Morgunblaðið - 20.09.1987, Page 8

Morgunblaðið - 20.09.1987, Page 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987 Fimmhundruð króna seðillinn. Athygli vekur stærð hans, seðillinn er tæpra 24 cm breiður og tæpir 10 cm á hæð. Myntfundur: Listamaðurinn hafnaði verðlaunum og seðlamir voru aldrei prentaðir Átti að gefa íslenskri mynt þjóðlegra svipmót TEIKNINGAR að pening-aseðl- um fyrir Landsbanka Islands sem samþykktir voru af banka- stjórninni en aldrei prentaðir fundust nýlega í kistli úr dánar- búi. Baldvin Bjömsson silfur- smiður, teiknari og málari vann tillögurnar árið 1929 fyrir sam- keppni bankans um peninga- seðla er bæm íslenskara svipmót en þeir sem þá vom í umferð. Ragnar Borg mynt- fræðingur komst á snoðir um teikningarnar eftir grúsk í safni Seðlabankans við Einholt og hafði upp á þeim með aðstoð Bjöms Th. Bjömssonar list- fræðings, sonar höfundar. „Við opnun safns Seðlabankans og Þjóðminjasafnsins við Einholt voru sýndir seðlar frá bresku seðlaprentsmiðjunni Thomas de la Rue. Seðlamir höfðu verið sendir hingað árið 1932 en aldrei settir í umferð þar sem valið var að láta aðra prentsmiðju, Bradbury Wilkinson prenta seðlana. í safn- inu heyrði ég ávæning af því að íslenskir listamenn hefðu gert til- lögur að seðlum fyrir Lands- bankann sem þá starfaði sem Seðlabanki. Enginn þekkti afdrif tillagnanna og vakti það forvitni rnína," sagði Ragnar Borg. Ragnar kvaðst hafa velt vöng- um yfír því hverjir íslenskra listamanna hefðu getað teiknað seðla fyrir bankann á þessum tíma. Nafn Baldvins Bjömssonar kom upp og leitaði Ragnar því til Bjöms Th. Bjömssonar. Bjöm mundi vel eftir því að faðir hans hefði teiknað seðlana. Eftir að Bjöm hafði farið yfír muni úr dánarbúi bróður hans komu Boðið til samkeppni. Landsbanki lalands býður til wmktppni ura varölauD fyrir bestu uppdnrtti til nýrra bankaseðla. Seðlar þeir, sem gera á. eru 5. 10. 50. 100 og 500 kr. seðlar. Æskilegt er, aö gerður sje uppdrittur að hverrl einstakri tegund og sj;u seðlaUgundirnar greinilega fribrugðnar hver annari. en þó samrcmi i gerð allra tegundanna. I*elr elnir koma U1 greina við úthlutun verðlauna. sem gert hafa uppdrsetti að tveim tegundum aö minsU kosti. Texti seðlanna verður sami og og er á sfðast útgefnum seðlum bankans, þ. «. iiidi seðilsina i bókstófum og þar íyrir neðan: „Samkvcmt ögum nr. 10, 15. apríl 1928". „Undsbanki Islands". Verðlaunin v.rða þrenn. 1600 kr.. 1000 kr. og 500 kr. verða þvi aðeins veitt, að uppdrcttirnir verði noUðir við gerð seðlanna. X*eir. sero taka vilja þátt i samkeppn inni, skulu aíhenda uppdrsetU fyrir 1. október þ. á. Skuiu uppdrsettirnir sendir bankanum og áritað: Til seðlanefnd ar. l.'ppdrzttlrnir skulu merktir og nafn hóíundar fylgja i lokuðu umslagi með sama merki á. Þeir uppdrsettlr. sen teitt verða verðlaun fyrir, verða eign bankans. Frekari upplýsingar veitir þjóðminjavörður Matthia* þórðarson Reykjavik. 