vitni. Þar væri fyrst til að taka að þó sumum þyki hvergi nærri nóg byggt af bamaheimilum þá er samt sem áður svo mikið byggt að ekki er nægilega margt menntað fólk til svo hægt sé að manna þessi bama- heimili með faglærðum fóstrum, það útskrifast heldur ekki nægilega margar fóstrur til þess að anna þeim störfum sem ný heimili bjóða uppá og á það jafnt við á höfuð- borgarsvæðinu og úti á landi, fjöldi bamaheimila og leikskóla á höfuð- borgarsvæðinu gerir þetta þetta mál þó erfíðara viðfangs þar. Þess ber að geta í þessu sambandi að það er að aukast að rekin séu dag- heimili og leikskólar á litlum stöðum og í minni hreppum, einnig er vert að hafa í huga að því yngri sem böm em því fleira starfsfólk þarf á deildimar, yngri böm þurfa meiri umönnun en þau sem eldri em. Hitt er svo líka að fóstmr em í meiri mæli en áður var í öðmm störfum og er það að sögn vegna þess að þar bjóðast þeim betri laun fyrir ábyrgðarminni og auðveldari störf. Laun fóstra þykja sem sagt ekki eftirsóknarverð. Öllum sem til þekkja ber saman um að starf fóstru sé erfítt og kreijandi og því fylgi mikil ábyrgð. Þeir sem mennta fóstmr hafa líka sett markið hátt og viljað að námið hjálpi fóstmm til þess að gegna með sóma þeirri uppeldisskyldu sem að hluta fellur þeim á herðar. í skýrslu sem Menntamála- ráðuneytið hefur gefíð út og unnin var af nefnd sem menntamála- ráðherra skipaði í júlí 1982 til að semja starfsáætlun um uppeldis- störf á dagvistarheimilum, kemur fram sú skoðun nefndarmanna að óstöðugleiki kjamafjöldskyldunnar sé meiri en svo að unnt sé að loka augum fyrir honum. Bent er á að hjónaskilnaðartalan vaxi hröðum skefum og bamsfæðingum utan hjónabands eða utan sambúðar for- eldra Qölgi. Einnig er bent á að á tiltölulega skömmum tíma hafí orð- ið örar og miklar breytingar á lífsháttum manna í hinum vestræna heimi sem hafí geigvænleg og af- drifarík áhrif á uppeldisaðstæður bama og bitni þessi þróun mest á ungum bömum ef ekkert sé að gert. í skýrslunni er sú niðurstaða dregin af þessu að fjöldskyldan sem griðastaður og uppeldisathvarf bama standi mjög höllum fæti. Staða fjöldskyldunnar sé mjög al- varleg og gefí fullt tilefni til aðgerða henni til styrktar og vemdar. í skýrslunni segir einnig;„ Meðal raunhæfra og viðeigandi aðgerða er ijölgun dagvistarheimila sem veita bömum markvisst uppeldi í samræmi við þroska þeirra og þarf- ir.“ Hvað snertir ófaglært fólk, sem flest er í starfsstúlknafélaginu Sókn, þá er nú þannig komið að það er líka miklum erfiðleikum bundið að fá það fólk til starfa á bamaheimilum. Laun þess þykja lág og erfítt um vik að hækka þau með eftirvinnutekjum því mjög litla eftirvinnu er að fá á bamaheimilum. Á sjúkrahúsum þar sem sóknarkon- ur eru fjölmennar í starfí, þá er hins vegar vaktavinnan sem hleypir laununum eitthvað upp og svo eru þar líka heldur meiri möguleikar á yfírvinnu heldur en á bamaheimil- unum. Þá er þess að geta að konur sem koma út á vinnumarkaðinn í dag og hafa verið heima að gæta bús og bama sækja ekki í vinnu á bamaheimilin eins og áður var. Þar kemur hvorttveggja til að þeim þykja launin of lág og svo hitt að konur em áræðnari við að afla sér starfsmenntunar en þær vom t.d. fyrir tíu áram. Það má ef til vill líkja þessari þróun við þeað ástand sem skapaðist þegar konur vildu ekki lengur vera vinnukonur og höfðu þá allt í einu aðstæður til þess að ráða sig til annarra starfa. Tímamir em með öðmm orðum breyttir. Sá gmnur er einnig áleit- inn að það þyki ekki lengur fínt að sýsla með böm. Það er ekki úr vegi að staldra hér við og virða fyrir sér þær lausn- ir sem fólk hefur fram að þessu haft í bamagæslumálum. Ef bamaheimili og leikskólar, sem rekin em af opinbemm aðilum og ýmsum fyrirtækjum og stofn- unum, em frátalin, þá snýr fólk sér að dagmæðmm sem vissulega hafa unnið mikið starf. En sá er gallinn á þeirri starfsemi að mörgum þykir hún ótrygg, Dagmæður hætta stundum snögglega störfum og þá þarf að koma baminu fyrir á nýjan leik og það er erfítt fyrir lítil böm að þurfa oft að skipta um vemstað og venjast nýju fólki. Foreldrahópar hafa tekið sig saman um að mjmda dagheimili. Slík heimili hafa gengið vel að sögn en rekstur þeirra hefur skapað mikla vinnu fyrir foreldrana og húsnæðismálin hafa oft orðið til þess að fólk hefur gefíst upp á slíkri starfsemi. Sumir ráða stúlkur heim, stund- um útlendar stúlkur. Þetta er ódýr lausn fyrir fólk sem er með mörg böm en hins vegar líka nokkuð ótrygg og oftast erfitt að fá fólk til bamagæslustarfa á heimilum. Ættingjar hlaupa stundum undir bagga með bamafólki. Þetta hefur þó orðið æ minna í sniðum eftir því sem tímar hafa liðið því flestir vinna úti og em afar og ömmur engin undantekning nú á dögum og nú er þessi lausn oftast skammgóður vermir. Nýlega hafa tekið til starfa dag-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.