23. mai 1929. LA N DS D A N KIISLANDS. Auglýsingin í Morgunblaðinu þar sem stjóm Landsbankans tilkynnti um samkeppnina. Þar segir meðal annars: „Verðlaun verða þrenn, 1500 kr., 1000 kr. og 500 kr. og verða þvi aðeins veitt að uppdrættirnir verði notaðir við gerð seðlanna." skyssur og teikningar af seðlun- um í leitimar. í maímánuði árið 1929 birti Landsbankinn auglýsingu í Morg- unblaðinu um að efnt yrði til samkeppni um peningaseðla. ís- lenskum listamönnum var gefinn kostur á þátttöku og heitið þrenn- um verðlaunum fyrir bestu tillög- umar. Fyrstu verðlaun voru 1500 krónur, önnur verðlaun 1000 krónur og þriðju 500 krónur. Fimm tillögur bárust í sam- keppnina. Þegar úrslitin voru tilkynnt kom í ljós að Baldvini höfðu verið dæmd fyrstu verð- Iaun. Bankaráðinu hafði litist einkar vel á tillögumar og ákveð- ið að samþykkja alla seðlana. Er Baldvini barst til eyma að ákveðið hefði verið að greiða hon- um einum verðlaun, en þeir sem höfnuðu í öðru og þriðja sæti myndu ekki fá neitt fyrir sinn snúð varð honum gramt í geði. Hann sendi bankaráðinu símskeyti frá Vestmannaeyjum þess efnis að hann sæi sér ekki annað fært en að hafna verðlaun- um þar hann gæti ekki fallist á meðferð keppinauta sinna. „í auglýsingunni um sam- keppnina kemur fram að bankar- áðið áskylji sér rétt til að veita einungis verðlaun fyrir þær tillög- ur sem prentað verður eftir. Því virðist sem að aldrei hafí verið ætlunin að greiða fleiri en ein verðlaun nema svo vildi til að bankaráðið ákvæði að láta prenta seðla' eftir marga höfunda. Það er þó heldur ólíkleg því heildar- svipmót seðlanna hefði þá ekki haldist," sagði Ragnar. Hann sagði að svo virtist sem að Baldvin hefði viljað sýna sam- stöðu listamanna í verki. Banda- lag íslenskra listamanna var þá nýstofnað. „Fimmtán hundruð krónur voru miklir peningar í þá daga og án efa erfitt fyrir lítt fjáð- an listamann að hafna slíkri upphæð. Listamönnum þótti þessi breytni Baldvins vera mjög til fyrirmyndar." Aðspurður hvað vekti helst at- hygli áhugamanna um myntsöfn- un við teikningamar af þessum seðlum sagði Ragnar að það væri F)æ Ímíí’wIi ' ... „ ?■ „ 013751 \m v \ ' mw r / R'v \ l J)) I HnóNtm \ ■ . /^amtnva m t ttjnnn m.W ' , "— " ts.^ut tpzr m 013751 Frumteikningar Baldvins Bjömssonar að peningaseðlum fyrir Landsbanka ísiands, sem aldrei voru gefnir út. sérstaklega 500 krónu seðilinn sem skæri sig úr. Fyrirhuguð stærð seðilsins (x x x cm) mætti teljast einstök. Þá var þessi upp- hæð óþekkt á seðli og fyrsti 500 króna seðilinn raunar ekki prent- aður fyrr en árið 1945. „Mér þykja seðlamir laglegir og hefðu áreiðanlega sómt sér vel meðal seðla frá hvaða landi sem er á sínum tíma,“ sagði Ragnar. Nöfn annarra listamanna sem þátt tóku í samkeppninni era óþekkt. Ragnar sagði að hann væri mjög áhugasamur um að heyra í þeim sem hugsanlega kynnu að geta veitt upplýsingar um aðra þátttakendur og teikn- ingar þeirra. Nánar verður fjallað um seðla Baldvins í myntþætti Morgun- blaðsins síðar í vetur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.